SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 42

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 42
42 26. september 2010 RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK T íbetar hafa í yfir hálfa öld barist fyrir sjálfstæði frá Kína án ár- angurs. Árið 1959 gerðu Tíbetar misheppnaða uppreisn og Dalai Lama, andlegur leiðtogi þjóðarinnar, þurfti að flýja land ásamt ríkisstjórn sinni og þúsundum stuðningsmanna sinna. Á þeim áratugum sem liðið hafa frá því þetta var hafa mörg hundruð þúsund Tíbetar látið lífið af völdum her- náms Kínverja. Leikstjóri myndarinnar, eða höfundur, Þjóðverjinn Dirk Simon, vann í sjö ár að myndinni og þurfti á endanum að vinna úr átta klukkustundum af myndefni en tökur fóru fram víða, m.a. í Tíbet, Kína, Indlandi og San Fransisco. Blaðamaður ræddi við Simon um myndina sem bönnuð hefur verið í Kína, eins og menn geta ímyndað sér. Simon segir um fjögur ár hafa farið í tökurnar sjálfar, sem hlýtur að teljast býsna langur tími. „Ég ætlaði ekki að eyða svo löngum tíma í þetta, mér fannst tvö til þrjú ár frekar langur tími. En sag- an tók breytingum, varð umfangsmeiri og flóknari, þess vegna tók þetta svo langan tíma,“ segir Simon. Í upphafi hafi hann ekki ætlað að fjalla um ákveðnar hliðar málsins en áttað sig á því þegar líða tók á tökuferlið að þeim yrði að gera skil. -Það hlýtur að hafa verið erfitt að klippa myndina? „Það var það, við eyddum, að ég held, fimmtán mánuðum í eftirvinnsluna. Fyrstu tveir mánuðirnir og hálfum betur fóru í að raða efninu en tökur stóðu enn yfir þegar klipping hófst. En þetta tók fimmtán mánuði sökum þess hversu mikið efni við vorum með í höndunum.“ Skæruliðatökulið -Þurftuð þið að mynda í laumi í Tíbet? „Það var mjög áhugavert. Við vorum ekki með tökuleyfi og fórum um landið sem ferðamenn. Við fórum huldu höfði, vorum eiginlega eins og skæruliðar. Við vorum með falda myndavél en líka tvær litlar háskerpumyndatökuvélar og þrí- fót. Við tókum upp fyrir allra augum í Tíbet og Lhasa (höfuðborg Tíbet) og fólk varaði okkur við því að myndavélar yrðu teknar af okkur ef við tækjum myndir af kínverskum, vopnuðum hermönnum. Ég ákvað að láta á þetta reyna, við tókum áhættuna. Hermenn tóku eftir því að við vorum að taka myndir og spurðu hvað við værum að gera en okkur tókst að tala okkur út úr því, með aðstoð leiðsögu- mannsins okkar. Við komumst upp með svo margt að ég átti erfitt með að trúa því. Satt að segja var erfiðara að mynda í Lhasa án hermanna en með þeim, því þeir voru allt um kring,“ segir Simon. Þetta hafi vissulega verið áhættusamt en þó tekist. „Við reyndum að láta líta út fyrir að við værum ferðamenn og sögð- um að þetta væri háskólaverkefni.“ Sim- on segir að það sama hafi átt við um tök- urnar í Peking, þau hafi tekið upp án leyfis í Forboðnu borginni, Sumarhöll- inni og fleiri stöðum, m.a. uppi á þökum þegar opnunarhátíð Ólympíuleikanna 2008 stóð yfir. Sendiráðið mótmælir sýningu -Þú ert sennilega ekki velkominn í Kína núna? „Mig langar reyndar að komast að því hvort svo sé. Þú veist kannski af því að kínverska sendiráðið á Íslandi hefur mótmælt sýningu myndarinnar (á RIFF) og við ætlum að hafa Asíufrumsýningu á myndinni í næsta mánuði í Taívan. Ég hef ekkert heyrt af mótmælum tengdum henni en það verður áhugavert að sjá hvort kínversk stjórnvöld finni sig knúin til að tjá sig um hana.“ -Í myndinni kemur berlega í ljós að það er klofningur innan raða stuðnings- manna Dalai Lama, sumir vilja að landið fái sjálfstjórn en aðrir sætta sig ekki við annað en sjálfstæði og enn aðrir styðja ofbeldisfullar aðgerðir gegn stjórninni í Kína. Þetta hlýtur að veikja baráttuna. „Algjörlega. Ég held að á endanum hafi það orðið meginefni myndarinnar, án þess að ég hafi ákveðið það í upphafi. Það vantar upp á samheldni og forystu, sem er kaldhæðnislegt í ljósi þess að Tíbetar hafa Dalai Lama, það vantar mikið upp á pólitíska forystu. En vegna þessa hefur frelsishreyfingin orðið virkilega máttlítil, nánast máttlaus, og á seinustu tuttugu árum hefur ekkert breyst. Dalai Lama sagði m.a.s. fyrir ekki svo löngu að ástandið hefði bara versnað. Ég er al- gjörlega sammála honum og á þetta er bent í myndinni, að jafnvel þó að frels- ishreyfingin njóti stuðnings frá Vest- urlöndum þá mun henni ekkert miða nema eitthvað breytist innan hennar.“ Kínverskir embættismenn þora ekki að tjá sig -Reyndir þú að fá kínverska embætt- ismenn til að segja sína skoðun á sjálf- stæðisbaráttunni í myndinni? „Ég hef séð yfirlýsingar kínverskra stjórnmálamanna og ég veit að kínversk- ur stjórnmálamaður myndi ekki vilja stefna starfi sínu í hættu og myndi aðeins segja það sem kommúnistaflokkurinn ætlaðist til að hann segði. Ég vissi að þeir myndu bara líta bjánalega út eða jafnvel verr en þeir gera nú þegar. Mér tókst með aðstoð vinar míns að ná sambandi við háttsettan embættismann í Kína og spurði hann hvort hann vildi tjá sig. Í fyrstu virtist hann áhugasamur en sagð- ist svo ekkert geta sagt um málið,“ segir Simon. Því hafi hann heldur kosið að sýna viðtöl við kínverska listamenn og venjulega Kínverja, til að sýna að Kín- verjar séu ekki vont fólk og vilji Tíbetum ekki illt. Að Kínverjar séu friðelskandi fólk. -Kínverska kommúnistastjórnin hefur greinilega engan áhuga á því að veita Tíbetum aukið frelsi, sjálfstjórn eða sjálf- stæði. Mun Tíbet nokkurn tíma hljóta sjálfstæði? „Kínverjar hafa enga ástæðu til að fara. Það er enginn þrýstingur í þá átt. Eins og þetta er í dag mun alþjóða- samfélagið ekki ýta á eftir því að Kín- verjar yfirgefi Tíbet, þvert á móti. Kín- verjar taka alla kverkataki, m.a. Þýskaland. Angela Merkel tók á móti Dalai Lama 2008 og það vakti hörð við- brögð Kínverja og á endanum reyndu Þjóðverjar að bæta stjórnvöldum í Kína þetta og Kínverjar fengu þá til að við- urkenna að Tíbet og Taívan væru hluti af Kína. Þannig að þegar allt kom til alls var meiri skaði unninn en gagn. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum. En til að svara spurningu þinni þá verður afstaða stjórnvalda á Vest- urlöndum að breytast og tíbeska sjálf- stæðishreyfingin að taka sig taki, annars verður engin breyting á.“ Kommúnistastjórninni líkt við nasista -Í lok myndarinnar líkir einn viðmæl- enda þinna aðgerðum kínverskra stjórn- valda í Tíbet við útrýmingu nasista á gyðingum. Ertu sammála þeirri samlík- ingu? „Ég get ekki spáð um framtíðina. Þetta var mikið rætt þegar við vorum að vinna myndina, hvort þetta ætti að vera með eða ekki af því þetta væri afar ögrandi,“ svarar Simon. En hann hafi litið svo á að hann ætti ekki að meta það. Eftir alla þessa áratugi án raunverulegs stuðnings séu Tíbetar enn kúgaðir. „Í tíbeskum spítölum eru börn enn andvana fædd af því kínverskir læknar og hjúkr- unarkonur neita að hjálpa og gera það sem til þarf. Til eru sannanir fyrir því og dæmi um að mæður og börn sem hægt hefði verið að bjarga en Kínverjar gera það hreinlega ekki. Til eru myndbönd sem sýna það, þar sem ákveðið er að hjálpa ekki og börn fæðast andvana,“ segir Simon. Þó ekki sé helför á ferðinni eins og hjá nasistum, sem drápu sex milljónir gyðinga, minni aðgerðir kín- verskra stjórnvalda í Tíbet á menning- arlegt þjóðarmorð og jafnvel raunveru- legt þjóðarmorð. „Því ákvað ég að hafa þetta með. Ég held að þessi staðhæfing sýni líka hversu örvæntingarfullir Tíb- etar eru, að fá heiminn til að sjá hvað er að koma fyrir þá. Við erum langþreytt á öllum þessum slæmu fréttum, hvað þurfa þeir að gera til að fólk fari að hlusta á þá og skilja hvað er á ferðinni?“ segir Simon. Efast hafi verið um þessa stað- hæfingu en myndinni hafi aldrei verið ætlað að svara öllum spurningum heldur spyrja réttu spurninganna: Er þetta í raun og veru helför? Er þetta þjóð- armorð? Hvað er að gerast? Fólk þurfi að hugleiða það og tilgangurinn með mynd- inni sé að fá fólk til að hugsa. Drekinn sem gleypti sólina Heimildarmyndin When the Dragon Swallowed the Sun fjallar um áratugalanga sjálfstæðisbar- áttu Tíbeta. Í myndinni er kommúnistastjórninni í Kína líkt við nasista. Það tók sjö ár að gera myndina, allt frá því hugmyndin kviknaði. Helgi Snær Sigurðssonhelgisnaer@mbl.is Tíbetar krefjast sjálfstæðis á fjölmennum útifundi í San Fransisco árið 2008. Höfundur myndarinnar, Dirk Simon, er fylgj- andi sjálfstæðisbaráttu Tíbeta en þó ekki bjartsýnn á að landið verði sjálfstætt, eins og staðan er í dag. Rætt er við hinn 18 ára gamla Lhagyari Trichen Namgyal Wangchuk í heimild- armyndinni en hann er 18. afkomandi hinna miklu konunga Tíbet, skv. trúar- brögðum þar í landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.