SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Síða 42

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Síða 42
42 18. júlí 2010 S ífellt betri og eðlilegri þrívídd- artækni á vafalaust þátt í vel- farnaði hinna tilkomumiklu brellumynda um ofurhetjur teiknimyndasagnanna, þar sem Avatar eftir James Cameron sló öll áður þekkt aðsóknarmet um allan heim á fyrstu mánuðum ársins, met sem eru ekki árennileg og Cameron er ekki hættur því hann er að undirbúa „special edition“ verksins, sem kemur á markaðinn síð- sumars. Það vakti athygli í vikunni að Edward Norton var ekki boðið að leika græna svaðamennið Hulk, í The Avangers, of- urmyndinni um flestar ofurhetjur Mar- vel-útgáfunnar, sem verður frumsýnd að tveimur árum liðnum. Myndin er að fara í gang, verið að ákveða leikara sem munu vinna undir stjórn Joss Whedon. Fyrst brást Hulk í meðförum Erics Bana í mynd Angs Lee frá 2003 og næsta til- raun sem gerð var fimm árum síðar var slæmur skellur. Þar fór Norton með hlut- verk Hulk/Bruce Banner. Margt kemur til að Norton var ýtt til hliðar, aðalástæðan mun vera orðlögð geðillska leikarans, sem þykir með vandmeðfarnari mönnum í Hollywood. Enginn efast um hæfileik- ana, þá hefur hannn m.a. sannað með Óskarstilnefningum fyrir Primal Fear (́96) og American History X (́98). Svo fór um sjóferð þá – þó enginn efist um að Norton hefði haldið sínum hlut á móti öðrum hákörlum sem koma við sögu The Avengers, þar sem Robert Dow- ney, Jr., leiðir hetjuskarann sem Iron Man; Chris Evans leikur Captain Am- erica; Chris Hemswort fer í fötin hans Þórs og Sir Anthony Hopkins túlkar sjálf- an Óðin. Ekki veit ég hvað Ásatrúarmenn hafa um leikaravalið að segja, en þetta hljómar ekki illa. Enn eru margir ótaldir sem koma við sögu The Avengers: Samuel L. Jackson leikur Nick Fury; Scarlett Jo- hansson svörtu ekkjuna; Jeremy Renner (The Hurt Locker), fær að spreyta sig á Hawkeye, bogamanninum sem aldrei skeikar skot, og langt er komið að semja við Don Cheadle um að túlka „stríðsvél- ina.“ Örugglega þekkt nafn Mikið er rætt og ritað um hver axli byrðar Hulks þegar Norton er ekki lengur með í leiknum. Framleiðandinn hefur látið hafa eftir sér að það verði örugglega þekkt nafn. Leikar eru að fara líkt og hjá Ter- rence Howard, sem var sagður launa- hæsti leikarinn í Iron Man og var þá varp- að á dyr fyrir Cheadle. Howard átti að fá ofurlaun þar sem hann var fyrsti leik- arinn sem var ráðinn að Iron Man, fyrstu, eigin kvikmyndaframleiðslu Marvel- hasarblaðaútgáfunnar, um leið og tekin var stór áhætta með Downey, sem enn var tvísýnn kostur sökum eiturfíknar. Aðdáendur Hulks hafa brugðist ókvæða við, bíógestir þekkja til vand- virkni Nortons, fagmennsku og dugn- aðar. Eigendur Marvel hafa á hinn bóginn orð á sér fyrir nirfilshátt og það óttast aðdáendurnir að muni bitna á gæðum græna risans og myndarinnar The Av- angers í heild. Hulk má ekki hverfa í skuggann af gæðaleikurunum sem manna hetjugengið í The Avengers, líkt og hinum hrífandi Downey og Jackson, eða ósviknum atvinnumönnum á borð við Cheadle og Renner. Nokkur nöfn eru í umræðunni og ber efst Adrian Brody (Óskar fyrir Píanóleik- ara Polanskis), en hann stendur sig eft- irminnilega vel þessa dagana í skrímsla- myndinni Predators. Nathan Fillion hefur borið á góma, hann hefur vakið verðskuldaða athygli í smáhlutverkum á tjaldinu og matarmeiri störfum í sjón- varpi að undanförnu. Enn aðrir vilja sjá Kevin Spacey í eftirsóttu hlutverki Hulks/Banners, en það eru sjálfsagt inn- antómar getgátur, líkt og nöfn þeirra Li- ams Neeson og Hughs Laurie. Hvað sem öllum bollaleggingum líður er talið líklegt að Marvel tilkynni nafn leikarans fyrir lok mánaðarins. Það er því dagljóst að þrír leikarar munu fara með Hulk-hlutverkið á sjö ára tímabili, það er ekki frekar en annað nýtt undir sólinni. Þrír leikarar mönnuðu James Bond á árunum 1969-1973 og sömu sögu er að segja af Batman frá 1992-1997. Eric Bana virkaði ekki sem Hulk, nú er búið að leggja Edward Norton fyrir róða líka. Reuters Hasarhetjurnar blómstra – frá Valhöll til Hulks Velgengni mynda byggðra á ofurhetjum hasarblaðanna færist í aukana ef eitthvað er. 2010- 2012 verða velti- ár í geiranum, flestir sótraftar á sjó dregnir, jafnvel neitar Marvel- útgáfan að trúa því að útilokað sé að græða á The Hulk. Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Leikstjóri: Richard Brooks. Aðalleikarar: Burt Lancaster, Jean Simmons, Arthur Kenn- edy, Shirley Jones, Dean Jagg- er. 145 mín. Smitandi sannfæringar- kraftur Lancasters í titil- hlutverkinu og einstæð út- geislunin sem yfirgnæfir allt annað, skipar þessum glað- beitta og frábæra leikara í raðir þeirra bestu um aldir og ævi. Gantry er flugmælskur sölu- maður, drykkjubolti og kvennabósi, fyrrum ruðn- ingsleikmaður, sem ákveður skyndilega að snúa kvæði sínu í kross og gerast prédikari Guðs orðs. Ástæðan er ekki skyndilegur, guðlegur inn- blástur heldur systir Sharon (Simmons), gullfallegur pre- dikari í sértrúarflokki sem ferðast um landið í kreppunni miklu. Lancaster tekur sér góðan tíma, verður hvergi á í messunni, hvorki í ræðu- mennskunni né í snörulögn- um fyrir systur Sharon og heillar hana, samstarfsmenn hennar og ekki síst auðtrúa, illa haldin almúgann. Þá kem- ur gömul vinkona hans, nú- verandi gleðikona (Jones), til skjalanna og gjörbreytir fram- vindunni. Auk stórleiks glæsi- mennisins Lancasters prýðir fjölmargt annað myndina, einkum leikstjórn og handrit Brooks; ræðurnar gneista af eldi og brennisteini og sögu- þræði bókar Sinclairs Lewis fylgt af snilld. Jones sýnir fín tilþrif í litlu, vandasömu hlut- verki prestsdótturinnar sem ruðningshetjan Gantry for- færði á sínum tíma og steypti í glötun. Hún, ásamt Lancaster og handriti Brooks, hlutu Óskarsverðlaunin. Kennedy er hárfínn sem samviska þjóð- arinnar, blaðamaðurinn sem fátt fer fram hjá. Ein magnað- asta þjóðfélagsádeila Lewis verður ógleymanleg mynd um átökin milli ljóss og skugga og spurninguna sem brennur, eru sértrúarflokkar almennt hjómið eitt? saebjorn@heimsnet.is Kvikmyndaklassík – Elmer Gantry (’60) ***** Hallelúja, bræður og systur! Burt Lancaster og Shirley Jones í klassíkinni Elmer Gantry. Það var ósvikin flugeldasýning þegar Edw- ard Norton geystist upp á hvíta tjaldið í Primal Fear, árið 1996. Hann sló eft- irminnilega í gegn, sýndi þroskaðan og út- smoginn leik sem fæstir áttu von á af svo ungum manni í sínu fyrsta, umtalsverða hlutverki. Allar götur síðan hefur sópað að Norton, þá hann hefur fengið bitastæð hlutverk, og skapað eftirminnilegar, oft á tíðum eitilharðar persónur. Norton er sval- ur þegar það á við, eins getur hann fyr- irhafnarlaust leikið mjúka menn og geislar jafnan af greind og hæfileikum. Norton er fæddur í Boston 1969, sonur lögmanns og kennara. Í fyllingu tímans var pilturinn sendur til mennta við háskólann í Yale, þar sem hann nam sagnfræði en söðlaði fljótlega um yfir í leiklistina og flutti sig til New York, höfuðvígis leiklist- arinnar í Vesturheimi. Hann starfaði á fjöl- unum um sinn, eða þar til hinum unga leikara bauðst virkilega feitur biti, næst- stærsta hlutverk geðklofa á móti Richard Gere í Primal Fear (en slíkir sjúklingar koma oftlega við sögu í hlutverkavali Nor- tons.) Hann hlaut einróma lof, óskarstiln- efningu og ávísun á bjarta framtíð fyrir frammistöðuna. Ekki lækkaði risið á Nor- ton þegar hann vann ógleymanlegan leik- sigur tveim árum síðar í þeirri mögnuðu mynd, American History X. Þar leikur hann þjóðernissinna og kynþáttahatara sem hefur tröllatak á litla bróður sínum, en hefur séð að sér þegar hann hefur setið af sér í fangelsi – við litla hrifningu þess yngri. Kvikmyndaaðdáendur voru sem berg- numdir, hvað var að gerast? Var kominn til sögunnar nýr Pacino, De Niro, Hoffman? Ekki minnkaði hrifningin þegar hann sló í gegn ásamt Brad Pitt í Fight Club ’99), því ljóta og flókna púsluspili Davids Fincher. Áratugur er liðinn frá stórvirkinu hans Finchers og satt best að segja hefur Nor- ton fátt gert síðan sem minnisstætt getur talist en eiturgrænir dýjapyttir Hollywood verið þess fleiri. Leikarinn hefur gert tæp- lega tvær myndir á ári frá 2000 og vissu- lega er sitthvað bitastætt líkt og auka- hlutverk Nelsons Rockefellers í Fridu (’02), og hlutverk Brogans, eiturlyfjasala sem endurskoðar líf sitt síðasta sólar- hringinn sem hann gengur laus og er með því besta sem hann hefur gert. Miskunn- arlaus mynd um kynþáttaforfóma, eitur- lyfjaneyslu, ástir og harma. Gerð af Spike Lee, með væna leikara innanborðs; Brian Cox, Philip Seymour Hoffman, Rosary Dawson og Önnu Paquin. Afgangurinn er ekki nógu áhugaverður fyrir leikara með hæfileika og metnað Edwards Norto saebjorn@heimsnet.is Áhugaverð andlit: Edward Norton Ótryggt gengi gæðaleikara Kvikmyndir Edward Norton ásamt Brad Pitt í Fight Club. Reuters

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.