Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009
BERGUR Elías Ágústsson, sveit-
arstjóri Norðurþings, hefur sent
frá sér tilkynningu þar sem hann
bendir á það að þótt ráðherrar
Vinstri grænna hafi boðað friðlýs-
ingu Gjástykkis virðist þeir ekki
vita að sveitarstjórnir á svæðinu
hafa nýlega lagt til friðlýsingu á
langstærstum hluta svæðisins og að
orkuvinnsla er aðeins heimil á um
2% þess samkvæmt nýlegu aðal-
skipulagi. Helstu náttúruperlur
svæðisins eru við Sandmúla sunnan
Gjástykkis, svæðið norðan Hituhóla
og Hrauná. Í svæðisskipulaginu var
kappkostað að forðast rask nálægt
þessum náttúruperlum.
Gjástykki nú þegar
friðað að mestu
ÞINGFLOKKUR framsóknarmanna
hvetur ríkisstjórnina til að grípa taf-
arlaust til aðgerða til að bjarga
skuldsettum heimilum. Allar raun-
hæfar tillögur ríkisstjórnarinnar um
að aðstoða fólk í greiðsluvandræð-
um og leiðrétta skuldastöðuna verða
skoðaðar með jákvæðu hugarfari af
hálfu framsóknarmanna.
Vilja aðgerðir
BÆNDASAMTÖKIN sendu utan-
ríkisráðuneytinu erindi þann 11.
september sl. þar sem farið er fram
á það að spurningarlisti ESB, sem
fjalla um landbúnað, verði þýddir á
íslensku. Ekkert svar hefur enn
borist og hafa samtökin ítrekað
óskir sínar með öðru bréfi. Einnig
var þess óskað að fá til skoðunar, á
íslensku, öll svör annara stofnana
og ráðuneyta sem kunna að varða
landbúnaðar- og byggðamál.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
ESB spurningalistar
SVEINBJÖRG Hermannsdóttir
hefur verið kjörin heiðursfélagi í
Kvenréttindafélagi Íslands. Svein-
björg sem er fædd árið 1911, hefur
verið í Kvenréttindafélaginu í rúma
hálfa öld og hefur sýnt félaginu
mikla ræktarsemi. Á 99. aldursári
sækir Sveinbjörg enn viðburði á
vegum félagsins. Það var Margrét
K. Sverrisdóttir, formaður félags-
ins, sem afhenti Sveinbjörgu heið-
ursskjal að þessu tilefni.
Sveinbjörg með heiðursskjalið.
Heiðursfélagi Kven-
réttindafélagsins
ALÞJÓÐABANKINN og Efnahags-
og framfarastofnunin hafa boðið
Breka Karlssyni, forstöðumanni
Stofnunar um fjármálalæsi við HR,
á málþing um fjármálalæsi í Wash-
ington 12.-13. nóvember nk. Hann
mun flytja framsöguerindi og tekur
þátt í pallborðsumræðum.
Fjármálalæsi
STUTT
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
V-DAGSSAMTÖKIN og Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF)
hafa tekið höndum saman um að
vekja athygli á umfangsmiklu kyn-
ferðisofbeldi gagnvart konum og
stúlkubörnum í A-Kongó. Söfnun
verður hleypt af stokkunum meðal
almennings en söfnunarféð verður
nýtt í verkefni í þágu ungra kynferð-
isbrotaþolenda í landinu.
Kynferðisofbeldi notað
sem vopn
Þegar átakið var kynnt í gær sagði
Diljá Ámundadóttir, nýr formaður
endurvakinna V-dagssamtaka, að í
A-Kongó ríkti neyðarástand. Þar
væri kynferðisofbeldi notað sem
vopn til að eyðileggja mannslíf, fjöl-
skyldur og samfélög. „Eftir að hafa
kynnt mér þetta mál skil ég ekki af
hverju heimurinn stendur ekki á
öndinni og vill gera eitthvað í þess-
um málefnum.“ Diljá sagði að ætl-
unin væri að fræða Íslendinga um
ástandið í A-Kongó og safna pening
til að þolendur kynferðisofbeldis,
sem eru allt frá nokkurra mánaða
stúlkubörnum til eldri kvenna, geti
leitað sér læknisaðstoðar, umhyggju
og eflingar til að hefja líf sitt að nýju.
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
sagði að síðan 1998 hefði geisað
styrjöld í A-Kongó sem fjöldi ríkja
hefði komið að. Allt frá upphafi hefði
kynferðisofbeldi gegn konum og
stúlkubörnum verið beitt í hernaðar-
legum tilgangi, þeim væri skipulega
nauðgað til að niðurlægja þær,
sundra fjölskyldum og samfélögum.
Þrátt fyrir að samið hefði verið um
frið árið 2003 væri kynferðislegum
pyntingum enn beitt með skipuleg-
um hætti. UNICEF áætlar að fórn-
arlömbin skipti hundruðum þús-
unda, þar af sé yfir helmingurinn
börn. „Þetta er ein ógeðfelldasta að-
för að mannréttindum í heiminum og
það er alveg gríðarlega mikilvægt að
það sé tekið á þessu máli.“
Stefán sagði jafnframt að ráðast
þyrfti í átak til að breyta viðhorfum
til kynferðisofbeldis en víða í Aust-
ur- og Mið-Afríku telji konur eðlilegt
að eiginmaður þeirra beiti þær of-
beldi.
Hægt er að leggja söfnuninni lið
með margvíslegum hætti, m.a. með
því að gefa frjáls framlög inni á síð-
unni www.unicef.is/v-dagurinn
„Skil ekki af hverju heimur-
inn stendur ekki á öndinni“
Morgunblaðið/Heiddi
Kynferðisofbeldi Diljá Ámundadóttir, formaður V-dagssamtakanna, segir að neyðarástand ríki í A-Kongó.
Vekja Íslendinga til vitundar um umfangsmikið kynferðisofbeldi í Austur-Kongó
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÍSLAND naut mikillar athygli á
JATA, stærstu ferðasýningu Asíu,
sem haldin var í Japan á dögunum,
að sögn Þorgeirs Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Atvinnuþróunar-
félags Vestfjarða. Þorgeir sagði að
sex íslensk fyrirtæki hefðu kynnt
starfsemi sína í sameiginlegum Ís-
landsbás. Auk þess lágu frammi
bæklingar frá þremur fyrirtækjum.
Mörg fyrirtækjanna voru með ís-
lenska fulltrúa í básnum eða Japana
sem kunna íslensku.
Þema íslenska sýningarbássins
var norðurljósin og heilsulindir.
Sett var upp eftirlíking af heitri
laug við Mývatn og var baðsalti
blandað í heita vatnið. Vakti laugin
mikla athygli sýningargesta.
„Það er mikill áhugi á norður-
ljósum og heilsulindum í Japan,“
sagði Þorgeir. „Flestir Íslending-
anna sem tóku þátt í sýningunni
hafa lengi unnið á Japansmarkaði.
Það hefur skilað þeim árangri að
hingað koma um 12 þúsund jap-
anskir ferðamenn á ári. Allir eru
sammála um að gríðarmikil tæki-
færi felist í því að einbeita sér að
því að kynna íslenskar heilsulindir,
norðurljósin, tónlist og menningu í
Japan. En þetta er langtímaverk-
efni.“
Daginn áður en sýningin hófst
þann 18. september hélt Íslenska
verslunarráðið í Tókýó kynningu á
íslenskri ferðaþjónustu, þróun
hennar og nýsköpun. Hún var hald-
in í íslenska sendiráðinu í Tókýó.
Þangað komu um 45 gestir úr jap-
önsku atvinnulífi og voru flestir frá
japönskum ferðaskrifstofum. Þor-
geir kvaðst hafa farið á ferðasýn-
inguna fyrir hönd Markaðsstofu
Vestfjarða og Ferðamálasamtaka
Vestfjarða. Auk þess að kynna
Vestfirði sem áfangastað ferða-
manna fór Þorgeir einnig til að
fylgja eftir viðræðum við Japana
um samvinnu í sjávarútvegi og fisk-
eldi og raforkuvinnslu í sjó.
Kanna nýtingu sjávarauðlinda
Þetta er önnur ferð Þorgeirs til
Japans á þessu ári. Í mars fór hann
með sendinefnd á vegum Útflutn-
ingsráðs og Ferðamálastofu. Þá
hitti hann fulltrúa Tókýóháskóla og
einkaháskólans KINKI. Síðarnefndi
háskólinn er leiðandi í rannsóknum
á sviði sjávarútvegs og fiskeldis. Þá
hitti Þorgeir einnig fulltrúa Mitsub-
ishi-iðnaðarrisans fyrir milligöngu
íslenska sendiráðsins í Tókýó. Er-
indið var að ræða við Mitsubishi um
möguleika á gerð sjávarfallavirkj-
ana á Vestfjörðum.
Þorgeir kvaðst hafa fylgt þessum
málum eftir í ferðinni sem hann fór
nú. Hann sagði að KINKI-
háskólinn ætli að senda fulltrúa
sinn hingað á komandi vetri.
„Við erum að kanna nýtingu sjáv-
arfalla á Vestfjörðum til raforku-
vinnslu, t.d. strauma sem myndast
við þverun fjarða eins og í Mjóa-
firði. Við höfum kynnt þetta fyrir
iðnaðarráðuneytinu og erum að
skoða málið í samvinnu við Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands, Háskólasetur
Vestfjarða og Fjórðungssambandið.
Við höfum kveikt áhuga Mitsubishi
á að skoða þetta með okkur,“ sagði
Þorgeir.
Hann segir að Mitsubishi sé leið-
andi í smíði hverfla (túrbína). Fyr-
irtækið hafi einnig komið að gerð
margra virkjana hér á landi og
þekki því vel til. Þorgeir sagði Mit-
subishi hafa nýlega lýst áhuga á að
kanna gerð hverfla til að nýta sjáv-
arföll. Þorgeir lagði áherslu á að
þetta langtímaverkefni væri á frum-
stigi.
Vilja virkja sjávarföllin
Vestfirðingar vilja kanna samstarf við Mitsubishi um gerð sjávarfallavirkjana
Kynning íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja vakti mikla athygli í Japan
Ljósmynd/ÞP
Japan Þorgeir Pálsson (t.v.) og Gunnar Jóhannesson við Íslandsbásinn.
Í HNOTSKURN
»Ísland var með kynningar-bás á JATA, stærstu ferða-
sýningu Asíu, sem nýlega var
haldin í Japan.
»Fyrirtækin Icelandair, Ice-land Travel, Iceland Ex-
cursions, Viking K.K., Disco-
very Tours og Northeast
Iceland tóku þátt í JATA.
»Útflutningsráð og Ferða-málstofa kostuðu básinn.
Sendiráð Íslands í Tókýó bar
hita og þunga af uppsetningu.