SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Side 42
42 11. apríl 2010
E
kki er við öðru að búast en að
velgengni Avatar eigi eftir að
breyta ímynd stórmyndanna
næsta áratuginn. Mynd sem af-
rekar það að bæta gamla heimsmetið
hvað aðsókn snertir úr 1,8 milljörðum
dala í 2,8, eða yfir 50%, er álitleg fyr-
irmynd. Nýtt viðmið sem öll kvik-
myndaverin í Hollywood vonast til að
geta jafnað og helst bætt. Við skulum því
ekki láta okkur bregða þótt þrívídd-
arstórmyndir verði talsvert áberandi
næsta áratuginn, allavega þangað til ný
tækni leysir hana af hólmi.
Fjölmörg slík stórvirki eru í vinnslu
eða á prjónunum og núna um helgina
verður frumsýnd sú nýjasta, The Clash of
the Titans, endurgerð ævintýramyndar
sem gerist á tímum Forn-Grikkja. Slíkar
fantasíur aftan úr fortíð og framtíð virð-
ast ákjósanlegt efni fyrir hið nýja, bylt-
ingarkennda form.
Það kemur ekki á óvart að Fox er að
hefja endurgerð á einni frumlegustu vís-
indafantasíu sögunnar, The Fantastic Vo-
yage, sem gamli stórmyndaleikstjórinn
Richard Fleischer gerði 1981. Afar
óvenjuleg, vísindaskáldsöguleg fantasía
sem fjallar um hóp vísindamanna sem
eru smækkaðir niður í örverur og spraut-
að inn í blóðrás deyjandi vísindamanns.
Tilgangur aðgerðarinnar er að gera loka-
tilraun til þess að bjarga lífi mannsins.
Myndefnið hefur heillað fjölmarga
stórmyndaleikstjóra á undanförnum ár-
um (m.a. Roland Emmerich), og nú
fannst framleiðendunum loksins komin
nógu byltingarkennd tækni til að hugsa
sér til hreyfings. Cameron hugðist setjast
í leikstjórastólinn en af því verður ekki,
Avatar II gengur fyrir. Það hefur verið
rætt við nokkra úrvalsleikastjóra og
nafnið sem er efst á óskalistanum kemur
á óvart. Það er enginn annar en Bretinn
snjalli, Paul Greengrass. Hann er fram-
arlega í röðum leikstjóra, en hefur fengist
að mestu við sjónvarpsmyndir og til-
tölulega „einfaldar“ myndir lengst af, en
hefur verið að færa sig upp á skaftið síð-
ustu árin. Fyrsta myndin sem færði hon-
um heimsfrægð er The Bourne Supre-
macy (́04), sem var aðeins fimmta langa
myndin hans, en síðan hefur hann ein-
göngu fengist við stórmyndaformið og
farnast það vel. Næsta mynd Greengrass
var hin rómaða, United 93 (́06), sem seg-
ir sögu hryðjuverkamannanna sem ætl-
uðu að fljúga á Hvíta húsið örlagadaginn
11. september, en því var afstýrt af far-
þegum og áhöfn sem öll lét lífið ásamt ar-
abísku illvirkjunum er vélin brotlenti í
Pennsylvaníu.
Þá var röðin komin að hinni hröðu og
æsispennandi The Bourne Ultimatum
(́07), og nú síðast lauk hann við The
Green Zone, gæðaádeilu á Íraksstríðið, en
myndin er enn í sýningu hérlendis.
Í Fantastic Voyage mun Greengrass
notast við sömu þrívíddartækni og
Cameron hannaði fyrir Avatar, en sá síð-
arnefndi er einn framleiðenda mynd-
arinnar.
Það verða augljóslega engir und-
urfagrir tökustaðir í Fantastic Voyage, en
engu að síður framandi. Það er marg-
sannað að mannskepnan þekkir ekki
mikið til síns „innri manns“; beinabygg-
ingar, líffæra eða hvaða hlutverki þau
þjóna til að halda okkur gangandi. Því
ætti þetta ferðalag um bris, milta, goll-
urhús og guð má vita hvað að geta orðið
ekki síður forvitnilegt en ferðalag Came-
rons í útgeimi.
Greengrass er ekki byrjaður að ráða
leikara sem fara í „geimskipi“ inn fyrir
skráp vísindamannsins í nýju myndinni,
en á sínum tíma voru það Raquel Welch
og Donald Pleasence sem höfðu þar
mannaforráð.
Paul Greengrass og Matt Damon kynna Græna svæðið (e. The Green Zone).
Reuters
Innyflin og líffærastarf-
semi manneskjunnar
Paul Greengrass, leik-
stjóri „Bourne“-
myndanna, í viðræðum
um endurgerð Fantas-
tic Voyage.
Sæbjörn Valdimarsson
Ekki er meiningin að rekja í þessum dálkum ódauðleg at-
riði úr perlum kvikmyndasögunnar, líkt og sturtumorð-
ið í Psycho; barnavagninn á Odessa-tröppunum í The
Battleship Potemkin; loftárásina á Cary Grant í North By
Northwest. Augnablik af slíkri stærðargráðu þekkja vel-
flestir bíóáhugamenn, hér verður vettvangur fyrir
óvænta glaðninga sem gerðu góða mynd betri og minn-
isstæðari sakir framúrskarandi uppbyggðra myndskeiða.
Sem sagt, konfektmolarnir í flottustu umbúðunum verða
að mestu látnir liggja ósnertir, en rifjaður upp gómsætur
keimurinn af hinum sem komu svo skemmtilega á óvart.
Af nógu er að taka og ábendingar vel þegnar því flest eig-
um við okkar uppáhaldssenur úr ólíklegustu myndum.
Nú verða rifjaðar upp nokkrar, sín úr hverri áttinni.
28 Days Later (2002)
Danny Boyle (Slumdog Millionaire) er í hópi fjölhæfustu
og eftirtektarverðustu leikstjóra samtímans. Myndir
hans fjalla um óskyldustu efni, ein sú besta er tryllirinn
28 Days Later. Hún er mikið til samsett úr dæmalaust
góðum atriðum en upphafið er líklega minnisstæðast.
Sendill (Cilian Murphy) vaknar úr dái inni á sjúkrahúsi
og heldur út á götu. Það sem við blasir er ægileg sjón;
gjörsamlega líflaus Lundúnaborg, þakin illa förnum
hræjum manna og dýra og hreyfingarlaus ökutæki eins
og hráviði um allt. Bráðdrepandi veirusjúkdómur hefur
farið eins og eldur í sinu um landið og áhorfandinn
stendur frammi fyrir heimsendi.
Því má bæta við að um sólsetur fara afskræmdar, glor-
soltnar náætur, fórnarlömb veirunnar á stjá í matarleit –
og verða ekki sakaðar um matvendni. Svipaðar hug-
myndir hafa skotið upp kollinum áður en ekki jafn listi-
lega útfærðar og ógnvekjandi og hjá Boyle.
Duel (1971)
Steven Spielberg sýndi hvers hann var megnugur,
reynslulaus og með lítið fé á milli handanna í sínu fyrsta
leikstjóraverkefni, sjónvarpsmyndinni The Duel, sem
þótti það mögnuð að henni var dreift í kvikmyndahús
utan Norður-Ameríku (þ.á m. Laugarásbíó). Dennis
Weaver leikur sölumann á kraftlausri Plymouth-pútu,
sem verður fyrir barðinu á geggjuðum bílstjóra á risa-
vöxnum flutningabíl á fáförnum, varasömum vegi.
Ekillinn reynir allt til að drepa sölumanninn með því að
bola honum út af veginum en hápunkturinn gerist inni á
áningarstað vörubílstjóra sem Weaver fer inn á því hann
veit að einn gestanna er kvalari hans – en þekkir hann
ekki í sjón.
Being There (1979)
Í klassískri kvikmyndagerð háðsádeilu Kosinskis er því
lýst hvernig Chance (Peter Sellers), vangefinn garð-
yrkjumaður, fetar sig með misskilning einan að vopni
upp metorðastigann. Eftirlætis tómstundaiðja hans er að
„horfa á“ sjónvarpið. Þegar eiginkona (Shirley McLaine)
velgjörðarmanns hans reynir allt hvað hún getur til að
koma Chance til við sig eru einu viðbrögð hans: „Ég vil
horfa á.“ („I like to watch.“)
saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndaklassík
Eitt lítið andartak …
Peter Sellers var óborganlegur í Being There.
Sunnudagur 11.04. (RÚV) kl. 19:35:
Frábær, íslensk heimildarmynd segir
sögu Margrétar sem hefur reynt allt til að
koma Kela, 11 ára syni sínum til hjálpar.
Hann er með hæsta stig einhverfu og flest
sund lokuð hvað bata snertir. Annað kem-
ur í ljós er þau halda til Bandaríkjanna þar
sem hún ráðfærir sig við vísindamenn á
sviði einhverfu og kynnir sér ýmiss konar
meðferð við henni. Jafnframt hittir hún for-
eldra einhverfra barna sem eiga sama bar-
áttumál og hún og að lokum eygir hún von
um að mögulegt sé að brjóta niður múrinn
milli barnanna og umheimsins. Hér sýnir
Friðrik Þór að hann hefur engu gleymt sem
höfundur bestu heimildarmynda (Eldsmið-
urinn, Rokk í Reykjavík, Kúreki norðurs-
ins), hver veit nema hún eigi eftir að verða
hans frægasta mynd. ****
For Your Consideration
– Vinsamlegast athugið
Sunnudagur 11.04. (RÚV) kl. 22:30:
Þótt hér sé ekki um bestu mynd Guests
að ræða, er Vinsamlegast athugið engu
að síður bráðfyndin og uppfull af litríkum
persónum og vandræðalegum augnablik-
um. Leikstjóri: Christopher Guest. Aðal-
leikarar: Christopher Guest, Eugene Levy,
Parker Posey, Catherine O’Hara, Fred Will-
ard og Jennifer Coolidge.
****
Myndir vikunnar í sjónvarpi
Sólskinsdrengurinn
Kvikmyndir