SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Síða 2

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Síða 2
2 18. júlí 2010 20 Í stað trjánna og vindsins Er það óðs manns æði að sjá hjálparlaust um uppeldi barnanna sinna? Melkorka Mjöll Kristinsdóttir er til svara. 28 Öfugum megin við ímyndunaraflið Ragnar Axelsson leggur okkur til yndisreit. 32 Við hvað er Klambratún kennt? Miklatún í Reykjavík heitir nú aftur Klambratún á hundrað ára fæðing- arafmæli bóndans á Klömbrum. 34 Landkynning í 55 ár Rafn Hafnfjörð ljósmyndari hóf að kynna Ísland erlendis upp úr miðri síð- ustu öld – og er enn að. Á dögunum birtist mynd í UN Special. 38 Vestfirðir eru annað Ísland Þótt fögur fjöllin hafi reynst Vestfirðingum skeinuhætt þá hafa þau einnig varið þá sem búa í skjóli þeirra fyrir ýmsum óværum. 42 Norton, hasarhetjur og halelúja Sæbjörn Valdimarsson hermir af kvikmyndum. Lesbók 48 Samhljóðin skipta líka máli Ingibjörg Frímannsdóttir hermir af tungutaki. 50 Pólitískari myndlist Hlynur Hallsson sinnir nú myndlistarferli sínum af fullum þunga eftir að honum var steypt úr stóli formanns SÍM. 52 Einsleit staðalímynd Ferðaskáldsögur nýlenduhyggjunnar stuðluðu að einsleitum staðal- ímyndum sem festu sig í sessi innan vestræns menningarheims. 18 41 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók ljósmyndari Reuters af Leonardo DiCaprio. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. Augnablikið T íminn er eins og vatnið, sagði skáldið. Það hangir mynd í veiðihúsinu við Laxá í Laxárdal af urriða með fjóra and- arunga sér við hlið. Þeir voru teknir úr maganum á fiskinum. Þetta er ótrúleg mynd, en einn af veiðimönnunum vottar að hún á við rök að styðjast, því hann var sjálfur í hollinu. Hann segir að þetta gerist stundum þegar fiskar séu orðnir gamlir og eigi skammt eftir ólifað, enda geti fjaðr- irnar stíflað meltingarveginn. Blaðamaður veltir því hins vegar fyrir sér, fyrst urriðinn hafði gleypt fjóra andarunga, hvers vegna hann lét sér það ekki nægja, en fór að eltast við flugu. En þetta kveikir sögur í veiðikofanum. Annar veiðimaður segir frá því að hann hafi veitt urriða með skógarþresti í maganum. Það birtist raunar frétt um það í Morgunblaðinu þegar það gerðist. Það kom líka frétt um það í Mogg- anum þegar urriði var með minkahvolp í mag- anum. Enn annar rifjar upp er hann ók fram á haltrandi andarunga á veginum og konan hans hélt nærgætnislega á unganum litla niður að ánni, þar sem hann gæti þó bjargað sér á sundi. Skömmu síðar heyrði hann óp. Hann hljóp þegar niður að bakkanum og þegar hann kom þangað var konan hans í miklu uppnámi. Hún hafði látið veslings andarungann út í ána og horft á hann svamla af stað, en skyndilega kom urriði upp úr kafinu og gleypti hann – í einum bita. Ferjuflói er ekki árennilegur veiðistaður – allt þetta flæmi. Þar til urriðinn fer að stökkva. „Fast- er, Pussycat! Kill! Kill!“ urrar veiðimaður og veður út í miðja ána. Tvær rollur með þrjú lömb fylgjast með honum, rölta svo niður að árbakkanum, svolgra í sig vatnið og koma sér loks fyrir í helli uppi í klettunum. Eflaust til að fá betra útsýni yfir veiðina. „Pétur!“ er skyndilega kallað. Það dansar urriði í kringum veiðimanninn. Hann byrjar að mjaka sér varfærnislega í land með bogna stöng og spriklandi fisk á línunni. En skyndilega fellur allt í dúnalogn. Púpan er bara einkrækja og það sleppa jafnmargir fiskar og landað er. Blaðamaður fær því að lúra áfram á árbakk- anum. Það jafnast ekkert á við að liggja í mosanum, léttur úði á andlitinu, himinninn grár niður í miðjar hlíðar, ilmur af lyngi og fuglasöngur sem rennur saman við niðinn í ánni. Hér stendur tíminn í stað. Þannig er það raunar í bókstaflegri merkingu á Ljótsstöðum, þar sem flest er eins og það var dag- inn sem bóndinn féll frá. Þá var þetta eitt mynd- arlegasta býlið í dalnum. Vegfarendum og veiði- mönnum býðst að skoða sig um, jafnvel leggja sig eða grípa góða bók – til dæmis ljóðin hans Ezra Pound eða Þjóðviljann. En það er gegn því að þeir gangi frá öllu eins og það var. Það má ekki hrófla við tímanum. pebl@mbl.is Veiðimenn koma og fara í Laxá í Laxárdal. Urriði í Laxá 18. júlí Sunnudaginn 18. júlí verður mikið um að vera á Árbæjarsafni, en þá verða haldnir sama daginn hinn árlegi harmónikudagur og hinn árlegi heyanna- dagur. Dagskrá harmónikudagsins verður vegleg að vanda og margir af fremstu spilurum hljóðfærisins munu draga fram nikkuna. Við gamla Árbæinn verða amboðin tekin fram og gestum og gangandi boðið að spreyta sig. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur fram eftir degi. Harmónikur og heyannir Við mælum með … 18. júlí Í dag heldur sum- artónleikaröð Ak- ureyrarkirkju áfram og að þessu sinni verða það Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Þorsteinn Einarsson gítarleikari sem flytja gestum ljúfa tóna. Tónleikarnir hefjast kl. 17. 21. júlí Á miðvikudaginn heldur hljóm- sveitin K tríó útgáfutónleika í Nor- ræna húsinu í tilefni útkomu plöt- unnar Rekaviður. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. 24. júlí Næstkomandi laug- ardag efnir hljóm- sveitin For a Minor Reflection til út- gáfutónleika í tilefni nýrrar breiðskífu sem hefur hlotið nafnið Höldum í átt að óreiðu. Tón- leikarnir verða í Iðnó og hefjast kl. 20. Fyrirsætur í fatnaði gerðum úr endurunnum pappír bíða baksviðs við opnun skemmtigarðsins „Green Dream Park“ nærri ólympíu- leikvanginum í Peking. Markmiðið með garðinum, sem verður op- inn til 10. október, er að ýta undir náttúruvernd og sjálfbæra lifn- aðarhætti. Veröld Reuters Pæjur í pappírsklæðum

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.