SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 40
40 11. apríl 2010 Á hugafólki um nepalska mat- argerðarlist býðst nú einstakt tækifæri til að skerpa á þekk- ingu sinni og hæfni en nep- alski matreiðslumeistarinn Deepak Panday býður fólki upp á námskeið í eld- húsinu á veitingastað sínum Kitchen – Eldhús á Laugavegi – því að kostn- aðarlausu. „Fólk þarf bara að hringja í mig eða senda mér tölvupóst og við finnum tíma. Þægilegast er að áhugsamir komi í hóp- um, til dæmis sex eða sjö saman en ég er líka til viðtals um að leiðbeina smærri hópum. Get þess vegna tekið á móti ein- um og einum í einu,“ segir Panday sem þegar hefur leiðbeint nokkrum Íslend- ingum í eldhúsi sínu. Spurður hvers vegna hann geri þetta án endurgjalds svarar Panday því til að hann líti á það sem skyldu sína að miðla af þekkingu sinni og reynslu. Og hún er ekki af skornum skammti, hann starfaði um 26 ára skeið sem matreiðslumeistari í Lundúnum eftir að hafa flutt þangað frá Nepal. Panday þekkir indverska mat- argerðarhefð líka eins og lófann á sér. „Maður veit aldrei hvenær tími manns er á þrotum. Ég gæti hrokkið upp af í dag eða á morgun. Þess vegna finnst mér mikilvægt að miðla þekkingu minni til annarra sem hafa áhuga á nepalskri eða indverskri matargerð. Af viðtökum Ís- lendinga að dæma virðist sá áhugi um- talsverður hér á landi,“ segir hann. Sjálfur man Panday vel eftir lærimeist- urunum sínum og nafngreinir tvo mat- reiðslumeistara með svo löng nöfn að úti- lokað er að hafa þau eftir hér. „Maður gleymir ekki velunnurunum sínum.“ Panday hefur ekki áhyggjur af því að kennslan verði til þess að fólk hætti að sækja veitingastaðinn hans, töfri bara fram nepalskar krásir heima. „Þvert á móti. Fólkið sem lærir hjá mér kemur til með að bjóða vinum og vandamönnum í mat og vonandi vekja áhuga þeirra á nep- ölskum mat. Til að svala forvitni sinni kemur þetta fólk síðan til okkar,“ segir hann brosandi. Annars er þetta aukaatriði, að áliti Pandays. „Vitaskuld þarf maður að hafa í sig og á en persónulega fæ ég miklu meira út úr því að láta gott af mér leiða en að græða peninga,“ segir hann. Þegar Panday er spurður hvort hann líti á sig sem einskonar matarsendiherra þjóðar sinar baðar hann út öllum öngum. „Nei, nei, nei, ég myndi aldrei taka mig svo hátíðlega.“ Hráefnið engin fyrirstaða Panday segir hráefnið enga fyrirstöðu vilji Íslendingar matreiða að hætti Nepala. Grunnurinn í vinsælustu réttunum þar eystra er ekki ólíkur því sem við eigum að venjast, fiskur og aðrir sjávarréttir, kjúk- lingur og lamb. Það er helst að kryddjurt- irnar séu framandi. „Lendi fólk í vand- ræðum með þær kemur það bara til mín. Hér er nóg til, ég panta kryddjurtir reglu- lega beint frá Nepal. Ég bý til dæmis til allt masala sjálfur. Það er ekki svo flókið.“ Í Kitchen – Eldhúsi er Nemari- matargerð í öndvegi. Maturinn er mjög bragðmikill og talinn heilsusamlegastur af nepölskum mat, hann þykir leika við bragðlaukana, þar sem notuð er sinneps- olía og fjöldi krydda, svo sem cumin, se- samfræ, turmeric, hvítlaukur, engifer, fennikka, lárviðarlauf, negull, kanill, pipar, chili, sinnepsfræ og síðan en ekki síst er Lapsi (súraldin) mikið notað ásamt öðrum sérstökum jurtum og kryddi. Kitchen – Eldhús hélt upp á eins árs af- mæli sitt í lok síðasta mánaðar og Panday er á heildina litið ánægður með viðtök- urnar. „Þetta hefur gengið upp og niður en við vorum undir það búnir. Þetta er eini nepalski veitingastaðurinn á Íslandi og það tekur tíma að ryðja brautina. Ne- pölsk matargerðarhefð er ákaflega frá- brugðin þeirri íslensku. Síðasta sumar og haust voru býsna góð en það var rólegt hjá okkur kringum jólin. Kannski er það bara eðlilegt á Íslandi? Traffíkin er hægt og rólega að aukast núna og við erum bjartsýnir á sumarið.“ Enda þótt Kitchen – Eldhús njóti vin- sælda meðal erlendra ferðamanna segir Panday meirihluta viðskiptavina sinna vera Íslendinga. „Ætli Íslendingar séu ekki um 60% matargesta okkar. Við stefnum að því að auka það hlutfall.“ Þeir Eldhúsmenn eru duglegir að kanna viðhorf gesta sinna til gæða matar og þjónustu á staðnum og viðbrögðin hafa verið á einn veg: „Mjög gott,“ stendur á miklum meirihluta seðlanna. „Ég held ég megi fullyrða að 98% gesta hafi farið héð- an ánægð. Einu athugasemdirnar sem við höfum fengið lúta að sjónvarpinu á neðri hæðinni, einhverjar konur kvörtuðu undan því að mennirnir þeirra hefðu horft fullmikið á það,“ segir Panday og hlær dátt. Hann ætlar sjónvarpinu raunar nýtt hlutverk á næstunni. Hyggst láta taka Blandaður réttur að hætti hússins, kjúklingur, lamb, stór rækja, bjúga og ferskt grænmeti. Sláðu aldrei af gæðunum! Nepalski veitingastaðurinn Kitchen – Eldhús fagnar eins árs afmæli sínu um þessar mundir. Matreiðslumeistarinn Deepak Panday vill ekki aðeins elda fyrir Íslendinga, heldur jafnframt kenna þeim til verka. Án endurgjalds. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Matur Forréttur sem samanstendur af djúpsteiktu og fersku grænmeti. Með er höfð tómatsósa. Steikt ýsa með hrísgrjónum, fersku grænmeti og sterkri tómatsósu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.