Morgunblaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
335. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
« AVATAR
SLÆR DRAUMSÝN
CAMERONS Í GEGN?
«N1DEILDIN
Berglind Íris best
í leik og marki
6
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„[...] verði þessar breytingar að lög-
um þá mun staðgreiðsluframkvæmd
verða flóknari og ónákvæmari,“
segir í umsögn embættis ríkisskatt-
stjóra um ákvæði um þrepskiptan
tekjuskatt í frumvarpi fjármálaráð-
herra um tekjuöflun ríkissjóðs.
Bent er á að þetta eigi sérstaklega
við um þá sem starfa hjá fleiri en
einum launagreiðanda og jafnframt
um þá sem samskattaðir eru og
hafa mismiklar tekjur.
„Við álagningu opinberra gjalda
mun fjöldi framteljenda því annað
hvort eiga inneign hjá hinu opin-
bera í formi ofgreidds tekjuskatts
og útsvars eða skulda opinber
gjöld. Samkvæmt upplýsingum úr
staðgreiðslukerfi ríkisskattstjóra
eru um það bil 33.000 launþegar
með hærri árstekjur en 2.400.000
kr. og þiggja laun frá fleiri en ein-
um launagreiðanda. Gera má ráð
fyrir að langflestir þessara aðila
muni fá leiðréttingu í álagningu,“
segir í umsögninni.
Skattstjóri Suðurlandsumdæmis
tekur í sama streng og segir í um-
sögn við frumvarpið að fjögur
skattþrep hafi í för með sér alls
kyns flækjur í skattframkvæmdinni
og verði dýr í rekstri. „Undirbún-
ingstíminn er nánast enginn og að-
lögun launakerfa landsmanna taf-
söm og dýr,“ segir hann.
„Nær ógerlegt að leiða
fram auðlegðarskattstofn“
Efnahags- og skattanefnd Al-
þingis hefur borist mikill fjöldi um-
sagna við skattafrumvörpin og eru
mörg ákvæði þeirra gagnrýnd.
Fram kemur í umsögnum endur-
skoðunarfyrirtækja og endurskoð-
enda að óframkvæmanlegt sé að
leggja auðlegðarskatt á einstak-
linga þar sem markaðsvirði hluta-
bréfa eigi að mynda skattstofninn.
Deloitte bendir á að einstaklingar
telja fram í mars en félög allt fram
til 15. september. „[...] er hluti auð-
legðarskattstofnsins byggður á
skattalegu bókfærðu eigin fé félaga
sem eiga eftir að telja fram þegar
einstaklingurinn á að hafa byggt
sitt framtal á framtali félagsins sem
hefur ekki enn talið fram.“ Félag
löggiltra endurskoðenda segir að
miðað við núverandi lögsögu og
skattaumgjörð á Íslandi geti verið
nær ógerlegt að leiða fram auðlegð-
arskattstofn eins og gert sé ráð fyr-
ir í frumvarpinu.
Hefur í för með sér | 8
„Flóknari og ónákvæmari“
RSK telur líklegt að leiðrétta þurfi álagningu tuga þúsunda eftir skattabreytingu
„Undirbúningstími nánast enginn og aðlögun launakerfa landsmanna tafsöm og dýr“
VERKTAKAR munu í dag færa farveg Hvítár í Árnessýslu, þar sem verið
er að smíða nýja brú yfir ána við Bræðratungu. Fyrri helmingur brúar-
innar, sem byggður var á fyllingu, er þegar kominn og nú verður hafist
handa austan megin við ána og þá er ánni veitt að vesturbakkanum. Alls
verður brúin 270 metra löng og verður tilbúin síðari hluta næsta árs. Brúin
breytir miklu fyrir samgöngur í uppsveitum á Suðurlandi.
FÆRA FARVEG HINS MIKLA FALLVATNS
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
MAÐUR fórst
en öðrum var
bjargað eftir að
bát hvolfdi út af
Vattarnesi við
Fáskrúðsfjörð í
gærmorgun.
Maðurinn sem
bjargaðist
komst í gúm-
björgunarbát
og var bjargað
um borð í nærstaddan fiskibát. Til-
drög slyssins eru til rannsóknar.
Mikið lið björgunarmanna vann við
leit og björgunarstörf fram eftir
degi í gær. »4
Manni bjargað en annar
fórst út af Fáskrúðsfirði
HILDUR
Björnsdóttir, for-
maður Stúd-
entaráðs Háskóla
Íslands, segir að
niðurskurðurinn
hafi þegar haft
áhrif á stúdenta
og þeir óttist sér-
staklega fjölda-
takmarkanir og hækkun skrásetn-
ingargjalda.
Háskólarnir hafa brugðist við
minni fjárveitingum með því að
halda að sér í mannaráðningum og
lækka laun starfsmanna. Fjölgun
nemenda geri þeim hins vegar erf-
itt að brúa bilið. »18
Háskólastúdentar óttast
niðurskurð til skólanna
Búist er við að 53% af almennum
kröfum í þrotabú Straums verði
greidd, en allar forgangskröfur og
kröfur með veðum verði að fullu
greiddar.
VIÐSKIPTI
Allar forgangs-
kröfur greiddar
Stofnefnahagsreikningur NBI nem-
ur tæplega 944 milljörðum króna,
en reikningurinn var kynntur til
sögunnar í gær. Það svarar til 65%
af vergri landsframleiðslu á Íslandi.
Eignir NBI 65% af
landsframleiðslu
LOKUN tónlistarskóla og bóka-
safns og engar strætisvagnaferðir
geta á ári skilað 195 milljóna króna
sparnaði í rekstri Sveitarfélagsins
Álftaness. Halli á rekstri Álftaness
stefnir í að verða 232 milljónir
króna í ár og nær 570 milljónir ef
ekki er tekið tillit til sölu bygging-
arréttar. Rætt hefur verið um að
hækka útsvar og fasteignagjöld. Þá
benda ráðgjafar á þá möguleika til
hagræðingar að draga úr viðhaldi,
lækka styrki til íþróttafélaga og að
í skólamötuneyti gildi sú regla að
þeir borgi sem borða. »14
Mikill niðurskurður á Álftanesi
og þeir borgi sem borða
Fleiri a
ska tak
k!
Kveðja, Askasleikir
*Nánar um skilmála á flytjandi.is
PI
PA
P
R
\\
BW
AA
TB
••
SÍ
A
•
9
SÍ
A
•
91
8
818
S
91
8
8
Opið til kl.22 öll kvöld til jóla!
Gjafakort er góður pakki