SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Side 24

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Side 24
24 11. apríl 2010 „Í rauninni er alltaf gaman. Og það er líka gam- an í vinnunni. Alltaf öðru hverju kemur þessi stórkostlega upplifun þar sem maður verður eins og upphafinn, eins og ég varð eftir síðustu tón- leikaferð. Það er rúm vika síðan ég kom heim og brosið hefur ekki farið af mér.“ Er aldrei leiðinlegt að vera á sviði? „Mér finnst mjög leiðinlegt að vera á sviði þegar ég þarf að syngja í ónýtum sýningum. Það kemur nefnilega fyrir að leikstjórar setja upp verk eftir sínu eigin höfði og hlutir fara úrskeiðis. Maður reynir að gera eins vel og maður getur á æfinga- tímanum en áttar sig mjög fljótlega á því að sýn- ingin muni ekki ganga upp. Maður er ósáttur en situr uppi með sýninguna og á að gera hana trú- verðuga. Stundum er manni það lífsins ómögu- legt. Það eru voðalega vondar stundir. Svo tekur þessu stressleysi fannst mér það skrýtið. Svo komst ég að þeirri niðurstöðu að í Metropolitan væru aðstæður svo óaðfinnanlegar, allt svo öruggt og vinnubrögðin svo góð að ekkert ætti að geta klikkað. Og þá er þetta allt í lagi.“ Alltaf gaman Hvað geturðu haldið lengi áfram að syngja op- inberlega? „Ef röddin spilar með þá get ég haldið áfram meðan fæturnir bera mig og einhver nennir að ráða mig í vinnu. Ég er svo heppinn að vera bassi og slík rödd endist lengst allra radda vegna þess að hún er svo nálægt talröddinni. Auðvitað þurf- um við bassasöngvararnir stundum að syngja háa tóna en það verður ekki að íþrótt eins og hjá ten- órunum. Það jaðrar við að tenórar stundi afreks- íþróttir í söng en um fimmtugt fara þeir að eiga misjafna daga.“ Hefurðu efnast á þessu starfi? „Ef ég miða við kunningja mína sem fóru í verkfræði eða læknisfræði þá hef ég ekki efnast sérstaklega. Ég lifi ágætis lífi – nema hvað ég er sjaldan heima hjá mér. Frá 1994 byrjaði þessi út- gerð mín frá Íslandi og ég er á ferð og flugi en ef ég er lengur í burtu en þrjár vikur þá kemur konan mín, Ásgerður, og heimsækir mig. Eins og einhver sagði: Við fljúgumst á. En svo reyni ég að vera heima allt sumarið.“ Hafa fjarvistirnar ekkert reynt á hjónabandið? „Ef eitthvað er held ég að þær hafi styrkt það. Við Ásgerður göntumst stundum með það að ekki væri víst að við værum ennþá gift ef ég væri alltaf heima. Heimilislíf okkar er ekki vanabundið held- ur alltaf spennandi.“ Er alltaf gaman? É g var að koma frá því að syngja í 9. sin- fóníu Beethovens í Lincoln Center í New York,“ segir Kristinn þegar hann er spurður um síðasta verkefni sitt. „Verk- ið var flutt af ungverskri hljómsveit, Budapest Festival Orchestra, undir stjórn eins stórkostleg- asta hljómsveitarstjóra sem ég hef kynnst sem heitir Ivan Fischer. Þegar hann sló af síðasta tón- inn á konsertinum ruku áhorfendur á fætur, eins og eftir skipun, og fagnaðarlætin voru ótrúleg, það var eins og kveikt hefði verið á þotuhreyfli úti í sal. Þetta jaðraði við að vera óhugnanlegt. Ég hafði flutt þetta verk með sömu flytjendum í Aþenu og Búdapest nokkrum dögum áður og ég held að það hafi ekki verið verri flutningur og viðtökur voru fínar, en ekkert þessu líkar.“ Er öðruvísi að syngja í Bandaríkjunum en annars staðar? „Ég er orðinn svo ameríkanseraður að ég vil helst hvergi syngja nema í Bandaríkjunum. Bandarískir áheyrendur láta heyra í sér ef þeim líkar og einnig ef þeim mislíkar. Í Bandaríkjunum hef ég séð fólk standa upp í miðri sýningu og ganga út ef það er ekki ánægt.“ Hefurðu lent í því að fá slæmar viðtökur? „Nei, sem betur fer ekki. Reynslan kennir manni líka margt. Í gamla daga var ég stundum taugaóstyrkur og þá er hætt við að maður lendi í alls konar vitleysu. Þá fær maður bakþanka í miðjum söng og hugsar: var þetta rétt hjá mér? – og endar úti í skurði. Stressið er hræðslan við það óþekkta, að eithvað gerist sem hefur aldrei gerst áður. Í fyrsta sinn sem ég söng í Metropolitan var ég stressaður. Nú verð ég aldrei stressaður í Met- ropolitan. Ég kem inn á svið, syng og geng út aftur og er sallarólegur. Fyrst þegar ég áttaði mig á Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Var skelfilega metnað- arlaus Kristinn Sigmundsson er fastagestur í virtustu óperuhúsum heims, þar á meðal Metropolitan-óperunni. Þessa dagana dvelur hann á Íslandi, nýkom- inn úr velheppnaðri tónleikaferð. Í júníbyrjun syngur hann á lokatón- leikum Listahátíðar í Háskólabíói ásamt Óperukórnum og Sinfóníu- hljómsveit Íslands og seinna í sama mánuði syngur hann hlutverk Sarast- ros í Töfraflautu Mozarts í óperuhús- inu í Toulouse í Frakklandi. Kristinn Sigmundsson: „Ég hef ekki gaman af söngnum nema ég leggi mig fram og geri eins vel og ég get.“ ’ Fyrir mér er starf óperusöngvarans glíma við texta og tilfinningar og tengsl á milli persóna. Söngurinn er verkfæri, eins og hljóðfærin í hljómsveitargryfjunni. Ef ég heyri fallegan söng án túlkunar þá er ég farinn að hrjóta eftir fimm mínútur. Ég vil miklu heldur söng sem er kannski ekki tækni- lega fullkominn en ber í sér sannar tilfinn- ingar. Sjálfur á ég erfitt með að syngja texta sem ekki felur í sér tilfinningar.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.