Morgunblaðið - 24.09.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009
SÉST hefur til dílaskarfa á Reykjavíkurtjörn að
undanförnu. Að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar
fuglafræðings er skarfurinn sjaldséður gestur á
Tjörninni sjálfri, algengara er að hann fljúgi þar
yfir. Fuglinn er ekki mikið gefinn fyrir nærveru
við mannfólkið en hefur þó vanið komur sínar á
Lækinn í Hafnarfirði í seinni tíð, og víðar á höf-
uðborgarsvæðinu. Hér sést ekki betur en að ein
gæsin á Tjörninni sé ósátt við þennan nýja gest.
Morgunblaðið/Ómar
SJALDSÉÐUR GESTUR Á REYKJAVÍKURTJÖRN
„VIÐ hörmum að
menntamála-
ráðherra skuli
hafa tekið þá
ákvörðun að
greiða ekki með
þeim grunn-
skólanemendum
sem vilja stunda
fjarnám á fram-
haldsskólastigi,“
segir Marta Guð-
jónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í menntaráði Reykjavík-
urborgar.
Fulltrúi frá menntamálaráðu-
neytinu kom á fund menntaráðs í
gær og greindi frá ákvörðun ráð-
herra, að sögn Mörtu.
„Okkur var greint frá því að það
yrði 100% skerðing. Menntaráð
bókaði mikilvægi þess að nám á
framhaldsskólastigi stæði grunn-
skólanemum áfram til boða og að
fjármagn til þess yrði tryggt. Það
stendur skýrt í grunnskólalögum
að grunnskólanemar eigi rétt á að
stunda nám í einstökum náms-
greinum á framhaldsskólastigi,“
segir Marta.
ingibjorg@mbl.is
Grunnskóla-
nemar sviptir
fjarkennslu
Marta
Guðjónsdóttir
LETTNESKI stórmeistarinn Nor-
munds Miezis skaust í efsta sætið
með 5 vinninga á alþjóðlega Bol-
ungarvíkurmótinu í skák í gær-
kvöldi en tvær síðustu umferðirnar
verða tefldar í dag.
Miezis vann Braga Þorfinnsson í
sjöttu umferð og gerði síðan jafn-
tefli við rússneska stórmeistarann
Mikhail Ivanov í sjöundu umferð.
Alþjóðlegu meistararnir Jón
Viktor Gunnarsson, Bragi Þor-
finnsson og Daninn Silas Lund eru í
2.-4. sæti með 4,5 vinninga.
Normunds Miezis
skaust í efsta sætið
ÖSSUR Skarp-
héðinsson utan-
ríkisráðherra
átti í fyrrakvöld
fund með Dom-
inique Strauss-
Kahn, aðal-
framkvæmda-
stjóra Alþjóða
gjaldeyrissjóðs-
ins, AGS. Fund-
urinn fór fram í
New York en þar situr Össur alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna,
auk fleiri funda. Ekki náðist í Össur
í gær en í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu segir að hann hafi far-
ið ítarlega yfir stöðu efnahagsmála
Íslandi og framgang efnahagsáætl-
unar ríkisstjórnarinnar sem unnin
var í samstarfi við AGS. Einnig var
rætt um Icesave.
Fundað um sam-
starfsáætlun AGS
Össur
Skarphéðinsson
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
BRÝNT er að lög um greiðsluaðlögun verði
framkvæmd þannig að mæta megi verulegum
greiðsluvandræðum a.m.k. 10 þúsund fjöl-
skyldna á næstu mánuðum. Er meðal annars
nauðsynlegt að hægt verði að breyta skilmál-
um bæði fasteigna- og bifreiðaveðskulda þann-
ig að gengistrygging sé felld niður, gjalddög-
um fjölgað og lánstími lengdur.
Þetta er meðal tillagna ASÍ vegna greiðslu-
vanda heimila um breytingar á lögum um
greiðsluaðlögun, gjaldþrotaskipti o.fl. Þær
voru samþykktar í miðstjórn í gær og voru því
næst kynntar fyrir ríkisstjórninni síðdegis.
ASÍ leggur höfuðáherslu á bráðaaðgerðir til
hjálpar þeim heimilum sem verst hafa orðið úti
í efnahagsþrengingunum. Tillögurnar sem eru
fjölmargar eru lagðar fram í frumvarpsformi.
Þar er lagt til að greiðsluaðlögun taki jöfnum
höndum á almennum skuldum og veðskuldum
hvort heldur um er að ræða íbúðalán eða bif-
reiðalán. Þá stöðvist nauðungarsala þegar
beiðni um heimild til greiðsluaðlögunar er lögð
fram. Hægt sé að skera niður fasteignaveð-
skuldir þegar við staðfestingu greiðsluaðlög-
unar, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og að
kröfuhafi sem ekki sættir sig við niðurskurð
veðskulda umfram 100% veðþol eignar geti
leyst eignina til sín gegn yfirtöku veðskuld-
bindinga eða m.ö.o. að skuldari skili lyklunum
að eigninni. Skuldari og fjölskylda hans geti
engu að síður haldið afnotum eignarinnar í allt
að 12 mánuði gegn greiðslu hæfilegs endur-
gjalds í formi húsaleigu.
Þá er lagt til það úrræði að tryggt verði að ef
eign sú sem veðskuldir eru skornar af er seld
með hagnaði að raunvirði innan 5 ára frá af-
skrift skulda, skuli hagnaðinum skipt að jöfnu
milli skuldara og kröfuhafa og einnig að
greiðsluaðlögun megi taka upp á greiðsluað-
lögunartíma ef skuldari efnast verulega á því
tímabili
Mæta vanda 10.000 fjölskyldna
ASÍ kynnir ítarlegar tillögur um lausn á greiðsluvanda heimila Gengistrygging sé felld niður
Lenging lánstíma Hægt að skera niður fasteignaveðskuldir við staðfestingu greiðsluaðlögunar
» Hið opinbera tryggi umsækjanda endurgjaldslausa aðstoð
» Sýslumenn geti tekið að sér umsjón með greiðsluaðlögun
» Nauðsynlegt að efla Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
Í lögunum um skattlagningu kol-
vetnisframleiðslu vegna olíu- og
gasleitarinnar á Drekasvæðinu er
annars vegar lagt á stighækkandi
vinnslugjald sem tekur mið af
verðmæti þess magns af kolvetni
sem nýtt er úr auðlindinni óháð
kostnaði vinnsluaðila. Ákveðið var
að ekkert yrði greitt af fyrstu 10
milljón tunnunum á hverju ári en
gjaldhlutfallið hækkaði svo með
aukinni vinnslu. Hins vegar er svo
lagður á sérstakur kolvetnis-
skattur þegar skattskyldur hagn-
aður nær 20% af skattskyldum
rekstrartekjum í stað vinnslu-
gjaldsins.
Við umfjöllun í þingnefnd komu
fram ólík sjónarmið um hvort
þetta skattumhverfi væri hagfellt.
„Fulltrúi olíufjárfesta sem kom á
fund nefndarinnar taldi að vinnslu-
gjaldið væri einkum til þess fallið
að draga úr áhuga erlendra olíufé-
laga vegna þess hvernig það væri
uppsett. Gjaldið væri skattur sem
reiknaður væri út frá verðmæti
framleiðslu en tæki ekki mið af
kostnaði eða hagnaði fyrirtækis,
sem gæti verið verulega íþyngj-
andi.“
„Fulltrúar ráðuneytisins bentu á
að vinnslugjaldið styddist við þau
rök að ríkinu, sem eiganda auð-
lindarinnar, hlotnuðust tekjur af
nýtingu hennar óháð því hvort
starfsemin væri arðbær,“ sagði
m.a. í nefndaráliti þingsins.
Stighækkandi gjald óháð kostnaði
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
SAGEX Petroleum og Lindir Ex-
ploration hafa dregið til baka um-
sókn sína um sérleyfi til rannsókna
og vinnslu kolvetnis á Drekasvæð-
inu. Fyrr í sumar dró Aker Explora-
tion umsókn sína til baka.
Kristinn Einarsson, yfirverkefnis-
stjóri auðlindamála hjá Orkustofn-
un, telur að meginástæða þessa sé
vegna kreppunnar og skorts á láns-
og áhættufjármagni fyrir olíufélögin.
Norðmenn hafa boðað rannsóknir á
svæðinu sín megin á Jan Mayen-
hryggnum. Kristinn segir þetta
mjög jákvætt því Íslendingar eigi
hagsmuna að gæta Noregsmegin
með sama hætti og þeir eiga hags-
muni Íslandsmegin.
Áhugi en vantar fjármagn
„Þegar Norðmenn fara í gang þá
eykst áhugi á svæðinu sem heild líka.
Ég reikna því með að við reynum að
efna til nýs útboðs eftir tvö ár eða
svo. Síðan kemur til greina í samráði
við ráðuneytið að hafa opið fyrir um-
sóknir með skilmálum fyrsta útboðs-
ins. Ef kreppan losar tökin á fjár-
málamörkuðum vitum við að fleiri
félög sem sóttu um höfðu virkilega
áhuga á að kynna sér svæðið en
höfðu ekki fjármagn.“
Íþyngjandi skattar eru önnur af
tveimur meginástæðum þess að Sag-
ex Petroleum og Lindir Exploration
hafa dregið til baka umsókn sína að
sögn Gunnlaugs Jónssonar, forstjóra
Linda. „Meginástæðurnar eru tvær.
Í fyrsta lagi hefur komið í ljós að
áhugi á svæðinu er minni en vonast
var eftir. Það eru mikil samlegðar-
áhrif í þessum rekstri, menn þurfa
að starfa mikið saman og við þurfum
að fá fleiri inn á svæðið til þess að
þetta gangi upp hjá okkur. Jafn-
framt eru skattar mjög íþyngjandi á
félög af þessu tagi á Íslandi. Við telj-
um að þetta áhugaleysi hafi leitt það
í ljós. Skattarnir hefðu þurft að vera
hvetjandi til að aðilar kæmu og
sæktu um leyfi. Þess í stað eru þeir
mjög letjandi. Við teljum alveg ljóst
að það þurfi að fara fram breytingar
á skattakerfinu hér áður en næsta
umferð fer fram. Þá höfum við mjög
mikinn áhuga á svæðinu því við höf-
um áhuga á að sækja um aftur og
vonumst til þess að fleiri geri það
líka. Við myndum þá jafnvel reyna
að standa að því í samstarfi við
aðra,“ segir Gunnlaugur.
Fjármálakreppan hefur líka áhrif
að sögn hans en Drekasvæðið sé
tæknilega mjög krefjandi, dýpi mik-
ið, það er langt frá landi og mikil
rekstrarleg áhætta í því fólgin að
stunda þar olíuleit.
Vegna þessa máls hefur Gunnar
Bragi Sveinsson, fulltrúi Framsókn-
arflokksins í iðnaðarnefnd, óskað
eftir því formlega að nefndin verði
kölluð saman til fundar. Einnig verði
kallaðir fyrir nefndina fulltrúar frá
Linda Exploration, Sagez, Orku-
stofnun og iðnaðarráðuneytinu.
Óvissa og letjandi skattar
Forstjóri Linda Exploration segir íþyngjandi skatta eina af ástæðum þess að
umsókn á Drekasvæði var dregin til baka Möguleikar á nýju útboði eftir 2 ár