SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 27
26. september 2010 27
J
óna Ingibjörg leit dagsins ljós þann
27. október 1960 á fæðingarheimilinu á Eiríksgötu en þar ól hún frumburð
sinn, Kára Svan, 25 árum síðar. Jóna er dóttir Sigrúnar Jónsdóttur og Jóns
Reynis Eyjólfssonar og er næstelst af fimm systkinum. Erfðamengið er vel
hrist saman en hún á ættir sínar að rekja úr öllum landsfjórðungum. Jóna ólst upp í
austurhluta höfuðborgarinnar fram að níu ára aldri en þá flutti fjölskyldan til
Garðabæjar. Framan af ævi var hún hlédræg en það hefur rjátlast af henni. Mann-
leg náttúra hefur ætíð verið Jónu hugleikin sem lýsir sér best í því að eftir að hún
lauk prófi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands setti hún stefnuna á starfsvettvang
innan sexólógíunnar. Viðfangsefni kynfræði er kynverund mannsins en nær verð-
ur varla komist að kjarna mannsins að mati Jónu. Lífsförunautur hennar er Þórir
Jóhannsson tónlistarmaður og eiga þau saman dótturina Sólrúnu Klöru. Á síðasta
ári kom út hjá bókaforlaginu Opnu fræðiritið Kynlíf – heilbrigði ást og erótík eftir
hana. Jóna hefur starfrækt Kynstur ráðgjafarstofu frá árinu 2008. Í næsta mánuði
fagnar hún hálfrar aldar afmæli og þá verður kátt í koti.
Sérfræðiviðurkenningin í höfn og skálað í kampavíni með sexólógíukollegum af því tilefni. Í heimsókn á Englandi hjá Guðrúnu systur, Julian og þríburunum.
Á fæðingarheimilinu með frumburðinn, Stefnir bróðir í heimsókn.
Með uppistand á skemmtikvöldi í
Flensborg á menntaskólaárunum.
Kynfræðingur á ferð og flugi
Myndaalbúmið
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir er hjúkrunar- og kyn-
fræðingur og hefur hún um árabil uppfrætt Ís-
lendinga um kynverund mannsins og hið marg-
snúna fyrirbæri sem kynlíf er.
Jólaboð í Ægisgrundinni árið 1970, Jóna neðst til vinstri.
Barnshafandi að Sólrúnu á leiðinni í starfs-
mannapartí árið 1997 í Danmörku.
Með Öldu, Jóni Özuri og Gretti í Lónsöræfum árið 1993.
Handleggsbrotin á báðum vegna jað-
aríþróttameiðsla árið 2008.
Í útreiðartúr með Þóri og Sólrúnu.