Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
með Björgu og fengið að vera henni
samferða öll þessi ár. Æðruleysið og
baráttuþrekið er okkur hvatning og
fyrirmynd. Björg var glæsileg kona
gædd reisn sem hún hélt allt til síð-
asta dags.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Kæri Haukur, þér, sonum ykkar
Bjargar, Rúnu og öðrum aðstand-
endum vottum við okkar dýpstu
samúð.
Fyrir hönd samstarfsfólks og
HSSA,
Ásgerður, Ester og Guðrún.
„Bognar aldrei – brotnar í
bylnum stóra seinast.“ Þessi
fleygu orð skáldsins verða mér hug-
stæð þegar vaskleg barátta Bjargar
Svavarsdóttur er á enda. Það húmar
vissulega að í hugarranni þegar hún
Björg hefur sofnað inn í hásumarið.
Það fylgdi sumarylur öllum sam-
fundum, vermandi gjöfult viðmót,
veitult hugarþel, hlýja hjartans.
Þetta voru hennar aðalsmerki. Hug-
ur leitar til horfinna stunda á heimili
þeirra Hauks frænda míns þar sem
ferðalangi var alltaf tekið opnum
örmum á flakki hans um hið víð-
feðma kjördæmi. Þar var hinn vísi
gististaður, þar var reisn og rausn í
ranni, en fyrst og síðast þessi ljúfa
elskusemi sem brá lit sínum og
ljóma á allt. Þetta allt skal þakkað á
klökkri kveðjustund. Hjá henni
Björgu áttu gleðin og alvaran sína
skíru og skæru tóna, glaður hlátur,
geislandi bros, mikil og góð mála-
fylgja, um skýrar skoðanir hennar
velktist enginn í vafa, traust var hún
í hvívetna og trúmennska einkenndi
öll verk hennar. Hún átti einkar
góða og gefandi eiginleika og ætt-
arfylgjur góðar sem reyndust henni
ágætavel á lífsins leið. Mikla og góða
þökk á hún í hjarta mínu fyrir það
hve vel hún reyndist mér í alúðar-
hlýjum viðtökum sínum alltaf og æv-
inlega, ef mig bar að hennar garði,
en vissulega sækir að söknuður yfir
að hafa ekki rækt vináttuna betur í
áranna rás. Hversu erfið var barátta
hennar um árin mörg en vondjörf
gekk hún þar á mót og hafði vissu-
lega marga verðskuldaða sigra og nú
eiga vel við orð skáldsins, sem vitnað
var til í upphafi. Sár harmur er nú
kveðinn að Hauk, mínum ágæta
frænda og sonum hans, móður henn-
ar og öðrum aðstandendum. Þeim
öllum sem áttu hana Björgu að send-
um við Hanna einlægustu samúðar-
kveðjur.
Við leiðarlok gjörir maður sér
bezt grein fyrir því hversu ofurdýr-
mæt manni eru kynni af slíkri önd-
vegiskonu sem hún Björg var. Hug-
umhlýju þakklæti mínu vafin er
hennar munabjarta minning.
Helgi Seljan.
Kæra góða vinkona.
Þín er ljúft að mega minnast
mikið gott var þér að kynnast
og gaman var að fá að finnast
og festa vináttunnar bönd
er við tókumst hönd í hönd.
(G.J.)
Nú skiljast leiðir. Ég minnist þín
með ljúfri þökk í hjarta og um leið
sárum söknuði. Við Ellert áttum
margar skemmtilegar og gefandi
stundir með ykkur Hauki og þær
geymast í minni og veita huggun á
erfiðri stundu. Þú gafst þeim sem
umgengust þig svo mikið. Þú varst
ávallt jákvæð og glöð, meira að segja
á þessum erfiðu og oft á tíðum kvala-
fullu stundum undir lokin. Þú kvart-
aðir aldrei en sást alltaf birtu og
gleði í öllu.
Elsku Björg. Ég þakka þér fyrir
kynnin og samveruna og glettna
brosið þitt mun alltaf lifa í minning-
unni.
Þegar komstu þá var hlýtt,
þau voru okkar kynni,
allt var göfugt, gott og blítt
er gafst í návist þinni,
ef að jarðlífs mæddu mein
mest var kærleiksdáðin,
skorinorð og hjartahrein
hollust gafstu ráðin.
(G.J.)
Elsku Haukur, Binni, Valdi,
Stjáni og aðrir aðstandendur. Megi
Guð styrkja ykkur.
Erna.
Fallin er frá fyrir aldur fram
hjartkær æskuvinkona okkar og
fermingarsystir, Björg Svavarsdótt-
ir. „Sá sem kveður vin sinn finnur
fyrir endanleika lífsins“ (Vigdís
Grímsdóttir, Grandavegur 7). Þessi
tilvitnun sem blasti við okkur í
Fréttablaðinu 15. ágúst öðlaðist svo
sannarlega meiningu þennan dag.
Dagurinn var hlýr, mildur og hljóður
og á einhvern hátt umvefjandi eins
og Björg var sjálf í lífi sínu og starfi
og áralangri vináttu sinni við okkur
sem aldrei bar skugga á. Við þrjár
bundumst vináttuböndum í Barna-
skólanum á Höfn og þessi vináttu-
bönd rofnuðu aldrei. Þegar við hitt-
umst gátum við alltaf tekið upp
þráðinn á ný og fundið þessar sömu
tilfinningarnar í brjóstum okkar sem
mynduðust í æsku.
Tregi og hryggð gagntaka huga
okkar á þessari stund þó að þessi
málalok komi vissulega ekki á óvart
eftir að hafa fylgst með áralangri
þrautseigju Bjargar í átökum við ill-
vígan sjúkdóm. Þar sýndi hún
dæmafáa stillingu og hugprýði. Lífs-
leikni heitir ein af nýlegri náms-
greinum grunnskólanna, sem meðal
annars felst í því að lifa til fulls á
hverri líðandi stund og temja sér já-
kvæðni og hugarró. Segja má að
Björg okkar hafi haft þessa gáfu inn-
byggða frá fyrstu tíð.
Minningarnar hrannast upp,
bernskuheimili Bjargar var fyrst í
Odda á Höfn, auk foreldra og systk-
ina bjuggu þar afi, amma, ömmu-
systir og móðurbræður. Þar var
vissulega um að ræða sannkallað
„lífsleikniheimili“ í mjög jákvæðri
merkingu þess orðs. Alltaf var tími
og rúm fyrir mannlegu þættina og
skapandi hugsun og handverk var í
hávegum haft. Fram í hugann koma
orð eins og sköpunargáfa, hógværð,
rósemi, umburðarlyndi og síðast en
ekki síst fordómaleysi. Líðandi
stund var nýtt til fulls og gestum og
gangandi gefin hlutdeild í því.
Án efa var þetta veganesti Bjarg-
ar úr foreldrahúsum mikilvægur
hornsteinn þess æðruleysis sem hún
sýndi gagnvart sjúkdómi sínum.
Björg hafði þann einstaka hæfileika
að geta endalaust gefið öðrum af sér
bæði í gleði og sorg. Ævifélaginn
Haukur Helgi Þorvaldsson stóð sem
klettur við hlið hennar í blíðu og
stríðu. Drengirnir þeirra Binni,
Valdi og Stjáni og síðar tengdadæt-
urnar og barnabörnin voru auga-
steinar Bjargar. Það var yndislegt
að heyra hana tala um þau og sjá hve
samböndin voru ræktuð af mikilli
hlýju og hjartagæsku.
Björg sinnti öllum störfum sínum
af alúð jafnt heima og að heiman.
Hún starfaði með öldruðum og sjúk-
um, við kennslu og við afgreiðslu-
störf, svo fátt eitt sé nefnt. Það var
sama hvað hún fékkst við, allt lék í
höndunum á henni. Björg naut þess
að skapa og var alltaf með eitthvað
nýtt á prjónunum, hún prjónaði,
saumaði, heklaði og föndraði af mik-
illi list og fengu vinir og vandamenn
að njóta þess í ríkum mæli.
Björg var yndisleg manneskja og
auðgaði líf samferðamanna sinna.
Við viljum þakka henni samfylgdina
að leiðarlokum, biðja góðan Guð að
leiða hana á land ljóssins og biðja um
blessun og hjálp fyrir syrgjandi ást-
vini. Megi allar góðar minningar
verða styrkur.
Margrét Sigurðardóttir
og Guðrún Eiríksdóttir.
Enn á ný erum við minnt á það
með óþyrmilegum hætti að lífið er
hverfult.
Með sorg og söknuð í hjarta
kveðjum við vinkonu okkar Björgu
er á brott var kölluð úr þessum
heimi eftir mikla baráttu við erfiðan
sjúkdóm.
Þá baráttu háði hún eins og henn-
ar var von og vísa með æðruleysi og
hetjuskap.
Elsku vinkona, við viljum þakka
þér með þessum fátæklegu orðum
fyrir alla góðu stundirnar sem við
höfum átt saman, alla hjálpsemina,
dugnaðinn og hugulsemina og mun-
um við ylja okkur við þær minningar
í framtíðinni.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Haukur, Guðrún, Binni,
Valdi, Stjáni og fjölskyldur.
Megi guð og allar góðar vættir
vera með ykkur og styrkja á þessum
erfiðu tímum
Ólöf, Jóhann og fjölskylda.
Ég er afskaplega stoltur af því að
hafa fengið að kynnast henni
Björgu, svo góðri, sterkri, glað-
beittri, djúpri og örlátri manneskju
sem barðist af hugrekki við illvígan
sjúkdóm. Í mínum huga er hún fyrst
og fremst hetja.
Björg er ekki lengur á meðal vor,
og því verðum við víst að láta okkur
nægja sögurnar hans Hauks. En
hún sáði svo jákvæðum fræjum allt
um kring að minningin um hana mun
lifa og blómstra um tíð og tíma. Ég
þekki fáa ríkari en þá sem fengu að
kynnast henni.
Það er með samhryggð og sorg
sem ég hugsa til ykkar sem elska
hana. Það er með söknuði sem ég
kveð hana. En það er með hamingju
í hjarta sem ég hugsa til þess að hún
muni aldrei nokkurn tímann gleym-
ast.
Hvíl í friði, elsku Björg mín. Hvíl í
friði.
Þinn,
Ýmir.
Elsku Björg mín. Nú ertu farin
frá okkur alltof snemma eftir hetju-
lega baráttu.
Okkar kynni hófust fyrir 5 árum
er við urðum herbergisfélagar á Sól-
heimum í orlofsviku í boði Bergmáls.
Kolbrún formaður Bergmáls vissi
hvað hún var að gera þegar hún
valdi þig fyrir herbergisfélaga minn
og var það mikil gæfa fyrir mig. Þú
varst alltaf svo blíð og góð, róleg og
yfirveguð og góður hlustandi og gat
ég talað við þig um allt sem mér lá á
hjarta. Hjá Bergmáli kynntumst við
góðu fólki sem við höldum vinskap
við enn þann dag í dag og er þar
Bergmál sameiningartákn okkar.
Svo þegar þið Haukur fóruð að koma
við hjá okkur á leið austur eða suður
og við Eggert að heimsækja ykkur á
Hornafjörð þá styrktust vináttu- og
fjölskylduböndin enn meira er við
kynntumst strákunum ykkar og
barnabörnunum sem þú varst svo
stolt af. Mikið var gott að koma til
ykkar á hlýlegt heimilið, spjalla um
tónlist og önnur hugðarefni og
þiggja veitingar og þar stendur upp-
úr humarsúpan góða. Þú varst mikil
handavinnukona og dáðist ég að því
sem þú prjónaðir á þig og barna-
börnin og eins naut ég góðs af því.
Elsku Björg mín, þú hafðir svo
mikið að lifa fyrir og mikið að gefa.
Frábær manneskja og vinur sem er
sárt saknað.
Elsku Haukur, Binni, Valdi,
Stjáni og fjölskyldur, guð geymi
ykkur og styrki í sorg ykkar.
Lilja Guðmundsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
JÓHANNS INGIMUNDARSONAR,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalar-
heimilis aldraðra í Borgarnesi.
Geirlaug Jóhannsdóttir, Stefán Sveinbjörnsson,
Þórður Jóhannsson, Aline N. Vigneron
og barnabörn.
Ragnheiður Egils-
dóttir er öll. Í lok síð-
ustu viku barst okkur,
fyrrum starfsfélögum
hennar, sú þungbæra
frétt, að hún hefði and-
ast á heimili sínu að kveldi þess 13.
ágúst sl. eftir stutta en erfiða sjúkra-
legu.
Ragnheiður réðst til Krabba-
meinslækningadeildar Landspítal-
ans, sem móttökustjóri í september
1985 og sinnti hún því vandasama
verkefni að taka á móti sjúklingum
deildarinnar og aðstandendum þeirra
af alúð, en frá maí 1986 til október
1994 starfaði hún sem læknaritari á
Krabbameinslækningadeild.
Á þessum árum urðu miklar breyt-
ingar á starfsháttum og öllu umfangi
krabbameinslækninga á Landspítal-
anum, er leiddi til þess að deildin varð
á fáum árum ein af stærri starfsein-
ingum sjúkrahússins með umfangs-
mikilli göngudeildarþjónustu, þar
sem sinnt var geisla- og lyfjameðferð
krabbameinssjúkra ásamt eftirliti
þeirra, sem meðferð höfðu fengið,
stutt af legudeild fyrir þá sem veik-
astir voru. Kröfðust breytingarnar
stöðugt aukins rýmis, er leiddi m.a. til
byggingar K-byggingar Landspítal-
ans, sem tekin var í notkun að hluta
til 1989.
Á slíkum uppbyggingar- og um-
brotatímum var þörf fyrir kröftugan,
áhugasaman og samhentan hóp
starfsmanna, er tryggt gat, þrátt fyr-
ir stöðugar breytingar á verklagi, að
ekkert færi úrskeiðis, er sneri að vel-
ferð og öryggi sjúklinganna. Reyndi
þá mikið á allt starfsfólk deildarinnar
og þá ekki síst læknaritarana, er
héldu utan um og flokkuðu allar þær
upplýsingar, sem sneru að deildar-
starfinu og sjúklingum deildarinnar.
Sinntu þær frábæru starfi, oft við
erfiðar aðstæður, m.a. vegna vaxandi
verkefna og mannfæðar. Var Ragn-
Ragnheiður Egilsdóttir
✝ Ragnheiður Egils-dóttir fæddist í
Reykjavík 20. júlí
1946. Hún lést á heim-
ili sínu 12. ágúst síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Dómkirkjunni 21.
ágúst.
heiður þar í fylkingar-
brjósti. Var hún af-
burðastarfskraftur,
gekk til allra verka af
dugnaði og man ég
aldrei til þess að kvart-
að hafi verið þrátt fyrir
að vinnudagur hafi
verið langur og álag
mikið. Átti hún létt
með að aðlagast nýjum
verkþáttum er fylgdu
auknum verkefnum,
enda ein þeirra sem
unnu af áhuga að þró-
un þeirra.
Var hér í reynd um frumkvöðla-
störf að ræða, sem seint verða þökk-
uð.
Ragnheiður var félagslynd, gladd-
ist með glöðum og leið okkur öllum
vel í návist hennar.
Haustið 1994 fluttist hún með fjöl-
skyldu sinni austur á Breiðdalsvík á
vit auðnu og ævintýra, fékk þá árs-
leyfi frá störfum, en ekki varð af end-
urkomu á deildina þótt hugur hennar
hefði á tímabili staðið til þess.
Góðs starfsfélaga er sárt saknað.
Lárusi, eiginmanni hennar, sonum
þeirra, Erni bróður hennar og fjöl-
skyldum þeirra sendum við samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Fyrir hönd fyrrverandi starfs-
félaga,
Þórarinn E. Sveinsson,
yfirlæknir geislameðferðar
krabbameina.
Það vita fáir, vinur minn,
hve vel þú afbarst sjúkdóm þinn.
Þú lést sem allt þér líki í hag,
þú lifðir sérhvern glaðan dag.
Þann elskar Guð, sem ungur deyr,
og andar Drottins mildi þeyr.
Sem vanga hans og vermir hlýtt,
uns vaknar aftur lífið nýtt.
Það huggun er og harmabót,
að hvert sem liggja vegamót,
við sjáumst aftur seinna þar,
í sæluríki unaðar.
(Aðalst. Aðalst.)
Guðlaug Dolla
Pétursdóttir og börn.
Kveðja frá
Austfjarða-
prófastsdæmi
Sólarylur umfaðmar
minningu um góðan,
grandvaran og dyggan liðsmann
kirkju og samfélags á Djúpavogi.
Þegar upp er staðið er það mann-
eskjan og það sem frá hjartanu
streymir af kærleika og umhyggju
fyrir samferðafólki. Fyrir því var
ríkulega fundið í fari og störfum vin-
ar. Um langt árabil var hann í hér-
Elís Þórarinsson
✝ Elís Þórarinssonfæddist á Star-
mýri 7. desember
1915. Hann lést á
sjúkrahúsinu á Egils-
stöðum 12. ágúst sl.
og fór útför hans
fram frá Djúpavogs-
kirkju 19. ágúst.
aðsnefnd prófasts-
dæmisins og fulltrúi á
héraðsfundum. Stólpi í
heimabyggð, organisti
og öflugur liðsmaður í
kirkjustarfi. Öllum
störfum sinnt af ein-
drægni og trú-
mennsku. Þar fór
sannarlega maður sem
naut virðingar og
trausts. Samfundir
innihaldsríkir. Brosið
breiða og hlýja
greyptist í huga og
hjarta. Að fá að eiga
samleið með slíkum manni eru for-
réttindi og gerir mikilvægt starf
kirkjunnar léttara og gleðiríkara.
Guði þökkum við góðan dreng,
óeigingjarnt framlag og þá hug-
þekku minningu sem hann skilur eft-
ir.
Davíð Baldursson prófastur.