SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Side 47
18. júlí 2010 47
LÁRÉTT
1. Bárur við byggingu sem drukkið er í. (8)
4. Það er þvættingur að frelsa Mark. (9)
7. Pólitíkusar töpuðu Rós en það er sér kafli. (8)
8. Kynni gest minn fyrir geðblæ (8)
10. Eðli flækist fyrir sorgmæddri. (4)
11. Malbika í desember með einhvers konar matarvökva.
(10)
12. Þreyttir á keyrslu um hefðbundnar slóðir. (9)
14. Söngur virtur eins og niðursuðuvaran. (8)
16. Það var náð í kyrrð frá munstraði. (6)
17. Klaufi sem er á mörkum á klukkunni. (6)
18. Smár borðaði hjá hógværri. (8)
20. Orðtökin eru ekki OK þegar þið skjálfið. (6)
22. Of mikið tilboð um hræðslu (5)
24. Þekki héraðsveitu. (4)
27. Sjá hrosshársreipið í látunum. (8)
31. Drepinn við götuna. (6)
32. Fær oft sin til að tengjast á endanum við þvældan
garm. (10)
34. Kitli vin einhvern veginn með tilfellunum. (8)
35. Nísk eða er það einföldun sem er ný til komin. (6)
36. Missir sig aðeins yfir ráðgátunni og tapar varkárni sinni.
(5)
37. Veitti aðstoð og batt í ljóðaform. (8)
LÓÐRÉTT
1. Ökutæki sem er gagnlegt í eldgosum? (8)
2. Sem betur fer byggir dómskerfið ekki á röngum venjum
heldur á andstæðu þeirra. (12)
3. Beitið brögðum til fá suðurvind til að hálfliðast. (8)
4. Tónelsk með nagdýr lendir í Satan svona næstum því. (9)
5. Keyr til baka óslétt svæðið með villidýrið til að fá skrið-
dýrið. (11)
6. Skriflist Gunnars getur lent hjá norðlensku. (10)
9. Fæðingin í flýti? (8)
13. Innyflin í viðrininu. (5)
15. Geri einhvern veginn út um og viðurkenni. (6)
19. Fá til baka frá jöklinum áganginn á landið. (6)
21. Eflir á einhvern hátt tröppur á villigötum. (11)
22. Sagt er að opinn gjaldmiðill finnist hjá kjaftforri. (9)
23. Lemur herra okkur út af hryssu? (8)
25. Við samskonar rytma er eitthvað óvenjulegt. (8)
26. Vildi tíð flækjast um með súrefnið (8)
28. Djöfull fær skít fyrir skrifað. (6)
29. Ráða við þrátt fyrir allt þó það sé mikið að gera. (8)
30. Núna Gunnar gat náð í sælgæti. (6)
33. Ég vil panta fen. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til að skila úr-
lausn krossgátu 18. júlí rennur út
fimmtudaginn 22. júlí. Nafn vinn-
ingshafans birtist í blaðinu 25. júlí.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinnings-
hafi krossgátunnar 11. júlí er Hallfríður Frímanns-
dóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Píslarvottar án
hæfileika eftir Kára Tulinius. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Þegar spurt er að því hvaða skák-
maður hafi verið bestur þeirra
sem aldrei hrepptu heimsmeist-
aratitilinn koma nöfn Kortsnoj
og Keres upp í hugann. Saga þess
síðarnefnda, Eistlendingsins Paul
Keres (1916-1975) er áhugaverð.
Á árunum 1954-1962 tók hann
þátt í fjórum áskorendamótum
og varð alltaf í 2. sæti. Á AVRO-
skákmótinu í Hollandi 1938 bar
hann sigur úr býtum og skaut
aftur fyrir sig öllum helstu
meisturum þess tíma. Viðræður
um heimsmeistaraeinvígi við
Aljékín voru hafnar þegar seinni
heimsstyrjöldin greip inn í. Keres
var í Buenos Aires vegna Ólymp-
íumótsins en þegar hann sneri
aftur höfðu Eystrasaltslöndin
verið innlimuð í Sovétríkin.
Stuttu síðar hernámu nasistar
Eistland og Keres tók þátt í
nokkrum mótum á þeirra yf-
irráðasvæði. Í stríðslok reyndi
Keres að flýja hina nýju og gömlu
herra, var handtekinn og yf-
irheyrður í nokkra daga. Honum
var m.a. gefið „að sök“ að hafa
búið í sama húsi og þekktur and-
spyrnumaður. Það mál var tekið
fyrir á ráðstefnu sem haldin var
um arfleifð Keres í Tallinn árið
2006 en meðal gesta var Friðrik
Ólafsson. Því hefur verið haldið
fram að skáksnilld Keresar hafi
forðað honum frá aftökusveitum
Stalíns. Hann var „endurreistur“
og fékk að tefla á fimm manna
heimsmeistaramóti sem fram fór
í Haag og Moskvu árið 1948. Aðr-
ir keppendur voru Botvinnik,
Smyslov, Reshevsky og Euwe en
tefld var fimmföld umferð. Sjötti
maður, Ruben Fine, hafnaði
þátttöku en að Miguel Najdorf
skyldi ekki vera með mun eiga
sér þá undarlegu skýringu að í
Groningen tveim árum fyrr hafi
Najdorf stofnað til veðmála um
að hann myndi sigra Botvinnik í
því móti – og það gekk eftir! Ker-
es tapaði fjórum fyrstu skákum
sínum fyrir Botvinnik. Fullvíst er
talið að haft hafi verið í hótunum
við hann. Til að sanna styrk sinn
vann Keres Sovétmeistaramótið
þrisvar með stuttu millibili: 1947,
1950 og 1951.
Annálað prúðmenni en keppn-
ismaður; hann lét svo ummælt að
nauðsynlegt væri þeim reyndari
að temja og vinna unga og upp-
rennandi skákmenn, þeir gætu
annars orðið vandmál síðar.
Friðrik Ólafssyni gekk illa gegn
Keres sem vann Bobby Fischer
þrívegis með svörtu. Fyrir löngu
gekk ég fram á gamlan Íslands-
meistara sem tjáði viðstöddum
að hann hefði skoðað allar skákir
sem Keres hafði teflt á ferlinum
og þær höfðu reynst honum
mikill bálkur fróðleiks.
Keres var mikill meistari í Tsjí-
gorín-afbrigði spænska leiksins.
Vann þar marga sigra eins og
þennan gegn hinum harðvítuga
Efim Geller:
Moskva 1951:
Efim Geller – Paul Keres
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7.
Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Ra5 10.
Bc2 c5 11. d4 Dc7 12. Rbd2 cxd4
13. cxd4 Bb7 14. Rf1 Hac8 15. Bg5
d5 16. exd5 exd4 17. Bg5 h6 18.
Bh4?
Geller brast kjark til að leika
18. Bxh6! gxh6 19. Dd2 með
óstöðvandi sókn. Svartur leikur
betur, 18. .. Hfd8 og svartur
heldur í horfinu.
18. … Rxd5 19. Dd3 g6 20. Bg3
Bd6 21. Bxd6 Dxd6 22. Dd2
22. … Rf4! 23. Dxa5
Betra var 23. Be4.
23. … Bxf3 24. gxf3 Rxh3+ 25.
Kg2 Rf4+ 26. Kg1 Rh3+ 27. Kg2
Rf4+ 28. Kg1 Dd5! 29. Rg3 d3! 30.
Re4 Df5 31. Db4 Hfe8!
- Þögull leikur og afgerandi.
Geller gafst upp því hann átti
enga vörn við hótuninni 32. …
Hxe4 ásamt 33. … Dg5+ og mátar.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Sá besti sem aldrei varð heimsmeistari
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang