Morgunblaðið - 14.11.2009, Blaðsíða 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
REKSTUR Icelandair Group hefur
að mestu gengið vel það sem af er ári,
að sögn Boga Nils Bogasonar, fram-
kvæmdastjóra fjármála fyrirtækisins.
„Heildarvelta á þriðja ársfjórðungi
jókst um tæpan þriðjung frá sama
tímabili í fyrra og hagnaður fyrir
skatta, fjármagnsliði og afskriftir
jókst úr 6,2 milljörðum í 8,4 millj-
arða.“ Þakkar Bogi árangurinn m.a.
hagræðingaraðgerðum, sem farið var
í vorið 2008, og einnig auknu mark-
aðsstarfi erlendis.
Segir hann að fyrirtækið hafi
stokkið á tækifæri eins og flug til
Seattle, sem hófst í júlí. „Það flug skil-
ar um fimm milljörðum í veltu á árs-
grundvelli og umtalsverðum gjaldeyr-
istekjum og skapar um hundrað störf
hjá fyrirtækinu.“
Viðurkennir hann hins vegar að
efnahagsreikningur Icelandair Group
sé veikur og hafi verið allt frá árinu
2006. „Unnið er að endurskipulagn-
ingu hans. Sem dæmi má nefna að
hlutfall skammtímaskulda er of hátt
og erum við að vinna að því að laga
það í samstarfi við okkar banka.“
Segist Bogi hins vegar hafa af því
áhyggjur að hugmyndir ríkisstjórn-
arinnar um skatta á flugvélaeldsneyti
og komur farþega á Keflavík-
urflugvelli geti sett strik í reikninginn.
„Hollendingar gerðu tilraun með að
setja á sérstaka skatta á komu- og
brottfararfarþega í júlí 2008. Reynsla
þeirra var að komufarþegum fækkaði
umtalsvert og að í stað þess að afla
ríkinu 300 milljóna evra hafi það kost-
að hagkerfið 1,3 milljarða evra.“ Segir
hann jafnframt að eldsneytisskattur
muni hafa mikil áhrif á reksturinn.
„Reynsla okkar er sú að fyrir hvert
prósentustig sem miðaverð hækkar
þá fækkar farþegum um eitt prósent.
Metum við stöðuna svo að verði þær
hugmyndir um skattahækkanir, sem
við höfum heyrt af, að veruleika muni
farþegum til landsins fækka um tvö
prósent, eða um 10.000, og gjaldeyr-
istekjur þjóðarinnar dragast saman
um þrjá milljarða.
Umsvifin í hagkerfinu muni því
minnka með tilheyrandi lækkun
skatttekna. „Það er verið að henda
krónunni og hirða aurinn ef þessi að-
gerð verður að veruleika. Það gera
sér allir grein fyrir því að auka þarf
tekjur ríkissjóðs en það eru til fleiri
aðferðir en að hækka gjöld, t.d. geta
ferðaþjónustan og hið opinbera unnið
sameiginlega að því að stækka þá auð-
lind sem erlendir ferðamenn eru því
það mun bæði auka gjaldeyris- og
skatttekjur okkar þjóðarbús.“
Hærri skattar fækka ferðamönnum
Rekstur Icelandair Group hefur vænk-
ast en skattahækkanir valda áhyggjum
Umferð um flugvelli í Amsterdam
Janúar 2007- september 2009
15%
10%
5%
0%
-5%
-10%
-15%
-20%
Gildistímabil skattsins
Tengifarþegar
Komufarþegar
Janúar 2007 September 2009
RAUNÁVÖXTUN lífeyrissjóðanna í
september í ár frá september í fyrra
er neikvæð um 11,4 prósent þrátt
fyrir að í krónum talið sé hrein eign
til greiðslu lífeyris nú farin að nálg-
ast það sem hún var fyrir hrun.
Verðbólga á tímabilinu gerir það
að verkum að raunávöxtun er mun
minni en nafnávöxtun.
Hrein eign lífeyrissjóðanna náði
hámarki í ágúst í fyrra, samkvæmt
tölum frá Seðlabankanum, og frá
þeim tímapunkti er raunávöxtunin
neikvæð um 13,5 prósent.
Þegar horft er til ávöxtunar frá
október í fyrra, en þá hafði stór hluti
eigna lífeyrissjóðanna brunnið upp,
er nafnávöxtunin jákvæð um 11,64
prósent. Verðbólga gerir það hins
vegar að verkum að raunávöxtun er
2,92 prósent. Í Morgunkorni Ís-
landsbanka segir að þróun íslensku
sjóðanna sé þó ekkert einsdæmi og
að í alþjóðlegu ljósi megi segja að
staða íslensku sjóðanna sé við-
unandi. Hrein eign sjóðanna sé nú
um 120 prósent af vergri landsfram-
leiðslu. bjarni@mbl.is
Neikvæð ávöxtun
Enn langt í land hjá lífeyrissjóðunum
● HAGDEILD Landsbankans spáir því
að vísitala neysluverðs hækki í nóv-
ember um 0,5% frá síðasta mánuði.
Gangi sú spá eftir fer 12 mánaða verð-
bólga úr 9,7% niður í 8,4%. Hækki
verðlag jafn mikið í nóvember og des-
ember reiknar Landsbankinn með að
verðbólgan í árslok verði komin í 7,3%.
Telja hagspekingar bankans það ólík-
legt að til stórvægilegra hækkana
komi á undirliðum neysluvísitölunnar í
nóvember. Þó er spáð nokkurri hækkun
á mat- og drykkjarvörum. Óvissa sé
um húsnæðisliðinn en búast megi við
að lækkun á eldsneytisverði dragi úr
hækkun vísitölunnar í nóvember. Næsta
mæling Hagstofunnar er væntanleg 26.
nóvember nk. bjb@mbl.is
Fer verðbólgan í 8,4%?
● DÝRAR, sérsmíðaðar haglabyssur
eru sagðar vera góð fjárfesting, ekki
síst fyrir áhugamenn um skotfimi og
tengdar íþróttir. Fram kemur í um-
fjöllun Telegraph í gær að verð á sér-
smíðuðum og fágætum haglabyssum
hafi tvöfaldast á síðastliðnum tveim-
ur áratugum, og er það ekki síst að
þakka auknum áhuga á skotfimi.
Samtök áhugamanna um skotfimi í
Bretlandi segja að fjöldi þeirra sem
stunda skotíþróttir nemi nú um millj-
ón á heimsvísu. Í Bretlandi bjóða
gamalgrónir framleiðendur upp á
sérsmíðaðar haglabyssur eftir göml-
um fyrirmyndum. Kostnaður getur
hlaupið á tugum þúsunda punda,
enda allt að 1.000 vinnustundir á
bak við vel meitlaðan hólk.
thg@mbl.is
Sérsmíðaðar hagla-
byssur góð fjárfesting
Í HNOTSKURN
»Finnur Árnason segireðlilegt að bankar og fyr-
irtæki fái næði til að vinna úr
skuldamálum og að umræðan
eigi ekki erindi á síður dag-
blaða.
»Erlendir fjárfestar í 1998ehf. munu brátt verða
kynntir til sögunnar. Ekki
hefur fengist staðfest hvort
þeir hafa áður komið við
sögu í fjárfestingum á Íslandi
eða í fyrirtækjum tengdum
Baugi.
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
HAGAR eru vænlegra fyrirtæki
með Jóhannes Jónsson innanborðs
og mun hæfara til þess að standa við
skuldbindingar sínar ef stofnendur
fyrirtækisins halda eignarhaldi á því,
segir Finnur Árnason, forstjóri
Haga, í samtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa lykilstarfsmenn Haga
hótað því að ganga á dyr ef eigenda-
skipti verða á Högum. Finnur sendi
frá sér tilkynningu í gær þar sem
meðal annars kom fram að nú væri
unnið að skuldamálum eigenda fyr-
irtækisins, 1998 ehf. Spurður um
hvaða leiðir hann sæi færar til að úti-
loka afskriftir, sagði Finnur ekki
tímabært að ræða það í fjölmiðlum:
„Þetta er mál sem er mjög eðlilegt að
sé unnið í samvinnu banka og fyr-
irtækis. Það er með öllu óeðlilegt að
sú umræða fari fram í fjölmiðlum.“
Erna Bjarnadóttir, stjórnarformað-
ur Nýja Kaupþings, segir að stjórn
bankans hafi ekki haft vitneskju um
tilkynningu Finns.
Finnur segir þess ekki langt að
bíða að erlendu fjárfestarnir sem eru
sagðir ætla að fjárfesta í 1998 verði
kynntir til sögunnar. Inntur eftir því
hvort viðkomandi aðilar hafi áður
komið við sögu í fjárfestingum í ís-
lenskum fyrirtækjum svarar Finnur
því til að viðkomandi aðilar muni
koma til með að styrkja 1998.
Hvar afskrifast skuldin?
Nýja Kaupþing hefur tekið yfir öll
hlutabréf í 1998. Í hlutafélagalögum
er samruni þegar eitt eða fleiri fyr-
irtæki eru leyst upp og allar eignir
og skuldir þeirra eru færðar yfir til
annars fyrirtækisins sem er starf-
andi fyrir, þó að gildissvið laganna
megi túlka nokkuð rúmt. Þegar 1998
rennur inn í Nýja Kaupþing fær
bankinn yfirráð á réttindum og
skyldum félagsins, skuldum þar með
töldum. Afskrift á 48 milljarða kröfu
sem var upphaflega á hendur 1998 er
því strangt til tekið ekki „afskrift
skulda 1998“ eftir að samruni hefur
átt sér stað. Í samtölum Morgun-
blaðsins við lögfræðinga getur þessi
túlkun á lögum um samruna og
hlutafélög átt við rök að styðjast, og
ef til vill skýrir hún þær fullyrðingar
forsvarsmanna 1998 að engar af-
skriftir verði á skuldum 1998, enda
er skuldin orðin Nýja Kaupþings eft-
ir samrunann. Þess má geta að Sam-
keppniseftirlitinu hefur borist fjöldi
tilkynninga um samruna banka við
hin ýmsu fyrirtæki í skuldavanda.
Ekki náðist í Finn Sveinbjörnsson,
forstjóra Nýja Kaupþings, eða Sig-
urjón Pálsson, stjórnarformann
1998, við vinnslu fréttarinnar þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Forstjórinn vill Jóhannes
Jónsson meðal eigenda
Stjórn Nýja Kaupþings hafði ekki vitneskjum um tilkynningu frá Högum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hagar Finnur Árnason telur Hagar munu verða hæfari til að standa skil á
sínum skuldbindingum ef Jóhannes Jónsson er enn meðal eigenda.
● VILHJÁLMUR
Þorsteinsson mun
taka sæti í stjórn
verðbréfafyrirtæk-
isins Auður Capi-
tal eftir að hafa
keypt 10% hlut í
félaginu, sem
stofnað var fyrir
tveimur árum af
Höllu Tómasdóttur
og Kristínu Péturs-
dóttur. „Nálgun og hugmyndafræði
Auðar höfðar til mín og hefur þegar
sannað gildi sitt. Í farvatninu er hug-
arfarsbreyting í viðskipta- og fjármála-
lífi, sem Auður er í takti við,“ segir Vil-
hjálmur í tilkynningu um hlutafjár-
kaupin. Um 35 manns starfa hjá Auði.
„Auður höfðar til mín“
Vilhjálmur
Þorsteinsson
● VIÐSKIPTI með skuldabréf námu
11,2 milljörðum króna í kauphöllinni í
gær, þar af fyrir 7,7 milljarða með rík-
isskuldabréf. Vel heppnað útboð á rík-
isvíxlum fór fram daginn áður hjá Lána-
málum ríkisins þar sem tilboðum fyrir
20 milljarða króna var tekið. Von er á
öðru útboði í næstu viku.
Viðskipti með hlutabréf námu 129,5
milljónum króna, þar af fyrir 128,5 millj-
ónir með bréf Marels, sem hækkuðu
um 2,4% í þessum viðskiptum.
Vel heppnað útboð
ÞETTA HELST…
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/S
A
L
47
91
5
11
.0
9
RÁÐSTEFNA UM OPINBER FJÁRMÁL
DAGSKRÁ OG SKRÁNING Á VEF SA: WWW.SA.IS
FFR
ER AÐ MARKA FJÁRLÖG?
ÞRIÐJUDAGINN 17. NÓVEMBER 2009 KL. 13:30–17:00 Á HÓTEL NORDICA