SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 50

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 50
50 26. september 2010 Eitt regnþungt síðdegi, á skipi úr víðförlum draumi, kom sagnaþulurinn Hómer til Reykjavíkur. Hann gekk frá hafnarbakkanum og tók leigubíl sem ók með hann eftir regngráum götum þar sem dapurleg hús liðu hjá. Við gatnamót sneri sagnaþulurinn Hómer sér að bílstjóranum og sagði: „Hvernig er hægt að ímynda sér að hér í þessu regngráa tilbreytingarleysi búi söguþjóð?“ „Það er einmitt ástæðan,“ svaraði bílstjórinn, „aldrei langar mann jafn mikið að heyra góða sögu og þegar droparnir lemja rúðurnar.“ Þ að er ekki að ástæðulausu að ég hef mál mitt á þessum orðum því hvaðan kemur sagnalistin og hver segir söguna, úr hvaða djúpum og af hvaða tilefni, og ég vil bæta við: Ekki tala um stórar þjóðir og litlar þjóðir, útkjálka, heimshorn og jaðra. Þetta er hnöttur, miðjan hvílir undir iljum þínum og eltir þig hvert sem þú ferð. Þannig eru bókmenntirnar, í eðli sínu alþjóðlegar og sameign alls mannkyns, en um leið kenj- óttar út frá stað og stund. Þær spretta út úr auðninni, rigningunni, þokunni, hinum gráa hversdagsleika, af at- vikum sem orðið hafa, munu verða og eru; og sjálft orðið atvik, eitt og sér, er athyglisvert í skáldskap, augnablik og eilífð, allt í senn, þar sem þú nálgast kjarna veruleikans, og því nær honum sem þú kemst því hærra flýgur andinn. Fiskar og fuglar, vængir og sporðar; þar á milli ert þú, maðurinn, ungi maðurinn í öllum myndum, maður allra tíma, hugarflug þitt tengt veruleikanum órofa böndum. Og öfugt; það er enginn veruleiki án hugarflugs, en víða gætir þess misskilnings að jörðin skiptist í stórar þjóðir og litlar þjóðir, og við eigum að beygja okkur fyrir stóru þjóðunum og vorkenna litlu þjóðunum, og þetta er auð- vitað engin landafræði, bara hagsmunagæsla. Þetta segi ég þegar við fögnum Thor Vilhjálmssyni og tímamótum hans, 85 ára, en samt er hann ungi maðurinn á öllum aldri, sem öðrum fremur getur talað um að miðjan hvíli undir iljum hans, og elti hann hvert sem hann fer, manni sem hefur brunnið af ástríðu, leitað svara og verið rekinn áfram af ákafa sem lætur engan ósnortinn og smitar út frá sér. Ævisaga Thors Vilhjálmssonar gæti hafist með orð- unum, seg mér frá þeim víðförla manni … manni sem enn siglir sinn sjó og ferðast um vegina; og ber með sér for- vitni unglingsins, unga mannsins sem við hittum í bókum hans í ótal myndum á ýmsum aldri, manni sem reynir að ná utan um óreiðu tímans. Þegar hann var eitt sinn spurður að því, í nokkuð niðrandi tóni, hve margir byggju í Reykjavík svaraði hann að þar byggju álíka margir og í Flórens á tímum Dantes, því hann veit að við búum ekki í neinum hriplekum kofa við hliðina á stórhýsum menn- ingarinnar, við þurfum enga lyftu upp í hæðirnar, því menningin er eitt stórt hús þar sem allir á jörðinni búa, en ekki bara ráðamenn sem kalla sig G-20 og koma saman í víggirtum höllum, af því að þeir eru hræddir við heiminn sem þeir stjórna, og ættu því í rauninni ekki að stjórna. Ævisaga Thors Vilhjálmssonar gæti líka hafist með orð- unum, í upphafi var orðið, því tungumálið hefur verið hans annað heimili, orðin og myndirnar, og enginn veit betur að okkar gullaldarbókmenntir urðu ekki til vegna mannfjölda og það sama gildir um þá list sem við sýnum heiminum í dag. Thor fagnar ekki bara 85 ára afmæli sínu á þessum dög- um heldur 60 ára höfundarferli; með vissri einföldun mætti segja að hann hefði verið að skrifa lengur en elstu menn myndu og vegna þess hve nærvera Thors Vil- hjálmssonar er sterk og ég vil leyfa mér að segja sjálfsögð er ég ekki viss um að allir geri sér ljóst hve fjölbreytilegur sá ferill er. Við sjáum ekki alltaf það sem við blasir og nú- tíminn þarf umfram allt að einfalda hlutina og helst eiga bara nokkur stikkorð sem fundin eru í uppsláttarritum og leitarvélum. Ferill Thors Vilhjálmssonar skiptist í margar bækur og mörg tímabil, fyrst ljóðrænar smásögur, jafnvel örsögur, á mörkum ljóðs, ferðabækur, sem eru allt í senn, skáldsögur, smásögur, sagnfræði og blaðamennska, síðan bókin um Kjarval, sem nú er endurútgefin í tilefni afmæl- isins, í þriðja sinn, og boðar að einhverju leyti heimkomu Thors, hins víðförla manns sem ferðast hafði um löndin og borgirnar og fært okkur heiminn í gleði sinni og sorg, en er allt í einu mættur til Íslands, hingað út í ballarhaf þar sem örfáar hræður þrífast á hundaþúfu undir Græn- landsjökli, á staðina sem fóstruðu hinn mikla málara. Þegar bókmenntir eru annars vegar er alltaf erfitt að sjá hvað er framhald af hverju, og eflaust má skoða fyrstu bækurnar sem tilhlaup að þeim næstu, fyrstu skáldsög- unum, um flýti fuglsins og óp bjöllunnar og þær sem á eftir fylgdu. Bókin um Kjarval kom út árið 1964 en frá 1968 til 1980 birtast eftir hann fimm skáldsögur, tvö sagnasöfn og þrjú greinasöfn, en með þeim ryður Thor tignarlegustu aðferðum nútímabókmenntanna inn í okk- ar heim, flytur lærdóma stóru meistaranna á borð við William Faulkner og André Malraux og Albert Camus til okkar sem og boðskap nýstefnumanna. Það er þessi eilífa vangavelta um stöðu mannsins í heiminum og fyrirbærin og fræðin um þau, hvernig hin hlutlæga ytri veröld fellur að huganum og hugurinn að henni, heimurinn skynjaður gegnum orðin og byggður upp sem ljóð, hljómfagurt einsog symfónía. Goðsögur spegla nútímann og nútíminn verður goðsaga þar sem einstæðingar ráfa um veröldina og athafnir endurtaka sig á ólíkum tímum, mismunandi skeiðum, en eru í grundvallaratriðum sömu athafnirnar, allir tímar að eilífu til staðar. Á sínum tíma þóttu þessar bækur torræðar af því að þær stönguðust á við hið viðtekna og fastmótaða, hug- myndina um söguna sem sagði ekki lengur söguna, en það sem er flókið á einum tíma virkar ekki svo flókið á öðrum, það sem fólki finnst flókið í sögum horfir það á í bíó eða upplifir í augnablikum eigin lífs, auk þess sem nú- tíminn hefur misskilið aðgengileika, þeir sem lifa hann reyna að flýja hann, inn í draumaveröld kerfisins, og þeir sem flýja hann geta tjáð hann, í rauninni svipað og sú kenning André Malraux að þú heyrir eigin rödd í háls- inum en annarra með eyrunum. Að minnsta kosti þurfti hið viðtekna nýja nálgun og þá tekur skilningsleysið við um hríð, þar til nýjungin er orðin viðtekin, en skáldskap- urinn smíðar brýrnar þarna á milli, og þær hrynja, og þeim er rutt burt, eða smiðurinn gleymir sér við smíð- arnar, handverkið, natnina, nákvæmnina, en einhvern tíma eða alltaf eða aldrei verður brúin til, hún er kannski alltaf í smíðum, og þá aka atvikin inn í lýsingarnar og lýs- ingarnar renna inn í atvikin og það verður árekstur, upp- lausn og ást … Það er sama hvernig á málin er litið: Thor Vilhjálmsson og hin nútímaskáldin eins og Guðbergur Bergsson, Svava Jakobsdóttir, Steinar Sigurjónsson og fleiri, atómskáldin, ljóðskáldin, Birtingsmenn, þau stokkuðu spilin upp á nýtt, því það var vitlaust gefið, en við sem á eftir komum tókum við þeim og lögðum nýja kapla, sem sumir gengu upp en aðrir ekki eða þeir eru enn í biðstöðu. Það er þannig sem tímarnir tala saman. Modernisminn hlaut að verða umdeildur hér á landi, en hann var jafn nauðsynlegur fyrir því. Þetta tólf ára tímabil frá 1968 til 1980 er tímabil mikillar frjósemi hjá Thor Vil- hjálmssyni. Þessir tímar eru líka átakatímar hámenningar og lágmenningar, þegar hugtök einsog fjöldamenning, menningariðnaður, sönn list og ósönn list, og tími kalda stríðsins, tími þjóðfélagskerfanna, ef þú studdir ekki ann- að kerfið þá studdir þú hitt, einsog ekki væri hægt að vera á móti þeim báðum, trúa á spurningarmerkið og ímynd- unaraflið, vera raunsær og framkvæma hið ómögulega. Sem betur fer leysist þetta allt upp í kjölfar ’68 upprein- anna sem nú koma til okkar á ný, í öðru samhengi, á öðr- um tíma … einsog innblásinn andi skáldskapar, þegar heimurinn, ekki síst fjármálaheimurinn er orðinn hreinn skáldskapur sem draga þarf niður á jörðina, ekki síst með skáldskap, frjósemi og ímyndunarafli … „Hann hafði lært að varast hætturnar og vissi að þær gætu sigrað hann ef hann gleymdi þeim,“ segir í Fljótt, fljótt, sagði fuglinn. Thor bjó í Karfavoginum og býr enn spölkorn frá Voga- skóla, mitt á milli listfræðingsins sem miðlaði heimslist- inni og unga kvikmyndaleikstjórans, sem leitaði til Thors og stofnaði kvikmyndaklúbb og gerði síðan bíómyndir. Þessar bækur sem ég nefndi er Thor að skrifa þegar ég er að alast upp í Vogahverfinu einsog synir hans, í hverfi þar sem börnin í skólanum töldu eitt prósent þjóðarinnar. Ég geri ég mér ekki ljóst hvaða áhrif allur sá gauragangur hefur haft á Thor Vilhjálmsson, en hitt man ég vel hve eft- irminnileg persóna hann var, og bar með sér andblæ, annan andblæ, andblæ umheims og sólar, einskonar bít- nikk í heimi skólastjóra, presta og múrara, en samt hluti þessa sama heims, einsog tattóveruðu sjómennirnir sem gengu um göturnar, konurnar sem kunnu tungumál kattanna, skrýtnu sendisveinarnir og allur fjölbreytileik- inn sem býr í mönnunum og börnunum. Einhver sagði að það hefði verið þorpshálfviti í hverri götu, og hverfið sem var einsog eitt þorp var því eiginlega mörg þorp, þar sem sögurnar gerðust hver með sínu sniði en endurtóku sig, ekki ósvipað og í bókum Thors, bara á öðru plani. Á þess- um tíma vissi maður ekkert hvar maður var staddur, hlutirnir bara gerðust, en sem unglingur hitti ég Thor oft í bíó, í kvikmyndaklúbbunum, á mótmælafundum og mannamótum ýmsum. Ég mætti honum í Austurstræt- inu. Ég hef eflaust reynt að selja honum fréttablaðið Vísi og síðar Neista, blað ungra sósíalista, en þegar ég kynntist Örnólfi gátum við setið með honum og reifað hugmyndir okkar. Orð einsog kynslóðabil voru hlægileg … Sumir okkar reyndu að sannfæra hann um yfirburði sósíalism- ans, en auðvitað þekkti hann kosti hans og ókosti miklu betur en við. Hann sagði okkur frá skáldunum í París, þegar hann las ljóð Sigfúsar Daðasonar við Signubakka og Þankabrot Einar Már Guðmundsson 1809@simnet.is Af víðförlum mönnum Við fögnum Thor Vilhjálmssyni og tímamótum hans, 85 ára, en samt er hann ungi maðurinn á öllum aldri, sem öðrum fremur getur talað um að miðjan hvíli undir ilj- um hans, og elti hann hvert sem hann fer, manni sem hefur brunnið af ástríðu, leitað svara og verið rekinn áfram af ákafa sem lætur engan ósnortinn og smitar út frá sér. Lesbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.