SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Side 14

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Side 14
14 18. júlí 2010 Hollywood-mynd sem tekur á tilvist- arspurningunni á vitsmunalegan hátt.“ (Miskurteisisleg hóstaköst víðsvegar um herbergið gefa til kynna að ýmsum þyki boginn hátt spenntur.) „Mig dreymir að jafnaði ekki mikið og hef lítið stundað draumráðningar til þessa,“ segir DiCaprio. „Ég reyndi samt að búa mig undir hlutverkið á þann hátt sem ég hef tileinkað mér og las mér til um draumráðningar og sálræna merkingu draumfara. Að lokum gerði ég mér þó grein fyrir því að þetta yrði allt öðruvísi ferli en ég á að venjast. Hvernig Chris ætlaði sér að láta fjögur stig undirmeðvitundarinnar í mismun- andi manneskjum orka hvert á annað til að skapa samverkandi söguþráð – ég ákvað bara að láta honum það al- gjörlega eftir …,“ segir hjartaknúsarinn og hlær smitandi hlátri. Draumastarfið „Leiklistin er án efa draumastarfið mitt,“ segir Leonardo DiCaprio. „Mér finnst ég vera gríðarlega heppinn að geta séð fyrir mér með því að leika í kvikmyndum. Það er mikil upplifun að setja sig í spor annars manns svo mán- uðum skiptir. Líf leikarans er heltekið af þeim hugðarefnum og kring- umstæðum sem hlutverkið felur í sér og tilfinningalífið hlýtur að bera keim af því. Hvernig myndi viðkomandi bregðast við hinu eða þessu?“ Leikarinn segir það hafa verið dásamlega reynslu að vinna með Mar- ion Coutillard, en hún leikur látna eig- inkonu hans í myndinni. „Hún hefur svo gríðarlegt vald á tilfinningum sín- um og tjáningu þeirra að hvert svip- brigði og augnatillit er fínstillt. Næst- um eins og leikkona úr þöglu myndunum. Svo áttum við miklar heimspekilegar samræður um hvað í ósköpunum við værum að reyna að túlka. Persóna hennar er að vissu marki endurvarp úr hugsunum minnar persónu en um leið var hún til í raun- heiminum. Þannig gátum við farið endalaust í hringi …“ DiCaprio tekur sér gúlsopa af vatni í ensku hitabylgjunni og heldur áfram. „Ég hef verið afar heppinn með hlut- verk upp á síðkastið og leikið mjög sterka einstaklinga. Frá sjónarhorni leikarans er alveg frábært að fá svona mikla útrás, þetta er hreinsandi fyrir sálina. Maður getur sannarlega rekið út marga djöfla með þessu!“ Draumar DiCaprios „Þess má þó geta, til gamans, að mig dreymdi skemmtilegan draum um dag- inn,“ segir DiCaprio. „Ég ætla ekki að fara út í smáatriði, en ég vissi að mig var að dreyma og draumurinn var á mínu valdi. „Bíddu hægur,“ hugsaði ég með mér. „Ég get skapað allt eftir eigin geðþótta, hagrætt umhverfi mínu að vild!“ Svo lék ég mér við að stjórna draumförum mínum á mjög súrreal- ískan hátt og skemmti mér konunglega við það – án þess að reka nokkuð minni til þess að ég var að ljúka við kvikmynd um þetta efni.“ Vart er hægt að ljúka þessu viðtali án þess að spyrja DiCaprio hvort hann eigi sér draum. Það stendur ekki á svari. „Ég vildi það helst að við gætum farið betur með umhverfið okkar,“ segir hann. Leonardo DiCaprio veit vel hvaða hugmynd hann myndi koma fyrir í höfðinu á aðstandendum olíu- fyrirtækisins BP ef hann byggi yfir hæfileikum þeim sem Dom Cobb ræður yfir. „Takið til eftir ykkur,“ segir hann án hiks. Svo verður hann alvarlegri á svip og heldur áfram. „Vonandi verður þetta hræðilega umhverfisslys til ein- hvers góðs; að fólk hætti að bora eftir olíu og fari að leita leiða til að nota hreinni og öruggari orkugjafa sem eru betri fyrir okkur og umhverfið okkar. Við verðum bara að vona það besta.“ Þ ess var vandlega gætt að ekk- ert kvisaðist út um efni myndarinnar fyrr en nú. Til hvers stóðuð þið í þessum feluleik? Það er erfitt að halda nokkru fersku nú til dags; tæknin er komin svo langt að áhorfendur virðast vita allt um myndirnar manns áður en maður er einu sinni búinn að gera þær. Sjálfum finnst mér fátt skemmtilegra en að fara í bíó og vita ekkert hvað er að fara að gerast þegar ljósin slokkna. Ég vildi gefa áhorfendum myndarinnar færi á þessu. Svo dæmir hver fyrir sig. Hvaðan kemur hugmyndin að Incep- tion? Mig hefur alltaf langað að fjalla um drauma en fyrir um tíu árum fékk ég hugmyndina að Inception; um alla möguleikana sem opnuðust ef hægt væri að deila draumförum sínum með öðrum. Ég vildi gera glæpamynd þar sem vett- vangur glæpsins væri inni í höfðinu á fórnarlambinu. Hver voru helstu markmiðin og áskorarirnar við gerð myndarinnar? Þema verkefnisins kjarnast ef til vill í orðum Doms Cobb þegar hann segir að draumarnir virðist raunverulegir á með- an við erum í þeim. Allt sem við gerðum miðaðist við að halda í sem trúlegasta umgjörð, þannig að draumheimarnir virtust trúlegir þótt ótrúlegir hlutir ættu sér stað. Þetta skapaði áskoranir fyrir ýmsar deildir í framleiðsluferlinu; t.d. þegar flutningalest kemur æðandi niður götuna og klessir bíla, vildum við gera þetta í alvörunni. Við fórum líka á raun- verulega tökustaði og ferðuðumst um allan heim, skíðuðum í stórhríð og ámóta. Vonandi skilar það sér í áþreif- anlegum draumaheimi með raunveru- leikablæ.“ En draumaheimurinn er ekki raun- verulegur; hann lýtur ekki sömu reglum og raunheimurinn … „Heimur sérhverrar kvikmyndar þarf að fylgja sínum eigin reglum og hið sama á við um draumaheiminn. Hann er í eðli sínu takmarkalaus, en til þess að hægt sé að gera hann að sögusviði þarf að setja niður ákveðnar grundvalla- reglur, setja honum skorður, þannig að áhorfandinn hafi einhverja fótfestu í söguþræðinum. Hjá mér var það lyk- ilatriði að láta söguna snúast um rán og svikráð, þar sem vélað er um raunveru- leikaskyn annars manns. Fyrir vikið þurfa söguhetjurnar að fylgja tilteknum reglum til þess að ekki myndist brestir í þeirri tálsýn raunveruleikans, sem notuð er til þess að glepja fórnarlambið. Um leið veit áhorfandinn að möguleikarnir eru óþrjótandi.“ Telur þú að einhvern tíma verði hægt að deila draumum sínum með öðrum? „Þótt ég hafi notið þess að leika mér með hugmyndina um að hægt væri að deila draumum með öðrum tel ég ekki miklar líkur á að slíkt verði að raun- veruleika,“ segir Nolan. Draumfarir gera okkur kleift að skapa umhverfi okkar og skynja það í senn, nokkuð sem nútíma- tækni fer víðs fjarri að leika eftir. Það sem meira er, mér finnst mjög mik- ilvægt að draumar séu einkamál. Það er einstaklingnum dýrmætt að hafa tæki- færi til að líta á lífið frá öðru sjónarhorni á hverri nóttu og vinna úr sínum málum í draumi án þess að af því hljótist nokk- ur eftirmál. Christopher Nolan ásamt Michael Caine og Marion Cotillard á frumsýningu Inception í París á dögunum. Reuters Vélað um tálsýn raunveruleikans „Ég vildi gera glæpa- mynd þar sem vett- vangur glæpsins væri inni í höfðinu á fórn- arlambinu,“ segir leik- stjóri Inception, Chri- stopher Nolan.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.