Morgunblaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009
BÓNORÐIÐ
THE PROPOSAL
FRÁSAM RAIMI
LEIKSTJÓRA EVIL DEAD OG SPIDER MAN
ENTERTAINMENT WEEKLY - 100/100
LOS ANGELES TIMES - 100/100
WALL STREET JOURNAL - 100/100
WASHINGTON POST - 100/100
FILM THREAT - 100/100
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA
H
- E
H
- ROGSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HHHH
– IN TOUCH
HHH
„HITTIR Í MARK.“
-S.V. MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
PETER JACKSON
KEMUR EIN BESTA MYND
ÞESSA ÁRS!
HHHHH
„DISTRICT 9 IS A TERRIFIC ACTION THRILLER,
IT’S A BLAST. . . .“
LOS ANGELES TIMES
HHHHH
WASHINGTON POST
HHHHH
„A GENUINELY ORIGINAL SCIENCE FICTION FILM
THAT GRABS YOU IMMEDIATELY, NOT LETTING
GO UNTIL THE FINAL SHOT.“
THE HOLLYWOOD REPORTER
HHHHH
SAN FRANCISCO CHRONICLE
HHHHH
„MADLY ORIGINAL, CHEEKILY POLITICAL,
ALTOGETHER EXCITING DISTRICT 9.“
ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHH
“IT’S A GENUINELY EXCITING AND
SURPRISINGLY AFFECTING THRILLER.”
EMPIRE
HHHH
„EIN AF BESTU MYNDUM SEM
ÉG HEF SÉÐ Á ÞESSU ÁRI.“
„ÞRÆLSKEMMTILEG...
SVARTUR HÚMOR...
OG STANSLAUS SPENNA.“
T.V - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
“DISTRICT 9 ER EIN AF ÞESSUM MYNDUM
SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ.”
“KEMST Á BLAÐ MEÐ ALLRA SKEMMTILEGUST
VÍSINDASKÁLDSÖGUM Á HVÍTA
TJALDINU FRÁ UPPHAFI.”
BIO.BLOG.IS
/ KRINGLUNNI
DISTRICT9 kl. 8:20 - 10:40 16 UP m. ensku tali kl. 6:153D L
FINALDESTINATION4 kl. 8:303D- 10:303D 16 DIGITAL UPP (UP)m. ísl. tali kl.1:503D-43D-6:153D L
BANDSLAM kl. 4 L UPP (UP)m. ísl. tali kl.1:50-4 L
REYKJAVÍKWHALE.. kl. 6:15 - 8:30 - 10:30 16 G - FORCE m.ísl. tali kl.1:503D L
/ ÁLFABAKKA
DISTRICT 9 kl. 5:50 - 8 - 10:30 16 BANDSLAM kl. 1:15 -3:30 -5:45 -8 - 10:20 L
DISTRICT 9 kl. 1:15 -3:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 8 - 10:20 L
REYKJAVÍK WHALE WAT.. kl. 8:30 - 10:30 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L
DRAG ME TO HELL kl. 10:30 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L
THE PROPOSAL kl. 8 L G-FORCE m. ísl. tali kl. 2 - 4 L
THE PROPOSAL kl. 5:50 LÚXUS VIP HARRY POTTER 6 kl. 2 - 5 10
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
LOURDES er lítill bær viðrætur Pýreneafjalla, ann-ar stærsti ferðamanna-staður Frakklands (á eft-
ir París). Þangað flykkjast
pílagrímar á hverju ári í von um
kraftaverk. Christina, söguhetjan í
nýjustu mynd Jessicu Hausner,
þjáist af MS á háu stigi og er bund-
in við hjólastól. Hún er einangruð
og félagslega heft vegna fötlunar
sinnar og kemur til Lourdes í
skipulagðri ferð með sjúkum, meira
í örvæntingarfullri leit að fé-
lagsskap og tilbreytingu en af trú-
rækni og mikilli von um lækningu.
Sögur herma að María mey hafi
birst fólki á þessum slóðum og er
hún staðardýrlingur en Christina
og áhorfendur komast að raun um
að starfsemin í Lourdes er iðnaði
líkust þar sem sjúkir eru meðhöndl-
aðir eins og fiskur á færibandi.
Myndin gagnrýnir þessa vélrænu
og innantómu tálsýn án þess að
vega beint að kristinni trú og sýnir
á sama tíma mikla samúð með hin-
um örvæntingarfullu og aumu.
Sex milljónir manna koma til Lo-
urdes ár hvert í von um kraftaverk
en rómversk-kaþólska kirkjan hef-
ur hingað til aðeins viðurkennt 67
kraftaverkalækningar. Heilagt vatn
staðarins sem ausið er yfir gestina
og þeir teyga af áfergju er sagt
hafa lækningarmátt en efasemd-
araddir hafa alltaf verið háværar.
Þrátt fyrir að sagan sé gagnrýnin
afskrifar hún ekki möguleikann á
kraftaverkum og Christina virðist
ætla að njóta blessunar en ef til vill
er mesta happ hennar fólgið í vin-
áttu og mannlegri hlýju sem fer að
mestu framhjá henni. Mann-
mergðin í Lourdes er fremur sorg-
leg, starfsfólkið er skeytingarlaust
og vélrænt í samskiptum sínum við
skjólstæðingana og aðkomufólkið er
of örvæntingarfullt til að geta notið
félagsskapar hvað annars. Það er
öfundsjúkt, rætið og vantrúað á
kraftaverk annarra en rígheldur
samt í tálsýnina um eigin bata.
Christina reynir að vingast við alla
en sér ekki göfuglyndi og kærleik-
inn sem herbergisfélagi hennar gef-
ur henni. Vel skrifað aðalhlutverkið
ber myndina uppi en klaufaleg fé-
lagsfærni Christinu og einlæg þrá
hennar eftir félagsskap annarra er
oft á tíðum hjartnæm.
Boðskapur myndarinnar virðist
vera sá að kærleikur og óeigingjörn
trú leiða til sáluhjálpar og ham-
ingju en þessir eiginleikar búa
innra með hverju mannsbarni frem-
ur en í tilbúnum ytri heilagleik.
Myndin er hæg en áhugaverð. Hún
vakti lukku í Feneyjum fyrir
skemmstu og var meðal annars val-
in besta mynd hátíðarinnar þar af
alþjóðlegum samtökum kvikmynda-
gagnrýnenda.
Kraftaverkasaga
Háskólabíó, RIFF 2009
Lourdesbbbm
Sýnd í Háskólabíói
19., 21. og 23. sept.
Leikstjórn og handrit: Jessica Hausner.
Aðalhlutverk: Sylvie Testud, Léa Seydo-
ux, Bruno Todeschini, Elina Löwensohn.
96 mín. Austurríki/Frakkland/
Þýskaland, 2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYND
Kenjótt ...sjúkir eru meðhöndlaðir eins og fiskur á færibandi.
OFURFYRIRSÆTAN Gisele
Bündchen gengur með strák undir
belti. Er það fyrsta afkvæmi Bünd-
chen og eig-
inmanns hennar,
Tom Brady, sam-
an og er von á því
í heiminn í desem-
ber. Heyrst hefur
að strákurinn fái
nafnið Gabriel.
„Ein af fimm
systrum Gisele
heitir Gabriela og
henni hefur alltaf
fundist það mjög
fallegt nafn. Gisele var líka alin upp í
kaþólskri trú og Gabriel er erkiengill,
sendiboði guðs, í Nýja testamentinu.
Hún er einnig mikil vinkona bras-
ilíska tónlistarmannsins Gabriels Gu-
erra. Þau hittust í Rio de Janeiro í
fyrra og hann samdi lagið „Tribute to
Gisele“ fyrir hana,“ segir vinur pars-
ins. Bündchen og Brady eru mjög
spennt fyrir væntanlegri viðbót við
fjölskylduna og tala víst ekki um ann-
að. „Þeim er alveg sama hvort þau fá
strák eða stelpu á meðan barnið er
heilbrigt. En núna veit Gisele að
þetta er strákur og hún er svo spennt
yfir því að hún segir öllum frá.“
Ofurfyrir-
sæta gengur
með strák
Bundchen Ólétt
á tískupallinum.
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK