SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 53
11. apríl 2010 53
Bækur Péturs Gunnarssonar ÞÞ í forheimskunarlandi og ÞÞ í fátækt-
arlandi, sem segja frá ævi Þórbergs Þórðarsonar, hafa vakið athygli
og umtal og skemmst að minnast þess að Pétur fékk viðurkenningu
Hagþenkis árið 2009 fyrir bækurnar. Nú stendur sýning á frum-
drögum Péturs að bókunum í Þjóðarbókhlöðunni, en á henni má sjá
hvernig Pétur hagaði vinnu sinni við ritun þeirra. Frumdrögin hand-
skrifar hann með blýanti í fjölmargar skissubækur og á sýningunni
eru einnig nótubækur Péturs frá ritunarferlinu auk allra blýantanna
sem hann notaði.
Pétur leitaðist við að endurskapa andrúmsloft tímans frá aðdrag-
anda heimsstyrjaldarinnar síðari til endadægurs Þórbergs þjóðhátíð-
arárið 1974 og segir meðal annars frá því hvað var að gerast í bók-
menntum, stjórnmálum og einkalífi Þórbergs. Hann sótti upplýs-
ingar í dagbækur Þórbergs og Þóru Vigfúsdóttur, eiginkonu Kristins
E. Andréssonar, og eru möppur með köflunum sem hann sló inn í
tölvu sína einnig á sýningunni ásamt spólum með viðtölum sem
hann tók við dóttur Þórbergs og fólk sem þekkti hann.
Sýningin er við upplýsingaborðið á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðunni,
öllum opin á afgreiðslutíma safnsins og aðgangur er ókeypis.
Nótubækur og blýantar Péturs Gunnarssonar frá ritunarferli bóka hans
um Þórberg.
ÞÞ í forheimskunarlandi og ÞÞ í fátæktarlandi
Sýning á frumdrögum Eymundsson1. 501 Must-See Destinations
- Bounty Books
2. 8th Confession - James Pat-
terson
3. The Complaints - Ian Rankin
4. The Human Body - Dorling
Kindersley
5. Breaking Dawn - Stephenie
Meyer
6. Readers Digest Atlas of the
World - Readers Digest
7. Dead to the World - Char-
laine Harris
8. The Return Journey - Maeve
Binchy
9. Twenties Girl - Sophie Kin-
sella
10. Gone Tomorrow - Lee Childs
New York Times
1. Caught - Harlan Coben
2. The Help - Kathryn Stockett
3. House Rules - Jodi Picoult
4. The Silent Sea - Clive Cuss-
ler og Jack Du Brul
5. Bite Me - Christopher Moore
6. Abraham Lincoln: Vampire
Hunter - Seth Grahame-
Smith
7. Matterhorn - Karl Marlantes
8. Think Twice - Lisa Scottoline
9. Shattered - Karen Robards
10. Angelology - Danielle Trus-
soni
Waterstones
1. The Girl with the Dragon
Tattoo - Stieg Larsson
2. Eclipse - Stephenie Meyer
3. Twilight - Stephenie Meyer
4. The Girl Who Kicked the Hor-
nets’ Nest - Stieg Larsson
5. Breaking Dawn - Stephenie
Meyer
6. New Moon - Stephenie
Meyer
7. The Girl Who Played with
Fire - Stieg Larsson
8. The Lost Symbol - Dan
Brown
9. Driven to Distraction - Je-
remy Clarkson
10. Delia’s Happy Christmas -
Delia Smith
Bóksölulisti
Eitt af því sniðugasta – en um leið eitt
af því erfiðasta – sem ég gerði í
menntaskóla var að taka íslenskuáfanga
sem kallaðist yndislestur. Ég gerði
þetta í von um að sleppa nokkuð auð-
veldlega og í leiðinni lesa nokkrar fínar
bækur.
Fram að því hafði ég ekki lesið marg-
ar bækur og þá síst mér til yndisauka.
Mér gat þó ekki skjátlast meira og var
þetta einn erfiðasti áfanginn sem ég
tók. Kostaði hann margar andvökunæt-
ur en skaðabæturnar voru ríflegar, fullt
af góðum bókum lá í valnum þegar
honum var lokið.
Bókin sem liggur á náttborðinu mínu
núna er myndasöguútgáfa af Meist-
aranum og Margarítu eftir Mikhaíl
Búlgakov. Myndskreytt af Klimowski
og Schejbal. Ég er þó ekki svo húðlöt að
ég geti ekki lesið bækur án þess að þær
séu í myndasöguformi, því ég las Meist-
arann og Margarítu í þessum yndis-
lestursáfanga og varð heltekin af þessari
bók og sögunni í kringum útgáfu hennar
en hún kom út heilum 26 árum eftir
dauða Búlgakovs.
Ég leitaði vel og lengi að henni í forn-
bókabúð niðri í bæ; var áfjáð í að bæta
henni í einmanalegu bókahilluna mína.
Ég varð síðan svo heppin að fá tvær út-
gáfur af henni í gjöf. Sagan er stórkost-
leg, ég er nýbyrjuð á bókinni en hef þó
svindlað nokkrum sinnum og gluggað í
galdrasýningu Wolands. Kölski, illur feit-
ur köttur, ást og Pontíus Pílatus … und-
arlega góð uppskrift að bók sem er án efa
mín uppáhaldsbók.
Lesarinn Nanna Bryndís
Hilmarsdóttir tónlistarkona
Kölski, illur feitur
köttur, ást og fleira
Svo teiknar Andrzej Klimowski skolla eins og hann
birtist í meistaraverki Búlgakovs.
Camilla Läckberg hefur notið mikillar
hylli á undanförnum árum og bækur
hennar selst í milljónavís víða um Evr-
ópu. Þær hafa líka gengið vel hér á landi
og það að verðleikum; hún kann formúl-
una upp á tíu, býr til líf- og forvitnilegar
persónur og fléttan er jafnan snúin. Í nýj-
ustu bók sinni, Hafmeyjunni, finnst mér
henni þó alls ekki hafa tekist nógu vel
upp, eins og nú mun greina frá.
Hafmeyjan hefst þar sem vel liðinn og
vinsæll maður, ástríkur eiginmaður og
skilningsríkur faðir er myrtur á hrotta-
legan hátt og líkið síðan falið. Út alla
bókina vitum við ekki hvers vegna eða
hver, sem er óneitanlega kúnst sem að-
eins færir rithöfundar ráða við. Fleiri
ódæðisverk bætast við, en svo virðist sem
allt tengist nýútkominni bók, Hafmeyj-
unni, og höfundi hennar. Hljómar svo
sem vel, en málið það að lausn flækj-
unnar er óttalega klén, svo klén reyndar
að hún er eiginlega billeg og það er ófyr-
irgefanlegt í glæpasagnaritun.
Einn er og ljóður á ráði hennar og það
er það hve henni er gjarnt að troða inn í
bækur sínar aukaatriðum og auka-
persónum. Það kemur ekki alltaf að sök,
oft finnst manni indælt að stíga inn í bók
eftir Läckberg, hlusta á masið í mann-
skapnum og leggjast aðeins á glugga hjá
venjulegu fólki ekki síður en óvenjulegu.
Ekki nenni ég þó að lesa meira um lög-
regluforingjann Mellberg sem er hallær-
isleg klisja (góðs viti að hann virðist á leið
út í bókarlok). Fleiri misheppnaðar per-
sónur eru í bókinni, til að mynda bóka-
útgefandinn Gaby og svo er mér spurn: af
hverju eyðir Läckberg svo miklu bleki í
aukapersónur sem engu skipta (hálf
fimmta síða fer þannig í mann sem finnur
lík og skiptir engu máli fyrir framvind-
una) og færi ekki betur á því að tóna að-
eins niður tilfinningaklámið? Þýðing á
bókinni er fín.
Aukapersónur í aðalhlutverkum
Bækur
Hafmeyjan
bbnnn
Eftir Camillu Läckberg. Uppheimar gefa út, 497
bls. kilja. Sigurður Þór Salvarsson þýddi.
Árni MatthíassonCamilla Läckberg hefur notið mikillar hylli á undanförnum árum.