SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Page 2
2 8. ágúst 2010
4-8 Vikuspeglar
Nýr eigandi Newsweek, Gay Pride og fljúgandi furðuhlutir.
13 Vegamynd
Leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson nennti ekki að bíða styrks,
fór aftur til níunda áratugarins og gerði kvikmynd í fullri lengd.
14 Englar
Heimsfrægi ljósmyndarinn Mary Ellen Mark heillaðist af leikhópnum
Perlunni í myndbandi Sigur Rósar og myndaði þessa engla.
18 Bak við tjöldin
Eggert Jóhannesson ljósmyndari fylgdist draggkeppni á Gay Pride.
20 Björk
Viðtal um Magma, afskiptin af
pólitík og áhrifin á tónlistina.
24 Ástin og listin
Helgarviðtal Kolbrúnar Bergþórs-
dóttur við leikstjórann Ingu
Bjarnason.
27 Myndaalbúmið
Ragna Ingólfsdóttir badmintonspilari í myndum.
28 Sagan á bakvið myndina
Ragnar Axelsson, RAX, lýsir eftirminnilegri myndatöku í Eldey.
32 Sléttan og Öxarfjörður
Guðrún Hálfdánardóttir með úttekt á mannlífinu á Melrekkasléttu og í
Öxarfirði.
36 Flateyri
Rætt við Martein Þórisson, leikstjóra heimildarmyndar um björg-
unarstörfin eftir snjóflóðið á Flateyri.
39 Matur og vín
Uppskriftir Friðriks V. og Steingrímur Sigurgeirsson fjallar um Rioja.
42 Kvikmyndir
Auglýst eftir leikstjóranum Frank Darabont.
Lesbók
48 Borða, biðja, elska
Tungutak Guðrúnar Egilson og Elizabeth Gil-
bert, höfundur metsölubókarinnar Borða, biðja,
elska.
50 Jazzhátíð
Trommuleikarinn Pétur Grétarsson um hátíðina
sem er að hefjast.
52 Bókaopnan
Orðanna hljóðan, Lesarinn og burður um barna-
söguna Spóa.
54 Að lokum
Þankar um þjóðminjar, myndlistargagnrýni og ævisaga Castrós.
Ljósmynd Mary Ellen Mark úr myndaröðinni Undrabörnum.
41
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Vera Pálsdóttir.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
Þ
að var undarleg tilfinning að ganga inn að
Seljavallalaug í liðinni viku. Stórskorið
landslagið varð enn mikilúðlegra í svartri
öskunni og grárri þokunni sem grúfði yfir.
Minnugir orða Eyfellingsins Páls Andréssonar, sem
sagði dalinn nú eins og „dauðs manns gröf“, hvarfl-
aði ekki að ferðalöngunum, að hægt væri að baða sig
við þessar aðstæður, svo sundfötin voru skilin eftir í
bílunum. En þegar komið var að sundlauginni, voru
þrír að lauga sig og ekki bar á öðru en að það yljaði
þeim á sál og líkama. Greinilegt er að hreins-
unarstarfið hefur skilað nokkrum árangri, þó að
öskutunga teygði sig ofan í tært vatnið.
Seljavallalaugin er friðuð útisundlaug, sem stendur
fremst í Laugárgili. Hún er í eigu Ungmennafélagsins
Eyfellings og var byggð árið 1923 að frumkvæði
Björns J. Andréssonar, eins og fram kemur á skilti á
laugarhúsinu. Þó að bannárin séu liðin, þá er strangt
áfengisbann í lauginni. Þar stendur ennfremur:
„Laugin er elsta uppistandandi sundlaug landsins og
sú fyrsta þar sem kennt var skyldunám í sundi. 25 m
löng og var um árabil lengsta sundlaug landsins.“
Ótrúlegt er til þess að hugsa að Laugárgilið sé alla
jafna gróðursæll staður, hlýlegur og fagur á sumrin,
þegar farið er troðninginn í öskunni meðfram hlíð-
inni og horft yfir þennan svarta dal. En þó má sjá
gróður á stangli teygja sig upp úr öskunni. Og fólk er
farið að baða sig.
pebl@mbl.is
Halldóra og Ólöf Kristrún skrifa í öskuna, sem síðan fýkur á haf út og kannski til fjarlægra landa.
Sundlaug í öskunni
Umhverfi Seljavallalaugar er drungalegt eftir eldgosið.
Ljósmynd/Pétur Blöndal
7. og 8. ágúst
Síðastliðinn fimmtudag voru Hinsegin dagar 2010 settir í Reykjavík. Þá
fjóra daga sem hátíðin stendur er boðið upp á ótal viðburði þar sem gleði,
glys og glaumur ráða ríkjum. Klukkan 14 laugardaginn 7. ágúst verður
haldið í hina stórkostlegu gleðigöngu niður Laugaveginn sem endar svo
með Hinsegin hátíð við Arnarhól kl. 15.30. Um kvöldið efnir DJ Páll Óskar
að vanda til hátíðardansleiks á Nasa en fyrir þá sem verða sprækir dag-
inn eftir er um að gera að skella sér á fjölskylduhátíð í Viðey kl. 13.
Hinsegin dagar í Reykjavík
Við mælum með …
10. ágúst
Næstkomandi
þriðjudag blæs
málmblásarasveitin
Wonderbrass til tón-
leika á Kjarvalsstöðum kl. 20.
Hópurinn samanstendur af 10
konum og var settur saman af
Björk Guðmundsdóttur fyrir Volta
World Tour. Á efnisskránni er að
finna verk eftir t.d. Björk, Gershwin
og Kristínu Bergs.
5.-22. ágúst
Næstu vikur stendur
yfir í Reykjavík
listahátíðin artFart
en hún er haldin af
Sambandi ungra
sviðslistamanna. Á
dagskrá hátíð-
arinnar má finna sýningar, list-
viðburði, fyrirlestra og vinnustofur.
Ítarlegar upplýsingar og dagskrá
má finna á heimasíðu hátíð-
arinnar, www.artfart.is.