Morgunblaðið - 17.12.2009, Síða 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
✝ Vigfús Sigurðssonfæddist í Suð-
urkoti í Grímsnesi 22.
maí 1912. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Sólvangi í Hafnarfirði
6. desember sl. For-
eldrar hans voru
Ingveldur Ein-
arsdóttir, d. 1960, og
Sigurður Jónsson, d.
1924. Árið 1925 flutti
Vigfús með móður
sinni til Hafnarfjarðar
og átti þar heima síð-
an.
Hinn 11. október 1936 kvæntist
Vigfús Ástu Ólínu Júníusdóttur, f.
11. október 1916, d. 23. desember
1999. Foreldrar hennar voru Guð-
finna Guðmundsdóttir, d. 1931, og
Júníus Ólafsson, d. 1965. Þau eign-
uðust tvær dætur. 1) Inga Sigrún, f.
11. júlí 1939, gift Óla Rafni Sum-
arliðasyni. Dætur þeirra eru a)
Ásta, maður hennar er Heimir Sæ-
berg Loftsson, b) Kristjana, sonur
hennar er Ívar Rafn, c) Berglind,
maður hennar er Kristinn Þórir
Kristjánsson, börn þeirra eru, Arna
Ýr, maður hennar er Jóhann Bær-
ing Pálmason, börn þeirra eru
ársins 1948. Þá tók hann við fram-
kvæmdastjórastöðu Skipa-
smíðastöðvarinnar Drafnar og
byggingafyrirtækisins Þórs sem
hann stofnaði 1941 ásamt 11 fé-
lögum sínum. Vigfús starfaði þar til
ársins 1982. Árið 1960 stofnaði hann
Penslaverksmiðjuna ásamt frænda
sínum og vini, Einari Þorsteinssyni.
Vigfús var félagslyndur og söng-
elskur og var í Karlakórnum Þröst-
um til margra ára, þar af var hann
gjaldkeri frá 1941-1953. Síðustu ár-
in söng hann með eldri Þröstum.
Vigfús sat í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar og nefndum bæjarins í
mörg ár fyrir Alþýðuflokkinn. Vig-
fús var í stjórn Alþýðuflokks Hafn-
arfjarðar, Iðnaðarmannafélags
Hafnarfjarðar, Iðnráði, í stjórn
Landssambands iðnaðarmanna
1951-1972, þar af forseti Lands-
sambandsins í 7 ár, formaður Nor-
ræna iðnráðsins og í bankaráði Iðn-
aðarbankans í 12 ár. Vigfús var
unnandi fagurra blóma og báru
garðarnir á Hraunkambi og Kletta-
hrauni vitni um það. Báðir garð-
arnir voru margverðlaunaðir með-
an þau áttu heima þar. Vigfús
dvaldi síðustu 18 mánuði á hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi.
Útför Vigfúsar fer fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju í dag, fimmtudag-
inn 17. desember, og hefst athöfnin
kl. 13.
Bergdís Lilja og
Kristinn Þórir. Inga
Rut, maður hennar er
Einar Guðmundsson
og sonur þeirra er
Guðmundur. Óli Rafn.
d) Karen, maður
hennar er Ómar
Helgason, börn þeirra
eru Tanja Björk, Na-
talía Ösp og Daði
Rafn. e) Rakel, maður
hennar er Sigurður
Ágústsson, dóttir
þeirra er Laufey Lind.
Dóttir Rakelar og Jó-
hanns Andréssonar er Sonja Rut. 2)
Guðfinna, f. 12. maí 1941, var gift
Eyjólfi Sig. Bjarnasyni, d. 2005.
Maður hennar er Aðalsteinn Valdi-
marsson. Börn Guðfinnu a) Ásta,
maður hennar er Hermann Jónsson.
Synir Ástu eru, Atli, kona hans er
Rannveig Albína Norðdahl, Tryggvi
og Ísak. b) Sigurborg, maður henn-
ar er Sverrir Kristinn Kristinsson,
synir þeirra eru Ingimar Bjarni og
Eyjólfur Árni. c) Vigfús, hans kona
er Rakel Þórðardóttir, dætur þeirra
eru Þórunn Vaka og Sóley.
Vigfús útskrifaðist sem húsasmið-
ur árið 1934 og starfaði við það til
Elsku afi.
Nú er komin kveðjustund og
margs er að minnast. Afi var mikill
blómaunnandi og voru garðarnir
hans algjört listaverk og fékk hann
oft verðlaun fyrir þá. Hann ræktaði
sjálfur hluta af blómunum og smíð-
aði blómakassana undir þau. Afi
smíðaði það sem hann mögulega
gat. Afi smíðaði líkan af Suður-
kotinu, bænum þar sem hann fædd-
ist, og var það í garðinum á Kletta-
hrauninu. Nú er Suðurkotið í
garðinum hjá Vigfúsi og var afi
ánægður með að það skyldi vera
komið austur næstum því á æsku-
slóðirnar. Afkomendahópurinn hans
afa er orðinn stór og þegar hóp-
urinn kom saman þá stóð hann og
horfði yfir hópinn og brosti. Oftar
en ekki tók hann í höndina á þeim
sem næst honum var og hélt lengi í
lófanum sínum. Hann var ánægður
með hópinn sinn. Afi var ekki af
tölvukynslóðinni og þegar einn
langafastrákurinn var ár í Ástralíu
skrifaði afi honum nokkur sendi-
bréf. Þarna var nútíminn og gamli
tíminn, þá var afi 88 ára gamall.
Ein af minningunum frá langafast-
rák er að afi átti alltaf brjóstsykur
og fengu þeir alltaf mola hjá hon-
um.
Elsku afi nú ertu kominn til
ömmu sem hefur tekið brosandi á
móti þér. Við kveðjum þig með sorg
í hjarta og eigum eftir að sakna þín,
góðar minningar gleðja okkur og
lifa með okkur um ókomna tíð.
Ásta, Sigurborg og Vigfús.
Elskulegur afi okkar er dáinn, 97
ára að aldri.
Við vorum svo lánsamar að hafa
hann og ömmu alltaf nálægt okkur,
þar sem við eldri systur áttum
heima í sama húsi og þau fyrstu ár-
in okkar, og svo síðar við hliðina á
þeim á Klettahrauni, þar sem fjölg-
aði í systrahópnum hjá okkur og
bættust við tvær.
Okkur er það mjög minnisstætt
hvað garðarnir hjá honum afa voru
fallegir og vel hugsað um þá, hann
var farinn að undirbúa þá mörgum
mánuðum áður en sumarið kom
með því að sá blómafræjum í potta
niður í kjallara þar sem hann nostr-
aði við þau. Oftar en einu sinni fékk
hann viðurkenningu frá bænum fyr-
ir fallegan garð. Þarna er honum
afa okkar rétt lýst, hann var jafn
góður og fallegur maður eins og
hann hugsaði um umhverfið sitt,
alltaf yfirvegaður og svo stutt í
húmorinn.
Haustið 1993 fluttu afi og amma
á Sólvangsveginn og voru þau með
þeim fyrstu sem fluttu þangað inn,
og að sjálfsögðu var afi duglegur að
taka til hendinni í garðinum.
Í desember fyrir 10 árum dó hún
amma okkar, og hefur hann alltaf
saknað hennar mikið, það hefur
verið dauft yfir honum öll jólin síð-
an.
Við eigum margar góðar minn-
ingar um þau sem við geymum í
hjörtum okkar um ókomna tíð.
Elsku afi, við kveðjum þig með
söknuði og vitum að þú er kominn á
góðan stað, og vonandi búinn að
hitta hana Ástu þína.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Ásta, Kristjana, Berglind,
Karen og Rakel.
Með Vigfúsi Sigurðssyni er horf-
inn af sjónarsviði merkur forustu-
maður iðnaðarmanna á síðustu öld.
Um árabil var hann í forustusveit
iðnaðarmanna í Hafnarfirði, í stjórn
Landssambands iðnaðarmanna og
forseti sambandsins og í bankaráði
Iðnaðarbankans. Þá var hann for-
stjóri Skipasmíðastöðvarinnar
Drafnar í Hafnarfirði og stjórnar-
maður í Félagi dráttarbrautaeig-
enda.
Samstarf okkar Vigfúsar hófst,
þegar ég var ráðinn framkvæmda-
stjóri Landssambands iðnaðar-
manna vorið 1958 og síðan hélst
samstarfið áfram, þegar hann var
kosinn í bankaráð Iðnaðarbankans
árið 1963.
Seta í bankaráði var virðingar-
staða, en fátt sýnir betur hógværð
og mannkosti Vigfúsar, að ekki
sóttist hann eftir starfinu heldur
var eftir því leitað, að hann tækist
það á hendur.
Á þessum árum átti Iðnaðar-
bankinn á brattann að sækja. Eng-
in voru útibúin, sem voru grund-
völlur að auknum umsvifum og
viðskiftum. Ekki var öllum þetta
ljóst og margir voru úrtölumenn-
irnir. Sagt var að ekki væri þörf á
útibúi frá bankanum í Hafnarfirði,
þar sem Hafnarfjarðarstrætó væri
með endastöð í Lækjargötu á mót
Iðnaðarbankanum. Það var mikil og
góð liðveisla að fá Hafnfirðinginn
Vigfús í bankaráðið, sem bæði
skildi þörf bankans til stækkunar
og Hafnfirðinga til bættrar banka-
þjónustu.
Þáttur iðnaðarins í endurreisn at-
vinnulífs á Íslandi á 20. öld er mikill
og hans sér merki í mannvirkjum
og fyrirtækjum, sem staðist hafa
margs konar mótbyr. Hitt liggur
ekki eins opið fyrir augum, hversu
framtak og víðsýni forgöngumanna
iðnaðarins lagði grunninn að þess-
um árangri.
Iðnfræðsla og tæknimenntun í
landinu var borin uppi af iðnaðar-
mannafélögunum og Landssam-
band iðnaðarmanna og Félag ísl.
iðnrekenda stuðluðu með starfi sínu
að framsækinni iðnþróun.
Þegar ég horfi til baka og minn-
ist samstarfs okkar Vigfúsar að
málum iðnaðarins, koma mér í hug
orðin, sem sögð voru forðum um
mætan mann. „Þá kemur mér hann
í hug, er ég heyri góðs manns get-
ið“.
Blessuð sé minning Vigfúsar Sig-
urðssonar.
Bragi Hannesson.
Okkur langar í örfáum orðum að
minnast Vigfúsar Sigurðssonar,
eins helsta samferðamanns föður
okkar, Einars Þorsteinssonar heit-
ins. Þeir Vigfús og Einar voru syn-
ir systranna Ingveldar og Helgu
Einarsdætra. Um samgang þeirra
frænda þekkjum við systur lítið
fyrr en þeir stofna saman Pensla-
verksmiðjuna árið 1960, sem fyrstu
árin var rekin í kjallaranum heima
hjá Vigfúsi og Ástu Júníusdóttur,
konu hans, að Hraunkambi 5 í
Hafnarfirði.
Eftir það má segja að Vigfús og
fjölskylda hans tengist fjölskyldu
okkar órofa böndum, enda ráku
þeir Penslaverksmiðjuna saman
starfsaldur sinn á enda, faðir okkar
og Vigfús. Árið 1968 flytja þeir
verksmiðjuna úr kjallaranum að
Hraunkambi í nýtt húsnæði að
Trönuhrauni 9 í Hafnarfirði. Þar
var hún var starfrækt allt til ársins
2005. Faðir okkar var við störf í
Penslaverksmiðjunni allt þar til um
ári áður en hann féll frá, þann 12.
júlí 1987 og þótt Vigfús hafi ekki
haft hendur á stjórnartaumum
hennar síðustu árin, enda í hárri
elli, sýndi hann starfseminni ávallt
mikinn áhuga og fylgdist vel með á
meðan heilsan leyfði.
Það bar aldrei skugga á samstarf
pabba og Vigfúsar og verkaskipting
var skýr þeirra í milli. Faðir okkar
sá framleiðsluna og Vigfús um
reksturinn. Við systur og Markús
heitinn bróðir okkar komum öll í
einhverjum mæli að rekstri Pensla-
verksmiðjunnar ásamt dætrum
Vigfúsar, þeim Guðfinnu og Ingu.
Guðfinna og Inga ásamt Elínu, sem
er elst okkar systra, áttu þar
lengstan og mestan starfsaldur.
Allar minnumst við vingjarnslegs
viðmóts og veglegs viðgjörnings í
daglegu morgunkaffi hjá Ástu, þeg-
ar við stigum okkar fyrstu skref í
penslaframleiðslu í kjallaranum í
Hraunkambinum.
Flest barnabörn þeirra frænda
unnu jafnframt sín fyrstu launuðu
störf í Penslaverksmiðjunni, sem
án nokkurs vafa var þeim öllum
hollt og gott veganesti út í lífið.
Það er því fyrst og fremst með
þakklæti í huga sem við systur og
fjölskyldur okkar kveðjum Vigfús
Sigurðsson og vottum afkomendum
hans okkar vinsamlegustu samúð-
arkveðjur.
Elín, Sigríður Helga og
Helga Þórunn Einarsdætur.
Vigfús Sigurðsson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma
og langamma,
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
Klifshaga,
Öxarfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn
8. desember.
Útförin fer fram frá Skinnastaðarkirkju föstudaginn
18. desember kl. 14.00.
Daði Þröstur Þorgrímsson, Jóhanna Birna Falsdóttir,
Sigra Þorgrímsdóttir, Jón Sigurðsson,
Pétur Þorgrímsson, Magnea R. Árnadóttir,
Grímur Jónsson,
María Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
dóttir, tengdadóttir, amma og systir,
BRYNJA JÚLÍUSDÓTTIR,
Strandgötu 6,
Ólafsfirði,
lést á Hornbrekku, Ólafsfirði laugardaginn
12. desember.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
19. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Hornbrekku, Ólafsfirði.
Þröstur Ólafsson,
Lára Þórðardóttir,
Sólveig Anna Brynjudóttir, Kristinn Axel Sigurðsson,
Þorfinna Ellen Þrastardóttir,
Júlíus G. Gunnlaugsson, Guðfinna Steinsdóttir,
Ólafur Víglundsson,
dóttursynir og systkini.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
RANNVEIG JÚLÍANA BALDVINSDÓTTIR,
Öldugerði 18,
Hvolsvelli,
lést á heimili sínu laugardaginn 12. desember.
Útför hennar fer fram frá Stórólfshvolskirkju
laugardaginn 19. desember kl. 14.00.
Ólafur Ólafsson,
Ólafur Ólafsson, Jakobína Vilhelmsdóttir,
Baldvin Guðni Ólafsson, Praparat Ólafsson,
Ásta Halla Ólafsdóttir, Garðar Gunnar Þorgilsson,
Ingibjörg Ýr Ólafsdóttir, Oddur Árnason,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
FRIÐJÓN ÞÓRÐARSON,
Ægisbraut 7,
Búðardal,
Dalabyggð,
lést á Landspítala Landakoti mánudaginn
14. desember.
Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 22. desember
kl. 13.00.
Guðlaug Guðmundsdóttir,
Sigurður Rúnar Friðjónsson, Guðborg Tryggvadóttir,
Þórður Friðjónsson, Ragnheiður D. Agnarsdóttir,
Helgi Þorgils Friðjónsson, Margrét L. Steingrímsdóttir,
Lýður Árni Friðjónsson, Renate Mikukste,
Steinunn Kristín Friðjónsdóttir, Árni M. Mathiesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
PÁLL DANÍELSSON,
Miðbraut 23,
Seltjarnarnesi,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 14. desember.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 22. desember kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gustav Einarsson.