SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 32
K lambratún skal það heita. Borgarráð Reykja- víkur samþykkti einróma í síðustu viku til- lögu Jóns Gnarrs borgarstjóra þess efnis að nafni Miklatúns skyldi breytt aftur í Klambratún. Nafninu var breytt í Miklatún á sjöunda áratugnum en í rökstuðningi breytingarinnar nú er sagt að nafnið hafi aldrei unnið sér sess í hugum borgarbúa sem hafi haldið áfram að kalla það Klambratún í daglegu tali. Á túninu hafa borgarbúar um árabil getað iðkað hvers kyns frístundir, körfubolta, fótbolta og brenni- bolta. Þá má jafnvel sjá stangveiðimenn æfa sig í garð- inum og golfara munda kylfur. Þá er listasafnið Kjarvals- staðir enn ónefnt. Þótt mörgum, ef ekki flestum, sé tamt að tala um Klambratún vita líklega færri hvaðan nafn þessa vinsæla almenningsgarðs er komið. Klambratún heitir eftir bænum Klömbrum sem stóð á túninu miðju, rétt fyrir aftan þar sem Kjarvalsstaðir standa nú, allt til ársins 1965 þegar síðasta húsið var rifið. Það var Magnús Júlíusson, læknir og borgarfulltrúi, sem byggði bæinn árið 1925 og nefndi hann eftir ættaróðali sínu í Vesturhópi í Vestur-Húnavatnssýslu. Fyrir á túninu voru bæirnir Sunnuhvoll og Háteigur. Þar reyndi Magnús fyrir sér með sauðfjárrækt en hann var formaður Fjáreigenda í Reykjavík. Árið 1934 seldi Magnús hins vegar dönskum manni Klömbrur, Christian Harald Hyl- dalh Christensen, sem hafði flutt til landsins þremur ár- um fyrr. Christensen, sem var síðasti bóndinn á Klömbr- um, hefði orðið 100 ára gamall á sunnudag, 18. júlí, og í tilefni þess og nafnbreytingarinnar hefur Reykjavík- urborg ákveðið að koma fyrir söguskilti á túninu síðar í sumar. Kunni að bjarga sér Ólöf Kristín Sveinsdóttir dóttir Sveins Christensen, elsta sonar bóndans á Klömbrum, hefur í tilefni aldarafmæl- isins viðað að sér gögnum um afa sinn og ömmu, Ólöfu Pálínu Ólafsdóttur, og bæinn Klömbrur sem hún náði sjálf aldrei að sjá. Eins og áður sagði kom afi hennar frá Danmörku til Íslands árið 1931 og gerðist vinnumaður á Reykjum í Mosfellssveit þar sem hann kynntist ömmu Ólafar sem alltaf var kölluð Lóa. Þau giftu sig árið 1934 og hófu eigin búskap á Klömbrum í Reykjavík. „Þau hófu kúabúskap, höfðu um tólf kýr eftir því sem ég kemst næst, og afi varð strax mjólkurpóstur hverf- isins. Mjólkin var keyrð út á hestvögnum en fólk kom líka heim á bæinn til að kaupa hana svo oft var röð fyrir utan mjólkurskúrinn,“ segir Ólöf. Þá byrjaði Christian- sen fljótlega að rækta grænmeti og tók stóran skika jarð- arinnar undir rækt. Afraksturinn, rófur, gulrætur, hvít- og blómkál, næpur, rabarbara og kartöflur, seldi hann á markaði á Óðinstorgi að sögn Ólafar en einnig með mjólkinni sem var keyrð út. Bóndinn galvaski tók einnig að sér ýmis verk til þess að drýgja tekjurnar. „Árið 1935 tók hann að sér að heyja í Þerney í Kollafirði en mörgum þótti djarft að ráða óvan- an mann til þess verks. Það fór þó allt vel og heybagg- arnir komu á land á hefðbundinn máta eins og tíðkast hafði um aldaraðir á Íslandi,“ segir Ólöf. Auk þess átti Christensen tún á Þvottalaugabletti þar sem Glæsibær stendur nú en þaðan flutti hann hey niður í hlöðuna á Klömbrum með hestvagni. Var heyið keyrt niður Suður- landsbrautina, út Rauðarárstíginn og inn að bænum. Þá er ónefnd þjónustan sem rekin var á Klömbrum við hestamenn. „Þar bauðst utanbæjarmönnum að geyma hestana sína til skemmri eða lengri tíma á meðan þeir voru í bænum. Þetta var nokkurs konar forveri bíla- stæðahúsanna,“ segir Ólöf og hlær. Slátrað og reykt Fljótlega hóf Christensen bóndi að nota fjárhúsin til þess að slátra fyrir nágrannana og voru það aðallega svín og stórgripir. „Ég man eftir að afi sagði að þarna hefði orðið til markaður fyrir ferskt kjöt í Reykjavík og Danir hefðu komið mikið til hans til að fá kjöt eins og þeir voru vanir að heiman en það var annars erfitt að fá hér,“ segir Ólöf um sláturhúsið á Klömbrum. „Í kringum 1943 og 1944 hefur slátrunin verið orðin það umfangsmikil að fyr- irtæki var stofnað um hana.“ Hinn 1. maí 1944 stofnaði Christensen Kjöthöllina í samstarfi við annan Dana, Hans Blomsterberg, en hann var lærður slátrari og pylsugerð- armaður, ólíkt Christensen. Kjötvinnslan varð að ævi- starfi bóndans og opnuðu þeir félagar kjötverslun í fjós- inu á Klömbrum og skömmu síðar opnaði hann reykhús í hlöðunni. Árið 1950 fluttist starfsemin í verslun á Há- teigsvegi 2 og var þá hætt að afgreiða kjöt beint frá Klömbrum en þremur árum síðar var hætt að slátra á Klömbrum. Árið 1965 hætti Christensen með reykhúsið. Kjöthöllin er rekin enn þann dag í dag af sonum Chris- tensens, þeim Sveini Henriki, föður Ólafar, og Birni Inga. Þótti ófínt nafn Árið 1946 leysti bæjarsjóður til sín Klömbrur og Klambratún. „Í aðalskipulagi bæjarins var gert ráð fyrir almenningsgarði á þessu svæði,“ segir Ólöf um ástæður þessa. „Bóndabærinn var líka orðinn aðþrengdur af byggðinni í kring. Það var svo komið að sagt var að fólk Túnið við Klömbrur Nú á aldarafmæli síðasta bónd- ans á Klömbrum hefur almenn- ingsgarðurinn sem reis á bæj- arstæðinu endurheimt nafn sitt. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is 32 18. júlí 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.