Morgunblaðið - 22.08.2009, Page 45
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„MINNIR þetta ekki á frumöskr-
ið?“segir Orri Huginn Ágústsson
leikari, skipuleggjandi listahátíðar
Eddu Heiðrúnar Backman á Óð-
instorgi á Menningarnótt í dag.
Nafnið á hátíðinni, sem Orri vísar
í hér að ofan, er sérstaklega líflegt
og gáskafullt: Gleðiorg við Óð-
instorg. „Gleðiorg“ minnir vissu-
lega á frumöskrið, það má alltént
fullyrða að það verði organdi gleði
á Óðinstorgi þegar hátíðin verður
sett kl. 14.
Glasamottur og vatnsflöskur
„Við höldum hátíðina í nafni
söfnunar Eddu Heiðrúnar, Á rás
fyrir Grensás, og allir sem þarna
koma fram gefa sína vinnu til
styrktar söfnuninni og gestir og
gangandi geta lagt málefninu lið.
Við verðum með söfnun í tjaldi, en
seljum líka glasamottur og vatns-
flöskur.“
Fleiri leggja gleðiorginu lið, því
samtök blómabænda og nemendur
Landbúnaðarháskólans ætla að
kenna fólki að hnýta blómakransa.
„Það geta allir lært að gera þetta
og fólk getur í staðinn lagt smá-
aura í söfnunina,“ segir Orri.
Norræna félagið og Brauðbær
sem bæði eiga heima við Óð-
instorg eru samstarfsaðilar Gleði-
orgsins og leggja fram vinnu. Í
húsi Norræna félagsins verður
föndurhorn fyrir krakka og
Brauðbær verður með veit-
ingatjald þar sem veitingar verða
seldar við vægu verði.
Gleðiorgið ómar um Óðinstorgið
allt til kl. 22 í kvöld og dagskráin
viðamikil.
„Þetta eru frábærir listamenn
úr ýmsum geirum. Hilmar Örn
Hilmarsson setur dagskrána og
spilar músík með Steindóri And-
ersen kvæðamanni og Páli á
Húsafelli sem kemur með steina-
hörpuna sína. Rithöfundarnir Ein-
ar Kárason og Þórarinn Eldjárn
lesa og Fúlar á móti skemmta.“
Tónlistarmenn úr röðum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands leika,
sömuleiðis liðsmenn Félags
harmónikkuunnenda og djasstríó
Reynis Sigurðssonar, Ragnheiður
Gröndal og Guðmundur Pét-
ursson, Óskar Guðjónsson, KK,
Mammút, Lay Low og fleiri. Trúð-
arnir Barbara og Úlfar koma líka
í heimsókn.
„Það má líka nefna það að fyrr
um daginn hleypur hópur fólks í
maraþoninu og safnar með því
áheitum fyrir söfnun Eddu, þar á
meðal hópur starfsmanna á Grens-
ásdeildinni.“
Gleðiorg við Óðinstorg
Lífleg dagskrá við Óðinstorg til styrktar Á rás fyrir Grensás
Stórhuga Edda Heiðrún Backman.
Edda Heiðrún Backman setti af
stað söfnunarátakið Á rás fyrir
Grensás til að bæta aðstöðu
Grensásdeildar Landspítalans.
Að baki söfnuninni standa
góðgerðarsamtökin Hollvinir
Grensáss. Markmið átaksins er
að safna 500 milljónum króna
til að auka og bæta aðstöðu
deildarinnar með endurbótum á
húsnæði, tækjakosti og lóð.
Á rás fyrir Grensás
Menning 45FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
Litla Jólabúðin
Íslenskt
handverk
Laugavegi 8
Sími 552 2412
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið
hefur verið duglegt að senda
frá sér bækur í ágústmánuði.
Út eru komnar í kilju sög-
urnar Rán eftir Álfrúnu Gunn-
laugsdóttur og Undir kal-
stjörnu eftir Sigurð A.
Magnússon. Í Undir kal-
stjörnu er sögð átakanleg saga
drengs sem elst upp í Reykja-
vík á kreppuárunum upp úr
1930. Bókin var fyrsta bindið í sjálfsævisögulegu
verki Sigurðar og vakti mikla athygli þegar hún
kom fyrst út árið 1979.
Einnig eru komnar út í kilju spennusagan Kín-
verjinn eftir Henning Mankell og sígilda sagan
Frankenstein í þýðingu Böðvars Guðmundssonar.
Bókmenntir
Rán og Undir
kalstjörnu í kilju
Undir kalstjörnu.
Í DAG verður opnuð í Gallerí
Ágústi sýningin Haustsýning í
tilefni af því að nú er að hefjast
þriðja starfsár gallerísins.
Fimm listamenn taka þátt í
sýningunni. Á henni eru glæný
verk sem unnin eru í ýmsa
miðla svo sem ljósmyndir og
veggverk, málverk á striga, ál
og viðarplötur.
Listamennirnir fimm eru:
Guðrún Kristjánsdóttir, Hiroyuki Nakamura,
Katrín Elvarsdóttir, Marta María Jónsdóttir og
Steingrímur Eyfjörð. Listamannahópurinn er
fjölbreyttur og verkin sýna vel þá breidd og fersk-
leika sem einkennt hefur dagská gallerísins. Nán-
ar á: www.galleriagust.is.
Myndlist
Fimm listamenn
á haustsýningu
Katrín Elvarsdóttir
TVÆR sýningar verða opn-
aðar í Galleríi Fold í dag kl. 13.
Í forsalnum opnar Haraldur
Bilson sýningu á verkum sín-
um. Haraldur fæddist í
Reykjavík en fluttist til Bret-
lands á unga aldri. Hann hefur
sýnt víða um heim og má með
sanni segja hann alþjóðlegan
listmálara sem leggur þó alltaf
mikið upp úr íslenskum upp-
runa sínum.
Í hliðarsalnum opnar Erlingur Jón Valgarðsson
(Elli) sýningu á málverkum. Á þessari sýningu
hefur Elli lagt náttúruna til hliðar og verur sem
hann kýs að kalla hugverur fylla nú strigann.
Sýningarnar standa til 6. september.
Myndlist
Haraldur Bilson og
hugverur Erlings
Harry Bilson
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ opn-
ar hús sín á Menningarnótt á milli
kl. 14 og 18 í dag og býður gestum og
gangandi að kynna sér starfsemina.
Áhersla verður lögð á menningar-
og Evrópukynningu, boðið upp á
beint samband við starfsfólk sendi-
ráðs Íslands í Brussel, og sérstök
kynning verður á samstarfi ráðu-
neytisins við íslenskt menningarlíf í
hönnun, myndlist og tónlist. Auður
Edda Jökulsdóttir sendifulltrúi hef-
ur umsjón með dagskránni.
„Eins og á Menningarnótt í fyrra
verðum við með góða blöndu af
fræðslu og menningu.“
Sýning sem lifir út árið
Sýning á samtímamyndlist er einn
af stóru viðburðunum í utanrík-
isráðuneytinu, hún er unnin í sam-
starfi við Listasafn Íslands og Kynn-
ingarmiðstöð íslenskrar myndlistar
og stendur í ár. Hún verður opnuð
kl. 14.30. „Þema sýningarinnar í ár
er bókin „Icelandic Arts Today“,
sem kom út nýlega. Við kynnum á
þriðja tug listamanna úr bókinni, á
íslensku og ensku. Við fengum fag-
menn til að velja bæði þemað og
verkin, og það er ný aðferðafræði og
skemmtileg nýbreytni fyrir okkur í
ráðurneytinu. Verkin eru fjölbreytt,
vekja okkur til umhugsunar og eru
sum mjög krefjandi. Það koma
margir erlendir sendierindrekar í
húsið á ári hverju og sjá þá að hér
hefur verið byggt upp hátæknivætt
menningarsamfélag.“
Utanríkisþjónustan og sendiráðin
styðja markvisst við bakið á kynn-
ingu íslenskrar menningar erlendis,
í samstarfi við Kynningarmiðstöð ís-
lenskrar myndlistar, Útflutnings-
skrifstofu tónlistarinnar, ÚTÓN, og
Hönnunarmiðstöð Íslands. „Hönn-
unarmiðstöðin verður með klukku-
tíma kynningu þar sem nokkrir
hönnuðir kynna þau verk sín sem
þeir flytja út. Hönnunarteymið
Borðið kemur með leirpottinn sinn,
Hörður Lárusson með fánabókina,
hönnuðir Kronkron koma með skó
og Guðbjörg í Aurum með skart.“
Elísabet V. Ingvarsdóttir hönn-
unarsagnfræðingur kynnir íslenska
hönnun í ráðuneytinu, en hún var
sýningarstjóri sýningarinnar Ís-
lensk hönnun 2009 á Kjarvalsstöðum
í sumar, með íslenskri hönnun og
arkitektúr. „Sú sýning er unnin í
samstarfi við okkur og mun ferðast
um heiminn á næstu árum. Sendi-
ráðin taka þátt í samstarfinu við
Hönnunarmiðstöðina og þeirra út-
rás. Við viljum koma sýningunni að í
hönnunarsöfnum og -galleríum og
vinna með fagfólki á hverjum stað.“
Lay Low spilar í ráðuneytinu
Anna Hildur Hildibrandsdóttir í
ÚTÓN verður líka í utanríkisráðu-
neytinu í dag og kynnir samstarfs-
verkni tónlistarinnar við ráðuneytið.
„Við styðjum t.d. verkefnið Norðrið
sem hófst í Þýskalandi í fyrra, en
með því viljum við koma því unga
listafólki á framfæri, sem er komið
með tána inn á Þýskalandsmarkað.
Lay Low, sem hóf verkefnið í fyrra,
kemur og spilar hér kl. 17 í dag.“
Stórhuga útrás í listum
Utanríkisráðuneytið býður til veglegrar dagskrár á Menningarnótt og kynnir
samstarf sitt við kynningarmiðstöðvar myndlistar, hönnunar og tónlistar
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Undirbúningur Auður Edda Jökulsdóttir í utanríkisráðuneytinu fylgdist
með þegar verið var að hengja upp sýninguna sem opnuð verður kl. 14.30.
MENNINGARNÓTT, hver við-
burðurinn rekur annan út um allan
bæ og glórulaust að ætla sér að upp-
lifa allt. Kannski að þessi tillaga geti
vísað einhverjum veginn.
Kron á Laugaveginum verður
upphafsstaður að morgni, því þar er
forvitnileg ljósmyndasýning með
myndum af þeirri Reykjavík sem fá-
ir sjá, bakgörðum og skúmaskotum.
Á Laugavegi 13 er kjörið að
staldra við hjá Umboðsmanni barna,
og sjá teikningar barna á sýningunni
Hvernig er að vera barn á Íslandi?
Í matarboði með Jörundi
Í Þjóðmenningarhúsinu væri
gaman að snæða hádegismat af mat-
seðlinum úr veislunni sem Magnús
Stephensen hélt Jörundi hunda-
dagakonungi fyrir 200 árum.
Þaðan liggur leið niður að útitafli í
Lækjargötu, þar sem framhalds-
skólanemar verða með skemmtun
með alls konar atriðum, myndlist,
tónlist, dansi og fleiru. Það er upp-
byggilegt að fylgjast með því sem
unga fólkið er að fást við.
Blómaskreytingarnar á Óðins-
torgi hefjast kl. 14 og þar ætla ég að
læra að hnýta krans, engin spurn-
ing. Þar verða örugglega líka
skemmtileg tónlistaratriði.
Til að svala sköpunarþörfinni enn
frekar langar mig í Borgarbókasafn-
ið milli 14 og 16, því þar verður hægt
að föndra eitthvað skemmtilegt úr
gömlum bókum og blöðum.
Þá passar að mæta við Hafnar-
húsið kl. 17 og sjá hvers konar heim
Óskar Ericsson ætlar að skapa úr
helíumi.
Kvöldið fer í stefnulaust rölt um
bæinn – hitta fólk, en það passar, áð-
ur en flugeldasýningin hefst, að ná
dagskrá í Þjóðmenningarhúsinu kl.
21 eða 22 þar sem dagskrá um Jör-
und hundadagakonung verður flutt í
tali og tónum. begga@mbl.is
Gleðinótt um
bjartan dag
Liðsmenn Jörundar Hjörleifur Vals-
son og Baldur Trausti Hreinsson.
Utanríkisráðuneytið býður gest-
um Menningarnætur að taka þátt
í fjarfundi með fastanefnd Ís-
lands gagnvart ESB í Brussel í
Sveinsstofu utanríkisráðuneyt-
isins.
Þar er komið tækifærið til að
spyrja fastanefndina spjörunum
úr um allt sem viðkemur ESB og
samskiptunum við Ísland, til
dæmis um viðhorfið til Íslands í
Brussel þessa dagana.
„Brussel verður í beinum
tengslum við okkur og samræð-
um á stórum skjá og verður von-
andi mjög fjörugt samtal í gangi
og líflegar umræður. Við teflum
líka fram okkar fólki hér heima
sem hefur starfað í Brussel til
þess að taka við spurningum.“
Beina línan til Brussel
Myndin ætti að vera
skylduáhorf banka-
starfsmönnum, ég mæli með
að ríkisstjórnin sendi nokkra
rútufarma í bíó til að sýna
þjónustufulltrúum 48
»