SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Side 39
18. júlí 2010 39
Þ
að er nú ekkert rosalega langt síðan ég varð 38
ára gamall. Og enn styttra síðan ég varð 39 ára.
Tíminn líður alveg svakalega hratt þessa dag-
ana. Mér finnst eins og ég hafi séð gömlu Pepsi-
auglýsinguna með Magga Scheving í fyrsta skiptið bara í
gær. Og til að bæta gráu ofan á svart verð ég svo 40-
tugur á næsta ári.
Ég veit þó alveg hvað þú ert að hugsa akkúrat núna,
kæri lesandi. Þú ert að hugsa; hvernig getur það verið?
Hvernig getur það verið að þessi unglegi maður sé að
verða 40-tugur? Málið er, ég fer eftir ákveðnum lög-
málum þegar kemur að
því að halda mér ung-
legum. Þau eru eftirfar-
andi:
Nr.1: Bíddu með það
eins lengi og þú getur að
verða kynþroska. Ég
persónulega beið þangað
til ég varð 27 ára. Þegar
ég hugsa til baka þá
fannst mér einhvern
veginn eins og allir fé-
lagar mínir hefðu farið saman í Hormónabúðina án þess
að láta mig vita. Allt í einu voru allir komnir með djúpar
raddir og orðnir hávaxnir og loðnir á mjög svo skrítnum
stöðum. Og ekki voru stelpurnar neitt öðruvísi. Þær
gengu í gegnum þessar líka svakalegu breytingar. Ég
man til dæmis eftir einni stelpu, held að hún hafi heitið
Sóley. Fyrir hádegi leit hún út eins og hún hafði alltaf
gert, bara ung og saklaus. Eftir hádegi gekk hún inn í ís-
lenskutíma og var allt í einu orðin að konu. Komin í pils,
hælaskó, meik-up og farin að deita Stebba Hilmars.
En ég er að græða á þessu núna. Núna lít ég út fyrir að
vera mjög unglegur á meðan flestir af jafnöldrum mínum
líta út eins og Gísli á Uppsölum.
Nr.2: Nægur svefn. Og ekki bara átta tíma nætursvefn,
heldur snýst þetta um að leggja sig. Oft. Rannsóknir hafa
sýnt að á meðan maður sefur eldist maður ekki. Í gegn-
um tíðina hefur verið svolítið deilt á mig fyrir það að ég
leggi mig aðeins of mikið. Mitt svar er: sjáðu andlitið á
mér.
Nr.3: Forðastu heilbrigðiskerfið. Heilbrigðiskerfið er
fullt af fólki sem er búið að sitja á skólabekk mjög lengi
og læra allskonar hluti. Og þetta fólk mun ekki undir
nokkrum kringumstæðum láta þig óáreittan ef það getur.
Ef þú ferð og hittir lækni vegna hósta þá geturðu bókað
að hann mun finna eitthvað annað að þér. Með allan
þennan aðgang að öllum þessum lyfjum og öllum þessu
dýru tækjum þá mun hann finna eitthvað. Og áhyggj-
urnar yfir því munu hraða öldrunarferlinu.
Nr.4: Forðastu stress. Það er löngu búið að sanna það
að stress gerir það að verkum að fólk eldist fyrr. Ein
besta leiðin til að losa sig við stress er einfaldlega að losa
stressið yfir á aðra. Svo er líka hægt að fara í jóga. Það er
voðalega vinsælt. Fyrir þá sem ekki hafa prófað jóga, þá
er jóga í grunninn ákveðnar öndunaræfingar sem urðu til
hjá hindúum fyrir hundruðum ára. Þú situr á gólfinu
með fullt af fólki og andar inn og út. Og svo ferðu með
möntru. Vinsælasta mantran í dag er: „Þetta er ekkert
smá hallærislegur tími. Djöfull langar mig í bjór.“
Nr.5: Vera feitur í framan. Rannsóknir hafa sýnt að
fólk sem er feitt í framan er mun unglegra. Galdurinn er
auðvitað sá að vera ekki feitur annars staðar. Það er ein
vinsæl leið til þess að halda sér feitum í framan. Næg
áfengisdrykkja. Ég veit að það er ekkert ofsalega smart
að hvetja fólk til mikillar áfengisdrykkju, en fegurðin
kostar. Maður þarf að leggja ýmislegt á sig ef maður ætl-
ar að líta vel út. Sjáðu bara Donald Trump. Heldurðu að
það sé ekki mikil vinna á bak við þessar bústnu kinnar
og þessa hárgreiðslu? Maðurinn veit alveg hvað hann er
að gera.
Ungur
að eilífu
’
Í gegnum tíðina
hefur verið
svolítið deilt á
mig fyrir það að ég
leggi mig aðeins of
mikið. Mitt svar er:
sjáðu andlitið á mér.
Pistill
Bjarni Haukur Þórsson
Sunna Dís vigtar bækur fyrir viðskiptavin.
Fjölskylda á ferðinni: Símon Kári, Jóhanna Sveinbjörg með Ingunni Maríu, Ingvar Guðmundsson með Kötlu
Steinunni, og Ingólfur Karel.
Þýsku dorgveiðimennirnir voru kátir með aðstæður og árangur þýska landsliðsins á HM.
Kristján Torfi Einarsson og Atli Ottesen eru Vagnstjórarnir.