SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 8
8 18. júlí 2010 Iniesta-kynslóðin Hið feikilega öfluga unglingastarf Barcelona hefur lengi verið kennt við La Masía sem er gamalt sveita- setur nærri heimavelli liðsins, Camp Nou. Setrið var byggt árið 1702 en á 6. áratug tuttugustu aldar var það notað sem vinnu- stofa fyrir arkitekta og verkamenn sem unnu að byggingu nýja vall- arins sem skyldi koma í stað þess gamla, Les Corts. Camp Nou var opnaður hinn 24. september árið 1957 og var þá La Masía lokað. Síðar var byggingin gerð upp og var opnuð aftur árið 1966, þá sem félagsheimili liðsins. Árið 1979 varð byggingin sem áður var notuð við byggingu vall- arins að byggingarstað framtíðar liðsins. Þá varð hún að dvalarstað fyrir unga leikmenn sem upprunnir voru utan borgarinnar. Síðan hefur markmiðið verið að kenna þeim knattspyrnu í anda Börsunga auk þess að bjóða upp á hefðbundna bóklega menntun. Undanfarin ár hefur aragrúi stjörnuleikmanna út- skrifast frá La Masía og nægir þar að nefna Josep Guardiola, Carles Puyol, Xavi, Andrés Iniesta, Cesc Fàbregas, Pepe Reina og Leo Messi. Uppeldisstöðin La Masía La Masía er gamalt sveitasetur nærri Nývangi. Þ ú átt eftir að binda enda á feril minn,“ hvíslaði Jo- sep Guardiola, sem þá var 29 ára, í eyra ungs Xavis Hernándezar og benti á fölleitan 16 ára strákling á sinni fyrstu æfingu með aðalliði Barcelona. „En þessi strákur á eftir að binda enda á feril okkar beggja.“ Fjarri því að binda enda á ferla þeirra átti Andrés Iniesta eftir að auðvelda þjálfaraferil Guardiolas og reynast fullkominn sálu- félagi Xavis í léttleikandi miðju Barcelona-liðsins. Það eina sem Iniesta batt enda á voru vonir Hollendinga um að vinna heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu þegar hann skoraði sig- urmark Spánverja í úrslitaleiknum, örfáum mínútum fyrir lok framlengingar. Með yfirvegaðri móttöku og hægri fótar skoti, sem Iniesta lét ríða af, „af allri sálu sinni“ að eigin sögn, tryggði þessi 26 ára gamli framsækni miðjumaður Spánverj- um sinn fyrsta heimsmeistaratitil og var í kjölfarið valinn leikmaður úrslitaleiksins. Hinn smávaxni Iniesta fæddist í bænum Fuentealbilla nærri Albacete í Castilla-La Mancha-héraði Spánar árið 1984 og var aðeins 12 ára gamall þegar hann gekk til liðs við Barcelona. Þar æfði hann og nam við hina goðsagnarkenndu uppeld- isstöð, La Masía, sem hefur framleitt ótrúlegan fjölda há- gæðaleikmanna í gegnum tíðina. Andresito eins og hann var stundum kallaður vegna smæðar sinnar var einstaklega feim- inn drengur og hélt sig út af fyrir sig, nokkuð sem sumir vildu meina að ynni gegn honum síðar á ferlinum. Hann þreytti frumraun sína í leik með aðalliðinu í meistaradeildarleik í október árið 2002 og fékk tímabilið á eftir nokkur tækifæri sem varamaður. Það var hins vegar tímabilið 2004/05 sem Iniesta stimplaði sig rækilega inn þegar Barcelona-lið Frank Rijkaards lenti í miklum meiðslavandræðum. Iniesta var í raun tólfti leikmaður liðsins sem vann deildina í fyrsta skipti eftir fimm ára titlaleysi, hann var fyrstur inn á af bekknum og fyrstur í byrjunarliðið ef einhvern vantaði af byrjunarliðsmönnum liðsins. Næstu tímabil vann hann sér inn reglulegt sæti í byrj- unarliðinu undir Rijkaard án þess þó að hann gengi að því vísu. Vegna hógværðar sinnar var hann látinn sitja á bekkn- um eða spila út úr stöðu til þess að þóknast öðrum leik- mönnum. Þannig var hann látinn sitja á bekknum í úrslita- leik Meistaradeildarinnar árið 2006 þegar Börsungar lögðu Arsenal. „Iniesta er klárlega heilsteyptasti leikmaður Spánar. Hann hefur allt,“ sagði liðsfélagi hans Xavi, „næstum allt – hann vantar stuðning fjölmiðla“. Sjálfur sagðist hann ekki trúa að hann væri hlunnfarinn vegna óframfærni sinnar en marga grunaði að þannig væri því nú samt farið. Síðustu tvö tímabil þjálfarans Rijkaards einkenndust af andavaraleysi lykilleikmanna liðsins sem endaði að lokum með brottför þjálfarans auk stjarna eins og Deco og Ronaldinho. Á þessum árum var Iniesta yfirburðamaður í liðinu og stóð upp úr fyrir silkimjúkar hreyfingar, móttökur og sendingar sem einkenna lærisveina La Masía. Það var hins vegar ekki fyrr en átrúnaðargoð Iniestas frá æsku, sjálfur Pep Guardiola, tók við stjórnun liðsins árið 2008 sem „manninum sem semur illa við sólina“, eins og mark- vörðurinn Pepe Reina kallaði hann, braust fram á sjón- arsviðið sem fullmótuð stjórstjarna. Með hann í liðinu unnu Börsungar þrennuna og Iniesta átti stjörnuleik í sigrinum á Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Fyrir leikinn hafði mönnum orðið tíðrætt um mikilvægi Leo Messi fyrir Barcelona. Sir Alex Ferguson blés á slíkt tal. „Ég er ekki heltekinn af Messi, það er Iniesta sem er hættan. Hann er frá- bær. Hann lætur liðið vinna. Það er ótrúlegt hvernig hann finnur sendingar, hreyfingarnar og getan til þess að skapa pláss. Hann er svo mikilvægur fyrir Barcelona.“ Lengi hefur Iniesta fallið í skugga stærri og söluvænlegri nafna en eftir afrek sín á nýafstöðnu heimsmeistaramóti er ekki lengur hægt að líta fram hjá Andrési Iniesta sem einum albesta leikmanni í heimi. Óvinur sólarinnar Nýr gulldrengur Spánverja Reuters Vikuspegill Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Iniesta minntist fallins félaga síns þegar hann skoraði sigurmarkið á HM. Ólíkt öðrum knattspyrnumönnum eins og Cristiano Ronaldo og Fernando Torres er Andrés Iniesta ekki þekktur fyrir að vera sérstakt kyntákn. Engu að síður getur hann státað af því að bera ábyrgð á aragrúa barna um alla Barcelona-borg. Níu mán- uðum eftir að Iniesta skoraði frægt sig- urmark í uppbótartíma gegn Chelsea í und- anúrslitaleik Meistaradeildarinnar vorið 2009 urðu merkjanlega fleiri fæðingar en venjulega í borginni. Fjölgunin var talin vera allt að 45% miðað við vikurnar í kring. Heil- brigðisstarfsmenn tengdu þessi skyndi- legu og óvenjulegu fjölgun fæðinga við þá gleði sem heltók aðdáendur Barcelona í kjölfar sigurmarks Iniestas. Það hafi virkað ástarörvandi á þá sem að því urðu vitni. Börnin sem fæddust á þessu tímabili urðu þess vegna þekkt sem „Iniesta-kynslóðin“. Andrés Iniesta með Meistara- deildarbikarinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.