Morgunblaðið - 17.12.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
SJÁLFBOÐALIÐAR Fjölskylduhjálpar Íslands fengu
óvænta heimsókn í gær þegar jólasveinninn Þvöru-
sleikir rak höfuð inn um dyrnar hjá þeim í úthlutun-
armiðstöðinni í Eskihlíð. Kom Þvörusleikir færandi
hendi með heitt súkkulaði og piparkökur fyrir sjálf-
boðaliða Fjölskylduhjálparinnar, auk nokkurra bretta
af hreinlætispappír frá Papco sem dreift verður til
þurfandi fjölskyldna fyrir jólin.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
ÞVÖRUSLEIKIR GLEÐUR SJÁLFBOÐALIÐA
FORSVARSMENN íslenskrar
kvikmyndagerðar skora á ráðamenn
þjóðarinnar að draga úr niðurskurði
á framlögum til Kvikmyndamið-
stöðvar. Þetta kemur fram í bréfi frá
fulltrúum kvikmyndagerðarmanna
sem sent var þingmönnum.
Í bréfinu kemur fram að öllum
megi vera ljóst að skera þurfi niður
útgjöld ríkisins. Það gildi jafnt um
menningarmál sem aðra málaflokka.
„Okkur undirrituðum þykir hins
vegar ótækt hve hart er gengið að
kvikmyndagerðinni umfram aðrar
listgreinar og raunar umfram aðrar
starfsgreinar þessa lands.“
Síðustu fregnir bendi til þess að
framlag til Kvikmyndamiðstöðvar
verði lækkað um 140 milljónir frá
framlagi síðasta árs, sem er tæplega
fjórðungs lækkun. Sú upphæð jafn-
gildi tveggja ára framlögum úr Sjón-
varpssjóði. „Varla er það vilji Al-
þingis að leggja af þær vinsælu og
almennt vel heppnuðu þáttaraðir
sem framleiddar eru fyrir atbeina
sjóðsins,“ segir í bréfinu.
Erfitt sé að finna listgrein sem
leggi jafnmikið til þjóðarbúsins og
kvikmyndagerðin. Rök hafi verið að
því leidd að ríkið fái sitt framlag til
baka og vel það. Þau rök virðist þó
ekki hafa sannfært þá sem ráða nú.
Of hart
gengið að
kvikmynda-
gerðinni
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„MÉR telst til að það séu einir 72
staðir sem ég hef komið á til að
lesa upp úr bókinni og árita. Þetta
er búið að vera mjög skemmtilegur
tími og ég hef verið umkringdur
hlýlegu, góðu og hressilegu fólki,“
segir sr. Hjálmar Jónsson dóm-
kirkjuprestur en ævisaga hans,
Hjartsláttur, hefur fengið glimr-
andi góðar viðtökur frá því að bók-
in kom út í byrjun nóvember.
Hefur Hjálmar verið á þeytingi
um landið síðustu vikurnar, jafnt
um landsbyggðina sem höfuðborg-
arsvæðið, og líkast til fáir skrásetj-
arar sem lesið hafa upp á fleiri
stöðum á þetta skömmum tíma.
„Fyrir mér er Ísland eitt kjör-
dæmi núna. Það er alltaf gaman að
fara um landið og hitta fólk og
þarna hafa sýnt sig bestu hliðar
prófkjörsins,“ segir Hjálmar en
hann sat sem kunnugt er á Alþingi
í nokkur ár. Spurður hvort ferða-
lögin hafi kveikt löngun hjá honum
til að snúa aftur í stjórnmálin segir
Hjálmar alls ekki svo vera. Frekar
hafi þessi góðu viðbrögð hvatt
hann til að skrifa meira, ferðast
um og hitta fólk.
Þakklátur fyrir móttökurnar
„Ferðalögin hafa sannað fyrir
mér enn og aftur að samskiptin við
fólkið eru dýrmætust alls, gömul
vinátta og ný. Ég er afar þakk-
látur fyrir þær móttökur sem bók-
in hefur fengið. Ég skil rithöfunda
vel núna, þá sem baukað hafa við
það lengi að semja texta og fara
með hann út á meðal fólks. Ég hélt
að stærsti áfanginn væri að baki
þegar ég var búinn að skrifa bók-
ina en það reyndist þægilegur mis-
skilningur. En svona hefur aðvent-
an oftast verið hjá mér, að fara á
milli fólks og flytja mál aðvent-
unnar og jólanna. Með sérstökum
hætti hef ég notið þess núna, öðr-
um þræði vegna þess að ég á í
minningunni margar góðar jóla- og
aðventustundir og hef fengið tæki-
færi til að rifja þær upp,“ segir
hann.
Ekki laus stund til jóla
Annríkið er ekki aðeins mikið
vegna bókarinnar heldur er varla
nokkur laus stund hjá dómkirkju-
prestinum til jóla. Framundan eru
fjórar jarðarfarir til jóla og síðan
tekur við undirbúningur fyrir
messuhald yfir jólin. Að venju
verður aftansöng útvarpað frá
Dómkirkjunni klukkan sex á að-
fangadag.
Hjartsláttur á 72 stöðum
Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur á þeytingi um landið að lesa upp úr
ævisögunni „Eins og bestu hliðar prófkjörs,“ segir þingmaðurinn fyrrverandi
Útgáfa Hjálmar Jónsson ritar ævi-
sögu sína, Hjartslátt, sjálfur.
Efnahags-
brotadeild
bresku lögregl-
unnar, Serious
Fraud Office,
hefur tilkynnt að
hafin sé formleg
rannsókn á því
hvort lög hafi
verið brotin í
starfsemi Kaup-
þings í Bretlandi
fyrir fall bankans.
Rannsóknin beinist einkum að
því hvaða aðferðum var beitt til að
fá sparifjáreigendur og fjárfesta til
að leggja fé inn á Kaupthing Edge
reikningana. Grunur leikur á að
misvísandi upplýsingum hafi verið
komið á framfæri til að laða breska
fjárfesta að. Einnig eru til rann-
sóknar ákvarðanir stjórnenda sem
talið er að hafi leitt til þess að um-
talsverð verðmæti voru tekin út úr
Kaupþingi dagana fyrir fall hans
bankans.
Efnahagsbrotanefndin hefur
unnið náið með embætti sérstaks
saksóknara frá því í september og
skipst hefur verið á upplýsingum,
m.a. um Kaupþing.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, segir að SFO vinni mál
sín þannig að fyrst sé farið í eftir-
grennslan. Síðar er lagt mat á
hvort hefja eigi rannsókn. Í bresk-
um fjölmiðlum í gær kom fram að
þessi rannsókn gæti leidd til þess að
starfsmenn bankans yrðu ákærðir í
Bretlandi fyrir brot á hegning-
arlögum sem gæti leitt til fangels-
isdóma. andri@mbl.is
SFO hefur formlega
rannsókn á Kaupþingi
Ólafur Þór
Hauksson