Morgunblaðið - 30.10.2009, Síða 8
Áhorf á sjónvarpsfréttir 19.-23. október
25
20
15
10
5
0
%
Aldursh. 12-49 ára. Heimild: Rafræn sjónvarpsmæling Capacent Gallup 19.-25. okt. 2009
Fréttir
Stöðvar 2
19. 20. 21. 22. 23. Meðalt. 19. 20. 21. 22. 23. Meðalt. 19. 20. 21. 22. 23. Meðalt.
mán. fös.
FRÉTTIR
Endurs.
Frums.
Fréttir
Mbl og
Skjásins
11
,6
% 13
,3
%
11
,9
%
18,0%
7,7
%
12
,5
% 1
6,
8%
14
,3
%
16
,1
%
15
,2
%
11
,1
% 1
4
,7
% 1
8,
6%
17
,7
% 20
,0
%
20
,5
%
22,4%
23,7%
Fréttir
Sjónvarpsins
kl. 19
„TÖLURNAR eru framar vonum,“
segir Sigríður Margrét Oddsdóttir,
framkvæmdastjóri Skjásins, um
áhorfsmælingu Capacent Gallup á
sjónvarpsfréttum mbl.is á Skjá
einum fyrstu dagana sem þær
voru í loftinu. Eins og sést á með-
fylgjandi grafi mældist með-
altalsáhorf á sjónvarpsfréttir
mbl.is í frum- og endursýningu
12,5% í aldurshópnum 12-49 ára
vikuna 19.-25. október.
„Við vissum alltaf að það yrði
erfitt að kenna fólki nýjan frétta-
tíma, þ.e. 18.50, og þess vegna
lögðum við mikla áherslu á að vera
með endursýninguna til þess að
fólk kynntist því sem við værum
að gera. Þegar við skoðum saman-
lagðar tölur fyrir frum- og endur-
sýningu slagar áhorfið á fréttatíma
okkar hátt upp í áhorfið á frétta-
tíma RÚV í hópi þeirra sem eru
12-49 ára. Það er frábær árangur
á ekki lengri tíma,“ segir Sigríður
Margrét og tekur fram að einnig
sé ánægjulegt að sjónvarpsfrétt-
irnar komi út í hagnaði. „Ég er
sannfærð um að það hefur enginn
sjónvarpsfréttatími farið í loftið og
náð þeim árangri á fyrstu tveimur
vikunum,“ segir Sigríður Margrét.
„Þessar áhorfstölur sýna að fólk
vill snarpar fréttir í bland við
mannleg innslög, en okkar frétta-
tími gengur einmitt út á það að
blanda saman alvörufréttum og
skemmtilegum fréttum,“ segir
Hlynur Sigurðsson, fréttastjóri
sjónvarpsfrétta mbl.is. Tekur hann
fram að markmiðið sé að draga
fram jákvæðar fréttir í samfélag-
inu í stað þess að velta sér upp úr
þeim neikvæðu, þótt alltaf sé sagt
frá því sem skiptir máli í þjóð-
félaginu hverju sinni.
Spurður út í þá staðreynd að
fleiri horfi á endurtekna útsend-
ingu fréttatímans segir Hlynur
viðbúið að það taki lengri tíma en
tvær vikur að brjóta upp það
mynstur sem verið hafi á tíma-
setningu fréttatíma hinna sjón-
varpsstöðvanna tveggja um langt
árabil. „Hins vegar má vera ljóst
að fólk er í auknum mæli farið að
velja hvenær það horfir á frétt-
irnar, þ.e. í frum- eða endursýn-
ingu sem og á netinu, en allir
fréttatímarnir eru aðgengilegir á
mbl.is.“
Könnunin sem um ræðir er raf-
ræn áhorfsmæling Capacent Gall-
up fyrir vikuna 19.-25. október.
silja@mbl.is
Segja viðtökur framar vonum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fréttir Hlynur og Inga Lind Karlsd.
„Fólk vill alvöru-
fréttir í bland við
skemmtilegar“
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„ENN erum við töluvert frá því að þurfa að
virkja Landspítalann að fullu og færa starfsem-
ina upp á hæsta viðbúnaðarstig. Álagið vegna
flensunnar er enn viðráðanlegt,“ sagði Björn
Zoëga, forstjóri Landspítalans, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Landspítali var í gær færður á virkjunarstig
og gulan lit, sem er næstefsta stig viðbragðs-
áætlunar. Gripið var til þessa vegna álags á gjör-
gæsludeildum vegna svínaflensu. Stjórnun að-
gerða er í höndum æðstu stjórnenda
sjúkrahússins og telja þeir ekki ástæðu til að
rýma eða breyta deildum vegna faraldursins.
Átta á gjörgæslu
Allar deildir taka inflúensusjúklinga og starfs-
menn verða færðir milli deilda ef aðstæður krefj-
ast. Valkvæð starfsemi verður takmörkuð eftir
því sem við á. Nóg er til af hjúkrunarvörum og
lyfjum og bætt hefur verið við tækjabúnað.
Á hádegi í gær voru 35 svínaflensusjúklingar á
Landspítala, þar af átta á gjörgæslu. Síðustu
daga hefur faraldurinn heldur verið í rénun á
höfuðborgarsvæðinu en í vexti út um land. Þann-
ig koma nokkrir af þeim flensusjúklingum sem
nú eru á Landspítalanum utan af landi, svo sem
frá Norðfirði og Vestmannaeyjum, þar sem eru
sjúkrahús en ekki gjörgæsla.
Spítalinn er gulur í flensunni
Landspítali kominn á næsthæsta viðbúnaðarstig Mikið álag vegna svínaflensu Valkvæð
starfsemi takmörkuð Ástandið viðráðanlegt 35 sjúklingar inniliggjandi vegna flensunnar
Í HNOTSKURN
» Sjúklingar á gjörgæslu-deildum eru 2-79 ára. Alls
hafa 6.609 greinst með inflú-
ensueinkenni.
» Frá 23. september hafaum 100 manns verið lagð-
ir inn á sjúkrahús vegna
inflúensu, 75% hafa und-
irliggjandi sjúkdóma.
» Flensan er að breiðast útá landsbyggðinni en er í
rénun á höfuðborgarsvæði.
» Fólk á öllum aldri grein-ist í öllum sóttvarnaum-
dæmum landsins. Flestir eru
fimmtán til nítján ára.
Morgunblaðið/ÞÖK
Landspítali Viðbúnaður er mikill enda er svínaflensan farin að hafa mikil áhrif á starfsemina.
GRÆNUM dögum í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti lauk í gær en á þeim var boðið upp á ýmis-
legt skemmtilegt og fróðlegt í hádegishléum í
mötuneyti nemendanna.
T.d. var nytjamarkaður í matsalnum til styrktar
Unifem, stomp-námskeið þar sem nemendur og
kennarar spiluðu saman á óhefðbundin hljóð-
færi, tónlistaratriði núverandi og fyrrverandi
nemenda skólans auk þess sem græn fyrirtæki
og stofnanir stóðu fyrir kynningum og fræðslu
um umhverfismál. Þá var öllum boðið að búa til
hljóðfæri úr því sem annars ætti að henda.
Morgunblaðið/Heiddi
FRAMHALDSSKÓLANEMAR GERÐUST GRÆNIR
KARLMAÐUR
liggur mikið
slasaður á gjör-
gæsludeild
Landspítala í
Fossvogi eftir
umferðarslys á
Kísilvegi á norð-
anverðum Hóla-
sandi í gær-
morgun.
Maðurinn var
farþegi í jeppabifreið og voru öku-
maður hennar og annar farþegi
einnig fluttir til aðhlynningar á
sjúkrahús. Þeir slösuðust minna.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Húsavík voru tildrög
slyssins þau að jeppanum var ekið
upp bratta brekku. Þegar upp á
brekkubrúnina kom varð vegurinn
skyndilega flugháll. Ökumaður
missti stjórn á bílnum í þessari
miklu og óvæntu hálku og valt hann
út fyrir veginn. Jeppinn er ónýtur.
Ökumaður jeppans tilkynnti um
slysið á tólfta tímanum. Beita þurfti
klippum til að ná mest slasaða
manninum úr flakinu.
Mikið slas-
aður eftir
bílveltu
Slysið rakið til mik-
illar hálku á Kísilvegi
Landspítali við
Hringbraut