Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 33
Umræðan 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009 FLEST umferð- arslys verða af völdum rangra ákvarðana eða áhættuhegðunar sem margir kannast við. Í einhverjum tilfellum finnst ökumönnum slík hegðun eftirsókn- arverð. Sú tilfinning er í sjálfu sér ekki óeðli- leg. Það getur verið gaman að keyra hratt og vinsælar akstursíþróttir eru stundaðar þar sem hraðinn skiptir mestu máli. Erfiðar og flóknar þraut- ir eru þreyttar og ef ekki er rétt að málum staðið getur leikurinn verið hættulegur. Það sem skilur almenna umferð frá slíkum keppnum er sú staðreynd að ef eitthvað fer úrskeiðis í keppn- inni þá er umhverfi, aðbúnaður og ör- yggisþættir þannig að hægt er að aka á miklum hraða án þess að alvarlegt slys hljótist af. Aðstæður í almennri umferð eru hinsvegar allt aðrar. Þar er fjöldi ökumanna sem eru misjafn- lega vel á sig komnir til að bregðast við hættu sem stafað getur af áhættuhegðun auk þess sem um- hverfið er yfirleitt ekki til þess gert að farið sé hraðar en leyfður há- markshraði segir til um. Það má því ekki láta fyrrnefndar hvatir trufla dómgreindina í almennri umferð inn- an um saklausa vegfarendur. Ekki frekar en að skytta léti það eftir sér að æfa skotfimi í almenningsgarði. Ofmat á eigin hæfni og trú á eigin ódauðleika virðist fylgja flestum okk- ar, sérstaklega á unga aldri. Líklega er það hluti þess þroska sem við þurf- um að taka út í uppvextinum. Ef við þyrðum aldrei að prófa nokkurn hlut af ótta við afleiðingarnar gæti það hamlað mikilvægum þroska. Við þurfum hinsvegar ekki að gera til- raunir með það í umferðinni hvort við getum ekið undir áhrifum áfengis, án bílbelta eða of hratt. Afleiðingar þess eiga að vera okkur ljósar. Um það vitnar fjöldi fólks sem hefur örkum- last og látið lífið í umferðinni. Eitt stærsta og alvarlegasta vandamálið sem við stöndum frammi fyrir í umferðinni er vímuefnaakstur. Er þá átt við akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Í ein- hverjum tilfellum er um að ræða öku- menn sem stríða við alkahólisma. Í öðrum tilfellum er um að ræða tímabundinn en stund- um endurtekinn skort á ábyrgð og dómgreind. Í mörgum tilfellum hefði mátt koma í veg fyrir þessi slys á einfaldan hátt. Til staðar voru einstaklingar sem vissu og gerðu sér grein fyrir að ökumaðurinn var ölvaður en gerðu ekk- ert til að koma í veg fyr- ir aksturinn. Einhverjir þeirra vildu ekki gera ökumanninum þann „grikk“ að skerast í leikinn en gerðu sér á sömu stundu ekki grein fyrir að þeir hefðu getað forðað honum frá því að verða mannsbani. Í umferðinni berum við öll ábyrgð og sú ábyrgð er m.a. undirstrikuð í því að ef sest er upp í bíl með öku- manni sem augljóslega er undir áhrifum áfengis eða annarra vímu- efna þá á farþeginn það á hættu að vera synjað um slysabætur þar sem honum á að vera ljós áhættan sem hann er að taka. Í 46. gr. Umferð- arlaga er kveðið sérstaklega á um ábyrgð starfsfólks á vínveitinga- húsum og afgreiðslufólks á bens- ínstöðvum. Ef það verður vitni af því að ölvaður einstaklingur hyggst setj- ast undir stýri ber því skylda til að koma í veg fyrir það og/eða tilkynna til lögreglu. Ábyrgðin er okkar allra. Eiga ekki rétt á slysabótum Eftir Einar Magnús Magnússon »Ef sest er upp í bíl með ökumanni sem sjáanlega er undir áhrif- um vímuefna þá er litið svo á að farþeginn eigi ekki rétt á slysabótum. Einar Magnús Magnússon Höfundur er verkefnastjóri umferðaráróðurs og fjölmiðlunar hjá Umferðarstofu. ÞAÐ var ánægju- legt að sjá í frétt Morgunblaðsins síð- astliðinn laugardag að mengun af völdum brennisteinsvetnis mældist undir viðmið- unarmörkum Alþjóða- heilbrigðisstofnunar- innar (WHO) í Hveragerði. Slíkt ætti auðvitað ekki að vera fréttaefni heldur stað- reynd sem allir íbúar landsins ættu að geta unað glaðir við, sér- staklega núna þegar áhrifa virkj- ana á Hellisheiði gætir með um- talsverðum hætti bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og fyrir austan fjall. Til upplýsingar er rétt að geta þess að mælingar á brennisteins- vetni hafa farið fram í Hveragerði og Reykjavík undanfarna mánuði. Þó að sólarhringsmeðaltal brenni- steinsvetnis í andrúmslofti sé und- ir mörkum á þessum stöðum hafa mælingar sýnt að mengun hefur ítrekað mælst mjög mikil en þá í styttri tíma hverju sinni. Það sem síðan vekur athygli er að mun- urinn á mælingum í Hveragerði og Reykjavík er hverfandi og því eru mæligildin oft mjög há á höf- uðborgarsvæðinu þó að sólar- hringsmeðaltal þar sé einnig undir viðmiðunarmörkum. Íslensk viðmiðunar- mörk vantar Vandinn sem við er að glíma er reyndar sá að hér á landi skortir raunhæf viðmiðunarmörk vegna mengunar af völdum loftborins brennisteinsvetnis sem taka mið af þeim eitrunaráhrifum sem brenni- steinsvetni getur haft. Aldrei hefur verið sett reglugerð þar sem kveð- ið er á um hversu mikil mengunin má vera miðað við sólarhringsmeð- altal eða hver hæstu gildi mega vera miðað við klukkutímameðaltal. Setning slíkrar reglu- gerðar hlýtur að vera forsenda þess að vit- ræn umræða geti átt sér stað um þá meng- un sem hlýst af jarð- varmavirkjunum og um áhrif mengunar- innar á þá ein- staklinga sem búa þurfa við slíka meng- un. Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að áhrif mengunar af völdum brennisteinsvetnis eru mikil á heilsu fólks, sé búið við hana að staðaldri, jafnvel þó að hún sé langt undir viðmið- unarmörkum WHO. Þjóðin getur aldrei sætt sig við að heilsuspillandi mengun eigi uppruna sinn í túnfæti höfuðborg- arinnar eða annarra byggðarlaga með þeim afdrifaríku áhrifum sem slíkt getur haft á líf og heilsu fólks. Því er afar brýnt að nú þegar verði sett reglugerð sem tekur mið af þeim reglum sem önnur ríki og lönd sem búa við svipaðar að- stæður hafa sett sér. Einnig er mikilvægt að viðeig- andi hreinsibúnaður verði þegar í stað settur á þær virkjanir sem reistar hafa verið og nýjar verði ekki byggðar án bestu fáanlegrar tækni í mengunarvörnum. Mengun kallar á ákvörðun um við- miðunarmörk Eftir Aldísi Hafsteinsdóttur Aldís Hafsteinsdóttir » Þjóðin getur aldrei sætt sig við að heilsuspillandi mengun eigi uppruna sinn í tún- fæti höfuðborgarinnar eða annarra byggð- arlaga. Höfundur er bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Fremstir í atvinnufasteignum :: 590 7600 Þorlákur Ó. Einarsson Þórhildur Sandholt lögg. fasteignasali lögfr. og lögg. fast.sali storeign.is Fax 535 1009 Fasteignasala • Atvinnuhúsnæði • Skúlatún 2 • 105 Rvk Suðurlandsbraut Stóreign 590-7606 kynnir til leigu glæsilega 346 fermetra penthouse skrifstofuhæð við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Húsnæðið skiptist í mót- töku, fundarherbergi, þrjár lokaðar skrifstofur stúkaðar af með glerveggj- um og opnu skrifstofurými. Kaffiað- staða er fyrir starfsfólk með eldhús aðstöðu. Húsnæðið er nýlega endurinnréttað allt með vönduðum innrétt- ingum. Gólfefni eru parket. Glæsilegt útsýni er úr öllu rýmum. Möguleiki er á að leigja allt að 700 fermetra í húsinu. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Stóreignar 590 7606 eða brandur@storeign.is Reykjavík Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali NÝTT HÚS Í SÖLU Á ARNARNESHÆÐINNI MALTAKUR 1 – GLÆSILEGAR FULLBÚNAR ÍBÚÐIR Stórglæsilegar og vel hannaðar 2ja og 3ja herbergja fullbúnar íbúðir á frábærum stað á Arnarneshæðinni. Íbúðastærðir eru frá 81–123 fm. Íbúðirnar eru fullbúnar með fallegu eikarparketi á gólfum. Fallegar innréttingar úr eik eða hlyn og innihurðir úr eik. Gert er ráð fyrir ríkulegri innfelldri halogenlýsingu í loftum aðalrýmis íbúðarinnar. Í húsinu, sem er aðeins tveggja hæða, eru 14 íbúðir í tveimur stigahúsum og er húsið klætt viðhaldslítilli klæðningu. Verð frá 17,9–28,0 millj. OPIÐ HÚS Í DAG (LAUGARDAG) FRÁ KL. 13:00–15:00 OPIÐ HÚS NÝTT Í SÖ LU Efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt óinnréttuðu risi í steinhúsi. Hæðin er 87 fm og er risið yfir allri íbúðinni. Auk þess er sérgeymsla og sameign í kjallara. Eign sem býður upp á góða nýtingar- möguleika. Frábær stað- setning. Verð 27,5 millj. VESTURBÆR - SÖRLASKJÓL Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013 Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090 jöreign ehf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.