Morgunblaðið - 17.12.2009, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
SVEITARFÉLAGIÐ Garður mun
þurfa að ganga á Framtíðarsjóð sinn
til að standa undir áframhaldandi
uppbyggingu Gerðaskóla á næsta ári.
Jafnframt verður fé sjóðsins notað til
að kaupa jörðina Útskála. Þessi
áform verða kynnt á íbúafundi í Garð-
inum í kvöld.
Áætlað er að framkvæmdir við
stækkun Gerðaskóla sem hófust á síð-
asta ári kosti tæpar 900 milljónir kr.
Búið er að taka fjórar kennslustofur í
notkun og áætlað að ljúka jafn mörg-
um á næsta ári. Áformað er að flytja
tónlistarskólann í nýju aðstöðuna í
Gerðaskóla á næsta ári en þar hefur
nú verið útbúinn tónleikasalur. Þá
verður skólalóðin endurnýjuð.
Greiða niður lán
Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri
segir að til þessa hafi ávöxtun Fram-
tíðarsjóðs verið notuð í uppbygg-
inguna. Aðstæður hafi breyst á fjár-
málamörkuðum og því vilji
bæjarstjórn nota 300 milljónir úr
sjóðnum til að fjármagna þessa mik-
ilvægu uppbyggingu.
Þegar hefur verið ákveðið að nota
340 milljónir til að greiða niður lán. Þá
hafa náðst samningar við kirkjuráð
um að sveitarfélagið kaupi land
kirkjujarðarinnar Útskála fyrir 90
milljónir. Framtíðarsjóðurinn mun
fjármagna það. helgi@mbl.is
Taka úr sjóði til að kaupa
land og byggja við skóla
Morgunblaðið/RAX
Gerðaskóli Uppbygging Gerðaskóla er fjárfesting í framtíðinni.
Í HNOTSKURN
»Framtíðarsjóður Garðsvarð til fyrir rúmum
tveimur árum þegar sveitarfé-
lagið seldi eignarhlut sinn í
Hitaveitu Suðurnesja. Stofn-
féð, um tveir milljarðar króna,
er varðveitt í banka.
Áform um Fram-
tíðarsjóð Garðs
kynnt á íbúafundi
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„PIPARKÖKUHÚSIN eru mín
handavinna, núna þegar allar kon-
ur eru farnar að prjóna,“ segir Val-
dís Einarsdóttir á Akranesi. Hún
hefur níu sinnum unnið piparköku-
húsaleik Kötlu og í fyrra sáu
stjórnendur fyrirtækisins að eng-
um væri gerlegt að keppa við þessa
fyrirmyndarhúsmóður á Skag-
anum. Hún var því færð upp í sér-
stakan heiðursflokk, þar sem hún á
sér enga mótherja.
Piparkökuhúsið sem Valdís sendi
inn þetta árið er eftirlíking af svo-
nefndu Haraldarhúsi á Akranesi. Í
tímans rás hefur hún þó glímt við
mörg fleiri, til dæmis Akranes-
kirkju, Fríkirkjuveg 11, Höfða og
Alþingishúsið. Eitt árið bjó hún til
íslenskan sveitabæ með gamla lag-
inu og bjálkahús var viðfangsefnið
fyrir ein jólin.
„Nei, þótt margt sérstakt hafi
hent þetta árið þá hafa piparköku-
húsin sloppið. Hvorki hefur verið
ráðist á þinghúsið mitt né Höfði
brunnið,“ segir Valdís og hlær.
Hún
segir því ekki að leyna að oft sé
býsna tímafrekt að búa til pipar-
kökuhús. Þetta áhugamál sé hins
vegar afar gefandi. Þegar best láti
fari eins mánaðar vinna í hvert hús.
„Ég legg mikið upp úr því að allt
í húsinu sé matarkyns. Ég set vegg-
ina saman með kremi og gardín-
urnar eru úr marsípani,“ segir Val-
dís sem segir fjölskylduna oft hafa
sameinast við þetta skemmtilega
áhugamál. Reyndar ætli hún að
taka sonarsyni sína og langömmu-
börnin í sérstaka yfirhalningu í
piparkökugerð á næsta ári.
„Mér finnst húsin mín falleg og
hef hreinlega ekki tímt að henda
þeim eða borða. Þetta eru svolítil
listaverk. Hef því komið þeim hér
fyrir í gluggalausu herbergi niðri í
kjallara og ætli elsta húsið sem ég
á sé ekki síðan um aldamót.“
Morgunblaðið/Sverrir
Húsagerð Bakstur er hluti af jólaundirbúningi Valdísar Einarsdóttur.
Komin í heiðursflokk í
piparkökuhúsagerð
Í HNOTSKURN
» Piparkökuleikurinn erorðinn fastur liður í jóla-
undirbúningi margra og hefur
þátttaka aukist ár frá ári og
húsin æ glæsilegri.
»Sú nýbreytni var í ár aðþeir sem hafa unnið í full-
orðinsflokknum sl. fimm ár
gátu ekki keppt til verðlauna.
» Verðlaunaafhending ípiparkökuhúsaleik Kötlu
verður í Smáralind nk. laug-
ardag klukkan 15.30.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
DÚNMJÚK JÓLAGJÖF
EKTA DÚNN, MEÐ EÐA ÁN SKINNHETTU (REFUR)
NÝ SENDING
AF VINSÆLU DAISY
HLÝRABOLUNUM
OKKAR Í NÝJUM LITUM
VERÐ 2.990
– FRÁBÆRIR Í
JÓLAPAKKANN!
KJÓLL 9.990
SM
ÁR
AL
IN
D