SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Qupperneq 6

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Qupperneq 6
6 11. apríl 2010 Malcolm McLaren fæddist árið 1946 og ólst upp hjá ömmu sinni. Hann gekk í listaskóla og var orðinn áberandi í breska pönkinu áður en Sex Pistols komu til sögunnar. Hann vakti fyrst umtal þegar hann opn- aði verslun ásamt Vivienne Westwood þar sem áhersla var lögð á að uppfylla áráttur við King’s Road í hverfinu Chelsea í London. Í upphafi hét verslunin Let It Rock, en nafninu var síðar breytt í Sex. Auk Sex Pistols var McLaren umboðsmaður fyrir hljómsveitirnar New York Dolls og Bowowow. Eftir að hann hætti sem umboðsmaður fór hann sjálfur út í tónlist og gaf út nokkra smelli. 1999 tilkynnti hann að hann hygðist bjóða sig fram til borgarstjóra í London og hafði meðal annars á stefnuskránni að lögleiða vændishús og sölu áfengis í bókasöfnum. McLaren og Westwood áttu saman son, John Cor- rie. Tónlistarblaðamaðurinn John Savage, sem skrif- aði bók um Sex Pistols, England’s Dreaming, sagði að án McLarens hefði ekki verið neitt breskt ræfla- rokk: „Hann er einn af þessum fágætu ein- staklingum, sem hafa haft gríðarleg áhrif á menning- ar- og félagslíf þessarar þjóðar.“ Hafði gríðarleg áhrif Malcolm McLaren fyrir utan verslunina Sex. V ertu barnalegur. Vertu óábyrgur. Sýndu óvirðingu. Vertu allt sem þetta þjóðfélag hatar.“ Þannig hljómuðu ein- kunnarorð, sem Malcolm McLaren setti á blað þegar hann var í listaskóla á sjöunda áratug liðinnar aldar og hann stóð við þau. McLaren hefur verið sagður snillingur en hann hefur einnig verið kallaður loddari, svikahrappur og hugverkaþjóf- ur. Og hann var ábyggilega stoltur af því, enda átti hann sér annað mottó: „Reiðufé úr ringulreið.“ McLaren lést 64 ára að aldri á fimmtudag á sjúkrahúsi í Sviss eftir baráttu við krabbamein. Young Kim, sambýliskona hans, og Joseph Corre, sonur hans, voru hjá honum við andlátið. McLaren var þekktastur fyrir að hafa verið um- boðsmaður Sex Pistols. Um það leyti, sem hann skrifaði einkunnarorð sín reið sumar ástarinnar yfir. Það var 1967. Árið 1976 rann upp sumar hat- ursins, ræflarokkið stal senunni og McLaren sá sér leik á borði. Árið áður hafði hann gerst umboðs- maður hljómsveitarinnar Sex Pistols og gerði ung- an mann, sem hann rakst á í rifnum stuttermabol merktum Pink Floyd og með grænt hár, að söngv- ara hennar. Hann hét John Lydon og tók sér nafnið Johnny Rotten. Tónlistin var villt og stjórnlaus, hljóðfærin fölsk og máttur réð meiru en geta í spilamennskunni. Sumarið 1976 kom út lítil plata með laginu Anarchy In the UK. McLaren var í því mótsagnakennda hluverki – svo ekki sé meira sagt – að móta ræflarokksímyndina og gera hana að markaðsvöru. Árið eftir komst hljómsveitin á kortið fyrir alvöru. 1977 hélt Elísabet Bretadrottn- ing upp á 25 ára valdaafmæli og Sex Pistols gáfu út lagið God Save the Queen. Sama dag og drottn- ingin fagnaði sigldu Sex Pistols ásamt McLaren niður Thamesá og orðin „God Save the Queen/Her Fascist Regime“ og „There’s no Future“ skullu á hlustum nærstaddra. Það olli hneykslan að syngja um drottninguna og fasistastjórn hennar og McLa- ren var handtekinn ásamt hljómsveitinni fyrir uppátækið. Lagið var bannað á BBC, en það hefur sennilega aðeins orðið til að auka vinsældir þess og það náði öðru sæti breska vinsældalistans. Gleymt lag með Rod Stewart var í fyrsta sæti og hafa smið- ir samsæriskenninga haldið því fram að átt hafi verið við listann til þess að hlífa drottningunni. Í kjölfarið fylgdi eina hljóðversplata hljómsveit- arinnar, Never Mind the Bollocks, Here’s the Sex Pistols. Hljómsveitin varð hins vegar ekki langlíf. Árið 1978 fór hún í tónleikaferð til Bandaríkjanna og eftir tónleika í San Francisco leystist hún upp. Ástæðan var að því er haldið hefur verið fram sú að Rotten fékk sig fullsaddan þegar McLaren fékk þá hugdettu að fljúga með hljómsveitina til Brasilíu til fundar við lestaræningjann Ronnie Biggs. McLaren sakaði söngvarann um að hafa brugðist hug- myndafræði sveitarinnar og hegðað sér eins og „uppbyggileg skræfa fremur en niðurrifsseggur“. Við tóku málaferli og á endanum náði Lydon til sín réttinum að verkum Sex Pistols. Hann og McLaren töluðust hins vegar ekki við. Við fréttina af andláti hans gaf Lydon út yfirlýsingu með und- irskriftinni Johnny Rotten þar sem hann sagði að í sínum huga hefði „Malc alltaf verið skemmtilegur og ég vona að þið munið það. Umfram allt var hann skemmtikraftur og ég mun sakna hans og það ættuð þið líka að gera.“ Guðfaðir pönksins Hamhleypan Malcolm McLaren látin af krabbameini „Reiðufé úr ringulreið“ var eitt af einkunnarorðum Malcolms McLarens, sem lést úr krabbameini á sjúkrahúsi í Sviss á fimmtudag. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Vinsældir ræflarokksins má í raun rekja til þess að það gerði ljótleikann fal- legan. Tómhyggjan leiddi til and-hönnunar, and- tísku, hins andfélagslega og andkerfislega. Tilfinn- ingin að hatta allt varð gríðarlega og ómæl- anlega aðlaðandi. Malcolm McLaren Það ljóta gert fallegt gott á grillið! 40%afsláttur Grísakótile ttur899kr.kg verð áður 1 498

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.