SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Page 11

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Page 11
26. september 2010 11 Hönnun H aldin var samkeppni um hönnun allra lausamuna í Menningarhúsið Hof, það er að segja öll húsgögn og innanstokksmuni fyrir utan föst sæti í sýning- arsalnum. Það var Reynir Sírusson, húsgagnahönn- uður, sem fór með sigur af hólmi í keppninni og hannaði hann allt frá útibekkjum til stóla á kaffi- og veitingahús. Sérstakur Akureyrarstóll „Það er algjört draumaverkefni að fá að hanna svona inn í heilt hús. Þetta byrjaði sem hönnunarsamkeppni og var mjög skemmtilegt ferli sem tók langan tíma en á því urðu líka til margir nýir hlutir. Í þessu tilfelli var engin klausa um það að ég gæti ekki nýtt hönnunina annars staðar og mun ég klárlega gera það að einhverju leyti. En þarna eru líka fullt af hlutum sem voru sérhannaðir fyrir húsið og heildarútlit þess. Ég gerði t.d. sér- stakan stól á kaffihúsið sem ég kalla Akureyrarstólinn. Í honum er mikill karakter en hann vitnar í glugga húss- ins sem eru dálítið spes og í bakinu er líka falinn bókstafurinn A. Þessi stóll er til í nokkrum útgáfum en á veit- ingastaðnum á efri hæðinni er hann með heilbólstruðu baki og svo voru nokkrir hannaðar til að standa úti og þeir eru bólstraðir meðsérstöku, vatns- heldu efni,“ segir Reynir. Skírskotað til náttúrunnar Hönnun Reynis dreifist víða en það sem er miðsvæðis í húsinu í Gjánni er hvað mest áberandi. Utandyra hannaði Reynir útibekki og ytri merkingar en inni í rýminu hannaði hann meðal annars rusladalla, standborð, bari, miðasölu og fundarborð og stóla ásamt innimerkingum. Húsgögn eins og afgreiðsluskenkar fylgja flæði hússins sem Reynir segir að vissu leyti vera eins og hringleikahús þar sem alltaf sé verið að færa og breyta. Flestir hlutirnir eru sérhannaðir fyrir Hof eins og ný barnalína með barnastól, kollum og borði en nokkrir hlutir voru mjög nýlegir úr smiðju Reynis. Svarti liturinn er ríkjandi í hönnuninni en Reynir lífgaði upp á hann með mjög skærum jarðbundnum litum. Í vali á þeim skírskotar hann til náttúrunnar eins og með mosagrænu og rauðbleiku eins og í blóðberginu. Á kaffihúsinu eru sessurnar til að mynda í skærari lit á móti svörtum. Þá er á kaffiborðinu fótur fyrir miðju og síðan þrjár stakar lappir sem settar eru óreglulega undir og vísa þannig í stuðlabergið utan á húsinu. Allt á sama stað „Eins og allt sem ég hanna fór öll smíðin fram hér heima í einum tólf sérhæfðum fyrirtækjum. Nærri allt hráefnið kemur þó að ut- an en er eins óunnið og hugsast getur þannig að á bak við hvern hlut er samt sem áður 80% íslensk vinna. Í einn staflastól, sem notaðir eru í ráðstefnusölunum, þarf til að mynda sex metra járnlengju sem kemur að utan algjörlega óunnin. En í þeim stól- um þróaðist ný segultækni þannig að hægt er að tengja stólana saman á örmunum með kraftsegli. Suma hlutina sá maður ekki endanlega fyrr en þeir voru settir saman fyrir norðan. Því var oft svolítil spenna í loftinu en allir voru gríðarlega ánægðir með út- komuna og það skiptir mestu. Þetta er stærsta einstaka verkefnið sem ég hef tekið að mér en áður hafði ég hannað allan lausabúnað inn í Guðríðarkirkju sem var líka gríðarlega skemmtilegt. Það var mikill heiður að fá að hanna inn í þetta glæsilega hús og inn í hönnunina tengist líka lista- verk yfir stofnaðila hússins sem ég fékk að gera og stendur í anddyrinu. Þetta er hús sem sameinar margt og yfir vetrartímann þegar kalt er í veðri þarf maður ekki að fara inn og út heldur getur fengið sér að borða, kíkt í verslunina sem þarna er og notið við- burða, allt á sama stað,“ segir Reynir. Hannað inn í heilt hús Reynir Sýrusson í Hofi. Ný lína af barnahúsgögnum varð til í ferlinu, barnastóll, kollar og borð fyrir yngstu kynslóðina. Reynir Sýrusson, húsgagna- hönnuður, sá um hönnun innanstokksmuna í Menningar- húsinu Hofi á Akureyri. Í hönnuninni er lögð áhersla á skírskotun í náttúruna og hönnun hússins. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Tetris bekkur úr smiðju Reynis. PORGY AND BESS® Lögin úr Porgy and Bess eru löngu orðin ódauðleg; Summertime, I got plenty o' nuttin', Bess, You is my woman now, It ain't necessarily so. Stórvirki í flutningi Sinfóníunnar og fjögurra erlendra úrvalssöngvara. Miðasala á www.sinfonia.is og 545 2500 Stórvirki Gershwin-bræðra „Lífið er eins og djass … það er best að impróvísera.“ George Gershwin

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.