SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 19
26. september 2010 19 fannst mér erfiðast að sjá þegar hann var vakinn í hádeg- inu, þannig að hægt væri að gefa honum lyfin. Þá sá maður vanlíðanina, því hann var tengdur öllum þessum tækjum. Mér fannst það langsamlega erfiðast. Samt er sagt strax við mann, að hann muni ekkert eftir því þegar hann vaknar, hann viti ekkert af þessu. En það er óhugnanlegt fyrir því og óþægilegt að sjá viðbrögðin.“ – Það hefur verið þægilegra um eftirmiðdaginn? „Já, og strax á laugardag var hann farinn að háma í sig morgunmat. Ég held það hafi verið um kaffileytið á laug- ardaginn, að hann sat í stólnum og borðaði, aðeins klukku- tíma seinna kom kvöldmaturinn og hann tróð honum í sig – ég hef aldrei séð hann borða af svo mikilli lyst!“ – Þú hefur verið úti allan tímann? „Já, já, ég hef ekkert vikið frá. Það er voðalega skrítið að vera svona lengi frá vinnu, því ég er grunnskólakennari. En einhvern veginn bjargast það.“ – Þú hefur sögu að segja krökkunum? „Já, þau fylgjast örugglega vel með. Kennararnir eru nátt- úrlega vinir manns á facebook, nokkrir foreldrar líka, og þetta er svo lítið samfélag; þau fá alltaf einhverjar fréttir af manni.“ Og hún er ánægð með aðstöðuna í Svíþjóð. „Það er rosalega þægilegt að vera í Jóhannesarvillu, sem er inni á lóðinni. En það er náttúrlega ekki skemmtilegt að hanga svona. Það er hins vegar ekkert annað í stöðunni. Æ, vertu ekkert að hlusta á þetta!“ segir hún svo hneyksluð á sjálfri sér. „Auðvitað er skrítið að vera kippt út úr öllu, en samt er þetta óskaplega fínt allt saman. Ég vona bara að þrátt fyrir þetta bakslag styttist í að við komumst heim.“ Horfði á Miami Vice um nóttina 26. ágúst, kl. 11:29 Kjartan Birgisson Biðstofustjórinn hélt upp á 19 vikna biðafmæli með því að taka á því í æf- ingasalnum, sit svo slakur heima og legg á Esjuna á eftir. Síðan er það Fylkir – KR í kvöld, ætli ég ljúki svo ekki deginum með að fara í bíó og Kringlukr- ána … ;-) 26. ágúst, kl. 16.19 Kjartan Birgisson Pabbi hætti skyndilega við öll plön dagsins og ákvað að skella sér frekar til Sví- þjóðar! Kallið kom rétt fyrir 14:30. Mamma trúði ekki sínum eigin eyrum þegar pabbi hringdi en þau eru núna í loftinu á leiðinni út! Aðgerðin verður framkvæmd í nótt og fyrstu fréttir berast ekki fyrr en einhvern tímann eftir hádegi á morgun. Kv. Hildur og María 26. ágúst, kl. 21.33 Sigurður Ingi Halldórsson Ok stakkst af til Sverige til að losna við að fara með mér á leikinn. Barði húsið að utan í kvöld áður en leikurinn byrjaði. En annars gangi ykkur vel. 27. ágúst, kl. 9.59 Kjartan Birgisson og nýja hjartað sem sló í fyrsta skipti kl. 6:02 í morgun! :) Það er allt sem við vitum í bili … látum vita með frekari fréttir þegar þær ber- ast :) 27. ágúst, kl. 10.30 Hildur Kjartansdóttir Elsku bestasti pabbi minn! Þú ert mesta hetja sem ég þekki! :) Sjáumst um næstu helgi! (María er að leita að miðum handa okkur :)) Þangað til verða rafræn (og símræn?) knús og kossar að duga! Hlakka til að heyra í ÞÉR! :) 27. ágúst, kl. 17.07 Halldóra Ingólfsdóttir Kjartan er laus ur öndunar- velinni (fyrir 4 klst). Byrjadi ad segja fimmaura- brandara eins og hann var buinn ad lofa. 28. ágúst, kl. 10.28 Halldóra Ingólfsdóttir For um kl 9 og stoppadi 3 klst. hja KB. Hann bordadi morgunmat, thjalfadi lungu, bordadi svo hadegismat. Er hinn spraekasti. Farinn ad standa a faetur. Mjög lystugur. Lagdi sig eftir matinn :) Hugsanlega losnar hann af gjörga- eslu seinni partinn … 28. ágúst, kl. 17.15 Halldóra Ingólfsdóttir Losnar líklega af gjörgæslu a morgun þegar blóðþynning verður orðin fullkomin og slöngur teknar. KB hitti sætan, saklausan sjúkraþjálfara í morgun og sagði: „Are you going to kill me?“ (þegar hann fékk friðarpípuna). Alltaf fyndinn ;) 30. ágúst, kl. 18.20 Kjartan Birgisson Þetta er ábyggilega mjög lítið stykki, því ég græt bara ;-) Takk fyrir góðar kveðjur allir. Sigur er innan seilingar en mikið verk fram- undan. 2. september, kl. 18.43 Kjartan Birgisson Góðan daginn öll, dagur sjö að byrja hér í borginni hans Gauta. Enn mjög þreyttur og finnst það mætti fara að breytast. Reyni að halda mig á beinu brautinni ;-). 2. september, kl. 19.14 Halldóra Ingólfsdóttir Ískaldur kjúklingaborgari og franskar (McDonalds): „Besti matur sem ég hef fengið lengi“ (KB) 4. september, kl. 13.06 Kjartan Birgisson Loksins kominn með tölvuna mína ;-) Vona að hún virki áfram, síðasta klukkutím- ann rúmlega hef ég verið að lesa kveðjur frá vinum og fjölskyldu og brest í grát öðru hvoru, vona að lyklaborðið sé vatnshelt og ég fari að þorna! Eins og við var að búast þá small fréttin! (símtalið) á manni „án fyrirvara“ og lítill tími … til nokkurs. Náði þó að hringja í Dóru og nokkra aðra ;-) Hjartnæmar færslur á fésbókinni Laugardagur kl. 12:13 Halldóra flettir fésbók á gistiheimilinu Jóhannesarvillunni. Laugardagur kl. 09:52 Kjartan kominn á ról. Matarlystin með besta móti. Laugardagur kl. 10:04 Sjúkraþjálfarinn mættur. Blásið til að ná upp þreki. Næsta vika: Fjallað um líffæragjafir almennt og rætt við nýrnaþegann Oddgeir Gylfason sem lauk þríþrautarkeppninni Ironman í sumar. „Mig langar að deila þessu með vinum mínum hér á „Facebook“ með þeirri von að einhverjir séu aflögufærir um eitthvað til handa þessari vinkonu minni.“ Þannig hefst færsla Kjartans á fésbókinni 17. sept- ember síðastliðinn. Þar vísar hann á umfjöllun í Skessu- horni um fjársöfnun handa Pálfríði Sigurðardóttur frá Stafholtsey í Borgarfirði, sem glímt hefur við veikindi síðasta áratug eða allt frá því hún greindist með vírus í hjarta í nóvember 2000, þá 29 ára gömul. Pálfríður fór í hjartaígræðslu á undan Kjartani, en lá enn á gjörgæslu þegar hann útskrifaðist þaðan. Er langt í frá að batinn hafi verið nógu góður og verður hún ytra einhverjar vikur í viðbót. Pálfríður er einstæð móðir, en sonur hennar var eins árs þegar hún greind- ist. Hann er nú ellefu ára, býr á meðan hjá ömmu sinni í Stafholtsey og sækir skóla í sveitinni. Staða Pálfríðar er erfið fjárhagslega og verða henni flestar bjargir bann- aðar næsta árið í það minnsta. Vinir hennar hafa því stofnað bankareikning, þannig að landsmenn geti styrkt hana á þessum erfiðu tímum í lífi hennar. Banka- númerið er 0326-13-007171 og kennitala 281071- 5649. Söfnun fyrir Pálfríði Það var búið að hringja út í frímínútur þegar Halldóra Ing- ólfsdóttir, eiginkona Kjartans, fékk símtalið frá honum. „Ég var bara að ganga frá og svona, þá hringdi Kjartan í mig með tíðindin. Hann var hættur að keyra, þannig að ég var á bílnum. Ég rauk niður í kjallara og út bara. Ég var búin að vera á tánum. Og ég fór ekkert að hella upp á eins og hann!“ Hún segist ekki hafa verið með kvíðahnút. „Nei, ég hélt fyrst að hann væri bara að grínast. Hann orðaði það þannig, að hann ætlaði að bjóða mér til Svíþjóðar, og var voða ró- legur. Hann hefur alltaf kunnað að koma mér á óvart. Og þá áttaði ég mig á hvað var í gangi.“ Halldóra var fimm mínútur að keyra heim. „Ég hugsaði á leiðinni, að það ætti bara eftir að setja ofan í tösku, og svo bara út. Það kom mér á óvart hvað allt var í miklum róleg- heitum heima. En ástæðan var sú, að okkur var sagt að það lægi ekkert rosalega á, flugið væri ekki fyrr en hálf- fjögur. Ég hélt að það ætti bara að fara einn, tveir og þrír!“ – Var þetta óraunverulegt? „Nei, ég var bara rosalega fegin. Þetta var svakalegur léttir, því ég var búin að heyra, að hann hefði alla burði til að verða svo miklu betri eftir ígræðsluna. Ég fékk líka svo góð- an undirbúning í vor, í kynningum og rannsóknum á Sahl- grenska. En það var skrítið að fara í pínulítilli rellu yfir Atl- antshafið, náttúrlega í fyrsta skipti á ævinni, og með manni sem maður þekkti ekki neitt, segir hún og hlær – og vísar til þess að Kristinn Ingvarsson ljósmyndari var með í för. „En þetta var flott flug,“ bætir hún við. En orðin drukkna næstum í hávaða, sem stigmagnast á bak við hana. „Nú heyrir maður í þyrlunni, sem er að lenda á pallinum fyrir framan,“ hrópar hún. „Ég er á svölunum og það er sól í augnablikinu.“ Svo dettur allt aftur í dúnalogn. Hún segir kveðjukossinn fyrir aðgerðina ekki hafa verið neitt mál. „Það var bara eitthvað, sem þurfti að klára. Svo fékk ég sjúkrastofu til að leggja mig og fór að sofa. Það var ekkert annað hægt en að slaka á. Ég man að ég vaknaði um miðja nótt og þá var þetta ömurlega efni í sjónvarpinu, Miami Vice,“ segir hún og hlær innilega. „Ég horfði á einn þátt af því. Og það eru minningarnar sem ég á af þessari sjúkrastofu! Svo hitti ég Kristin ljósmyndara um morguninn, ætli klukkan hafi ekki verið hálfátta, þannig að ég hvíldist alveg. Þá sagði hann mér að hjartað hefði byrjað að slá klukkan 6.02. Hann var yfir sig hrifinn, ég heyrði það á hon- um, að þetta hefði verið svakaleg lífsreynsla fyrir hann.“ Hún þagnar. „En af því þú spurðir Kjartan hvað hefði verið erfiðast. Jú, jú, að kyssa bless, það var skrítið og erfitt og allt það. En af því að ég vissi að hann kveið því að vakna í öndunarvél, þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.