SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Qupperneq 2
2 11. apríl 2010
4-8 Vikuspeglar
Ekki til nein töfralausn, guðfaðir pönksins fallinn frá og er hægt að
vera betri en Lionel Messi?
22 Það er ekki sama túnfiskur
og túnfiskur
Íslendingar drepa niður fæti í ólíklegustu atvinnuvegum um víða
veröld. Heimur túnfisksins er einn þeirra.
28 Er Glymur ekki hæsti fossinn?
Tignarlegur eldfoss fellur nú í Hvannárgil.
32 Hvernig er að lenda í
árekstri?
Reynslusögur af árekstrum notaðar til þess
að hafa jákvæð áhrif á ungt fólk í nýju
kennsluefni Umferðarstofu.
40 Nepölsk matar-
gerðarlist
Deepak Panday vill miðla af þekkingu sinni og
reynslu til Íslendinga.
42 Kvikmyndir
Spreytir Paul Greengrass sig á endurgerð The
Fantastic Voyage?
Lesbók
48 Flogið inn í eyru hlustenda
Ingibjörg B. Frímannsdóttir hermir af tungutaki.
48 Jónas var tímalaust skáld
Dick Ringler hefur haft listaskáldið góða á heilanum í hálfan fimmta
áratug og sendir nú frá sér doðrant með þýðingum sínum.
54 Minnir á props úr Harry Potter
Umsögn um nýju hurðina í Hallgrímskirkju.
38
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Árni Sæberg af Kristni Sigmundssyni.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
T
ilhlökkunin er mikil hjá fimm ára gutta.
Enda hefur honum verið tilkynnt að hann
sé að fara með fjölskyldunni út að borða.
En vonbrigðin eru þeim mun meiri er
hann kemst að því að það á alls ekki að borða úti.
Það er fimmtudagskvöld og förinni heitið á
Austur, sem heitir eftir strætinu sem staðurinn
stendur við, en þar verður veitinga- og skemmti-
staður með nýrri umgjörð opnaður um helgina. Yf-
ir eldhúsinu er Kári Þorsteinsson, sem unnið hefur
á átta Michelin-stöðum. Og með honum samdi
matseðilinn Stefán Magnússon, sem er vanur
steikhúsum. Hann fór fimmtán ára gamall til Ósk-
ars Péturssonar á Argentínu og sagðist vilja læra hjá
honum – engum öðrum. Óskar sagði honum að
koma þegar hann yrði sextán ára. Sem hann og
gerði og er nú hokinn af reynslu, rétt kominn á
þrítugsaldur.
Matseðillinn er nýr og steikurnar aðal veitinga-
staðarins. Hægt er að fá heyreykta steik og steik
sem elduð hefur verið í tólf tíma. Svo má panta sér
kengúru og matargestir fá óvæntan glaðning. „Ég
er búinn að borða sebrahest,“ segir guttinn vígreif-
ur.
Ekki verður hjá því komist að nefna eftirréttina.
Þetta kvöld reiðir Örvar Birgisson fram sorbet með
storknuðum hraunmola, sem er sláandi líkur þeim
sem myndað hafa fjall á Fimmvörðuhálsi. Fjall sem
sumir vilja nefna Hrunafell, en aðrir Skjaldborg.
Hraunmolinn reynist dísætur, enda búinn til úr
sykri og hvílíkt lostæti!
Inni á staðnum eru nokkrir þekktir fagurkerar í
skemmtanalífi. Og skemmtilegt sprund af Nesinu,
sem veigrar sér þó við að heilsa þegar hún kemur
úr fríska loftinu fyrir utan. „Æ, ég var akkúrat að
gera Júdas,“ segir hún.
Af verksummerkjum að dæma var hún að reykja.
En orðið finnst þó ekki í nýrri Orðabók um slang-
ur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál. Stóra
systir er þeirrar skoðunar að Austur sé nýtísku-
legur og fínn staður. „Við hefðum átt að koma í
sparifötum.“
Um fólkið á staðnum segir hún: „Fullorðið.“
Fimm ára guttinn er búinn að jafna sig á því að fá
ekki að borða úti og segist vilja fá súpu.
„Viltu fá humarsúpu?“ spyr pabbinn.
„Nei, ég vil fá súpu,“ svarar hann ákveðinn.
Hann ætlar þó að ráða einhverju þetta kvöld.
Og svo segir hann frá nýjustu uppgötvuninni á
leikskólanum. „Ef maður borðar sand og ef maður
borðar mold og drekkur svo, þá springur maður!“
„Hvar heyrðirðu það?“ spyr pabbinn undrandi.
„Gabríel sagði mér það!“
„En ekki kom þetta fyrir hann,“ segir pabbinn
og gefur sig ekki. En mætir ábúðarfullu augnaráði
sonar síns og nýjasta frasanum:
„Ertu klikkaður?“
pebl@mbl.is
Það er lífleg stemmning meðal matargesta Austurs á gólfi, sem síðar um kvöldið er dansað á.
Morgunblaðið/Ómar
Hraun í miðborginni
16. apríl
Næstkomandi föstudag, 16. apríl, ætlar Vox academica að flytja Re-
quiem eftir Mozart í Langholtskirkju. Stjórnandi kórsins er Hákon Leifs-
son en einsöngvarar verða Þóra Einarsdóttir sópran, Ingunn Ósk Sturlu-
dóttir alt, Gissur Páll Gissurarson tenór og Kristinn Sigmundsson bassi.
Auk sálumessunnar mun Þóra flytja Jauchzet Gott in allen Landen! sóló
kantötu BWV 51 eftir J.S. Bach. Hægt er að nálgast miða í 12 tónum,
Skólavörðustíg 15. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Mozart Requiem í Langholtskirkju
Við mælum með…
11. apríl
Ívar Brynjólfsson er
um þessar mundir
með sýningu í Lista-
safni Íslands sem ber
heitið Vinnustaðir alvöru karla. Þar
sýna svarthvítar ljósmyndir „hrá-
slagalegt umhverfi vélaverkstæða,
trésmíðaverkstæða og salarkynna
þar sem karlmenn ráða ríkjum.“
Kl. 14 mun Halldór Björn Runólfs-
son safnstjóri fjalla um sýninguna í
Sunnudagsleiðsögn.
16.-17. apríl
Litla ljóðahátíðin
fer fram á Akureyri
þessa daga. Meðal
þeirra sem fram
koma eru Sigurður
Pálsson, Vilborg Dagbjartsdóttir,
Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Bragi
Ólafsson og Óskar Árni Ósk-
arsson. Ljóðakvöld fara fram á
Populus Tremula en fyrirlestrar í
menningarsetrinu á Möðruvöllum.
www.noatun.is
HEITT
MEÐHEIM
Nóatún
bestir
í kjöti
LAMBABÓGUR
STEIK
KR./STK.
1498 BBESTIRÍ KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI