SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Qupperneq 10

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Qupperneq 10
10 26. september 2010 É g ætla ekki að minnast einu orði á landsdóm og þær deilur sem nú standa á Alþingi um hugsanlega ráðherraábyrgð í þessum pistli. Ég ætla að vera á jákvæðu nótunum, bara á þeim, enda hef ég verið spurð að því hvort ég hafi aldrei tilefni til þess að skrifa eitthvað jákvætt. Ég ætla að leyfa mér að fjalla um frammistöðu míns liðs í sumar, meistaraflokks Víkings í fótbolta. Víkingur vann 1. deildina sl. laug- ardag og leikur þess vegna í úrvalsdeild að ári. Það er okkur Víkingum mikið fagnaðarefni. Meira að segja sam- einuðumst við Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar margumræddu, í gleðinni á vellinum í Víkinni sl. laugardag, þegar Víkingar lögðu lið HK að velli með 3-1-sigri, mjög svo verðskuld- uðum. Sannast sagna hefur það verið afskaplega ánægjulegt að fylgjast með Víkingum í sumar. Ég hef mætt á alla leiki félagsins nema tvo. Vissulega hafa skipst á skin og skúrir, en skinið hefur þó verið mun meira, eins og lokatölur segja til um. Það er margt sem er ánægjulegt við frammistöðu Víkinga í sumar. Í fyrsta lagi er aðstaða félagsins í Vík- inni í Fossvogsdal svo glæsileg orð- in að hún hæfir bara úrvalsdeild- arliði. Þeir eru margir Víkingarnir í gegnum tíðina, sem hafa lagt hönd á plóginn við uppbyggingu þessarar glæsilegu aðstöðu, vallanna, stúk- unnar, félagsheimilisins og íþrótta- salarins. Í öðru lagi hafa stuðningsmenn Víkings sýnt stuðning sinn í verki með því að mæta á völlinn og hvetja sína menn. Liðsmenn Víkings hafa margsinnis sagt í sumar að þeir litu á okkur stuðningsmenn sína sem tólfta leikmanninn og hygg ég að það séu engar ýkjur. Mig langar sérstaklega að nefna einn hóp sem hefur verið iðinn við að mæta, en það er fjórði flokkur karla í fótbolta Víkings. Þessir ungu, glöðu, prúðu og flottu strákar hafa verið til hreinnar fyrirmyndar á leikjunum. Þeir mæta saman, klæddir Víkingstreyjum, eru með undirbúin stuðningsslagorð á hreinu, hrópa, kalla og hvetja sína menn áfram, en eru alltaf prúðmennskan uppmáluð. Enginn dóna- skapur í garð andstæðingsins þar á ferð, heldur íþróttamannsleg og prúðmannleg framkoma í hvívetna, þannig að við Víkingar sem eldri erum höfum fyllst stolti og bjartsýni hvað varðar framtíð þessa ágæta félags, sem nú er 102 ára gamalt. Þá vil ég nefna liðið sjálft. Flestir leikmannanna eru ungir og efni- legir, aldir upp í félaginu og eru nú að uppskera árangur erfiðisins. Vitanlega eru einstaka leikmenn meira en efnilegir. Þeir eru bara þegar orðnir góðir, en margir strákanna eru fækkir á árunum 1988 til 1990, þannig að þeir eiga vonandi mörg góð og árangursrík fót- boltaár framundan. Í bland eru svo reynsluboltar eins og Helgi Sigurðsson, sem ólst upp í Víkingi, fór svo utan í atvinnumennsku, er nú kominn aftur til síns uppeldisfélags og hefur svo sannarlega sýnt það í sumar, að þótt hann sé 36 ára gamall á hann heilmikið eftir á vellinum. Annar reynslubolti, Daníel Hjaltason, sem er að vísu aðeins 32 ára gamall, leikur nú einu sinni þannig knattspyrnu, að það er oftast hrein unun að horfa á leik hans og knattmeðferð. Marteinn Briem sprakk út eins og rós, þegar líða tók á sumarið; Þorvaldur Sveinn Sveinsson lauk vertíðinni sl. laugardag með því að skora tvennu. Frábært hjá honum. Viktor Örn Guðmundsson, láns- maður frá FH, hefur staðið sig með mikilli prýði í allt sumar. Horn- spyrnur hans og fríspyrnur eru stórhættulegar og vona ég svo sann- arlega að hann sé kominn til að vera. Dofri Snorrason, lánsmaður frá KR, gerði sömuleiðis góða hluti á meðan hann var með félaginu en KR innkallaði hann aftur til sín á lokasprettinum í úrvalsdeild. En að megninu til eru strákarnir okkar í Víkingi uppaldir hjá fé- laginu og það er ekkert fararsnið á þeim núna úr röðum félagsins, því mér skildist sl. laugardag á þeim, að þeir hlökkuðu til þess að fá að spreyta sig í úrvalsdeild að ári. Við stuðningsmenn þeirra hlökkum líka til að fylgjast með þeim og hvetja til dáða. Víkingar í vígahug Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Fölskvalaus Víkings-fögnuður. ’ Þessir ungu, glöðu, prúðu og flottu strákar hafa verið til hreinn- ar fyrirmyndar á leikjunum 7:07 Dagurinn gat ekki byrj- að verr. Eiginkonan leggur fram hljóðupptöku frá nýliðinni nótt sem sönnunargagn í „Stóra hrotumálinu“. Þó ljós í myrkr- inu að sárið á fæti Þóru, 7 ára, er betra í dag en í gær – sú stutta datt í skólanum í gær og um fátt annað rætt. 8:28 Skunda með Gunnsa, 4 ára, í leikskólann. Mikill spenningur á þeim bæ þar sem Vesturborg á að koma í heim- sókn í Þjóðleikhúsið á Sögu- stund seinna um daginn (nei, þetta var ekki planað fyrir greinina!). 9:00 Vinnudagurinn hefst á vikulegum skipulagsfundi. Allir deildarstjórar mættir. Aðal- umræðan snýst um nýsamda mannauðsstefnu leikhússins því að hér á að vera gott að vinna! 10:02 Næsti fundur. Komið að lokasprettinum við gerð 60 ára afmælismyndar sem Jón Karl Helgason er að filma. Ís- landsklukkan er hryggj- arstykkið í myndinni og nú þarf t.d. að ná lifandi myndum af Benedikt Erlingssyni í hlutverki Arnas Arnæusar en hann stekk- ur í hlutverkið í nokkrum sýn- ingum. 11:15 Kíkti inn á æfingu á Finnska hestinum. Leikararnir fóru á kostum – en engu að síð- ur tókst mér að stela senunni þegar síminn minn glumdi yfir salinn. Læddist út við litlar vin- sældir. 12:58 Vesturborgarhóp- urinn kemur askvaðandi yfir portið í grænu vestunum sín- um. Minn maður er hvort tveggja í senn montinn og feiminn þegar hann sér pápa sinn. Mínum manni fannst leikritið „alveg frábært“ en viðurkenndi þó að hafa verið dálítið smeykur við tröllkerl- inguna. 15:05Sest niður með Núma kokki til að ræða um veitingar fyrir hópa sem koma á sýn- ingar. Númi er snillingur í eld- húsinu. Fyrir þá sem fá sér mat í Þjóðleikhúskjallaranum fyrir sýningu á leikhúsferðin að vera veisla fyrir bæði andann og efnið. 16:15 Skaust upp á leik- húsloft þar sem Fíasól galdraði fram eina útvarpsauglýsingu – ekki mikið mál fyrir snilling eins og hana. 18:45 Mamma kemur í þriðjudagsmat. Fjörugar um- ræður yfir matnum og ekki síð- ur uppvaskinu – þetta er eitt af örfáum heimilum á landinu þar sem ekki er uppþvottavél og því praktíserað gamalt en sam- ræðuhvetjandi verklag. Bíð allt- af eftir því að Þjóðminjasafnið hafi samband við okkur. 20:10 „Að duga eða drep- ast“ er besti sjónvarpsþáttur í heimi – eða það finnst okkur Þóru allavega. Augun verða eins stór og Sívali turninn í mestu fimleikaspennuatriðunum. 23:30 Eftir að hafa leitað af mér allan grun um að það séu hljóðupptökutæki í svefn- herberginu leggst ég á koddann og segir ekki meira af mér þann daginn. Dagur í lífi Þóris Hrafnssonar, markaðs- og kynningarstjóra Þjóðleikhússins Morgunblaðið/Ernir Hrotur og leikhúslíf www.noatun.is Nóatúni Nýttu þér nóttina í Verslanir Nóatúns eru opnar allan sólarhringinn

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.