Morgunblaðið - 17.12.2009, Side 45
Ólafur Ragnar Stundum nefndur Pétur Jóhann Sigfússon.
SJÓNVARPSSTJARNA Ólafur Ragn-
ar Hannesson, úr þáttunum Nætur-,
Dag- og Fangavaktinni, verður með
morgunþátt á FM957 á morgun. Ólaf-
ur Ragnar hefur slegið í gegn í fyrr-
nefndum þáttum.
Þátturinn hefst kl. 7.45 og lýkur
9.30.
Vegna þessa mun morgunþátturinn
Zúúber leggjast niður og mun Ólafur
Ragnar mæta með skottið troðfullt af
tónlist, pizzum og gosi, sem hann út-
deilir til hlustenda í útvarpsþættinum.
Þessi uppákoma er þó ekki eingöngu
til gamans gerð, heldur er verið að
kynna væntanlega kvikmynd, Bjarn-
freðarson, sem frumsýnd verður á
annan í jólum í Sambíóunum. Útvarps-
stöðin FM957 verður með sérstaka
forsýningu á myndinni fyrir hlust-
endur sína á laugardaginn.
Ólafur Ragnar mun í þættinum gefa
miða á myndina auk þess að gefa ann-
an varning.
Já sæll! Ólafur Ragnar
í morgunþætti á FM957
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
Stuttu eftir að ég fékk Heimtil míns hjarta í hendurnarkomu vinkonur mínar íheimsókn og þær hópuðust
strax um bókina sem lá á stofu-
borðinu og vildu handfjatla hana,
skoða og lykta af
henni.
Kápan, hönnuð
af Ragnari Helga
Ólafssyni, er enda
alveg sérlega fal-
leg og freistandi.
Bók verður enn
betri fyrir vikið ef
það er næstum
jafnánægjulegt að
dást að henni lokaðri eins og að
opna hana og lesa.
Ekki skyldi þó dæma bókina af
kápunni einni saman, en Heim til
míns hjarta stendur undir þeim
væntingum sem kápan vekur því
það er heilmikið í hana spunnið og
sagan, sem er fyrstu persónu frá-
sögn með sjálfsævisögulegu ívafi,
kemur ánægjulega á óvart.
Oddný Eir er heimspekingur að
mennt og það skín í gegnum skrif-
in, Heim til míns hjarta er pæl-
ingabók. Sjálf hefur Oddný sagt að
henni hafi legið mikið á hjarta við
skrifin og það sést því sögumaður
veltir vöngum og brýtur heilann
stöðugt um ást og samskipti, heils-
una, lífið, fræðin og allt.
Rammi sögunnar er vist aðal-
persónunnar á óræðu heilsuhæli
þar sem hún leitar bóta sinna
meina, útbrunnin, ráðvillt og með
kramið hjarta. Lækningin við þess-
um huglægu kvillum reynist vera
mjög líkamleg og reyndar er í sög-
unni allri fléttað mjög saman hinu
andlega og holdlega. Í gegnum
meðferðina, sem gengur m.a. út á
að eima hjarta sjúklingsins og búa
til úr því ilmvatn, hverfur sögumað-
ur aftur í tímann og gerir upp end-
urminningar úr fortíð sinni í ít-
arlegri „ilmskýrslu“.
Oft, sérstaklega framan af bók-
inni, kemst frásögnin á flug í fal-
legri greiningu á hinu flókna sam-
bandi á milli fólks sem þykir vænt
hverju um annað: „Pabbi bað bróð-
ur minn um að byggja með sér torf-
kofa þegar sambandið á milli þeirra
var farið að rofna. Þeir þurftu að
hlaða grunn í allskonar veðrum.
Smátt og smátt byggðu þeir upp
nándina sín á milli og voru sam-
mála um að dyrnar skyldu vísa til
móts við öræfin.“ (55)
Textinn er efnismikill og fullur af
speki en um leið er stíllinn fallegur
og léttur að mestu. Þó fannst mér
frásögnin ná misjöfnum hæðum og
detta aðeins niður á milli þeirra
kafla þar sem Oddnýju tekst best
upp.
Á heildina eru hins vegar vanga-
veltur sögumanns skemmtilega ein-
lægar, stundum djúpar og oft
fyndnar. Verkið er úthugsað allt frá
kápu inn að kjarna sem gerir það
að verkum að Heim til míns hjarta
er bók sem ánægjulegt er að horfa
á og þefa af, lesa og velta fyrir sér.
Falleg og djúpspök ilmskýrsla
Heim til míns hjarta
bbbbn
Eftir Oddnýju Eiri Ævarsdóttur
220 bls. Bjartur, 2009.
UNA
SIGHVATSDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/G.Rúnar
Oddný Eir Verkið er úthugsað allt frá kápu inn að kjarna.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Fös 18/12 kl. 19:00 aukas Sun 3/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00
Lau 19/12 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00
Þri 29/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sun 27/12 kl. 14:00 Sun 3/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00
Sun 27/12 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00
Vinsælasti söngleikur ársins - tryggðu þér miða strax
Jesús litli (Litla svið)
Fim 17/12 kl. 20:00 8.K Þri 29/12 kl. 19:00 Sun 3/1 kl. 20:00
Lau 19/12 kl. 21:00 9.K Þri 29/12 kl. 21:00 aukas Lau 9/1 kl. 20:00
Sun 20/12 kl. 20:00 aukas Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 20:00
Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar.
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fös 18/12 kl. 19:00 49.K Fös 15/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 22:00
Fös 18/12 kl. 22:00 50.K Lau 16/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Lau 19/12 kl. 16:00 Lau 16/1 kl. 22:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Sun 27/12 kl. 22:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Mán 28/12 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 22:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Fös 8/1 kl. 22:00 Lau 23/1 kl. 19:00
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Þri 29/12 kl. 20:00 síðasta sýn
Ekki við hæfi barna. Síðasta sýning 29. des
Bláa gullið (Litla svið)
Fim 17/12 kl. 10:00
Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Mið 30/12 kl. 21:00 aukas
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Harry og Heimir í jólapakkann
Gjafakort Borgarleikhússins
– gjöf sem lifnar við
GJAFAKORT
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Einstakt tilboð til jóla
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00
Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 23/1 kl. 15:00
Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Fös 29/1 kl. 19:00
Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Lau 30/1 kl. 15:00
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 6/2 kl. 15:00
Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Lau 16/1 kl. 15:00
Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 19:00
Gjafakort á tilboðsverði til jóla!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Sun 27/12 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 15:00 Mið 30/12 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Fim 17/12 kl. 17:00 Aukas. Lau 19/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 14:30
Lau 19/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 11:00
Lau 19/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 13:00
Aukasýningar komnar í sölu!
Ókyrrð (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 20:00
Gestaleikur - aðeins þessar tvær sýningar!
Ð
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Lykillinn að jólunum (Rýmið)
Lau 19/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 15:00
Síðustu sýningar
39 þrep (Samkomuhúsið)
Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k.
Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00
Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas
Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00
Forsala er hafin
HANDRIT að kvikmyndinni Z for Zachariah eftir
Nissar Modi, byggt á skáldsögu Robert C. O’Bri-
en’s frá árinu 1973, er á s.k. Svartlista kvikmynda-
rýnisins þekkta, Franklin Leonard, sem birtur er
árlega. Á þessum lista má finna áhugaverð handrit
að mati 311 stjórnenda í kvikmyndabransanum í
Hollywood. Nefna þeir allt að tíu handrit frá þessu
ári sem ekki eru enn orðin að kvikmynd. Handritið
hefur verið í vinnslu fyrir Zik Zak Filmworks í
samvinnu við kvikmyndagerðarmanninn Pál Gríms-
son.
Þórir Snær Sigurjónsson, framleiðandi hjá kvik-
myndafyrirtækinu Zik Zak, staðfestir þetta í sam-
tali á vefnum Iceland Cinema Now, segir handritið
hafa vakið mikla athygli vetanhafs. Z for Zach-
ariah segir frá 16 ára stúlku í litlum bandarískum
bæ, eftirlifanda kjarnorkustríðs. Sagan er sögð frá
hennar sjónarhorni, í dagbókarformi. BBC hefur
gert sjónvarpsmynd upp úr bókinni.Morgunblaðið/Árni Sæberg
Z for Zachariah
á Svartlista
Þórir Snær Áhugi
vestanhafs fyrir
handritinu að Z for
Zachariah.