SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Qupperneq 33

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Qupperneq 33
11. apríl 2010 33 unum. En það er ekki alltaf hægt að treysta á heppnina, hún getur hætt að fylgja manni. Það er svolítið dýrkeypt að treysta á hana þegar lífið liggur við. Það borgar sig ekki að skipta skynseminni út fyrir tilviljanakennda heppni.“ Ekki bara síbrotamenn „Með verkefnunum erum við líka að sýna nemendum að þeir einstaklingar sem lentu í slysunum, eru ósköp venjulegt fólk,“ segir Þóra Magnea. „Það var fólk sem treysti á heppnina og var kannski að taka áhættu í þetta eina skipti. Þess vegna læt ég nemendur í byrjun hvers tíma fá blað sem þeir skrifa framtíðarmarkmið sín á. Þegar við höfum rætt markmið þeirra og framtíðarplön er auðveldara að fá krakkana til að samsama sig fórn- arlömbunum því þau voru líka með markmið og plön fyrir lífið. En með því að treysta á heppnina og taka áhættuna hurfu þessi framtíðarplön.“ segir Þóra Magnea. „Það eru alls ekki bara svokallaðir sí- brotamenn í umferðinni sem lenda í slys- um,“ bætir Einar Magnús við. „Og þessar dapurlegu dæmisögur og myndbönd hafa áhrif á framtíð nemenda í lífsleikn- itímum. Þeir geta haft áhrif á framtíð sína með því að taka skynsamlega afstöðu til frásagna og lífsreynslu þessa fólks.“ Átakanleg viðtöl Þóra Magnea og Einar Magnús fengu Rík- issjónvarpið í lið með sér til að gera myndböndin sem voru sýnd í Kastljósi. „Vinnsla myndefnisins var oft erfið,“ lýsir Þóra Magnea. „Til dæmis þegar við fórum til Vestmanneyja að tala við Helgu Björk og aðstandendurna þar, þurftum við að stoppa tökur, það var svo erfitt fyrir marga að rifja þetta upp. Það eru orðin sjö ár frá því þetta slys varð en tilfinningalega er þetta alltaf mjög nærri aðstandendum. Fjögur ár eru liðin frá Akureyrarslysinu. Það þarf mjög mikið hugrekki til að koma svona fram eftir svona stuttan tíma. Það er líka hægt að læra af þeim, það er að segja hvernig fólk vinnur úr svona mál- um. Foreldrar Sesars Þórs, sem lést í bíl- slysinu á Akureyri, kenna ekki ökumann- inum um, og eins og þau sjá þetta og tala um þá neyddi enginn Sesar Þór upp í bíl- inn. Þau gera sér grein fyrir að þeir frændurnir tóku þessa ákvörðun saman.“ Viðtölin og viðmælendur hreyfðu mik- ið við þeim sem komu að vinnunni við myndböndin. Þóra Magnea minnist þess að þegar viðtölum lauk, hófst ákveðið andlegt úrvinnsluferli, bæði hjá Einari Magnúsi og henni sjálfri. Hún fór heim og lokaði sig af, þurfti að vinna úr þessu í ró og næði á meðan Einari Magnúsi fannst hann þurfa að tala um þessa upplifun við annað fólk. „Ég hafði hins vegar þörf fyrir að ræða um þetta og við unnum bara úr þessu á ólíkan hátt, kannski það sé ástæð- an fyrir að ég er upplýsingafulltrúi,“ segir Einar brosandi. Hræðast fötlun meira en dauðann Þóra Magnea segir merkilegt að það sé eins og fólk hræðist það síður að deyja en að örkumlast. „Helga Björk lýsir sínum aðstæðum á mjög átakanlegan hátt þegar hún segir að hún missi vinkonur sínar eftir slysið, þær fari frekar upp í kirkju- garð í staðinn fyrir að heimsækja hana. Það er það sem fólk hræðist, að vera gleymt og geta ekki gert það sem það gat áður. Nafnið á námsefninu, Svo kom það fyrir mig, finnst mér mjög gott, því flestir hugsa þetta kemur aldrei fyrir mig. Helga Björk sagði þessa setningu þegar ég tók viðtalið við hana. Hún var að lýsa því að hún hélt að ekkert gæti komið fyrir hana, hún væri svo góður bílstjóri, þá sagði ég við hana: „Já, en svo kom þetta fyrir þig“ og hún sagði á móti „… svo kom þetta fyrir mig“. Sætta sig við dauðaslys „Yngsti aldurshópurinn lendir mikið í árekstrum, karlmenn lenda í tveimur þriðju slysa en það hefur einhver áhrif að þeir eru meiri þátttakendur í umferðinni sem er að vísu að breytast. Það hefur komið fram í rannsóknum að karlmenn lenda í fleiri slysum þegar tekinn er jafn fjöldi kvenna og karla. Við karlmennirnir erum sem sagt verri ökumenn,“ við- urkennir Einar Magnús. Þóra Magnea segir ekki hægt að ná til allra, hægt sé að skipta ökumönnum í þrjá hópa: „Það eru þeir sem fara eftir öllum reglum, gera aldrei neitt af sér. Svo er það þessi grái hópur sem tekur stundum áhættu en er oftast löghlýðinn. Svo er það síðasti hópurinn sem má eiginlega kalla síbrotamenn í umferðinni. Það er eig- inlega ekkert sem hefur áhrif á þennan hóp. En þessi grái hópur er stór og það er hann sem við erum að reyna að hafa áhrif á. „Að meðaltali deyja um það bil 20 manns í bílslysum á hverju ári,“ bætir Einar Magnús við. „Það er eins og sam- félagið sætti sig við dauðaslys í umferð- inni. Það þarf líka að útskýra fyrir fólki að það er hugsun á bak við lögin og regl- urnar, það er ástæða fyrir því að það er 60 kílómetra hraði á Sæbrautinni og 30 kíló- metra hraði í kringum grunnskóla. Sumir hverjir ná ekki að tengja þarna á milli.“ Nemendurnir virkir í tímum Þóra Magnea og Einar Magnús eru bjart- sýn á verkefnið þótt erfitt sé að mæla út- komuna. „Þótt við vitum ekki nákvæm- lega hvaða árangur svona kennsla ber, hvort þetta bjargar einu eða fimm mannslífum, þá höfum við trú á þessu. Nemendur taka þessu almennt vel, ég man að áður en við byrjuðum var ég farin að hugsa fyrir krakkana og var eiginlega alveg viss um að það myndi enginn nenna þessu, þetta yrði bara dregið niður og engin almennilega svör fengjust frá þeim. En það er alls ekki þannig. Nemendurnir taka virkan þátt í fræðslunni og oft eru umræðurnar miklar og mjög gefandi. Markmið okkar er að fá umferð- arumfjöllun inn í aðalnámskrá fram- haldsskólanna. Í aðalnámskrá grunnskól- anna er talað um umferðina í loka- markmiðum lífsleikni í fjórða, sjöunda og tíunda bekk. Mín ósk er að þetta sé skýrt í aðalnámskrá framhaldsskólanna svo kennarar sækist frekar eftir námsefninu. Við erum að fara að kynna þetta námsefni fyrir mennta- og menningarmálaráðu- neytinu og vonumst eftir góðum við- brögðum,“ segir Þóra Magnea. „Eins og Þóra er búin að setja þetta upp þá fá kennarar mikinn stuðning frá Um- ferðarstofu og með kennslugögnunum til að bera þetta fram fyrir nemendur. Við munum svo uppfæra þetta en auðvitað vonum að það verði ekki fleiri slys til að bæta við sögum af,“ segir Einar Magnús. „Ég segi stundum svolítið hvöss við nemendur að ég ætli ekki að standa ein- hvern tímann fyrir framan aðra með svipuð myndbönd til minningar um þá, ég vona að þetta hafi áhrif,“ segir Þóra Magnea að lokum. Aldursskipting slasaðra og látinna Alv. Lítið Látnir slas. slas. Samtals 0-16 ára 0 31 183 214 17-26 ára 3 63 543 609 27-36 ára 1 27 216 244 37-46 ára 1 18 157 176 47-56 ára 0 23 110 133 57-66 ára 4 22 92 118 67 ára og + 3 16 72 91 Samtals 12 200 1.373 1.585 Morgunblaðið/Júlíus „Já, það er rosalega áhrifaríkt að sjá þetta. Þegar maður er orðinn þetta gamall, þá hefur þetta meiri áhrif heldur en þegar maður var ungur.“ Hefði þér þá ekki liðið eins fyrir 10 árum? „Nei, það held ég ekki, ekki eins. Ég var mikill glanni, þegar ég fékk bílprófið og lenti sjálf í bílslysum. Fékk að kynnast þessu öllu, svo með tímanum þegar maður eldist lærir maður af þessu, ég var bara heppin. Þegar maður fær samviskuna og þroskann breytist hugsunarhátturinn. Einnig eftir að maður eignast börn.“ Þú getur alvega samsamað þig þessu fólki. „Já, ég finn mjög mikið fyrir því núna. Ég passa mig að keyra mjög hægt, sérstaklega þegar ég er með börn í bílnum. Eftir því sem maður eldist spáir maður meira í þetta.“ Hefur þú verið í bíl þar sem er bílstjórinn hefur verið undir áhrifum áfengis? „Ég var einu sinni tekin fyrir ölvunarakstur þegar ég var 17 ára og missti þá prófið.“ En hefur þú setið í bíl þar sem hraðakstur fer fram? „Ég var mikið að því þegar ég var yngri en geri það ekki í dag, mér fannst það voðalega gaman þá. Svo byrjaði ég að klessa á og það stoppaði mig svolítið.“ Heldur þú að þessi verkefni og myndbönd eigi eftir að sitja í þér lengi? „Já, ég man til dæmis þegar það komu fréttir um Sesar Þór, þá sat það svolítið lengi í mér. Eins með stelpurnar í Vestmannaeyjum. En ég veit ekki þegar maður er krakki, þá er skynsemin ekki til staðar. Það er svo gaman að prófa og taka áhættu.“ Heldur þú að þessi kennslustund hafi áhrif á aðra nemendur? „Já, ég held það, fólk hugsar sig kannski tvisvar um. Það er samt erfitt að segja, því á þessum aldri, þegar allt snýst um augnablikið, gerir maður ýmislegt undir þrýstingi. En ef maður er einn í bíl þá eru ekki teknar sömu ákvarðanir eins og undir þrýstingi frá vinum, eða ég persónulega held það. Það var erfiðara að segja nei þegar maður var yngri.“ Þekkir þú einhvern sem hefur lent í alvarlegu slysi? „Já, ég þekki einn sem lenti í alvarlegu slysi. Það var ekkert ólöglegt, hann var að koma út úr hliðargötu og það keyrði jeppi á hann. Hann var á spítala í marga mánuði, mjaðmagrindarbrotnaði þegar hann kastaðist út úr bílnum.“ Sylvia Vias, nemi í Tækniskólanum. Morgunblaðið/Ernir

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.