SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Page 13
Leonardo DiCaprio í hlutverki Cobbs í
Inception sem frumsýnd verður hér á
landi á miðvikudaginn.
„Mig dreymir að jafnaði ekki mikið og hef lítið stundað draumráðningar til þessa. Ég reyndi
samt að búa mig undir hlutverkið á þann hátt sem ég hef tileinkað mér og las mér til um
draumráðningar og sálræna merkingu draumfara,“ segir Leonardo DiCaprio.
Reuters
„Ég hef verið afar heppinn með hlutverk upp á
síðkastið og leikið mjög sterka einstaklinga. Frá
sjónarhorni leikarans er alveg frábært að fá
svona mikla útrás, þetta er hreinsandi fyrir sál-
ina. Maður getur sannarlega rekið út marga
djöfla með þessu!“ segir Leonardo DiCaprio, sem
talar hér um myndina Inception og sálhreins-
unina sem getur átt sér stað á starfi leikarans.
Auðna Hödd Jónatansdóttir
F
áar konur milli átta ára og átt-
ræðs myndu slá hendinni á
móti því að hitta hjartagullið
Leonardo DiCaprio. Kannski er
það þess vegna sem ég er stödd á Dorc-
hester-hótelinu í Lundúnaborg. Mögu-
lega er þetta svolítið spennandi, að
minnsta kosti nægilegt tilefni til að
hringja í ömmu, sem lét í ljós nokkra
öfund. Þegar DiCaprio gengur inn í
herbergið slær þögn á mannskapinn.
Hann er karlmannlegri en áður, ekki
lengur sæti smádrengurinn sem allir
muna eftir úr Titanic. Hann er hingað
kominn til að kynna nýjustu mynd
sína, Inception.
Í myndinni fer Leonardo DiCap-
rio með hlutverk Doms Cobb sem
er konungur hugmyndaþjóf-
anna. Varnarlaus fórn-
arlömb hans sofa djúpum
draumsvefni þegar hann laumast inn í
undirmeðvitund þeirra og stelur vitn-
eskju sem þau myndu aldrei láta af
hendi í vöku. Þessi sérstaki hæfileiki
hefur orðið til þess að hann er eft-
irsóttur iðnnjósnari en hefur að sama
skapi glatað því sem skiptir mestu máli
í lífinu; hann er alþjóðlegur flóttamað-
ur, eftirlýstur í Bandaríkjunum, og
kemst ekki heim til barna sinna.
Þegar voldugur viðskiptajöfur býður
Cobb tækifæri til að endurheimta líf
sitt með einu verkefni enn getur hann
vart á sér setið. Það eina sem flækir
málin er að verkefnið er frábrugðið
fyrri verkefnum hugmyndaþjófsins; í
þetta skipti á hann ekki að stela hug-
mynd heldur þarf hann að koma nýrri
hugmynd fyrir!
Draumkenndur metnaður
DiCaprio er mælskur á blaðamanna-
fundinum, en kemur sér beint að efn-
inu, ekkert óþarfa orðskrúð þar. „In-
ception er síður
en svo ein-
föld og ég
þurfti að
lesa
hand-
ritið
nokkrum
sinnum og
ræða þetta í
smáatriðum við
Chris [Nolan, leik-
stjóra myndarinnar] til að skilja
hugmyndina almennilega. Heild-
arhugmyndin sýnir verulegan
metnað; að skapa skemmtilega
Út með
djöflana!
18. júlí 2010 13