Morgunblaðið - 17.12.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
MAÐUR fórst þegar fimmtán tonna
bát hvolfdi út af Vattarnesi við Fá-
skrúðsfjörð í gærmorgun. Tveir
menn voru um borð. Öðrum mann-
inum tókst að komast um borð í
gúmbjörgunarbát og var bjargað um
borð í fiskibát.
Mennirnir voru að ferja 15 tonna
bát frá Austfjörðum til Reykjavíkur.
Ekki er vitað um tildrög slyssins.
Veður var ágætt á vettvangi í gær.
Rannsóknarnefnd sjóslysa fær at-
vikið til skoðunar.
Neyðarblys við Skrúð
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
barst tilkynning kl. 8.40 í gærmorg-
un um rautt ljós sem sást í námunda
við eyjuna Skrúð sem er í mynni Fá-
skrúðsfjarðar. Björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins Landsbjargar á
Austurlandi voru kallaðar út og fóru
á vettvang með björgunarskip, báta
og kafara. Einnig var haft samband
við nærstadda báta á svæðinu og
þeir beðnir að svipast um eftir bátn-
um.
Kallaðir voru út kafarar á Austur-
landi og einnig sótti Líf, þyrla Land-
helgisgæslunnar, kafara á Höfn. Alls
voru um fimmtíu björgunarsveitar-
menn að störfum á svæðinu í gærdag
auk lögreglumanna og mannskaps
frá Landhelgisgæslunni.
Dreginn til hafnar
Neyðarblys sást frá Vattarnesi
um hálftíuleytið og kom fiskibátur að
gúmbjörgunarbátnum skömmu síð-
ar. Annar mannanna úr bátnum var
þar heill á húfi og var bjargað í land.
Mannsins sem saknað var, var
leitað fram eftir degi, á meðan bát-
urinn var dreginn til lands. Hann
fannst látinn um borð í bátnum, þeg-
ar komið var til hafnar á Fáskrúðs-
firði.
Ljósmynd/LHG
Björgunarstarf Fiskibáturinn maraði í hálfu kafi þegar dráttarbátur tók hann í tog. Björgunarmenn eru við bátinn.
Maður fórst þegar
bát hvolfdi við Skrúð
Öðrum manni af bátnum var bjargað úr gúmbjörgunarbát
Bát hvolfdi
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður Andey
Skrúður
Seley
Stöðvarfjörður
Björgunarbátur
finnst
Vattarnes
„VIÐ vonumst til að fá meira út úr
þessu en í fyrra. Þetta hefur verið
erfitt ár hjá björgunarsveitunum og
þær hafa þurft að gæta vel að út-
gjöldum og fresta fjárfestingum,“
segir Kristinn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Kreppan sem skall á
þjóðinni á síðasta ári og gengisfall
krónunnar drógu mjög úr tekjum af
flugeldasölu.
Undirbúningur fyrir flugeldasöl-
una um áramót hófst strax í janúar.
Ákveðið var að panta svipað magn og
í fyrra en þá var dregið úr innkaup-
um á síðustu stundu. Þá eiga björg-
unarsveitirnar nokkrar birgðir, sér-
staklega af dýrari vörum.
Flutningur á flugeldum er háður
takmörkunum af öryggisástæðum.
Þannig má aðeins hafa örfáa gáma í
hverju skipi og umskipun í Evrópu
má ekki taka nema sólarhring. Krist-
inn segir að allt gangi þetta örugg-
lega fyrir sig. Flugeldarnir skiluðu
sér hingað til lands, frá Kína, í októ-
ber og nóvember og þeir síðustu í
byrjun þessa mánaðar. Allt er því að
verða klárt fyrir flugeldasöluna sem
hefst að venju 28. desember.
Kristinn segir að farið verði var-
lega í verðlagningu, miðað við þróun
verðlags í landinu. Telur hann að
vörurnar hækki að jafnaði um 5 til
10% frá síðasta ári. helgi@mbl.is
Flugeldarnir eru
komnir til landsins
5-10% verðhækkun
Flugeldasýning Svipað magn af
flugeldum var flutt inn og í fyrra.
EKKI fengust í gær frekari upplýs-
ingar um kyrrsetningu breska fjár-
málaeftirlitsins á eignum Lands-
bankans í Bretlandi, fimm dögum
áður en bresk stjórnvöld beittu
hryðjuverkalögum gagnvart Ís-
landi. Ekki heldur um það hvort
sömu aðgerð hafi verið beitt gegn
Kaupþingi.
Fjármálaeftirlitið íslenska kvaðst
ekki geta svarað spurningum um
málið þar sem það væri bundið ríkri
þagnarskyldu. Verið er að fara yfir
spurningar blaðamanns hjá Seðla-
banka Íslands. Engin svör hafa bor-
ist frá skilanefndum Landsbankans
og Kaupþings.
Ekki fást upplýs-
ingar um kyrrsetn-
ingu eigna banka
Eignir LÍ í London voru kyrrsettar.
Héraðsdómur
Reykjavíkur
dæmdi í gær tvo
pólska karl-
menn, Marcin
Piotr Gosz og
Apoldeusz W.
Wróblewski, í
tveggja og hálfs
árs fangelsi fyr-
ir innflutning á 5.995 töflum sem
innhéldu metamfetamín og PCP,
eða englaryk. Mennirnir voru
handteknir í Leifsstöð við kom-
una til landsins 12. september sl.
Í álitsgerð Jakobs Krist-
inssonar dósents við rann-
sóknastofu í lyfja- og eitur-
efnafræði kemur fram að hér á
landi og eins á hinum Norð-
urlöndunum hefur notkun engla-
ryks verið nánast óþekkt. Í Nor-
egi var lagt hald á efnið árið
2003 og voru þá liðin tíu ár frá
því það sást þar síðast.
Mennirnir neituðu sök og sögð-
ust ekki þekkjast eða hafa hist
áður. Dómurinn taldi mála-
tilbúnað þeirra ótrúverðugan
enda voru pakkningarnar sem
fundust á þeim eins, efnin þau
sömu, þ.m.t. englarykið og þeir
voru með símanúmer hvor annars
á sér.
Með amfetamín og
englaryk í töfluformi
BJARKI Stein-
grímsson var í
gær settur af
sem varafor-
maður VR.
Stjórn félagsins
samþykkti til-
lögu um van-
traust á Bjarka
en deilur hafa
verið milli hans
og annarra í
stjórn. Steininn tók úr eftir fund
á Austurvelli þar sem hann lítils-
virti störf verkalýðshreyfing-
arinnar í heild, eins og forysta
VR kemst að orði. „Menn í trún-
aðarstörfum verða að ganga í
takt við meirihlutann,“ sagði
Kristinn Jóhannesson formaður
VR í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir Bjarka hafa dylgjað
um meint leynimakk, farið með
ósannindi og fleira. Á fundi
stjórnar VR í gær var Ásta Rut
Jónasdóttir kosin varaformaður.
„Ég kallaði eftir siðbót innan
VR en sú krafa hefur ekki fengið
hljómgrunn. Að vera velt úr sessi
er nokkuð sem ég bjóst við,“
sagði Bjarki Steingrímsson.
sbs@mbl.is
Stjórn VR setti vara-
formann úr embætti
Bjarki
Steingrímsson
SJÓSLYSIÐ við Skrúð í gær er
fyrsta banaslysið á sjó á þessu
ári. Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarnefnd sjóslysa varð
ekkert banaslys til sjós hér við
land á síðasta ári. Það hafði þá
ekki gerst áður í manna minn-
um. Töldu kunnugir að fara
þyrfti jafnvel aftur á landnáms-
öld til að finna ár án mannskaða
til sjós. Það sem af er árinu hafa
145 óhöpp og vinnuslys á sjó
verið tilkynnt til rannsóknar-
nefndarinnar. Á sama tíma í
fyrra höfðu 166 slys verið til-
kynnt og allt síðasta ár urðu þau
172 að tölu. Til viðbótar eru að
jafnaði nokkur óhöpp sem aldr-
ei koma á borð nefndarinnar,
heldur eru tilkynnt til trygg-
ingafélaga eða Trygginga-
stofnunar.
Rannsóknarnefndin hefur
einnig til skoðunar banaslys
sem varð við köfun í Hvalfirði á
dögunum, en það er ekki flokk-
að sem sjóslys.
Fyrsti mannskað-
inn á sjó á árinu
Ríkisendurskoðun telur að það sé
andstætt grunnforsendum reiknings-
skila að færa fyrirframgreiðslur stór-
iðjufyrirtækja á
tekjuskatti til
tekna, greiðslurn-
ar séu í eðli sínu
lánveiting.
Helgi Hjörvar,
formaður efna-
hags- og skatta-
nefndar, óskaði
eftir áliti Ríkis-
endurskoðunar á
möguleikum til
tekjufærslu á fyr-
irframgreiddum sköttum. Gert var
ráð fyrir slíkum greiðslum fjögurra
stóriðjufyrirtækja í samningi ríkisins
við Samtök iðnaðarins og síðar í fjár-
lagafrumvarpi. Fékk formaður
nefndarinnar minnisblað Ríkisendur-
skoðunar 11. nóvember þar sem fram
kemur að ekki sé rétt að færa þessar
fyrirframgreiðslur til tekna.
Dregur ekki úr halla
Þegar frumvarp iðnaðarráðherra
um þetta mál var rætt á þingi í fyrra-
kvöld gagnrýndu stjórnarandstæð-
ingar fyrirhugaða tekjufærslu.
„Þetta er vanhugsuð aðgerð sem
engu máli skiptir fyrir afkomu ríkis-
sjóðs á næsta ári. Ég tel að það skorti
alla fagmennsku við þessar ákvarð-
anir. Svona æfingar eiga að heyra for-
tíðinni til,“ segir Tryggvi Þór Her-
bertsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, í samtali við
Morgunblaðið. Hann vísar til þess að
reikningsskilum ríkissjóðs hafi verið
breytt á sínum tíma til að draga úr
möguleikum stjórnmálamanna til að
breyta niðurstöðum rekstrar með
slíkum tilfærslum milli ára.
Ríkisendurskoðun ítrekaði skoðun
sína í fyrradag með því að senda for-
manni fjárlaganefndar minnisblaðið.
Því var dreift í nefndinni. helgi@mbl.is
Ekki skal
tekjufæra
Tryggvi Þór
Herbertsson
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði í vikunni kannabis-
ræktun í tveimur íbúðum í Reykja-
vík. Alls fundust um 200 kannabis-
plöntur og einnig maríjúana.
Um 160 kannabisplöntur á ýms-
um stigum ræktunar og 25 g af
maríjúana fundust í íbúð í fjöl-
býlishúsi í Háaleiti. Húsráðandinn,
karlmaður á þrítugsaldri, játaði
aðild. Einnig var stöðvuð kanna-
bisræktun í íbúð í miðborg
Reykjavíkur eftir að lögreglumað-
ur fann kannabislykt leggja frá
húsi. Það leiddi til húsleitar og
fundust 35 kannabisplöntur.
Stöðvuðu kannabis-
ræktun í borginni
Faxafeni 5
S. 588 8477
Mjúkir pakkar !
Orginal heilsukoddi
Kr. 15.120,-
Te
m
pu
r 15 ár á Ísland
i
Te
m
pur 15 ár á
Ísl
an
d
i