SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 10
10 18. júlí 2010
Dr. Hjalti Hugason
H
ér á landi starfar evangelísk-lúthersk þjóðkirkja á
grundvelli 62. gr. stjórnarskrárinnar. Ríkið, sam-
félagið og jafnvel þjóðin eru hins vegar ekki lúthersk
í neinum hefðbundnum skilningi. Í hæsta lagi er
mögulegt að segja að þessi fyrirbæri séu veraldlega, sögulega
lúthersk. Með því er átt við að siðir, venjur, menning og sam-
félagshættir mótist að ýmsu leyti af því að hér hefur starfað lúth-
ersk kirkja frá því um miðja 16. öld. Allt fram undir aldamótin
1900 tilheyrði þjóðin í heild þessari kirkju og mikill meirihluti
hennar allt fram á þennan dag. Auðvitað hefur þessi langa saga
markað spor sem enn má greina.
Grunngildi
Að svo miklu leyti sem ríkið, yfirbygging samfélagsins, lög-
gjafar-, framkvæmda- og dómsvaldið, hefur skilgreint gildakerfi
hvílir það á hugsjónum lýðræðis, jafnréttis og almennra mann-
réttinda. Þess vegna er t.a.m. eðlilegt að ein hjúskaparlög gildi
fyrir alla óháð kynhneigð. Samfélagið, þ.e. innviðir þjóðlífsins
eftir að ríkisvaldinu sleppir, hlýtur að byggja á þessum sömu
grunngildum. Þar er t.d. átt við skólann, heilbrigðiskerfið og
aðrar sambærilegar samfélagsstofnanir.
Þjóðin, fólkið í landinu, við sjálf, byggjum hins vegar á fjöl-
breyttari og óskilgreindari gildum. Þau sem mér virðast mest
áberandi eru fullveldis-, sjálfstæðis- og þjóðernishyggja. Þrátt
fyrir hrun og félagslegar hrakfarir af sjálfra okkar völdum er
stutt í hugmyndir um „stórasta land í heimi“, óþrjótandi mögu-
leika okkar til að ná alheimsforystu á þessu sviðinu eða hinu og
drauminn um að lifa frjáls og óháð á Ultima Thule. Við gleymum
því þá að frá 1262 höfum við ekki verið óháð nema í fáein ár.
Fyrst vorum við háð Norðmönnum, síðar Dönum og loks Könum
frá herstöðvasamningi til 2006.
Aðeins þjóðkirkjan hefur lagalega skilgreindan gilda- eða
kenningagrunn og hann er evangelísk-lútherskur. Á þeim
grunni þarf hún að taka afstöðu til stefna og strauma sem gætir á
vettvangi ríkis, samfélags eða þjóðar – þar á meðal einna hjú-
skaparlaga svo enn sé tekið nýtt dæmi.
Er þjóðkirkjuskipan verjandi?
Nú á dögum er þráfaldlega spurt: Hvers vegna að halda í þjóð-
kirkjuskipan og er það hægt ef grunngildi ríkisins eru lýðræði,
jafnrétti og almenn mannréttindi? En óhjákvæmilega er það svo
að í þjóðkirkjuskipan felst mismunun.
Jákvæð mismunun er ekki talin brjóta í bága við almenn
mannréttindi svo fremi sem hún skerðir ekki frelsi annarra – í
þessu tilviki annarra trúfélaga – og að fyrir henni séu málefnaleg
rök. Fyrir þessu eru til alþjóðlegir og innlendir úrskurðir þegar
um kirkjuskipan ræðir. Þar á meðal hæstaréttardómur frá 2007.
Þjóðkirkjuskipanin brýtur því ekki gegn grunngildum hins op-
inbera meðan fyrir henni er pólitískur meirihluti. En hvað um
hin málefnalegu rök?
Oft eru tilfærð einföld söguleg rök fyrir áframhaldandi þjóð-
kirkjuskipan. Hér skal litið svo á að þau séu ekki málefnaleg.
Einu sinni þjóðkirkja merkir ekki alltaf þjóðkirkja! Framtíð
þjóðkirkjunnar ræðst öðru fremur af þeim hlutverkum sem hún
gegnir í samfélaginu og meðal þjóðarinnar.
Gild rök
Enn kýs mikill meirihluti þjóðarinnar að tilheyra þjóðkirkjunni.
Óþarfi er að ætla að það stafi af vanafestu eða vanþekkingu um
réttindi sín og skyldur. Meirihluti þessa fólks kallar eftir þjón-
ustu kirkjunnar á helstu merkisdögum ævi sinnar í gleði og
þraut. Önnur trúfélög hafa ekki gengið inn í þetta hlutverk nema
þegar fá prósent þjóðarinnar eiga í hlut. Í þessu felast gild rök
fyrir þjóðkirkjuskipan.
Þjóðkirkjan gegnir nú fáum lögboðnum samfélagshlutverkum
eins og vera ber í veraldlegu samfélagi. Óformleg samfélags-
hlutverk hennar eru aftur á móti mörg, þau standa öllum til boða
og eru endurgjaldslaus: Þjóðkirkjan rekur öflugt barna- og ung-
lingastarf með tvímælalaust forvarnargildi. Með sálgæslu býður
hún upp á stuðningsþjónustu fyrir þau sem glíma við lífsvanda af
ýmsu tagi. Með kærleiksþjónustu (díakóníu) hefur hún á síðustu
áratugum veitt þeim sem standa höllum fæti aukinn félagslegan
stuðning. Með innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar hefur
hún byggt upp vaxandi efnahagsaðstoð við þau sem búa við
skort. Í helgihaldi býður hún öllum sem þiggja vilja griðarstað og
griðarstund í stríðum straumi áreita og krafna daglegs lífs. Þetta
eru allt gild rök fyrir þjóðkirkjuskipan.
Þær aðstæður kunna að skapast á komandi misserum að þjóð-
kirkjan verði að veita enn meiri og enn betri þjónustu á öllum
þessum sviðum til að verða betri evangelísk-lúthersk þjóðkirkja,
þ.e. kirkja sem líður og stríðir með þjóð sinni.
Höfundur er prófessor við Guðfræði- og
trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Ríki, samfélag,
þjóð — og
þjóðkirkja
7:30 Vakna eftir hálftíma
baráttu við snooze-takkann,
fæ mér skyrboozt með jarð-
arberjum og banana í morg-
unmat og skola því niður með
sterku kaffi. Því næst hjóla ég
niður á Austurvöll í vinnuna.
8:00 Mæti á Café París og
geri allt tilbúið fyrir opnun,
baka smjördeigshorn, kveiki á
öllum vélum og set kaffibolla
og vatnsglös á borð fastakúnn-
anna.
9:00 Staðurinn opnaður og
heldri mennirnir fara að láta
sjá sig í kaffi, fljótlega á eftir
þeim koma nokkrir ferðamenn
í morgunmat og fast á eftir
þeim koma nýbakaðar mæður
og feður með barnavagna æst í
að fá sér kaffi latte.
11:00 Staðurinn er að
verða þéttsetinn og fleira
starfsfólk kemur eitt af öðru
á vaktina. Útiborðin eru sett
upp, það er varla búið að
setja stóla við borðin og þá
eru þau orðin fullsetin. Þá
fyrst þurfum við starfsfólkið
að setja í 5. gír.
12:00 Loksins er tími til
að senda mig í mat og ég fæ
mér Sesarsalat og stórt glas af
trönuberjasafa. Þá gefst mér
tími til að lesa yfir blöðin og
fá nýjustu fréttir á hreint.
12:30 Vaktin er meira en
hálfnuð og nú líður tíminn
hratt enda er glampandi sól á
Austurvelli og slegist um
hvert borð. Brjálað að gera og
kaffi- og bjórpantanirnar
ætla engan enda að taka. Ég
lifi daginn af með nokkrum
tvöföldum cappuccino.
15:23 Sólbakaðir rónar
fara að vera með dólgslæti á
bekkjunum á Austurvelli og
trufla fólkið sem er að reyna
að njóta veðurblíðunnar, þá
er hringt í lögregluna og hún
mætir skömmu seinna og
keyrir þá upp á lögreglustöð
og leyfir þeim að sofa úr sér.
18:00 Áður en ég veit af
er klukkan orðin sex og
vaktinni minni lokið. Ég hef
ekki orku í að hafa mig af
stað heim svo ég sest á eitt
útiborð og fæ mér einn kald-
an.
19:00 Dreif mig heim í
grill þar sem humar og hvít-
vín var á boðstólum og end-
aði þannig langa vinnuhelgi.
Svo var spjallað og spilað
fram eftir kvöldi.
kjartan@mbl.is
Dagur í lífi Garðars Þórs Jónssonar, þjóns á Café París
Morgunblaðið/Eggert
Í fimmta gír á París
Það er víðar en á Íslandi sem
sólin skín og raunar hefur sól-
skinið verið jafnvel enn ákafara
hjá grönnum okkar í Evrópu
undanfarna daga. Hitinn hefur
verið allt að því óbærilegur
víðast hvar svo fólk hefur
brugðið á ýmis ráð til að
þrauka.
Þetta sprund kældi sig niður
með aðstoð viftu og vatnsbrúsa
í hitunum í höfuðborginni Róm
á Ítalíu í gær.
Veröld
Með viftu og
vatnsbrúsa
Reuters