Morgunblaðið - 17.12.2009, Side 21
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
DANSKA lögreglan beitti í gær
táragasi og kylfum til að stöðva mót-
mælagöngu að ráðstefnumiðstöð í
Kaupmannahöfn þar sem loftslags-
þing Sameinuðu þjóðanna er haldið.
Lögreglan handtók á þriðja hundrað
mótmælenda sem tóku þátt í göng-
unni.
Um 1.500 manns tóku þátt í mót-
mælunum og reyndu að komast að
Bella Center eftir að fyrstu þjóðar-
leiðtogarnir komu þangað til að taka
þátt í samningaviðræðunum síðustu
daga loftslagsþingsins. Lögreglan
setti upp vegartálma til að hindra
gönguna, skaut táragashylkjum ná-
lægt ráðstefnumiðstöðinni og beitti
kylfum til að ýta burtu hópi mótmæl-
enda sem reyndu að komast inn í
bygginguna.
Lögreglan sagðist hafa handtekið
um 260 mótmælendur. Að minnsta
kosti þrír mótmælendur lágu á göt-
unni eftir að hafa verið barðir með
kylfum, að sögn danskra fjölmiðla.
Mótmælendurnir voru fluttir í
gamalt bjórgeymsluhús sem var
breytt í bráðabirgðafangelsi vegna
loftslagsþingsins. Nokkrum fang-
anna tókst að opna klefa sína og
reyndu að sleppa úr fangelsinu en
lögreglumenn stöðvuðu þá.
Fulltrúar 194 ríkja taka þátt í ráð-
stefnunni og mótmælendurnir saka
þá um að útvatna tillögur um aðgerð-
ir til að draga úr losun svonefndra
gróðurhúsalofttegunda sem eru
taldar stuðla að hlýnun jarðar. „Við
viljum koma á framfæri þeim skila-
boðum að við þurfum róttæka nýja
aðgerðaáætlun í loftslagsmálum,“
sagði Kevin Smith, félagi í hreyfingu
aðgerðasinna sem tók þátt í mót-
mælunum.
Hedegaard víkur fyrir Løkke
Loftslagsþingið er haldið á vegum
Rammasamnings Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar
(UNFCCC). Skipuleggjendur þings-
ins segjast hafa þurft að vísa þús-
undum manna frá vegna þess að
fleiri komist ekki fyrir í Bella Cent-
er. Þeir segja að um 46.000 manns
hafi komið til Kaupmannahafnar
vegna loftslagsþingsins en aðeins sé
hægt að hleypa um 15.000 manns inn
í bygginguna.
Umhverfisverndarhreyfingar á
borð við Vini jarðar senda yfirleitt
marga fulltrúa á slíkar ráðstefnur en
kvarta nú yfir því að fá ekki nægan
aðgang að Bella Center.
Connie Hedegaard, fráfarandi
umhverfisráðherra Danmerkur, hef-
ur stjórnað loftslagsþinginu en
kvaðst í gær hafa vikið fyrir Lars
Løkke Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur. Hún sagði að þar sem
gert væri ráð fyrir að um 115 þjóð-
arleiðtogar tækju þátt í loftslags-
þinginu síðustu dagana væri eðlilegt
að danski forsætisráðherrann
stjórnaði því. bogi@mbl.is
Táragasi beitt gegn mótmælendum
Danska lögreglan stöðvaði göngu mótmælenda að ráðstefnumiðstöð þar sem loftslagsþing SÞ er
haldið Umhverfisverndarhreyfingar kvarta yfir því að þær fái ekki nægan aðgang að þinginu
Reuters
Átök Lögreglumenn handtaka mótmælanda sem tók þátt í um 1.500 manna mótmælum í Kaupmannahöfn í gær.
Arion banki býður
nú viðskiptavinum
með erlend og innlend
íbúðalán lausnir sem
lækka höfuðstól lána
og létta greiðslubyrði.
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is
Skoðaðu hvaða leið gæti hentað þér á arionbanki.is. Nánari upplýsingar fást
hjá þjónusturáðgjöfum í útibúum Arion banka eða í síma 444 7000.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
48
40
9
12
/0
9