SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 20
20 11. apríl 2010
Í
slenskir handboltamenn eru eft-
irsótt vinnuafl í 1. deildinni í
Þýskalandi, einni sterkustu deild í
heimi. Skyldi engan undra, „strák-
arnir okkar“ hafa snúið heim frá síðustu
stórmótum skreyttir í bak og fyrir.
Hjá Rhein-Neckar Löwen leika um
þessar mundir þrír Íslendingar, Ólafur
Stefánsson, Snorri Steinn Guðjónsson og
Guðjón Valur Sigurðsson. Sá síðastnefndi
hefur raunar neyðst til að horfa á félaga
sína frá hliðarlínunni að undanförnu
vegna meiðsla. Það var einmitt raunin í
öruggum sigri Ljónanna á Dormagen,
37:24, á dögunum. „Blessaður vertu það
er hundleiðinlegt að sitja fyrir utan völl-
inn. Og miklu meira stressandi. Það er
óþolandi að geta ekki haft nein áhrif á
leikinn,“ segir Guðjón Valur.
Hornamaðurinn marksækni hefur ver-
ið frá æfingum og keppni í átta vikur en
læknar tjáðu honum á sínum tíma að gera
ráð fyrir tólf vikum. „Ég veit ekki annað
en ég sé á áætlun en maður verður fljótt
óþolinmóður þegar maður er meiddur og
ég ætla að koma heim í næstu viku og
kíkja á læknateymi landsliðsins. Vonandi
kemst ég sem fyrst í gagnið aftur.“
Rhein-Neckar Löwen leikur heimaleiki
sína í glæsilegri höll í Mannheim, SAP
Arena, sem tekur 13.200 manns í sæti.
Bekkurinn var þó óvenju strjált setinn
gegn Dormagen, aðeins um 5.000
manns, enda stíft leikið þessa dagana og
áhorfendur líklegri til að mæta á stærri
leikina. Löwen er í fjórða sæti deild-
arinnar en Dormagen heyr hatramma
baráttu við falldrauginn.
Guðjón Valur segir stemninguna fína í
SAP Arena en viðurkennir að lætin séu
jafnan meiri í smærri höllum. Nefnir
hann KA-heimilið á Akureyri sérstaklega
í því sambandi. Hann er örugglega vel-
kominn aftur þangað hvenær sem er.
SAP Arena er fjölnota höll en íshokkílið
Mannheim hefur einnig aðsetur þar. Þá
eru reglulega haldnir tónleikar í höllinni.
Guðjón Valur getur sér þess til að hún sé
bókuð eitt hundrað daga á ári.
Það er stór helgi hjá Rhein-Neckar Lö-
wen. Á laugardag mætir liðið Gummers-
bach í undanúrslitum þýska bikarsins og
beri liðið sigur úr býtum tekur það þátt í
úrslitaleiknum á sunnudag.
Ljónin leika
sér að bráðinni
Bak við tjöldin
Ljósmyndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Mikið er um Guðjón Valur segir mun erfiðara að horfa á leiki en taka þátt í þeim.
Snorri Steinn gefur stuðningsmönnum Rhein-Neckar Löwen eiginhandaráritanir. Stuðningsme
Landsliðsmennirnir Guðjón Valur Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefánsson í SAP Arena í Mannheim. Höllin er afar glæsileg og tekur hvorki fleiri né færri en 13.200 manns í sæti.