Morgunblaðið - 30.10.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
STOFNUN um
fjármálalæsi
við Háskólann í
Reykjavík telur
að nýboðaðar
aðgerðir í
þágu heimila
og fyrirtækja
vegna banka-
og gjaldeyris-
hrunsins komi
lítt að tilætluðum notum nema
fyrstu þrjú til fjögur árin. Eftir
það verði heildargreiðslubyrði
lána meiri ef menn tengi lán við
greiðslujöfnunarvísitölu í stað
tengingar við vísitölu neyslu-
verðs. Því sé með aðgerðunum
verið að ýta greiðsluvanda heim-
ilanna á undan sér. Launahækk-
anir eins hóps muni hækka lán
annarra hópa og launahækkanir
framtíðarinnar verði í reynd
eyrnamerktar bönkunum.
Helsti gallinn við aðgerðirnar
sé einkum fólginn í því að afborg-
anir lána skuli tengdar við þróun
launa og atvinnustigs. Þegar
greiðslugetan aukist með hækk-
andi launum og auknu vinnu-
framboði hækki greiðslubyrðin.
Hætta sé á að það leiði til þess að
reynt verði að halda launum
niðri.
Vara við
vísitölunni
Launahækkun eins
hækkar lán annars
DAVÍÐ Odds-
son, ritstjóri
Morgunblaðsins
og fyrrverandi
seðlabanka-
stjóri, var
nefndur oftast
þegar spurt var
um það í könn-
un, sem MMR
gerði fyrir Við-
skiptablaðið hver ætti að leiða Ís-
lendinga út úr efnahagskrepp-
unni.
Næstflestir nefndu Steingrím J.
Sigfússon fjármálaráðherra og í
þriðja sæti kom Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra.
24% sögðust treysta Davíð best,
23,2% Steingrími, 20,6% Jóhönnu,
11,5% Bjarna Benediktssyni, for-
manni Sjálfstæðisflokksins, og
4,6% Sigmundi Davíð Gunnlaugs-
syni, formanni Framsókn-
arflokksins.
Af þeim sem tóku þátt fengust
svör frá 630 manns sem jafngildir
65,1% svarhlutfalli.
Flestir nefndu
Davíð Oddsson
Davíð Oddsson
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
FRÁ og með gjalddaga í desember
næstkomandi gangast öll verð-
tryggð húsnæðislán undir sjálfkrafa
greiðslujöfnun, nema lántakendur
óski sérstaklega eftir að sleppa því.
Greiðslujöfnunin er í samræmi við
ný lög um aðgerðir í þágu ein-
staklinga, heimila og fyrirtækja sem
samþykkt voru á Alþingi fyrir helgi.
Hugsunin á bak við greiðslujöfn-
unina er í stuttu máli sú að leiðrétta,
tímabundið, greiðslubyrði lána og er
gert ráð fyrir að frá og með desem-
ber muni afborganir verðtryggðra
húsnæðislána lækka um 17%.
Mismunurinn hverfur hinsvegar
ekki heldur leggst inn á jöfn-
unarreikning, nk. biðreikning, sem
greiða þarf í lok lánstímans.
Lengist að hámarki um 3 ár
Afborganirnar eru lækkaðar með
því að tengja þær við svokallaða
greiðslujöfnunarvísitölu í stað þess
að þær fylgi vísitölu neysluverðs,
eins og þær hafa hingað til gert.
Höfuðstóll lánsins verður eftir
sem áður áfram tengdur neyslu-
vísitölunni og lækkar ekki þótt af-
borganir lækki tímabundið. Lánið
sjálft stendur því óbreytt en afborg-
anirnar lækka og þeim fjölgar, og
lánstíminn lengist um allt að 3 ár.
Vísitala launa og atvinnustigs
Greiðsluvísitalan, sem afborganir
allra verðtryggðra húsnæðislána
verða héðan af tengdar við, er reikn-
uð mánaðarlega og samsett af launa-
vísitölu sem vegin er af atvinnustigi,
sem þýðir að ef laun hækka og at-
vinnuleysi minnkar þá hækkar
greiðslubyrðin og öfugt.
Þetta þýðir m.a. að þrátt fyrir að
afborgun af verðtryggðu húsnæð-
isláni lækki nú í desember ríkir
áfram töluverð óvissa um þróun
lánsins til lengri tíma.
Ekki er útilokað að greiðslubyrði
nái þegar frá líður aftur fyrri hæð-
um og verði jafnvel enn þyngri en
ella, enda hækka laun að jafnaði
hraðar en verðlag til lengra tíma lit-
ið. Lántakendur verða því að vega
og meta hvort þeir þurfa raunveru-
lega á greiðslujöfnun að halda og
hvort hún sé þess virði, ef það leiðir
á endanum til þyngri greiðslubyrði.
Frestur til 20. nóvember
Eins og áður segir er um almenn-
ar aðgerðir að ræða og verður
greiðslujöfnunin því sjálkrafa sett á
öll verðtryggð fasteignalán. Vilji lán-
takendur ekki greiðslujafna lánin sín
þurfa þeir að tilkynna það til lánveit-
anda síns í síðasta lagi 20. nóvember.
Þeir sem eru með fasteignalán í
erlendri mynt eða bílalán eiga einnig
kost á greiðslujöfnun en um það þarf
að sækja sérstaklega, öfugt við verð-
tryggðu húsnæðislánin.
Morgunblaðið/RAX
Húsnæði Greiðslubyrði lána getur lést töluvert næstu misseri með hjálp greiðslujöfnunar en þegar fram í sækir gæti hún orðið þyngri en ella.
Dýrara til lengri tíma
Allir þeir sem eru með verðtryggð húsnæðislán gangast undir greiðslujöfnun
Þótt afborganir lækki er ekki víst að greiðslujöfnun borgi sig fyrir alla
Greiðslujöfnun lána
Dæmi 1: 10.000.000 kr. verðtr. íbúðalán
Tekið 1. júlí 2007, til 40 ára, 4,15% vextir.
?
Mánaðargreiðslur:
Upphafleg
1. okt. 2009
Fyrsta afb. eftir
greiðslujöfnun 45.600 kr.
54.800 kr.
42.700 kr.
Heildargreiðslur á lánstíma*
*Mjög gróflega áætlað
M.v. upp-
haflegar
forsendur
M.v.
forsendur
1. okt. 2009
Eftir
greiðslu-
jöfnun
Of margar
breytur og
óvissuþættir40
m.kr.
200
m.kr.
Dæmi 2: 10.000.000 kr. gengistr. íbúðalán
Tekið 1. júlí 2007, til 30 ára, gengiskarfa.
Afborgun: Var Er Verður
53.700 76.900 67.200
Dæmi 3: 10.000.000 kr. gengistr. íbúðalán
Tekið 1. júlí 2007, til 30 ára, Yen + SFR.
Afborgun: Var Er Verður
45.400 99.800 70.400
Dæmi 4: 2.000.000 kr. gengistr. bílalán
Tekið 1. júlí 2007, til 7 ára, gengiskarfa.
Afborgun: Var Er Verður
43.800 59.110 45.340
Dæmi 5: 2.000.000 gengistr. bílalán
Tekið 1. júlí 2007, til 7 ára, Yen + SFR.
Afborgun: Var Er Verður
32.100 75.000 49.700
Áætlað er að afborgun af verð-
tryggðu húsnæðisláni lækki um
17% í desember eftir greiðslu-
jöfnun. Með tímanum leiðir hún
hinsvegar einnig til aukins kostn-
aðar í formi vaxta og verðbóta.
„ÉG VIL ekki trúa að svona sé stað-
ið að hlutunum þegar verið er að
gera jafnstóra rannsókn og þessi
rannsókn er,“ sagði kona sem ásamt
eiginmanni sínum var handtekin í
tengslum við rannsókn stóra man-
salsmálsins. Hún er ósátt við aðgerð-
ir lögreglu, segir barn sitt hafa verið
yfirheyrt á vettvangi og börnin tvo
horft upp á handtökurnar. Viðtal við
konuna var birt í sjónvarpsfréttum
mbl.is á Skjá einum í gærkvöldi.
Umfjöllun um málið heldur áfram í
kvöld.
Handtakan og húsleit á heimili
hjónanna fór fram 20. október sl., að
undangengnum húsleitarúrskurði
Héraðsdóms Reykjaness. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglustjóranum á Suðurnesjum er
þess sérstaklega gætt þegar börn
eiga í hlut á vettvangi og var það
einnig í þessu tilviki.
„Í þessu tilviki fóru fimm óein-
kennisklæddir lögreglumenn að
húsinu og þar utandyra hittu þeir
eiginkonu grunaða ásamt tveimur
börnum hennar. Lögreglan kynnti
konunni fyrirhugaðar aðgerðir.
Konan fékk að hringja í móður sína
og síðan í vinkonu sína sem hún bað
um að sækja börnin. Eldra barnið,
telpa, fór á brott með vinkonu sinni
og var það með vitund og vilja móð-
urinnar,“ segir í yfirlýsingu lögregl-
unnar á Suðurnesjum vegna máls-
ins.
Einnig segir að konan hafi verið
ósamvinnuþýð og neitað að gefa upp
þær upplýsingar sem óskað var eft-
ir. Því hafi verið ákveðið að hand-
taka hana og færa til yfirheyrslu.
Það hafi verið gert án valdbeitingar.
Konan segist ekki skilja hvers
vegna hún eða maður hennar eru
dregin inn í málið. „Við munum að
sjálfsögðu höfða skaðabótamál.“
Ósátt við aðgerðir lögreglu
Mikill munur er á atvikalýsingum konu sem handtekin var
í tengslum við stóra mansalsmálið og lögreglu á vettvangi
Skyggð Konan kom hvorki fram
undir nafni í viðtalinu né mynd.
Ég er reið og ringluð
mbl.is | SJÓNVARP
„Það er jákvætt að búið sé að við-
urkenna að það þurfi að grípa til al-
mennra aðgerða, það er stefnu-
breyting. Hins vegar lítum við svo á
að þessi aðferðafræði, þ.e.a.s. að
fara þessa greiðslujöfnunarleið, sé
ófullnægjandi,“ segir Þórður B. Sig-
urðsson, formaður Hagsmuna-
samtaka heimilanna.
„Með þessu er ekki verið að leið-
rétta höfuðstól lánanna, en það er
að okkar mati ófrávíkjanleg krafa.“
Hagsmunasamtökin telja var-
hugavert að tengja afborganir
greiðslujöfnunarvísitölu, þar með
sé aðeins komið annað verðbreyt-
ingarákvæði sem skapi frekari
óvissu fyrir lántakendur. „Vanda-
málið er að það skuli yfirhöfuð vera
verðbreytingarákvæði, því það er
vegna verðbreytingarákvæða eins
og gengistryggingar og verðtrygg-
ingar sem þetta fór allt í rugl,“ seg-
ir Þórður.
Núna er verið að grípa inn í og
laga ruglið með nýrri vísitölu, þann-
ig að í stað ruglvísitölu ertu kominn
með bullvísitölu.“ Hagsmuna-
samtökin efna til borgarafundar í
Iðnó næstkomandi mánudag.
Höfuðstóllinn óbreyttur