SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Page 55
11. apríl 2010 55
Laugardagurinn fer að stórum hluta í vinnu. Það hefur verið
mikið um að vera hjá Kraumi tónlistarsjóði undanfarið og
dagurinn verður nýttur til að hreinsa aðeins upp eftir vik-
una og senda nokkur nauðsynleg erindi með tölvupósti.
Klukkan 16 ætla ég síðan að sjá Stafrænan Hákon og hljóm-
sveit spila í Havarí, held hann hafi verið að gefa út nýja
plötu. Stefnan síðan tekin á tónleika Hjaltalín á Rósenberg
og Mínus á Sódómu, verður gaman að heyra nýtt efni frá
köppunum.
Á sunnudaginn verður síðan aðalfundur Félagsins Ísland-
Palestína í Norræna húsinu. Aðalfundurinn er fastur og oft-
ast gleðilegur þáttur í starfsemi félagsins, en þar sem ég
gegni stöðu gjaldkera verð ég sveittur að klára ársreikninga
félagsins fram á síðustu stundu.
Eftir fundinn verður rennt í að heim-
sækja ömmur og afa eins og venjulega
á sunnudögum. Á þessum tímapunkti
helgarinnar er maður orðinn svo latur
að ég ætla að reyna plata mömmu
til að bjóða litlu fjölskyldunni í
mat. Eiginkonan er líka búin
að taka fyrir fleiri matarboð á
Skúlagötunni í bili. Dexter-
þættirnir eru dottnir úr leik á
sunnudagskvöldum þannig að
þetta er allt opið. Maður reynir
kannski að fá einhverja vini yf-
ir í spil þegar líður á kvöldið.
Það er leyfilegt.
Helgin mín Eldar Ástþórsson, fram-
kvæmdastjóri og kynningarfulltrúi
Stafrænn Hákon,
Hjaltalín og Mínus
Deilt er um það vestur í Toronto
í Kanada hvort verjandi sé að
bókin The Shepherd’s Grand-
daughter eftir Anne Laurel Car-
ter sé í hillum skólabókasafna,
en ýmsir höfðu beitt sér fyrir því
að hún yrði bönnuð.
Bókin segir frá stúlkunni Am-
ani sem langar til að taka við af
fjárhirðinum afa sínum. Á end-
anum fær hún starfann og
veddur starfinu betur en nokk-
urn hefði grunað, en landnáms-
byggð Ísraelsmanna ógnar af-
komu fjölskyldunnar því
landnemarnir vilja byggja á
beitilandi hennar og hafa sitt
fram; beiti-
lendur verða
að húsa-
grunnum og
eitrað er fyrir
hjörðinni, en
þegar frændi
Amai og faðir
eru handteknir
fyrir mótþróa
koma rabbíi og
kristnir friðsemjendur þeim til
hjálpar.
Þessi söguþráður fór öfugt í
einhverja foreldra sem sneru sér
til samtaka sem berjast fyrir því
að málstaður Ísraelsmanna sé
ekki affluttur og þau sneru sér
síðan til skólayfirvalda í To-
ronto. Í umfjöllun skóla-
yfirvalda kemur fram að þó
bókin sýni Palestínumenn í já-
kvæðu ljósi hvetji hún til þess að
vandamál séu leyst án ofbeldis
og í ljósi þessa ákveðið að bókin
fengi að sitja áfram í hillum.
Anne Laurel Carter hefur gef-
ið út fjölda bóka, sjö bækur fyrir
börn, níu fyrir ungmenni og
eina fyrir fullorðna. Hún er
margverðlaunuð og nefna má að
bókin umdelda hefur hlotið
fimm bókmenntaverðlaun sem
besta ungmennabók ársins.
Eigi skal banna
Kápa bókarinnar
umdeildu.
Sigurbjörn Þorkelsson
hefur sent frá sér ljóða-
safnið Eilíft líf, en það
hefur að geyma 212 valin
ljóð úr fimm fyrri ljóða-
bókum Sigurbjörns sem
eru Ástráður, sem kom
út 2008, Svalt frá 2007,
Sítenging, 2006, Lífið
heldur áfram, 2002 og
Aðeins eitt líf sem út kom áriið 2000.
Ljóðin í Eilífu lífi fjalla um missi, sorg og
söknuð, viðbrögð við áfalli, úrvinnslu til-
finninga og trú, von og kærleika, sér-
staklega valin með þau í huga sem ein-
hvern tíma hafa misst og vita því af eigin
raun hvað það er að syrgja og sakna. „Þau
eru þannig tileinkuð þeim sem orðið hafa
fyrir hvers kyns vonbrigðum eða upplifað
áföll og gengið í gegnum erfiða tíma. Þá
ekki síst þeim sem daglega ganga til sinna
hversdaglegu verka og heyja þannig sína
stöðugu lífsbaráttu. Öllum þeim sem
elska lífið, þrá að höndla það, fá að halda í
það og njóta þess.“
Sigurbjörn gefur bókina út sjálfur.
Heimir Óskarsson sá um uppsetningu og
útlit eins og á öllum fyrri sautján bókum
Sigurbjörns. Bókin Eilíft líf er 280 blað-
síður og er prentuð hjá Litrófi ehf og
bundin inn hjá Bókavirkinu ehf.
Ljóðasafnið
Eilíft líf
Kápa Eilífs lífs.
GÓÐA nótt, yndið mitt eftir Do-
rothy Koomson, höfund Dóttir
hennar, dóttir mín, segir frá
æskuvinunum Novu og Mal sem
ólust upp saman og voru óað-
skiljanleg. Nú búa þau hins veg-
ar hvort í sinni borginni og hafa
ekki talast við í átta ár eftir að
Nova tók að sér að vera stað-
göngumóðir fyrir Mal og konu
hans. Eftir að barnið, Leo litli,
fellur í djúpan dásvefn sem eng-
inn veit hvort hann mun vakna
úr kemur hins vegar glufa í
þagnarhjúpinn sem umlykur
fullorðna fólkið.
Viðfangsefnið Koonsom,
staðgöngumæðrun, býður upp á
fjölmarga nálgunarmöguleika,
tilfinningaflækjur og vandamál
– ófyrirséð sem augljósari. Að
ganga með barn fyrir náinn vin
kallar á fjölda spurninga, ekki
hvað síst er mál æxlast með
ófyrirséðum hætti og vinurinn
virðist eftir áralöng kynni ekki
hafa verið traustsins verður.
Koonsom gerir sér vissulega
mat úr viðfangsefninu, þó að
ýmsa þætti hefði ófyrirsynju
mátt skoða betur. Um leið hefði
efalítið náðst fram heilsteyptari
persónusköpun, en ekki er laust
við að sögupersónurnar vanti
meiri fyllingu.
Góða nótt, yndið mitt eignast
engu að síður efalítið sinn aðdá-
endahóp. Bókin, sem teljast
verður rökrétt framhald skvísu-
skruddnanna svonefndu [e.
chick lit], er auðlesin og höf-
undur leikur á tilfinningaskal-
ann af mikilli fimi. Húmorinn
sem leikið hefur stórt hlutverk í
skvísuskruddunum er hér hins
vegar víðs fjarri og tár líklegri til
að læðast niður kinnar. Ekki
hvað síst hjá ungum mæðrum
sem telja má öruggt að séu stór
hópur lesenda.
Sprungan sem myndast í hina
fullkomnu glansmynd sem
Koonsom dregur upp í fyrstu
ristir hins vegar ekki nógu
djúpt. Vandamálin eru vissulega
til staðar, en reiðin, sálarflækj-
urnar og sú ormagryfja óupp-
gerðra tilfinninga sem þar hefði
átt að opnast er of snyrtilega af-
greidd. Grunnurinn sem undir
er virkar fyrir vikið engu minna
skínandi en yfirborðið.
Snyrtilegar tilfinn-
ingaflækjur
BÆKUR
Góða nótt, yndið mitt
bbnnn
Eftir Dorothy Koomson.
Forlagið gefur út 485 bls. kilja.
Dorothy Koomson
Anna Sigríður Einarsdóttir
LISTASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Ævispor
Útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur
Endurfundir
Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna
Aðgangur ókeypis fyrir börn
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
www.thjodminjasafn.is – s. 530 2200
Söfnin í landinu
13. mars - 2. maí 2010
Í barnastærðum
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
í samstarfi við Listasafn Íslands
ÍSLENSK MYNDLIST
hundrað ár í hnotskurn
OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
ANGURVÆRÐ Í MINNI
11.3.-2.5.
VINNUSTAÐIR ALVÖRU KARLA
11.3.-11.4.
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 11. apríl kl. 14
í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra.
SAFNBÚÐ
Fermingar- og útskriftartilboð á listaverkabókum.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR • www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009.
Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
„Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og
Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta.
Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna.
Myndgerð: Páll Steingrímsson.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
Ljósmyndasýningin Spegilsýnir:
Bára Kristinsdóttir, Einar Falur,
Jónatan Grétarsson,
Katrín Elvarsdóttir,
Spessi, Þórdís Erla Ágústdóttir.
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com