Morgunblaðið - 17.12.2009, Page 24
24 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
Jólaleikur
Dregið næst út
:
21. des. 5 vinn
ingar
23. des. 10 vin
ningar
Vinningar verð
a birtir á heima
síðu
Krónunnar ww
w.kronan.is
Vinningur:
Allir vinningarn
ir tuttugu innih
alda eftirfaran
di:
Flugbjörgunars
veitin ● „Trau
sti“ heimilispa
kki 18.000 kr.
Vífilfell ● hálfs
árs birgðir af 0
,5 l gosi 31.00
0 kr.
Skjár 1 ● hálfs
árs áskrift 13.
200 kr.
KRÓNAN ● gja
fabréf 30.000
kr.
Atlantsolía ● b
ensínúttekt 8.
000 kr.
KEA ● hangikj
ötslæri úrbeina
ð 6.000 kr.
Mackintosh ●
sælgæti 2,4 k
g 3.100 kr.
Heildarverðmæ
ti vinninga er 2
.000.000 kr.
Það eina sem þ
ú þarft að gera
er að versla í K
rónunni,
lukkunúmerið þ
itt er á kassast
rimlinum.
Allir sem versla
í Krónunni eiga möguleika á að vinna!
hálfs árs
birgðir
bensín
úttekt
af gosi
Áskrift
í 6 mánuði
30.000 kr
gjafabréf
8.000 kr
sælgæti
Mackintosh
2,4 kg
Hangi-
læri
Krónunnar
20 Alv
öru
vinningar!
Hver að verðmæ
ti
100.000kr.
Vinningsnúmer 14.des.
491153755 905132700
506123408 452638765
423749760
Ertu vinningshafi
?
Skráðu þig á www
.kronan.is
Geymdu strimi
linn!
Lukkunúmerið
er á honum.
20 lukkunúmer
dregin út til jól
a!
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Við erum bara tvö í fyrirtæk-inu og ég er betri helming-urinn,“ segir Hanna Elías-dóttir og hlær en hún og
maður hennar Ingvar Sveinsson hafa
rekið fyrirtæki sitt Gæfumuni saman
í stofunni heima undanfarin tólf ár.
Þau selja gjafavörur í um fimmtíu
verslanir um land allt, engla, fugla og
ýmsilegt fleira en þau hafa sérhæft
sig í samúðarvörum. Og Gæfuljósin
svokölluðu frá þeim hjónum eru
löngu orðin landskunn.
„Við sinnum allri vinnu hér inni á
heimilinu sem tengist fyrirtæk-
isrekstrinum en við erum með lager
úti í bílskúr. Auðvitað reynir heil-
mikið á þegar hjón vinna svona mikið
saman og stundum segi ég upp og
stundum segir hann líka upp. En við
ráðum hvort annað alltaf aftur í
vinnu. Við eigum almennt gott sam-
starf en vissulega erum við ekki alltaf
sammála. Við erum bæði skapmikil
og Ingvar fer stundum út á lager þeg-
ar hann vill fá frí frá mér eða ég frá
honum,“ segir Hanna og lítur sposk á
eiginmanninn.
Ingvar er aðal „englamaðurinn“
Vörurnar þeirra eru aðallega úr
keramiki og gifsi og á upphafsárum
fyrirtækisins steyptu þau sjálf
munina og máluðu þá líka. „Þá gekk
nú miklu meira á. Allt heimilið var
undirlagt, öll borð og hillur voru þakt-
ar Gæfumunum á ýmsum vinnslu-
stigum. Einu sinni gerði ég til dæmis
þrjúhundruð kirkjur sem Varnarliðið
pantaði hjá mér og þær þurftu nú sitt
pláss. En barnabörnin mín hjálpuðu
mér í þeirri törn eins og oft áður. Við
erum alveg hætt að steypa en málum
hlutina ennþá sjálf, til dæmis Gæfu-
engla fyrir hver jól og þá er alltaf ný
lína og nýir litir. Englar eru okkar að-
alvara og ég hef stundum sagt við
Ingvar að hann sé aðal „englamað-
urinn“ af því honum gengur best að
selja engla.“ Ingvar grípur þetta á
lofti og segir lífið undarlegt. „Aldrei
hefði mér dottið í hug að ég ætti eftir
að mála engla.“
Þau Hanna og Ingvar vita hvað það
er að missa allt sitt og þurfa að byrja
upp á nýtt á miðjum aldri. Þau lentu í
miklum erfiðleikum fyrir um fimmtán
árum.
Trúin flytur fjöll
„Við áttum fyrirtæki sem varð
gjaldþrota og við misstum í tvígang
heimilið okkar og auk þess þurftum
við bæði að takast á við veikindi. Ég
stóð ein um tíma og þurfti að finna
leiðir til að komast af. Ég reiknaði
ekki með að nokkur vildi sextuga
konu í vinnu.“
Hanna varð að gera eitthvað í mál-
unum og þar sem hún sat einn dag við
glugga og velti þessu fyrir sér, þá sá
hún fuglahóp úti. „Fuglar hafa alltaf
fylgt mér og þá datt mér í hug að
kannski gæti ég bara búið til fugla og
engla til að selja. Ég fór í föndurbúð
og keypti gifs og málningu og byrjaði
að skapa mína eigin fulga og engla.
Þannig hófst þetta allt saman. Ég fór
síðan með munina mína í Tékk-
Kristal og þau tóku þetta í sölu og svo
fór allt að rúlla og hefur heldur betur
undið upp á sig í gegnum árin. Ég var
ekki alls ókunnug viðskiptum því ég
hafði átt verslunina Bláa fuglinn sem
ég seldi árið 1993.
Í öllum okkar erfiðleikum hef ég
aldrei misst vonina og ég veit að trúin
flytur fjöll. Mér hefur alltaf fundist
eins og eitthvað vaki yfir okkur Ingv-
ari, verndi okkur og leiðbeini. Það
skiptir líka miklu máli að gefast ekki
upp þegar á móti blæs,“ segir Hanna
og bætir við að þegar kom að því að
gefa fyrirtækinu nafn, þá hafi nafnið
gæfumunir strax komið upp í hugann.
„Ég vildi láta fyrirtækið okkar heita
fallegu og jákvæðu nafni og það hefur
reynst vel.“
Viljum að Gæfumunir lifi
Þau eiga stóra fjölskyldu sem
hefur staðið við bakið á þeim í
gegnum þykkt og þunnt. „Við
eigum sex börn og fyrir nokkrum
árum vildu þau endilega að ég
fengi mér tölvu til að létta róðurinn í
vinnunni. Mér leist nú ekkert á það í
byrjun en sló til og það reyndist mjög
gaman og hefur opnað leiðir til að
komast í samband við allskonar fyr-
irtæki. Ferðamarkaðurinn þetta árið
hefur stóraukið söluna hjá okkur og
við höfum látið framleiða fyrir okkur
erlendis sérstaka hluti fyrir þann
markað og sjáum fram á stóraukn-
ingu.
Við höfum verið einstaklega heppin
með verslunareigendur víða um land,
því allt er þetta frábært fólk og gam-
an að hafa kynnst því. Manni ber að
þakka fyrir slíkt og gerum það hér og
nú. Tékk-Kristall er okkur ofarlega í
huga ásamt versluninni Betra líf,
Akri, Blómabúð Akureyrar og Klass-
ik á Egilsstöðum.“
Gæfumunir finnast á þúsundum
heimila um allt land og víða erlendis.
Þau hjón segjast vonast til að fyr-
irtækið lifi lengi. „Við viljum nota
tækifærið og senda bestu óskir um
gleðileg jól og birtu á nýju ári. Og
minnum á að manni leggst alltaf eitt-
hvað til.“
Gæfa fylgir Gæfumunum
Þau hafa reynt margt í líf-
inu en hafa aldrei misst
vonina. Hanna og Ingvar
reka sitt eigið fyrirtæki í
stofunni heima og segja
hvort öðru stundum upp
vinnunni en ráða sig jafn-
harðan aftur.
Saman heima Hanna og Ingvar kunna vel við sig í friðsæla horninu.
Litríkir
Jólaengl-
arnir í ár
fást í
rauðu,
fjólubláu
og gráu.
Fuglar
Þeir hafa
ævinlega
fylgt
Hönnu og
eru hluti
af Gæfu-
munum.
Morgunblaðið/Ómar
Jólastemning María, Jósep, Jesúbarnið, vitringarnir, lambið, kýrin og asninn eru saman í setti.
Þá gekk nú meira
á. Allt heimilið var
undirlagt, öll borð
og hillur voru
þaktar Gæfumun-
um á ýmsum
vinnslustigum.
Jólaljós Eitt af Gæfuljósunum, úr
postulíni og varpar mildri birtu.