SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 53

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 53
26. september 2010 53 M eð mínum grænu augum er önnur ljóðabók Sverris Norland og var hún BA-verkefni hans í ritlistarnámi við Háskóla Íslands. Bókin skiptist í frumsamin ljóð eftir Sverri með ýmsum stíl- brögðum og í þýðingar á ljóðum eftir Robert Bolaño, Richard Brautigan, Charles Bukowski, Wislöwu Szymborska, Allen Ginsberg, Paul Éluard, Langston Hughes og Carl Sandburg. Sverrir sagði um bók sína í viðtali hér í blaðinu að ljóðlist mætti vera djúp og hræra við fólki en hún mætti líka vera skemmtileg. Þegar Með mínum grænu augum er lesin er augljóst að Sverrir vill hafa ljóð sín skemmtileg og hann virðist skemmta sér vel við að semja þau. Ljóðin eru létt, það er mikill leikur í þeim og fyrir vikið er gaman að lesa þau. Ljóðin eru líka tilgerðarleg og sumum gæti þótt þessi ungi maður vera svo- lítið uppblásinn en í gegnum til- gerðina má sjá skáldið sem er að leika sér, hann yrkir í marg- víslegum stíltegundum og til- gerðarlegi stíllinn er einn af þeim og þau ljóð eru líka skemmtileg. Eins og með öll ljóð verður lesandinn að kíkja undir þau, sjá hvað að baki býr. Bestur finnst mér Sverrir þeg- ar hann yrkir um daginn og veg- inn og pælir í manneskjunni eins og í ljóðinu „Á meðan aðrir fara í vinnuna fer ég í hundana“, skemmtilegar pælingar settar upp á skemmtilegan hátt. Önnur góð ljóð eru „Dægradvöl“, „Þeir vissu hvað þeir sungu“ og „Mátulegur hraði“ sem er í mestu uppáhaldi hjá mér auk ljóðsins „Ofsjónir“ þar sem hann semur um töfrana í hinu ein- falda. Það fer Sverri vel úr hendi að semja myndasöguljóð, þau eru lífleg hjá honum og uppsetn- ing ljóðanna virkar vel. Minnst spennandi finnst mér frásagn- arljóðin eins og „Sorprit“, „Veg- ir ástarinnar“, „Manskipti“ og „Njóttu hverrar samloku“. Framtíðin og betri heimur er Sverri hugleikinn. Hann vill augljóslega sjá meiri bóklestur og í ljóðinu „Heimsyfirráð ís- lensku þjóðarinnar“ segir hann í ævintýrastíl frá því hvernig ís- lenska þjóðin sigraði heiminn. Yndisleg háðsádeila. Það hefur verið lenska hjá ungum ljóðskáldum að reyna að yrkja sig sem lengst frá ríminu, þau hafa átt það til að líta með fyrirlitningu á þetta „gamla“ ljóðform og notað það helst í háðsyrkingar. Sverrir lætur nokkur rímuð ljóð fljóta með og verð ég að segja að mér fannst þau skrambi góð og skemmtileg, þetta er form sem hann hefur augljóslega vald á. Í ríminu má sjá ljóð í heilræðavísustíl, heim- þrárljóð og lofrullu um náttúr- una í anda gömlu meistaranna, er það augljóslega ort í háði sem er allt í lagi þegar svona vel tekst til. Frumsömdu ljóðin skiptast í þrjá hluta og finnst mér minnst til þriðja hlutans koma, ég fékk á tilfinninguna að Sverrir hefði ekki haft jafngaman af að yrkja þau og ljóðin sem á undan koma, undantekning er ljóðið „Aft- urhvarf“ sem býr yfir áþreif- anlegri hlýju. Bókin endar á þýddu ljóð- unum og þar sem ég hafði ekki frumútgáfurnar af þeim undir höndum á ég erfitt með að segja eitthvað um þau. Ég get þó sagt að ljóðaval Sverris er óhemjugott og þýðingarnar líklega líka því ljóðin eftir þessi erlendu skáld heilluðu mig mikið, eins og öll bókin. Skemmtilegar yrkingar Bókmenntir Með mínum grænu aug- um – Sverrir Norland bbbmn Ljóð Nykur 2010. Ingveldur GeirsdóttirLjóðskáldið Sverrir Norland. Verið velkomin LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar 27. ágúst – 24. október 2010 Að elta fólk og drekka mjólk Að grína í samfélaginu - Málþing Laugardagur 25. sept. kl. 15 Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis ÁR: málverkið á tímum straumvatna Sigtryggur Bjarni Baldvinsson Þorvaldur Skúlason Kaffistofa leskró - barnahorn OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði Cars in rivers - ÓLAFUR ELÍASSON 16.9. - 7.11. 2010 Aðflutt landslag - PÉTUR THOMSEN 16.9. - 7.11. 2010 ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 Ókeypis aðgangur MAÐURINN ANDSPÆNIS NÁTTÚRUNNI: Sunnudagsleiðsögn kl. 14 um allar sýningar safnsins í leiðsögn Rakelar Pétursdóttur safnafræðings Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna. Myndgerð: Páll Steingrímsson. Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar LJÓS // NÓTT. Vinsamlega snertið. Verk Guðmundar R. Lúðvíkssonar Sýningin stendur til 17. október nk. Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com „SIGGA HEIMIS“ 11.9.2010 - 30.1. 2011 Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Verslunin Kraum í anddyri og kaffiveitingar. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Af lifun Leiðsögn um sýningu Magnúsar Árnasonar lau- gardaginn 11. september kl. 14. Opið mán.–fim. kl. 10–19, fös. 11-17 og lau. 13-17. Ókeypis aðgangur. www.natkop.is Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn „9 - samsýning ungra myndlis- tarmanna í Gerðarsafni“ Sýnendur eru: Berglind Jóna Hlynsd., Bjarki Bragason, Etienne de France, Gunndís Ýr Finnbogad., Helga Björg Gylfad., Logi Bjarnason, Páll Haukur Pálson, Steinunn Gunnlaugsd., Styrmir Guðmundson. Sýningarstjóri er Birta Guðjónsd. Gerðarsafn er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ASÍ 4. til 26. september SVAVA BJÖRNSDÓTTIR OG INGA RAGNARSDÓTTIR „Tíminn fer ekki, hann kemur“ Opið 13-17 alla daga nema mánud. Aðgangur ókeypis Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is GEYSISSTOFA – MARGMIÐLUNARSÝNING Í nútímalegu margmiðlunar- safni á Geysi er að finna margskonar fróðleik um náttúru Íslands. OPIÐ: alla daga 10.00-17.00. AÐGANGSEYRIR: 1.000 KR. Afsláttur fyrir námsmenn, eldri borgara og hópa Geysir í Haukadal, sími 480 6800 www.geysircenter.is Fjölbreyttar sýningar: Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Sögustaðir – í fótspor W.G. Collingwoods Endurfundir – fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna Klippt og skorið – um skegg og rakstur Fram til fortíðar – frá Byggðasafninu Hvoli, Dalvík Fjarskiptasafnið við Suðurgötu Opið sunnudaga 11-17 Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.