SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Page 50
50 26. september 2010
Eitt regnþungt síðdegi,
á skipi úr víðförlum draumi,
kom sagnaþulurinn Hómer til Reykjavíkur.
Hann gekk frá hafnarbakkanum
og tók leigubíl sem ók með hann
eftir regngráum götum
þar sem dapurleg hús liðu hjá.
Við gatnamót sneri sagnaþulurinn Hómer
sér að bílstjóranum og sagði:
„Hvernig er hægt að ímynda sér
að hér í þessu regngráa
tilbreytingarleysi búi söguþjóð?“
„Það er einmitt ástæðan,“ svaraði bílstjórinn,
„aldrei langar mann jafn mikið
að heyra góða sögu og þegar droparnir
lemja rúðurnar.“
Þ
að er ekki að ástæðulausu að ég hef mál mitt á
þessum orðum því hvaðan kemur sagnalistin og
hver segir söguna, úr hvaða djúpum og af hvaða
tilefni, og ég vil bæta við: Ekki tala um stórar
þjóðir og litlar þjóðir, útkjálka, heimshorn og jaðra. Þetta
er hnöttur, miðjan hvílir undir iljum þínum og eltir þig
hvert sem þú ferð. Þannig eru bókmenntirnar, í eðli sínu
alþjóðlegar og sameign alls mannkyns, en um leið kenj-
óttar út frá stað og stund. Þær spretta út úr auðninni,
rigningunni, þokunni, hinum gráa hversdagsleika, af at-
vikum sem orðið hafa, munu verða og eru; og sjálft orðið
atvik, eitt og sér, er athyglisvert í skáldskap, augnablik og
eilífð, allt í senn, þar sem þú nálgast kjarna veruleikans,
og því nær honum sem þú kemst því hærra flýgur andinn.
Fiskar og fuglar, vængir og sporðar; þar á milli ert þú,
maðurinn, ungi maðurinn í öllum myndum, maður allra
tíma, hugarflug þitt tengt veruleikanum órofa böndum.
Og öfugt; það er enginn veruleiki án hugarflugs, en víða
gætir þess misskilnings að jörðin skiptist í stórar þjóðir og
litlar þjóðir, og við eigum að beygja okkur fyrir stóru
þjóðunum og vorkenna litlu þjóðunum, og þetta er auð-
vitað engin landafræði, bara hagsmunagæsla. Þetta segi ég
þegar við fögnum Thor Vilhjálmssyni og tímamótum
hans, 85 ára, en samt er hann ungi maðurinn á öllum
aldri, sem öðrum fremur getur talað um að miðjan hvíli
undir iljum hans, og elti hann hvert sem hann fer, manni
sem hefur brunnið af ástríðu, leitað svara og verið rekinn
áfram af ákafa sem lætur engan ósnortinn og smitar út frá
sér.
Ævisaga Thors Vilhjálmssonar gæti hafist með orð-
unum, seg mér frá þeim víðförla manni … manni sem enn
siglir sinn sjó og ferðast um vegina; og ber með sér for-
vitni unglingsins, unga mannsins sem við hittum í bókum
hans í ótal myndum á ýmsum aldri, manni sem reynir að
ná utan um óreiðu tímans. Þegar hann var eitt sinn
spurður að því, í nokkuð niðrandi tóni, hve margir byggju
í Reykjavík svaraði hann að þar byggju álíka margir og í
Flórens á tímum Dantes, því hann veit að við búum ekki í
neinum hriplekum kofa við hliðina á stórhýsum menn-
ingarinnar, við þurfum enga lyftu upp í hæðirnar, því
menningin er eitt stórt hús þar sem allir á jörðinni búa, en
ekki bara ráðamenn sem kalla sig G-20 og koma saman í
víggirtum höllum, af því að þeir eru hræddir við heiminn
sem þeir stjórna, og ættu því í rauninni ekki að stjórna.
Ævisaga Thors Vilhjálmssonar gæti líka hafist með orð-
unum, í upphafi var orðið, því tungumálið hefur verið
hans annað heimili, orðin og myndirnar, og enginn veit
betur að okkar gullaldarbókmenntir urðu ekki til vegna
mannfjölda og það sama gildir um þá list sem við sýnum
heiminum í dag.
Thor fagnar ekki bara 85 ára afmæli sínu á þessum dög-
um heldur 60 ára höfundarferli; með vissri einföldun
mætti segja að hann hefði verið að skrifa lengur en elstu
menn myndu og vegna þess hve nærvera Thors Vil-
hjálmssonar er sterk og ég vil leyfa mér að segja sjálfsögð
er ég ekki viss um að allir geri sér ljóst hve fjölbreytilegur
sá ferill er. Við sjáum ekki alltaf það sem við blasir og nú-
tíminn þarf umfram allt að einfalda hlutina og helst eiga
bara nokkur stikkorð sem fundin eru í uppsláttarritum og
leitarvélum. Ferill Thors Vilhjálmssonar skiptist í margar
bækur og mörg tímabil, fyrst ljóðrænar smásögur, jafnvel
örsögur, á mörkum ljóðs, ferðabækur, sem eru allt í senn,
skáldsögur, smásögur, sagnfræði og blaðamennska, síðan
bókin um Kjarval, sem nú er endurútgefin í tilefni afmæl-
isins, í þriðja sinn, og boðar að einhverju leyti heimkomu
Thors, hins víðförla manns sem ferðast hafði um löndin
og borgirnar og fært okkur heiminn í gleði sinni og sorg,
en er allt í einu mættur til Íslands, hingað út í ballarhaf
þar sem örfáar hræður þrífast á hundaþúfu undir Græn-
landsjökli, á staðina sem fóstruðu hinn mikla málara.
Þegar bókmenntir eru annars vegar er alltaf erfitt að sjá
hvað er framhald af hverju, og eflaust má skoða fyrstu
bækurnar sem tilhlaup að þeim næstu, fyrstu skáldsög-
unum, um flýti fuglsins og óp bjöllunnar og þær sem á
eftir fylgdu. Bókin um Kjarval kom út árið 1964 en frá
1968 til 1980 birtast eftir hann fimm skáldsögur, tvö
sagnasöfn og þrjú greinasöfn, en með þeim ryður Thor
tignarlegustu aðferðum nútímabókmenntanna inn í okk-
ar heim, flytur lærdóma stóru meistaranna á borð við
William Faulkner og André Malraux og Albert Camus til
okkar sem og boðskap nýstefnumanna. Það er þessi eilífa
vangavelta um stöðu mannsins í heiminum og fyrirbærin
og fræðin um þau, hvernig hin hlutlæga ytri veröld fellur
að huganum og hugurinn að henni, heimurinn skynjaður
gegnum orðin og byggður upp sem ljóð, hljómfagurt
einsog symfónía. Goðsögur spegla nútímann og nútíminn
verður goðsaga þar sem einstæðingar ráfa um veröldina
og athafnir endurtaka sig á ólíkum tímum, mismunandi
skeiðum, en eru í grundvallaratriðum sömu athafnirnar,
allir tímar að eilífu til staðar.
Á sínum tíma þóttu þessar bækur torræðar af því að
þær stönguðust á við hið viðtekna og fastmótaða, hug-
myndina um söguna sem sagði ekki lengur söguna, en
það sem er flókið á einum tíma virkar ekki svo flókið á
öðrum, það sem fólki finnst flókið í sögum horfir það á í
bíó eða upplifir í augnablikum eigin lífs, auk þess sem nú-
tíminn hefur misskilið aðgengileika, þeir sem lifa hann
reyna að flýja hann, inn í draumaveröld kerfisins, og þeir
sem flýja hann geta tjáð hann, í rauninni svipað og sú
kenning André Malraux að þú heyrir eigin rödd í háls-
inum en annarra með eyrunum. Að minnsta kosti þurfti
hið viðtekna nýja nálgun og þá tekur skilningsleysið við
um hríð, þar til nýjungin er orðin viðtekin, en skáldskap-
urinn smíðar brýrnar þarna á milli, og þær hrynja, og
þeim er rutt burt, eða smiðurinn gleymir sér við smíð-
arnar, handverkið, natnina, nákvæmnina, en einhvern
tíma eða alltaf eða aldrei verður brúin til, hún er kannski
alltaf í smíðum, og þá aka atvikin inn í lýsingarnar og lýs-
ingarnar renna inn í atvikin og það verður árekstur, upp-
lausn og ást … Það er sama hvernig á málin er litið: Thor
Vilhjálmsson og hin nútímaskáldin eins og Guðbergur
Bergsson, Svava Jakobsdóttir, Steinar Sigurjónsson og
fleiri, atómskáldin, ljóðskáldin, Birtingsmenn, þau
stokkuðu spilin upp á nýtt, því það var vitlaust gefið, en
við sem á eftir komum tókum við þeim og lögðum nýja
kapla, sem sumir gengu upp en aðrir ekki eða þeir eru enn
í biðstöðu. Það er þannig sem tímarnir tala saman.
Modernisminn hlaut að verða umdeildur hér á landi, en
hann var jafn nauðsynlegur fyrir því. Þetta tólf ára tímabil
frá 1968 til 1980 er tímabil mikillar frjósemi hjá Thor Vil-
hjálmssyni. Þessir tímar eru líka átakatímar hámenningar
og lágmenningar, þegar hugtök einsog fjöldamenning,
menningariðnaður, sönn list og ósönn list, og tími kalda
stríðsins, tími þjóðfélagskerfanna, ef þú studdir ekki ann-
að kerfið þá studdir þú hitt, einsog ekki væri hægt að vera
á móti þeim báðum, trúa á spurningarmerkið og ímynd-
unaraflið, vera raunsær og framkvæma hið ómögulega.
Sem betur fer leysist þetta allt upp í kjölfar ’68 upprein-
anna sem nú koma til okkar á ný, í öðru samhengi, á öðr-
um tíma … einsog innblásinn andi skáldskapar, þegar
heimurinn, ekki síst fjármálaheimurinn er orðinn hreinn
skáldskapur sem draga þarf niður á jörðina, ekki síst með
skáldskap, frjósemi og ímyndunarafli … „Hann hafði lært
að varast hætturnar og vissi að þær gætu sigrað hann ef
hann gleymdi þeim,“ segir í Fljótt, fljótt, sagði fuglinn.
Thor bjó í Karfavoginum og býr enn spölkorn frá Voga-
skóla, mitt á milli listfræðingsins sem miðlaði heimslist-
inni og unga kvikmyndaleikstjórans, sem leitaði til Thors
og stofnaði kvikmyndaklúbb og gerði síðan bíómyndir.
Þessar bækur sem ég nefndi er Thor að skrifa þegar ég er
að alast upp í Vogahverfinu einsog synir hans, í hverfi þar
sem börnin í skólanum töldu eitt prósent þjóðarinnar. Ég
geri ég mér ekki ljóst hvaða áhrif allur sá gauragangur
hefur haft á Thor Vilhjálmsson, en hitt man ég vel hve eft-
irminnileg persóna hann var, og bar með sér andblæ,
annan andblæ, andblæ umheims og sólar, einskonar bít-
nikk í heimi skólastjóra, presta og múrara, en samt hluti
þessa sama heims, einsog tattóveruðu sjómennirnir sem
gengu um göturnar, konurnar sem kunnu tungumál
kattanna, skrýtnu sendisveinarnir og allur fjölbreytileik-
inn sem býr í mönnunum og börnunum. Einhver sagði að
það hefði verið þorpshálfviti í hverri götu, og hverfið sem
var einsog eitt þorp var því eiginlega mörg þorp, þar sem
sögurnar gerðust hver með sínu sniði en endurtóku sig,
ekki ósvipað og í bókum Thors, bara á öðru plani. Á þess-
um tíma vissi maður ekkert hvar maður var staddur,
hlutirnir bara gerðust, en sem unglingur hitti ég Thor oft í
bíó, í kvikmyndaklúbbunum, á mótmælafundum og
mannamótum ýmsum. Ég mætti honum í Austurstræt-
inu. Ég hef eflaust reynt að selja honum fréttablaðið Vísi
og síðar Neista, blað ungra sósíalista, en þegar ég kynntist
Örnólfi gátum við setið með honum og reifað hugmyndir
okkar. Orð einsog kynslóðabil voru hlægileg … Sumir
okkar reyndu að sannfæra hann um yfirburði sósíalism-
ans, en auðvitað þekkti hann kosti hans og ókosti miklu
betur en við. Hann sagði okkur frá skáldunum í París,
þegar hann las ljóð Sigfúsar Daðasonar við Signubakka og
Þankabrot
Einar Már Guðmundsson
1809@simnet.is
Af víðförlum mönnum
Við fögnum Thor Vilhjálmssyni og tímamótum hans, 85 ára, en samt er hann ungi
maðurinn á öllum aldri, sem öðrum fremur getur talað um að miðjan hvíli undir ilj-
um hans, og elti hann hvert sem hann fer, manni sem hefur brunnið af ástríðu, leitað
svara og verið rekinn áfram af ákafa sem lætur engan ósnortinn og smitar út frá sér.
Lesbók