SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Page 23

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Page 23
11. apríl 2010 23 með um 4.000 tonn af túnfiski í eldi og mun slátra um 800 tonnum á árinu. Höfuðstöðvar Kali Tuna eru á eyju utan við króatísku borgina Zadar og þar er tún- fiskurinn ræktaður í Adríahafinu. Þessi staðsetning var ekki eingöngu valin vegna þess að þar er fallegt heldur henta stað- hættir vel fyrir túnfiskeldi. Á þessu svæði eru um 1.100 eyjar svo þar er náttúrulegt skjól fyrir veðrum og sjávarföll eru ekki nema um 20 sm. Hitastig, salt- og súrefn- isinnihald sjávar er eins og best verður á kosið og þarna eru engin dýr líkt og hval- ir, hákarlar, minkur eða otur sem sækja í fiskinn. Dýpt sjávar er um 60 metrar sem hentar vel en kvíarnar eru 25 metra djúp- ar. „Taka þarf tillit til allra þátta í eldinu. Bláuggatúnfiskurinn er sérstök og dýr vara og fulltrúar kaupenda fylgjast vel með okkur. Staðhættir eru því mikilvægir en við höfum einnig komið upp öflugu gæðakerfi þar sem allt sem viðkemur eld- inu er skráð. Það er gengið svo langt að meira að segja lífssaga hvers kaðals sem notaður er til að festa eldiskví er skráð, hvaðan hann kemur, hvar hann er settur niður, hvenær hann er tekinn upp og hreinsaður o.s.frv. Það geta verið verð- mæti fyrir um 200 milljónir króna í hverri kví og ef eitthvað kemur upp á verðum við að vita hvað veldur. Þetta er kannski ekki skemmtilegasti hluti eldisins en sýnir að við tökum okkur alvarlega, enda göngum við lengst allra framleiðenda í þessu, og kaupendur sjá það og meta. Fyrir okkur er þetta jafn mikið alvörumál eins og að reka flugvöll eða sjúkrahús og því verður reksturinn að vera á pari við slíkt,“ segir Óli Valur. Hinn heilagi kaleikur Stærsta áskorunin í túnfiskeldi er að ná sjálfbærni í eldinu. Hinn heilagi kaleikur túnfiskseldisins hefur verið að fá fiskinn til að hrygna föngnum og fá hrognin til að klekjast. Það er þó ekki auðsótt, því tún- fiskurinn gerir ekki greinarmun á seið- unum og öðrum smáum fiski og étur því afkvæmi sín. Veiðum á bláuggatúnfisk hefur verið illa stjórnað á síðustu áratug- um og veiðar gengið nærri stofninum svo hér er um mikilvægt mál að ræða. Ýmsir aðilar hafa síðustu áratugi reynt að loka hringnum í túnfiskeldi en Kali Tuna náði merkum áfanga síðasta sumar þegar fyr- irtækinu tókst að ná fram hrygningu hjá túnfiski í kvíum sínum og fá hrognin til að klekjast í rannsóknarstöð. Var það í fyrsta sinn í heiminum sem það tókst án notk- unar hormónalyfja eða annarrar utanað- komandi hjálpar til að auka líkur á hrygn- ingu og klaki. „Við höfum unnið að þessu verkefni síðan 2006 í samvinnu við Rannsókn- arstofnun í sjávarlíffræði í Split og beitt heimatilbúnum aðferðum. Það má segja að árangurinn hafi farið fram úr björtustu vonum. Eitt er að fá fram hrygningu í kví- unum, talsvert meira að ná að safna saman frjóvguðum hrognum og ná að klekja þau. Sá árangur kom okkur í opna skjöldu. Þetta gerir hinsvegar framtíðina mjög spennandi hjá fyrirtækinu,“ segir hann. Þessi árangur hefur vakið athygli þeirra sem lifa og hrærast í veröld bláugga- túnfisksins. Þegar undirritaður var í heimsókn hjá Kali Tuna og sigldi út að kvíunum voru tveir vísindamenn frá jap- önskum háskóla með í för. Þeir hafa rann- sakað möguleikann á sjálfbæru eldi tún- fisks í 40 ár. Einnig voru á bátnum fréttamaður og tökumaður frá einni stærstu sjónvarpsstöðinni í Japan sem gerðu frétt um málið. Með í för var einnig samstarfsmaður Kali Tuna í þessu verk- efni, Dr. Ivan Katavic frá Rannsókn- arstofnun í sjávarlíffræði í Split. Hann er fyrrverandi aðstoðarráðherra í landbún- aðarráðuneyti Króatíu þar sem hann stýrði sjávarútvegsstefnu Króatíu. Hann segir þennan árangur merkan áfanga og mikilvægan túnfiskiðnaðinum. Blikur á lofti Sambland lítillar stjórnunar og mikillar sóknar í bláuggatúnfisk hefur leitt til tals- verðrar fækkunar í stofninum. Á síðasta ári tilkynntu vísindamenn ICCAT samtak- anna, sem hafa með svæðibundna fisk- veiðistjórnun túnfisks í Atlantshafi að gera, að stofninn væri kominn niður í um 25% af upphaflegri stærð. Aðildarlönd IC- CAT, þar sem ESB ræður 56% af kvóta bláuggatúnfisks, ákváðu þá að úthluta í fyrsta sinn kvóta sem var innan við ráð- gjöf vísindanefndar samtakanna. Fram að því höfðu samtökin veitt vísindaráðgjöf litla athygli og úthlutað kvóta langt um- fram ráðgjöf. Ástand stofns bláuggatúnfisks er aftur komið á dagskrá því 13. til 25. mars fór fram fundur CITES, samnings um al- þjóðaverslun með tegundir í útrýming- arhættu, í Doha í Katar. Umhverfissamtök hafa barist fyrir því að bláuggatúnfiskur verði listaður í CITES viðauka I sem þýða myndi bann við alþjóðlegri verslun með hann, en tillögu um það var hafnað með yfirgnæfandi meirihluta á fundinum. Lík- legt er þó að áfram verði barist fyrir listun bláuggatúnfisks, en næstu þrjú árin verð- ur baráttan háð á vettvangi ICCAT. „Það skipti okkur auðvitað miklu máli að tillögunni væri hafnað,“ segir Óli Valur og heldur áfram; „en fáir á Íslandi átta sig sennilega á því hversu mikilvægt það er fyrir íslenska hagsmuni að þjóðir heims hafni viðskiptabanni með nytjastofn. Á þinginu í Doha barst ítrekað í tal að fleiri nytjastofnar ættu undir högg að sækja og var þorskurinn ein þeirra tegunda sem nefndar voru.“ Óli Valur segir að sem þátttakendur í þessari iðngrein kunni Atlantis Group vel við strangar leikreglur. „Kvótakerfi var sett á veiðar með bláuggatúnfisk í Króatíu í fyrra og reglurnar eru því skýrar. Það verður að stíga varlega til jarðar og horfa mörg ár fram í tímann. ESB og ICCAT hafa á nokkrum árum breytt reglum þannig að í stað þess að veiða megi í 11 mánuði þá má nú aðeins veiða í 1 mánuð á ári. Þeir hafa bannað leit að fiskinum úr lofti en í stað þess eru sendir út fleiri bátar sem í raun er bæði óhagkvæmt og óumhverfisvænt. Í stað þess að beita fiskveiðistjórnunar- aðferðum sem hafa sannað sig er öllum einungis gert erfiðara fyrir. Þótt ESB eigi 56% af kvótanum er það bara með eitt at- kvæði í ICCAT líkt og Ísland sem er ein- ungis með 0,2% kvótans. Þrátt fyrir þetta hefur ESB gríðarlega sterk ítök innan IC- CAT og hefur í raun ákvarðað kvótann síðustu tvö ár. Bann við alþjóðaverslun með bláuggatúnfisk myndi ekki stöðva veiðar þar sem verslun innan ESB er ekki alþjóðaverslun. Það er því líklegt að þessi verðmæti fiskur yrði veiddur áfram en færi hins vegar á lægra verði til neytenda sem ekki kunna eins vel að meta hann og neytendur utan ESB, einkum í Japan,“ segir Óli Valur. Hann segir því nærtækara að grípa til annarra ráðstafana, svo sem að minnka kvótann ef það er talið nauðsynlegt. Óli segir áhugavert að nú sé stofnstærð bláuggatúnfisks sem hlutfall af hámarks- stofnstærð 25%, en sé litið á lægstu þekkta stofnstærð þorsks þá þurfi ekki að horfa lengra aftur en til 1984, þegar stofn- stærð þorsks var 15% af því sem hún var 1955. Eftir þetta var kvótakerfið sett á og þorskstofninn hefur vaxið um 73%. „Ekki voru alþjóðaviðskipti með þorskinn bönnuð þá, sem betur fer. Guð má vita hverjar afleiðingar þess hefðu verið fyrir íslenskt samfélag,“ segir Óli Valur. Séð yfir túnfiskkvíar Kali Tuna í Króatíu. Bláuggatúnfiskurinn er stærðarskepna. Ísland varð meðlimur ICCAT samtökunum árið 2002 en þau hafa með svæðisbundna fisk- veiðistjórnun túnfisks í Atlantshafi að gera. Samningssvæðið er stórt, allt Atlantshafið, og koma því mörg lönd að málum og í reynd er um stóra og þunga stofnun að ræða þar sem mismunandi hagsmunir takast á. Ísland er með 0,2% af kvótanum í norð-austur stofni bláuggatúnfisks en ESB með 56%. Brynhildur Benediktsdóttir, deildarsérfræðingur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, segir að Ísland hafi frá því það varð meðlimur ICCAT hvatt til þess að hámarksafli fari ekki fram yfir ráðleggingar þar til bærrar vísindanefndar en staðreyndin sé að aflamark hafi verið sett of hátt í gegnum tíðina. Brynhildur segir að afstaða Íslands hafi verið að fiskveiðistjórnun eigi að vera á ábyrgð við- komandi ríkja sem og svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarsamtaka. „Við höfum varað við að fiskveiðistjórnun sé tekin úr höndum þar til bærra aðila og í staðinn bönnuð alþjóðaverslun með einstaka fisktegundir. Bann við alþjóðaverslun gerir upp á milli stórra og lítilla markaðs- svæða og út frá sjónarhóli Íslands sem stórrar fiskveiðiþjóðar með lítinn heimamarkað er það varasöm þróun,“ segir hún. Bann á alþjóðaverslun gerir upp á milli markaðssvæða

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.