SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Page 8
8 26. september 2010
Athugasemdir af spjallþráðum huga.is:
ég sé svo mikið eftir því að kynna mömmu og
pabba fyrir facebook eftir að þau lærðu á þetta gat
maður ekki gert NEITT á facebook ég meina maður
þurfti að passa sig á hjá hverjum maður gerir com-
ment því ef maður commentar hjá e-h stelpu þá verð-
ur maður yfirheyrður eins og andskotinn kannist þið
við þetta sjálf?
fékk reglulega póst og kvart frá pabba um hversu
siðblind og óskynsöm ég er á facebook og endaði
með því að ég þurfti að sérsníða allt privacy hjá mér.
ef að ég eyði foreldrum mínum af facebook þá verð-
ur heimstyrjöld D*:
og amma mín og afi eru líka á facebook sem gerir
þetta enn meira óþolandi
Ég VAR með mömmu á facebookinu mínu og þurfti
að passa mig á hvað ég gerði þar... þannig að ég
sagði henni að ég ætlaði að hætta með facebook, lok-
aði því... og opnaði það aftur eftir ca viku, og svo
eyddi ég henni útaf...
þú veist... það er svona hide button.. stelstu bara
inná facebook síðurnar hjá foreldrum þínum og hæd-
aðu þig
Mamma er alltaf að biðja mig um að accepta sig á
facebook. Er að hugsa um að gera það eftir einn og
hálfan mánuð, þegar ég verð 18, og hún mun ekki
geta tekið af mér bílprófið.
hún kemur alltaf inn í herbergið „sonur sæll, ég var
að sjá þessar nýju myndir af þér á facebook...“ frekar
vandræðalegt.
ja hata að mamma er á facebook xd!! alltaf ein-
hverjir 15 ára strákar að adda henni og segja að hun
sé sæt xd!!!
Það er bara nett að hafa mömmu á facebook, bróðir
minn er samt ekki á sama máli þar sem hún er alltaf
með svona mömmu comment á alla statusina hanns
og svona „ohh er svo stolt af þér snúðurinn minn, koss
koss“
Er svo stolt af þér
snúðurinn minn!
Morgunblaðið/Golli
M
æður hafa fundið jafnvel betri leið til
að niðurlægja börn sín en að sýna af
þeim smábarnamyndir – að gerast
vinir þeirra á fésbókinni.“
Þannig hefst grein LA Times sem fjallar um
neyðarlega reynslu unglinga af veru foreldra sinna
inni á samskiptavefnum góðkunna. Bandarískar
rannsóknir sýna að yfir þrír fjórðu foreldra eru
vinir barna sinna á fésbókinni en á sama tíma
langar þriðjung unglinga að úthýsa foreldrum sín-
um úr hinum rafræna vinahóp. Ástæðan er uppá-
komur á borð við nöldur foreldranna á síðunum
fyrir augum vinanna og pínlegar athugasemdir
sem foreldrarnir skrifa á eigin síður eða barnanna.
Svo rammt kveður að slíkum upplifunum ung-
linganna að stofnuð hefur verið sérstök vefsíða
sem heldur utan um vandræðagang foreldranna.
Yfirskrift hennar er „Oh Crap! My Parents Joined
Facebook“ þar sem úttauguðum unglingum gefst
kostur á að senda inn neyðarlegar athugasemdir
frá foreldrum, ömmum, öfum og öðrum skyld-
mennum sem verða þeim til skammar á netinu. Í
ávarpi sínu óska síðuhaldarar notendum hennar
til hamingju en bæta svo kaldhæðnislega við: „Lífi
þínu er formlega lokið.“ Annar þeirra, Jeanne Lei-
tenberg, segir í samtali við LA Times um mæður á
fésinu: „Þær gerast félagar á fésinu af því að þær
langar að vera svalar mömmur og hluti af hópn-
um. Þær gera sér ekki grein fyrir hversu hræðileg-
ar og uppáþrengjandi þær geta verið.“
Yfirheyrslur og nöldur
Og hvað er það svo sem kallar fram roða í kinnum
unga fólksins? Jú, þegar status á borð við „Ætla út
að hitta strákana“ kallar fram svar móðurinnar:
„Ertu til í að skella í uppþvottavélina áður en þú
ferð?“ Eða þegar amma setur á vegg barnabarns-
ins: „Á einhver vina þinna jafn svala ömmu og
mig, sem er á fésinu? Annars ættuð þið vinkona
þín að vera í peysum, þið kvefist bara ef þið eruð
svona klæðalitlar!“ Og hversu átakanlegur er
pabbi sem á bara 16 vini?
Það eru þó ekki aðeins athugasemdir á netinu
sem fara fyrir brjóstið á unglingunum. Kvabb í
raunheimum vegna fésbókarinnar getur verið allt
eins erfitt að eiga við ef marka má unglingaspjall-
síðuna hugi.is, en þar má sjá líflegar samræður ís-
lenskra unglinga um það „bögg“ sem þeir verða
fyrir af hálfu netnotandi foreldra. Krakkarnir eru
yfirheyrðir vegna ljósmynda af þeim sem gjarnan
eru teknar á djamminu, krafðir upplýsinga um
nýja fésvini eða ávítaðir fyrir orðbragð sem for-
eldrar hafa engar forsendur til að skilja.
Ekkert svona orðbragð, gæskurinn
Sumir hafa verið séðir, og hafnað vinabeiðnum
foreldra sinna á netinu. Aðrir hafa takmarkað
skaðann með því að breyta notendastillingum sín-
um þannig að tilteknir vinir – í þessu tilfelli for-
eldrarnir – hafi takmarkaðri aðgang en aðrir að
síðunni þeirra. Og svo eru það þeir sem hafa gripið
til örþrifaráða og strikað foreldrana út af vinalist-
anum, iðulega með hörmulegum afleiðingum: „Ég
prófaði að deleta henni einu sinni og það gekk í
svona þrjár vikur þangað til hún fattaði það og
addaði mér aftur. Ég gat ekki ignorað það því hún
kom til mín og sagði „deletaðirðu mér af facebo-
ok?!“ og var voða sár...“ segir íslensk stelpa.
Og svo var það íslenska amman sem blöskraði
svo orðbragð barnabarnsins á fésinu að hún skrif-
aði athugasemd við það: „Heyrðu gæskurinn,
ekkert svona orðbragð á meðan þú ert ekki orðinn
kynþroska...“ Menn geta ímyndað sér hvort pilti
var skemmt.
Er það furða að yngri kynslóðirnar séu að verða
afhuga fésinu! Samkvæmt könnun Roiworld sem
LA Times vitnar í hefur einn af hverjum fimm
unglingum misst áhugann á þessari vinsælustu
samskiptasíðu heims, og eru það sömu nið-
urstöður og fengust í annarri könnun sem danska
vefsíðan BT bar undir tækninjörðinn Tony Perkins
frá AlwaysOn í sumar. Hann gekk jafnvel svo
langt að lýsa því yfir að fésbókin væri deyjandi
risi, þar sem unga fólkið legði gjarnan línurnar
fyrir það sem koma skal á netinu. „Og ef það notar
ekki fésbókina þýðir það að það notar eitthvað
annað.“
Nálægðin við foreldrana er yfirþyrmandi á netinu að mati táninganna.
Morgunblaðið/Golli
Neyðarlegir
foreldrar á fésinu
Eru pabbi og mamma að hrekja
unglingana af Facebook?
Vikuspegill
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is
Hrellingar unglinga út af foreldrum á fésbókinni hafa orðið
hljómsveitinni Back of the Class að yrkisefni. Í metal–
ballöðunni „My mom’s on Facebook“, sem finna má á You-
Tube rekja þeir þær fésbókarraunir sem unglingspiltur upplifir
vegna netvæddrar móður sinnar.
Þrátt fyrir að hvorki tónlistin né textinn geti talist meðal
stærstu afreka rokksögunnar hefur lagið notið töluverðra vin-
sælda en hátt í 1,3 milljónir manna hafa skoðað það á net-
inu. Þar til viðbótar koma viðbótarútgáfur lagsins, þar sem
þýðingu á önnur tungumál hefur verið bætt við í textaræmu
undir myndbandinu, en áhorfendur þeirra eru nokkur hundruð
þúsund.
Mamma mín er á Facebook
50%afsláttur
Verð áður 2598 kr.
Grísalundir
1299 kr.kg
meira fyrir minna