Morgunblaðið - 24.09.2009, Qupperneq 39
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞETTA er gert af hugsjón, þrátt
fyrir kreppu og þrátt fyrir niður-
skurð. Með ákveðinni útsjónarsemi
er þetta hægt. Það er kostnaður
sem fylgir verkefninu, en við tók-
um þá ákvörðun að bjóða nemend-
unum þetta þeim að kostnaðar-
lausu og töldum það mikilvægt í
því umhverfi sem við lifum í í dag.
Þetta er okkar framlag til sam-
félagsins og við vonumst til að
geta haldið þessu áfram,“ segir
Arna Kristín Einarsdóttir, tón-
leikastjóri Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, um námskeið Ungsveitar
Sinfóníunnar sem heldur sína
fyrstu tónleika í Háskólabíói á
laugardag kl. 17 og flytur þar und-
ir stjórn Rumons Gamba eitt af
stórvirkjum Dimitris Sjostako-
vitsj, Sinfóníu nr. 5.
140 umsóknir um 88 pláss
„Viðtökurnar voru gríðarlega
góðar þegar við kynntum verk-
efnið og við fengum umsóknir frá
yfir 140 tónlistarnemum. Það var
greinilegt að eftirspurnin var til
staðar og ánægjulegt vegna þess
að við getum boðið upp á hljóm-
sveitarnámskeið af þessari stærð-
argráðu. Fimmta sinfónía Sjos-
takovitsj er risastórt verk og í
hana þarf stóra hljómsveit.“
Í vor voru haldin prufuspil í all-
ar leiðandi stöður Ungsveitarinnar
og Arna segir að það hafi tekist
vonum framar að manna þessa 88
manna ungu sveit. „Fyrir utan
konsertmeistarann Ara Þór Vil-
hjálmsson, þurftum við bara að
leita til örfárra hljóðfæraleikara
úr Sinfóníuhljómsveitinni og Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna til að
aðstoða á tónleikunum. Að öllu
öðru leyti gátum við mannað sveit-
ina með nemendum. Sem dæmi um
aðsóknina, þá sóttu 60 fiðlur um,
en það var bara pláss fyrir 30.“
Eitt af markmiðunum með nám-
skeiðinu og tónleikum Ungsveit-
arinnar er að gefa tónlistarnemum
tækifæri til að spreyta sig í hljóm-
sveitarleik við bestu aðstæður fag-
mennskunnar, og segir Arna að
það hafi strax verið mikil reynsla
fyrir þá krakka sem þreyttu
prufuspilið í vor. „Þetta er það
sem bíður krakkanna ef þau
ákveða að leggja hljómsveitarleik
fyrir sig.“
Í sumar fengu þeir sem komust
að nótur, svo þeir gætu byrjað að
æfa sig, og segir Arna að nemend-
urnir hafi mætt mjög vel undir-
búnir á fyrstu hljómsveitaræfingu.
Rumon hrífur krakkana með
„Rumon Gamba hefur gefið sig
allan í verkefnið og lagt hug og sál
í hljómsveitina. Hann nær svo vel
til krakkanna; er sérfróður um
Sjostakovitsj og segir þeim heil-
mikið um bakgrunn verksins og
setur þau inn í þann anda sem
ríkti þegar það varð til. Hann hríf-
ur þau með og á auðvelt með að
tala við þau þannig að þau skilji.
Krakkarnir hafa átt frábærar
stundir með Rumon, sem munu
örugglega lifa með þeim lengi.“
Arna segir að ekkert hafi verið
gefið eftir í æfingum; þær hafi
verið stífar frá 12. september og
skyldumæting. „Krakkarnir þurfa
að temja sér mikinn aga og vita að
árangur næst ekki öðru vísi. Ég
heyri það frá foreldrum að nám-
skeiðið hefur opnað þeim nýja sýn.
Það er ekki nóg fyrir krakka í
hljóðfæranámi að hlusta á plötur
og fara á tónleika. Þeir þurfa að fá
að upplifa tónlistina á eigin skinni
í hljómsveitinni.“
Þetta er það sem bíður þeirra
Morgunblaðið/Ómar
Ungsveitin „Þeir þurfa að fá að upplifa tónlistina á eigin skinni í hljómsveitinni,“ segir tónleikastjórinn.
Tímamót í íslenskri tónlistarsögu með fyrsta námskeiði Sinfóníuhljómsveit-
arinnar fyrir tónlistarnema Fimmta Sinfónía Sjostakovitsj verður flutt
STOFNUN Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum,
Menningarráð Austurlands,
Þekkingarnet Austurlands og
Hofverjar gangast fyrir fundi
um örnefni og örnefnasöfnun í
Kaupvangi á Vopnafirði í dag
kl. 17. Á fundinum fjallar Svav-
ar Sigmundsson, stofustjóri
Örnefnasafns stofnunarinnar,
um mikilvægi örnefnasöfn-
unar, til hvers örnefnum hefur
verið safnað og hvernig staðið hefur verið að söfn-
un. Þá fer hann yfir stöðu mála á Austurlandi.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi.
Allir eru velkomnir.
Hugvísindi
Örnefnasöfnun
á Vopnafirði
Hof í Vopnafirði.
SÉRSTÖK styrktarsýning
verður á leikverkinu Brák í
Landnámssetrinu í Borgarnesi
í kvöld kl. 20. Allur ágóði sýn-
ingarinnar rennur í söfnunar-
átak Eddu Heiðrúnar Back-
man og Hollvina Grensás-
deildar, Á rás fyrir Grensás.
Brák er magnaður einleikur
eftir Brynhildi Guðjónsdóttur,
í leikstjórn Atla Rafns Sigurðs-
sonar. Brynhildur hlaut tvenn
Grímuverðlaun fyrir sýninguna, annars sem höf-
undur og hins vegar sem besta leikkona í aðal-
hlutverki. Sýningin, sem er í Landnámssetrinu í
Borgarnesi, hefur fengið frábærar viðtökur.
Leiklist
Brák tekur á rás
fyrir Grensás
Brynhildur
og Atli Rafn
HVAÐ einkennir kvikmynda-
gerð Milos Forman? Hvaða
efni fæst hann helst við í kvik-
myndum sínum? Hvernig birt-
ast trúarleg stef í kvikmyndum
hans? Þessar og fleiri spurn-
ingar verða ræddar í kvöld-
kirkjubíói í Dómkirkjunni í
kvöld kl. 20.30. Oddný Sen
kvikmyndafræðingur og sr.
Guðni Már Harðarson flytja
stutta fyrirlestra um kvik-
myndagerðarmanninn Forman og um trúarstef í
mynd hans Gaukshreiðrinu. Sr. Árni Svanur
Daníelsson, ritstjóri Deus ex cinema, kynnir dag-
skrána. Aðgangur er ókeypis.
Kvikmyndir
Trúlega Forman
í Dómkirkjunni
Milos Forman
GESTIR Metropolitanóperunnar í
New York bauluðu og púuðu hástöf-
um í frammíklappinu við lok fyrstu
frumsýningar vetrarins á óperunni
Toscu eftir Puccini.
Það voru þó ekki tónlistarmenn-
irnir sem urðu skotspónn reiði
óperugestanna, heldur svissneski
leikstjórinn, Luc Bondy.
Forsagan er sú að óperustjórinn,
Peter Gelb, hefur unnið að því öllum
árum síðustu misserin að breyta
ímynd Metropolitanóperunnar úr
gamalgrónu og íhaldssömu óperu-
húsi í nýtt og ferskt óperuhús sem á
að sýna listræna dirfsku.
Í þeim anda var Luc Bondy ráð-
inn, en hann fer sjaldnast troðnar
slóðir í uppfærslum sínum.
Saurlífisseggurinn Scarpia
Gagnrýnandi New York Times
lofaði frammistöðu tónlistarmann-
anna, ekki síst finnsku dívunnar
Karitu Mattila í hlutverki Toscu og
James Levine hljómsveitarstjóra.
En þegar kemur að uppfærslunni
og túlkun Lucs Bondys finnst gagn-
rýnandanum Anthony Tommasini
keyra um þverbak, og kallar upp-
færsluna afbrigðilega, klúra og
klámfengna og segir meðal annars:
„Því sem eftir var af reisninni
glataði Bondy í öðrum þætti. Scarpia
[vonda löggan sem girnist Toscu]
situr að mat sínum, eða öllu heldur í
orgíu, með þremur bosmamiklum
konum, tilbúnum, þöglum per-
sónum. Þegar hann syngur sitt kyn-
ferðislega Credo, um þá kynferð-
islegu spennu sem hann finnur fyrir
við það að leggja undir sig mótþróa-
fullar fegurðardísir, fara konurnar
þrjár að strjúka honum um brjóst og
klof. Eiga þær að vera hórur? Ef svo
er er það út í hött. Vændi væri fyrir
neðan virðingu þess Scarpia sem
Puccini samdi um. Bondy gerir hinn
flókna Scarpia að fíflalegum saurlíf-
isseggi.“
Uppfærsla Metropolitanóper-
unnar verður sýnd í beinni útsend-
ingu í Óperubíói Sambíóanna 10.
október.
Tosca George Gagnidze í hlutverki
Scarpia með drósunum þremur.
Klúr Tosca
Baulað á Luc Bondy í
Metropolitanóperunni
Árið 1936 stóð Jósef Stalín að
baki mikilli rógsherferð á
hendur Sjostakovitsj og tónlist
hans. Dagblaðið Pravda var
notað til níðskrifa um tón-
skáldið og tónlist hans. Sjost-
akovitsj féll í ónáð og fékk lítið
sem ekkert að gera. Frum-
flutningi á fjórðu sinfóníu
hans var hafnað eftir að æf-
ingar voru byrjaðar.
Fimmta sinfónían var and-
svar tónskáldsins við aðgerð-
um Stalíns og var samin 1937.
Hún féll strax í gríðargóðan
jarðveg og er enn í dag eitt
hans vinsælasta tónverk.
Stalín svarað
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
MENNINGARÞÁTTURIN Víðsjá
í síðdegisútvarpi Rásar 1 verður
efldur og stækkaður frá og með
mánudegi. Þetta staðfestir Sigrún
Stefánsdóttir, dagskrárstjóri út-
varps.
„Við viljum efla umfjöllun um
listir og menningu, og teljum að það
sé í takt við það sem er að gerast í
þjóðfélaginu. Það er svo mikið um
að vera í menningarlífinu að við
vildum styrkja Víðsjána og taka inn
í hana fleiri þætti.“
Víðsjá hefst eftir fréttir kl. 16 frá
mánudegi og tekur því yfir tímann
sem tónlistarþátturinn Hlaupanótan
hafði. Sigrún segir að í stað Hlaup-
anótunnar verði tónlistarefni tengt
líðandi stund í nýju Víðsjánni, en
annað tónlistarefni sent út í kvöld-
dagskrá.
„Ritstjórn þáttarins verður mjög
sterk, en hana skipa Haukur Ingv-
arsson, Eiríkur Guðmundsson,
Guðni Tómasson, Elísabet Indra
Ragnarsdóttir og Sigríður Steph-
ensen. Þau hafa fengið öflugt lið
gagnrýnenda með sér og þar vona
ég að Víðsjá verði sterk.“
Meðal gagnrýnendanna sem Sig-
rún nefnir eru Þorgerður E. Sig-
urðardóttir í leiklist, Gauti Krist-
mannsson og Þröstur Helgason í
bókmenntum, Helgi Jónsson í tón-
list og Margrét Elísabet Ólafsdóttir
í myndlist.
„Þegar tilefni gefast í öðrum list-
greinum getum við vonandi brugð-
ist við. Við fáum líka fleira innan-
búðarfólk til liðs við þáttinn, eins og
Lísu Pálsdóttur, Ævar Kjartansson
og Ólöfu Sigursveinsdóttur. Halldór
Hauksson verður svo með pistlaröð
í Víðsjá. Við vonumst semsagt til
þess að Víðsjá verði kröftug, því
það er valinn maður í hverju rúmi.“
„Öflug menningarveisla“ er kjör-
orðið sem Sigrún gefur nýju Víð-
sjánni. Fjóra daga vikunnar, mánu-
dag til fimmtudags, stendur
þátturinn frá 16.10-18, en á föstu-
dögum verður Lana Kolbrún Eddu-
dóttir með djassþáttinn sinn, Fimm
fjórðu, kl. 16.10, en Víðsjá tekur við
á eftir Lönu Kolbrúnu með svolítið
öðru sniði en aðra daga vikunnar.
Öflug menningarveisla
Þátturinn Víðsjá á Rás 1 verður efldur og áhersla lögð á gagnrýni
Dagskrárstjóri Sigrún Stefánsdóttir
Þetta er kolsvört
kómedía á köflum
en undirliggjandi er alltaf
þessi mikla ógn … 40
»