Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 50

Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 Á ferðum mínum um landið síð-aðasta árið eða svo hef égítrekað heyrt af hópi sem á víst að eiga sér aðsetur í miðborg- inni. Þessi hópur virðist þó aðeins vera til í samtölum og af einhverjum ástæðum lifir hann betra lífi utan þeirra landamæra sem hann á að þrífast á, eða í 101 Reykjavík. Iðu- lega er þessi hópur nefndur 101- elítan, 101-menningarvitar eða því miður fallega nafni 101-rottur.    Eftir því sem mér skilst er þettagrafalvarlegt fólk sem tekur sig afskaplega hátíðlega. Því finnst fátt áhugavert sem gerist fyrir utan þröng landamæri 101 Reykjavík og kýs að eyða dögunum á kaffihúsum og kvöldunum í að „ráfa á milli öld- urhúsa kófdrukknir að hlusta á inn- flutta fjöldaframleidda menningu af geisladiskum“ eins og maður er vinnur við stóriðju á Austurlandi orðaði það í tölvupósti til mín. Allir virðast þeir annaðhvort klæðast hvers kyns lopafatnaði eða litríkum fötum úr Nakta apanum. Skarinn drekkur grænt te, er með helgiskrín tileinkað Sigur Rós í kjallaranum heima og þess fullvisst að landi og þjóð yrði borgið ef Björk yrði for- sætisráðherra. Allur hópurinn hopp- ar svo á skoðanir hennar hvað land- vernd varðar – eins og hann gerir reyndar með allar skoðanir sem eru í tísku hverju sinni. Þessi hópur hef- ur auðvitað aldrei búið í sveit og því fáránlegt að hann sé yfirhöfuð að tjá sig um landsbyggðina eða náttúru landsins ef hann hefur bara komist í kynni við hana á göngu í gegnum Hljómskálagarðinn! Það eitt að búa í 101 virðist vera nóg til þess að falla undir þessar lýs- ingar.    Ég bý á Vesturvallagötunni. Ná-grannar mínir eru fjöl- skyldufólk með gæludýr. Um daginn björguðum við ketti niður úr tré. Í fyrrakvöld sátum við í garðinum og spiluðum öll saman. Stundum fer ég út í Vesturbæjarskóla og spila fót- bolta við strákinn minn. Hann hefur líka gaman af því að kíkja á lista- söfn, í bíó eða á bókasafnið. Skemmtilegast þykir honum þó að hoppa í rúminu okkar eða leika við litlu systur. Þegar ég fer á lífið rekst ég á alls kyns fólk. Íþróttafólk, listafólk, kokka, bankastarfsmenn, háskóla- og menntaskólanema, stjórnmála- menn, afgreiðslufólk í verslunum og leikskólakennara. Hér og þar eru lit- ríkar týpur sem kunna ekkert annað en að vera eins og þær eru. Ég kippi mér ekki upp við þær, leyfi þeim bara að vera eins og þær eru án þess að velta því fyrir mér hvað þær hugsi eða í hvaða póstfangi heimili þeirra sé. Það er engin 101-elíta. Það er bara elsti hluti bæjarins og það svæði sem hýsir flesta staði til menn- ingar- og ómenningarlegs athæfis í Reykjavík á ferkílómetra. Varla yrði mikil mæting á Menningarnótt ef hún færi fram í Grafarvogi? biggi@mbl.is Hin eitursvala 101-menningarelíta! AF LISTUM Birgir Örn Steinarsson » Skarinn drekkurgrænt te […] og er þess fullviss að landi og þjóð yrði borgið ef Björk yrði forsætisráðherra. Morgunblaðið/ÞÖK Menningarelítan að störfum Elítan gefur formanni sínum (úr mynd) lófaklapp eftir að það var samþykkt á stjórn- arfundi að Buffalóskór væru núna aftur svalir og að tími Sálarinnar í þjóðarnáðinni væri senn á enda. BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON Harðsvíraðir glæpamenn nota sér neyð fólks og örvæntingu til að komast yfir landamærin til Bandaríkjanna. 35.000 manns í aðsókn! HHH „...Tilfinningum hlaðin, hreinskilin mynd um misjöfn örlög mannanna...” - S.V., MBL HHHH - Heimir og Gulli / Bítið á Bylgjunni HHHH - S.V., MBL HHHH - V.J.V., FBL HHHH -Þ.Þ., DV HHHH - Ó.H.T., Rás 2 Frá Tony Scott, leikstjóra Deja Vu og Man on Fire kemur magnaður spennutryllir. Denzel Washington upplifir sína verstu martröð þegar hann þarf að takast á við John Travolta höfuðpaur glæpamannanna. Stórbrotin mynd um óvenjulega sögu! Einstök kvikmyndaperla sem engin má missa af! Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBOGANU M 750kr. SÝND Í REGNBOGANUM TILBOÐSVERÐ 550 KR Á SÝNINGAR MERKTA R RAUÐU SÝND Í SMÁRABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ OG REGNBOGANUM The Taking of Pelham 123 kl. 8 - 10 B.i.16 ára G.I. Joe: The Rise of Cobra kl. 3 - 5:45 - 8 - 10:10 B.i.12 ára Karlar sem hata konur kl. 5:20 B.i.16 ára The Time Traveler´s Wife kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Stelpurnar okkar kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ G.I. Joe: The Rise of Cobra kl. 6:30 - 9 B.i.12 ára Funny Games kl. 10 B.i.18 ára Karlar sem hata konur kl. 3 - 6 - 9 B.i.16 ára My Sister´s keeper kl. 3 B.i.12 ára The Time Traveler´s Wife kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 750kr. B.i.12 ára Crossing Over kl. 5:30 750kr. B.i.16 ára Taking of Pelham 123 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 750kr. B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 4 - 7 - 10 750kr. B.i.16 ára My Sister‘s Keeper kl. 8 - 10:20 750kr. B.i.12 ára Ice Age 3 kl. 3 750kr. LEYFÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.