Morgunblaðið - 30.10.2009, Síða 48
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 303. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
124,76
205,37
115,65
24,71
21,878
17,783
121,73
1,3738
198,02
183,96
Gengisskráning 29. október 2009
125,06
205,87
115,99
24,782
21,942
17,835
122,07
1,3778
198,61
184,47
237,2415
MiðKaup Sala
125,36
206,37
116,33
24,854
22,006
17,887
122,41
1,3818
199,2
184,98
Heitast 13°C | Kaldast 6°C
Vaxandi austanátt,
8-15 m/s, eftir hádegi
og víða rigning. Hiti 6
til 13 stig. » 10
Sindri á sér þann
draum að verða gull-
fiskur og á leið sinni
um hafdjúpin hittir
hann skrýtin og
skrautleg dýr. »39
LEIKLIST»
Sindri
silfurfiskur
ÍSLENSKUR AÐALL»
Getur ekki lýst sér
í fimm orðum. »42
Sveitabrúðkaup
fékk tvenn verðlaun
í Ríga. Valið besta
myndin, bæði af
dómnefnd og
áhorfendum. »40
KVIKMYNDIR»
Sigursælt
brúðkaup
MYNDLIST»
Dauðarokksgjörningur
á Sequences. »43
KVIKMYNDIR»
Heimildarmynd um
Polanski og njósnari. »45
Menning
VEÐUR»
1. „Amma þetta er allt mér að kenna“
2. Ástarleikurinn varð of heitur
3. 112 ára maður giftist 17 ára stúlku
4. Ótrúlegt klúður í Króatíu …
Íslenska krónan veiktist um 0,17%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Fullyrða má að
samband grann-
þjóðanna Íslands
og Færeyja hafi
aldrei verið nánara
og betra en einmitt
nú. Á því hafa þeir
fóstbræður Friðrik
Ómar og Jógvan Hansen hnykkt
með plötu sinni Vinalög sem er nú
mest selda plata landsins og útgáfa
þeirra af Rómeó og Júlíu að verða
eitt mest spilaða lag landsins. Þeir
félagar ætla svo að taka lagið og
árita í Skífunni í Kringlunni á morg-
un kl. 14. Það verður ábyggilega
„fínur tónleikur“!
TÓNLIST
Friðrik og Jógvan hitta
Íslendinga í hjartastað
Sú hugmynd að
flytja málefni Haf-
rannsóknastofn-
unar og Veiði-
málastofnunar frá
sjávarútvegsráðu-
neytinu til um-
hverfisráðuneyt-
isins fær ekki háa einkunn hjá Jóni
Bjarnasyni, landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsráðherra. Hann sagði á að-
alfundi LÍÚ í gær að hugmyndin
væri fráleit og að hann hefði með
öllu hafnað hugmyndunum. Jón
hafði sitt í gegn því að í lögum um
breytingar á verkaskiptingu stjórn-
arráðsins var ekki gert ráð fyrir
breytingum á stöðu Hafró.
STJÓRNMÁL
Jón vildi ekki sleppa Hafró
Veigar Páll
Gunnarsson,
landsliðsmaður í
knattspyrnu, bíður
bara eftir jólum og
nýju ári og vonast
til þess að eitthvert
félag kaupi sig í
janúar. Hann fær engin tækifæri til
að spreyta sig með Nancy í Frakk-
landi. „Ég er farinn að lifa með
þessu og er hættur að svekkja mig
lengur hvað stöðu mína hjá Nancy
varðar. Það eina sem ég get gert í
stöðunni er að standa mig vel á æf-
ingum og halda mér í góðu formi,“
sagði Veigar Páll.
FÓTBOLTI
Veigar Páll bíður rólegur
eftir jólum og nýju ári
„ÞETTA er
raunsæisleikrit
og mjög vel
skrifað verk,“
segir Hilmir
Snær Guðnason,
leikstjóri verks-
ins Fjölskyldan –
ágúst í Osage-
sýslu, sem verður
frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu í
kvöld. Hilmir Snær segist reyna að
vera sem trúastur höfundinum,
Tracy Letts, þótt hann taki sér að-
eins skáldaleyfi inn á milli. „Þetta
er svona leikaraleikrit, eins og það
er oft kallað, svo megináherslan er
á leikarana á sviðinu,“ segir Hilmir
Snær.
Athygli hefur vakið að tvö hlé
eru á sýningu verksins. „Verkið er
vissulega langt en það er það vel
skrifað að það heldur vel. Þeir
áhorfendur sem hafa séð það vildu
flestir meira, það hefur enginn orð-
ið þreyttur,“ segir Hilmir Snær. | 40
Hlátur og
grátur og allt
þar á milli
Hilmir Snær
Guðnason
MIKIL eftirvænting breyttist í ósvikna gleði á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þegar
stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson steig á svið
í miðjum afmælisfögnuði og hreif íbúa heimilis-
ins með söng sínum. Tilefnið var 87 ára afmæli
Grundar.
Ásamt Kristjáni komu fram söngvararnir
Þóra Einarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson
auk Marcos Beluzzis sem lék á píanó.
Gríðarleg gleði á Grund
Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson söng á afmælishátíð Grundar
Morgunblaðið/Kristinn
BIRGIR Leifur Hafþórsson verður
ekki á meðal keppenda á 2. stigi úr-
tökumótsins fyrir Evrópumótaröðina
í golfi vegna meiðsla. Úrtökumótið
fer fram í lok nóvember.
Birgir er með byrjunareinkenni
brjóskloss í baki sem hafa verið að
angra hann í marga mánuði. Og sú
ráðgjöf við endurhæfingu sem hann
fékk hjá læknum árið 2008 reyndist
ekki rétt.
„Ég var einfaldlega að gera ranga
hluti á æfingum meðan ég var að
jafna mig á meiðslunum sem ég varð
fyrir árið 2008. Ég reif alltaf upp
„sárið“ í mjóbakinu með því að spila
golf, og margar af þeim líkamlegu æf-
ingum sem ég lagði áherslu á hjálp-
uðu ekki til – þvert á móti. Undir það
síðasta var ég með mikla verki í bak-
inu sem leiddu niður í fótinn. Þetta
skýrir að miklu leyti hvernig mér
gekk á mótunum á þessu ári. Skín-
andi hringir af og til á fyrstu tveimur
dögunum. En síðan stífnaði ég bara
upp og allt varð miklu erfiðara. Út-
haldið var ekkert og ég sló furðuleg
golfhögg sem ég botnaði varla í.“
Birgir er eini íslenski kylfingurinn
sem hefur náð þeim áfanga að vera
með fullan keppnisrétt í Evrópu-
mótaröðinni. seth@mbl.is | Íþróttir
„Furðuleg golfhögg“
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson fékk ranga
sjúkdómsgreiningu og glímir við brjósklos á byrjunarstigi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mótvindur Birgir Leifur Hafþórsson spilar ekki golf næstu mánuðina.