Morgunblaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009
Sýning Halldórs Ragnarssonarí Gryfju Listasafns ASÍ beróræðan titil: Saxófónn eðakontór? Grár litur á veggjum
gæti vísað til skrifstofugráma, saxó-
fónn til annars konar upplifunar. Það
er ekki ljóst hvað Halldór er að fara
með þessu nafni, en það er eins og það
á að vera. Listinni er ekki endilega
ætlað að svara spurningum heldur allt
eins vekja þær upp.
Í Gryfjunni eru nokkur verk sem öll
fjalla um tungumálið og möguleika
þess, sem og samspil tungumáls og
myndmáls. Halldór hefur líka skrifað
ljóð, en árið 2004 kom út ljóðabókin
Öreindir af lúsinni sem gaf til kynna
persónulega og ferska nálgun við orð
og ljóð, ort á mörkum ljóðlistar og
myndlistar.
Í ASÍ byggir Halldór nokkuð á end-
urtekningu. Í hverju verki fyrir sig
eru setningar endurteknar í sífellu,
nema í teikningaröð þar sem hver
teikning er sjálfstætt verk. Í vegg-
málverkinu vildi að ég gæti málað þig
lýsir listamaðurinn á svolítið róm-
antískan hátt yfir vanmætti sínum
gagnvart sköpunarverkinu, sem gæti
verið kona eða ástkona/ástmaður.
Myndin reyna að láta myndefnið fjalla
um þetta, er í svipuðum dúr, hér kem-
ur fram vanmáttur listamannsins.
Veggmynd úr tómum sígarettu-
pökkum minnir á hversdagslist lið-
inna áratuga, t.d. sígarettuverk eftir
unga breska listamenn, partýverk.
Þetta er eins konar birtingarmynd
ólifnaðar sem aftur minnir á rómantík
síðustu aldar, dandýiska listamenn:
Já, ég reykti allar þessar sígarettur.
Og mitt á milli játninga óvænt orð:
Klamedya, eins og til áréttingar á
dökkum hliðum partýlífernis.
Innrammaðar teikningar á gulum
bakgrunni, í litlum römmum, eru í
myndasögustíl sem nær langt aftur á
síðustu öld. Teikningar eftir Helga
Þorgils frá áttunda áratug síðustu
aldar koma upp í hugann. Þetta er
líka skissuformið, sígilt viðfangsefni
listamanna. Hér kallast á teikningar
og setningar en það eru setningarnar
sem standa upp úr, eins og á sýning-
unni í heild. Erótískar og óvæntar,
eða fallega rómantískar en um leið
tvöfaldar í merkingu sinni: ég er alveg
að komast yfir þig.
Halldór Ragnarsson er hæfileika-
ríkur listamaður með persónulega til-
finningu fyrir tungumálinu og áhuga-
vert væri að sjá meira krefjandi verk
af hans hálfu. Hann er laginn við að
finna verkum sínum viðeigandi fram-
setningu en eftirminnilegust eru orð
hans og setningar sem sumar hverjar
koma á óvart.
Listasafn ASÍ
Saxófónn eða kontór?
Halldór Ragnarsson
bbbnn
Sýningu lauk 13. des.
RAGNA
SIGURÐARDÓTTIR
MYNDLIST
Halldór Hæfileikaríkur með tilfinningu fyrir tungumálinu.
Rómantíkin í hversdagslífinu
TÓNLISTARKONAN Jennifer
Lopez heldur því fram að móð-
urhlutverkið hafi gert hana að
betri manneskju. Frá því hún
ól tvíburana Max og Emmu,
fyrir tæplega tveimur árum,
hefur hún séð lífið öðrum aug-
um og gert margar jákvæðar
breytingar. „Frá því börnin
mín fæddust hef ég til dæmis
lært að hugsa betur um sjálfa
mig,“ sagði Lopez.
Söngkonan segist einnig fá
ómetanlegan stuðning frá eig-
inmanni sínum Marc sem hvet-
ur hana óspart til að klæðast
djörfum fötum, t.d. gull-
kjólnum á Golden Globe verð-
laununum. Lopez segist ekki
vera jafn heltekin af því að líta
vel út eins og hún gerði áður
en hún varð móðir.
Fjölskyldan J-Lo, Marc
og börnin.
Ánægð
mamma
Friðrik Karlsson kann sittfag. Þessi staðreyndkemur glöggt í ljós þeg-ar hlustað er á nýja
jólaplötu hans, Töfrandi jól, sem
ætlað er að veita
slökun í formi
jólalaga á að-
ventu og jólum.
Þetta er fyrsta
jólaplata Frið-
riks en hann hef-
ur áður sent frá sér ógrynni slök-
unarplatna sem hafa fengið mjög
góðar viðtökur. Töfrandi jól er
þar engin undantekning á og er
ljóst að aðdáendur fyrri verka
Friðriks verða ekki sviknir. Fyrir
aðra er platan tilvalin til að njóta
gömlu góðu jólalaganna en á
sama tíma losa um jólastressið
sem oft einkennir dimman des-
embermánuð.
Skotheld formúla slök-
unartónlistar er hér klædd í jóla-
búning og blóðmjólkuð með til-
heyrandi flautuspili og
áttundahækkunum en sem fyrr
svínvirkar hún. Afburða hljóð-
færaleikarar ljá Friðriki lið á
plötunni og er frágangur allur til
fyrirmyndar.
Plötunni tekst að vera bæði há-
tíðleg og afslöppuð á sama tíma
sem verður að teljast vel af sér
vikið og er fínt að hafa þennan
slökunartónlistar-möguleika í
jólatónlistarflóðinu. Lítið er hægt
að setja út á plötuna sem slíka,
en Töfrandi jól verður þó seint
talin frumleg plata og skilur lítið
eftir sig að jólaslökun lokinni.
Geisladiskur
Friðrik Karlsson – Töfrandi jól
bbbnn
HILDUR MARAL
HAMÍÐSDÓTTIR
TÓNLIST
Formúlu-Friðrik
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Rólegur Friðrik Karlsson.